Morgunblaðið - 27.04.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1978
3
Hvalvík í
Ólafsvík
Ólafsvík 26. apríl
FLUTNINGASKIPIÐ Hvalvík los-
ar hér í dag 4-500 tonn af salti.
Hvalvík er eitt stærsta skip sem
hér hefur lagzt að bryggju, en
skipið er yfir 3000 brúttólestir og
102 metrar á lengd.
Togarinn.Lárus Sveinsson land-
aði hér á mánudag 105 lestum af
þorski. Reytingsafli hefur verið
hjá bátunum hér að undanförnu.
Helgi
Pétur Thorsteinsson
/
Sendiherra í Irak
Pétur Thorsteinsson afhenti
Ahmed Hassan Al-Bakr forseta
íraks, hinn 20. apríl, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands í írak
með aðsetri í Reykjavík.
Pólýfónkórinn
heldur áfram
PÓLÝFÓNKÓRINN mun hefja
æfingar síðari hluta september-
mánaðar og verður Ingólfur Guð-
brandsson stjórnandi kórsins segir
í frétt frá stjórn kórsins, sem Mbl.
barst í gær. Segir þar að á fundi
kórsins 24. apríl hafi verið ákveðið
að stefna að því að hefja starf
kórsins að nýju á næsta hausti og
hefur verið rætt um að flytja
Jólaóratoríu Bachs í desember.
Vöruskiptajöfnuður:
Ohagstæður
í marz um
4 milljarða
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
við útlönd varð óhagstæður í marz
um tæpa fjóra milljarða króna, en
í mánuðinum nam útflutningur 9,8
milljörðum en innflutningur 13,8
milljörðum.
Vöruskiptajöfnuðurinn janú-
ar-marz er þá óhagstæður um 5,1
milljarð, en þessa mánuði fluttum
við út vörur fyrir 29,8 milljarða, en
inn fyrir 34,9 milljarða króna.
Ingiberg sýn-
ir í Gallerí
Sudurgötu 7
S.L. LAUGARDAG opnaði Ingi-
berg Magnússon sýningu í Gallerí
Suðurgötu 7. Er þetta önnur
einkasýning Ingibergs, sú fyrri var
í Gallerí Súm 1972. A yfirstand-
andi sýningu Ingibergs eru 20
myndir, grafík og teikningar.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 16-22 og 14-22 um helgar, en
sýningunni lýkur 7. maí n.k.
Gunnar Böðvarsson
Þrjú kórverk sem hafa ekki
heyrzt áður hér á landi
Marteinn H. Friðriksson,
stjórnandi Söngsveitarinnar
Fflharmóníu.
Margrét Halldórsdóttir
Sigursveinn D. Kristinsson
tónskáld.
Söngsveitin Fílharmónía á sinfóníutónleikum:
Söngsveitin Fflharmónía ásamt sinfóníuhljómsveitinni á æfingu í Háskólabíói í gær.
Á sinfóníuhljómleikum í
kvöld flytur Söngsveitin Ffl-
harmónía þrjú kórverk, sem
ekki hafa áður heyrzt hér á
landi. Fyrsta verkið á efnis-
skránni er eftir Sigursvein D.
Kristinsson. Nefnist það
„Greniskógurinn“ og er samið
við texta samnefnds ljóðs Step-
hans G. Stephanssonar, en
einsöngshiutverkið fyrir bari-
ton-rödd syngur Halldór Vil-
helmsson. Þá verður fiutt „Te
Deum" eftir Zoltán Kodály, og
taka fjórir einsöngvarar þátt í
flutningi þess verks, þau Sieg-
linde Kahman, Ruth Magnús-
son, Halldór Vilhelmsson og
Sigurður Björnsson. Loks verð-
ur flutt Sigurljóð eftir Johann-
es Brahms, en það er viðamesta
verkið á þessum tónleikum.
Verkið skiptist í þrjá kafla og
er samið fyrir átta raddir,
bariton og hljómsveit.
„Það er stef textans, sem í
raun og veru ræður þessari
sköpun," sagði Sigursveinn D.
Kristinsson tónskáld þegar við
hittum hann á æfingu í Há-
skóiabíói í gær og spurðum
hann um „Greniskóginn."
