Morgunblaðið - 25.04.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 25.04.1978, Síða 1
48 SIÐUR 84. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Skýringa krafizt á árás á farþegaþotu □ ■ □ - Sjá ennfremur bls. 46 og 47 Seoul, 24. apríl. AP. Reuter. FLESTIR farþega kóresku farþegaþotunnar sem sovézk herþota skaut á og neydd var til að lenda í heimskautahér- uðum Sovétríkjanna um helgina komu aftur til Seoul og Tokyo í dag og jafnframt lögðu Bandaríkjamenn hart að Rússum að veita nánari upplýsingar um atburðinn og flugstjóra og siglingafræðing flugvélarinnar sem þeir kyrrsettu. flugvél kóreska flugfélagsins flutti hina farþegana — sem voru aðal- lega Japanir og Kóreumenn — til Framhald á bls. 30 Farþegi f kóresku farþegaþotunni sem var neydd til að lenda í Sovétríkjunum tók þessa mynd af orrustuþotu sovézka flughersins af gerðinni Sukhoi 15 skömmu áður en rússneska þotan skaut á farþegaþotuna. Aðstoðarflugstjóri farþegaþot- unnar sagði að áhöfnin hefði enga viðvörun fengið frá sovézku herþot- unni sem skaut á hana með þeim afleiðingum að tveir farþegar biðu bana og 10 særðust. Þó þakkaði Park Chung Hee forseti sovézkum stjórnvöldum í dag fyrir að sleppa farþegunum og 11 af áhöfninni og bað þau að sleppa einnig aðstoðar- flugstjóranum og siglingafræðingn- um. Flugvél frá flugfélaginu Pan American flutti þá 95 farþega sem af lifðu og 11 af 13 manna áhöfn flugvélarinnar frá Murmansk til Helsinki í gær. Þrír farþeganna kusu að verða eftir í Evrópu og Ræningjar Aldo Moro se tj a ný j a úr slitakos ti Róm, 24. apríl. AP. Reuter. RÆNINGJAR Aldo Moros íyrrverandi forsætisráðherra settu nýja úrslitakosti í dag og kröfðust þess að ríkisstjórnin sleppti 13 hryðjuverkamönnum úr fangelsi til þess að bjarga lífi hans. Ög stjórnin er grátbeðin í bréfi, sem virðist skrifað með hendi Moros, að láta undan og á það er lögð áherzla að „um sekúndur fremur en mínútur“ sé að tefla. En í tilkynningu frá ríkisstjórninni er kröfunni vísað á bug og hún sögð „óaðgengiieg“. Stjórnin ítrekaði að loknum þriggja tíma fundi samstarfs- nefndar ráðuneyta um öryggismál þá stefnu sína að semja alls ekki við ræningja. I yfirlýsingu, sem nefndin birti, sagði að þess sæjust engin merki á því sem ræningjarn- ir hefðu látið frá sér heyra að þeir Cy Vance vongóður um Cruise Washington, 24. apríl. AP. CYRUS Vance, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur skýrt írá því að eftir Moskvu- ferð sína að dregið hafi úr andstöðu Rússa gegn því að Bandaríkjamenn veiti öðrum Nato-ríkjum upplýsingar um Cruise-eldflaugar. Önnur helztu mál eru í megin- atriðum óleyst eftir ferðina að því er Vance tjáði fulltrúum Nato-landa í London á heimleið- inni og enginn nýr samningur um takmörkun kjarnorkuvopna verður gerður fyrr en ágreining- urinn er leystur. Vance er þó ánægður með að nokkuð þokaði 'í átt að nýjum samningi, en hann óttast að viðræður Bandaríkjamanna og Rússa komist í hættu ef skýrt er frá of mörgum einstökum atrið- ætluðu raunverulega að skila Moro. Það væri alkunna að stjórn- in gæti ekki fallist á skipti með fanga þar sem slíkt beindist gegn frelsi allra og lögum lýðveldisins. Loks segir í tilkynningunni að þetta mat stjórnarinnar sé í samræmi við afstöðu þingsins. Orðsendingin með úrslita- kostunum var send til nokkurra blaða, sem í höfðu hringt menn sem sögðu ekki til sín, og þar er því hótað að Moro verði myrtur ef neitað verði að fallast á fanga- skiptin. Með þessari orðsendingu hafa ræningjarnir í fyrsta skipti nákvæmlega