„Andstæður eru miklar í þess-
um texta og þær endurspeglast
svo í tónverkinu. Annars vegar
er auðnin, sveilin og fúafenin,
en hins vegar greniskógarhlíð-
in með sitt si'græna barr, og í
verkinu hef ég reynt að bregða
upp þessum myndum og túlka
þær í tónum," sagði Sigur-
sveinn. „Já, þetta er samið
fyrir Fflharmóníuna, að frum-
kvæði Tónskáldasjóðs Ríkisút-
varpsins, sem veitti styrk til
þess. Styrknum fylgdu engar
kvaðir, þannig að ég hafði
algjörlega frjálsar hendur, en
Berta Eiðsdóttir Rail (t.v.) og Sigurlaug Björnsdóttir.
verkið er samið á árinu 1975.
Samstarfið við kórinn og sin-
fóníuna hefur verið sérstakiega
ánægjulegt, ekki sízt við Mar
tein II. Friðriksson, stjórnanda
kórsins," sagði Sigursveinn D.
Kristinsson.
Vjð höfðum tal af ?—Marteini
H. F’riðrikssyni, sem hefur haft
kórstjórn Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu með höndum undan-
farna tvo vetur, og spurðum
hann um starfsemi kórsins og
undirbúning þessara tónleika.
„Öll þessi verk eru stór í
sniðum og gera mjög miklar
kröfur til kórsins, en það er
kannski einmitt það, sem gerir
það að verkum hvað starfið
hefur verið ánægjulegt. Svona
flutningur væri ekki mögulegur
nema vegna mikils áhuga kórfé-
laga og svo af því að fjárhags-
legur grundvöllur þessarar
starfsemi er fyrir hendi. Það er
Sinfóníuhljómsveitin, sem rekur
kórinn, leggur til fé til radd-
þjálfunar og kennslu í nótna-
lestri. Hvort tveggja eru nauð-
synlegir þættir í starfseminni
og samstarfið milli kórsins og
hljómsveitarinnar er afbragðs-
gott,“ sagði Marteinn. „Já, svona
uppfærsla er mikið fyrirtæki, en
það er erfitt að slá tölu á það
hvað kostnaðurinn er mikill.
Söngvararnir fá enga peninga
fyrir sitt framlag, en samt fer
ekki hjá því að raunverulegur
kostnaður við svona fyrirtæki
hleypur á milljónum,“ sagði
Marteinn H. Friðriksson.
Við áttum tal við nokkra
kórfélaga, en í Söngsveitinni
Filharmóníu eru nú um 120
manns. Þar af hafa fimm
félagar verið með frá upphafi,
en kórinn stofnaði Róbert A.
Ottósson árið 1959.
Margrét Halldórsdóttir er
ein þeirra, sem sungið hefur
óslitið með Fílharmóníunni síð-
an, og sagði hún m.a.: „Kórinn
var fámennari í upphafi, en það
hefur fjölgað í honum eftir því
sem hann hefur færzt meira í
fang. Þessi verk, sem við flytj-
um nú, eru að mínu mati mjög
sérstæð og falleg. Auðvitað fer
mikill tími í þetta starf. Við
æfum reglulega tvisvar í viku,
en maður gerir þetta sér til
ánægju og andlegrar heilsubót-
ar.“
Gunnar Böðvarsson hefur
verið þrjú ár í kórnum, og við
spurðum hann m.a. um félagslíf
kórfélaga: „Jú, það er óhætt að
segja að þessu fylgi töluvert
félagslíf. Við erum til dæmis
alloft með kaffi-æfingar, sem
við nefnum svo, og innan
kórsins er starfandi skemmti-
nefnd. Tónleikarnir verða énd-
urteknir á laugardaginn, og að
þeim loknum verðum við með
kaffisamsæti fyrir þá, sem
starfað hafa að undirbúningn-
um, og svo höldum við upp á það
að þessum áfanga er lokið með
balli á laugardagskvöldið. Nei,
ég hafði ekki sungið áður en ég
byrjaði í Söngsveitinni Fílhar-
móníu, — þetta er ágætt að því
leyti að maður hrellir engan
þegar svo margir syngja saman,
en ástæðan fyrir því að ég er i
kórnum er auðvitað sú að ég hef
gaman af að syngja," sagði
Gunnar.
Loks hittum við að máli
Sigurlaugu Björnsdóttur og
Bertu Eiðsdóttur Rail. Sigur-
laug er reyndar systir Sigurðar
Björnssonar óperusöngvara og
framkvæmdastjóra Sinfóníu-
hljómsveitar Islands, og við
Framhald á bls. 32.