greint frá skilyrðum þeim sem þeir setja, en þeir settu engan tímafrest eins og í tilkynn- ingu sinni á fimmtudaginn. Seinna birti kvöldblaðið Vita í Róm bréf sem ekki virðist fara á milli mála að Moro hafl skrifað og fannst samkvæmt bendingu ónafngreinds manns sem hringdi til blaðsins. í bréfinu eru helztu leiðtogar kristilegra demókrata taldir upp, þar á meðal Giulio Andreotti forsætisráðherra, og þeir hvattir til að láta kenningar lönd og leið og fallast á skiptin. Moro ræðst harðlega á flokks- bræður sina, gagnrýnir þá fyrir að hafa ekki énn fallizt á fangaskipti og segist ekki vilja neinn fulltrúa ítalska ríkisins við útför sína, aðeins þá sem hafi óskað honum velfarnaðar og séu verðugir þess að mæta. Þetta er sjötta bréfið sem hefur borizt frá Moro síðan honum var rænt 16. marz og er skrifað óstyrkri hendi. Moro segir að verið sé að endurvekja dauðarefsingu á Italíu og bætir við: „Ég get ekki unað þessum óréttláta og van- þakkláta dómi kristilegra Framhald á bls. 30 Giscard neitar frétt um sprengju París, 24. apríl. AP. TALSMAÐUR Valery Giscard d’Estaings Frakklandsforseta neitaði því í dag að Frakkar hefðu sprengt nifteinda- sprengju í tilraunaskyni og sagði að engar slfkar tilraunir væru ráðgerðar. Blaðið France-Soir hefur hald- ið því fram að tilraun hafi verið gerð með franska nifteinda- sprengju á kóraleyjunni Muru- roa á Suður-Kyrrahafi. Blaðið hafði eftir „háttsettum yfir- manni" að enn mundu þrjú eða fjögur ár líða þar til Frakkar gætu teflt fram nifteinda- sprengju. Franskir embættismenn hafa þar til í dag neitað að staðfesta fréttina, bera hana til baka eða segja álit á henni samkvæmt gamalli franskri reglu þess efnis að veita engar upplýsingar um kjarnorkutilraunir. Sagt var að Yvon Bourges landvarnaráð- herra hefði sagt varnamála- nefnd þingsins að fréttina „ætti ekki að taka alvarlega". Samkomulagum lausn í Líbanon Bíirút. 24. apríl. Reutcr. AP. ELIAS Sarkis forseti hóf í dag viðræður um myndun nýrrar stjórnar í Líbanon í kjölfar samkomulags leiðtoga kristinna manna og múhameðstrúarmanna um að endir verði bundinn á Mannfjöldi fyrir utan heimiii Aido Moros þegar fréttist í fyrradag að kristilegir demókratar hefðu linazt í þeirri afstöðu sinni að neita að semja við ræningja Moros rúmum sólarhring eftir að fresturinn sem ræningjarnir settu rann út starfsemi palestínskra skæruliða og að vopnaðar sveitir verði leystar upp. Stjórnmálasérfræðingar telja ólfklegt að samkomulaginu verði hrundið í framkvæmd á næstunni en telja það mikilvæga forsendu þjóðarsætta sem ný ríkisstjórn geti unnið að. Líbanskir vinstrimenn höfnuðu samkomulaginu í kvöld og óttast er að afstaða þeirra geti grafið undan samkomulaginu. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum skipar Sarkis nýjan forsæt- isráðherra. Miklar líkur eru taldar á því að Selmin A1 Hoss forsætis- ráðherra stjórnar átta sérfræðinga sem sagði af sér á miðvikudaginn verði beðinn að mynda nýja stjórn atvinnustjórnmálamanna. Stjórn Hoss sagði af sér þar sem hún sætti harðri gagnrýni hægrimanna fyrir að beita sýrlenzkum friðar- gæzlumönnum til að bæla niður óeirðir í Beirút fyrr í mánuðinum. Samkvæmt samkomulaginu eru yfirvöld hvött til að binda enda á hernaðaraðgerðir Palestínumanna á öllu líbönsku yfirráðasvæði og banna þeim að bera vopn. Einnig er mælt með því að herinn verði endurskipulagður og hvatt til þess að ísraelska hernámsliðið verði tafarlaust flutt frá Suður-Líbanon.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.