Morgunblaðið - 27.04.1978, Síða 13

Morgunblaðið - 27.04.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRIL 1978 13 Kríngum hitt og þetta ___________________________________________________________________________________________________________y Úr brúðusafni Albrechts Rosers> Gústaf og félagar hans. bæ Slúðrið eftir Flosa Ólafsson, leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir, leikmynd og búningar verk Messí- önnu Tómasdóttur, tónlist eftir Leif Þórarinsson. Þetta unga fólk er duglegt og við nám þess hefur verið lögð alúð. Ég dáist að árangri þess. Sýningin var góð frá leikrænu sjónarmiði og bún- ingarnir frumlegir. Hugmynd Flosa er snjöll þótt hún sé að miklu leyti frá H.C. Andersen, en í heild sinni þótti mér verkið of slakt. Gamansemin var of alvöru^ gefin og alvaran of gamansöm. I verkinu voru þó ljósir punktar, einkum í lýsingu frúnna í heilsu- gæslunni sem nærast eins og margir á sögum af óförum ann- arra. Einnig var ákæran á dóms- völd undir lokin með þeim hætti að vekur til umhugsunar. Sennilega ætti Flosi að snúa sér að alvarlegri leikritagerð og gleyma því um stund að hann er brandarakarl og skeytasendir. Albrecht Roser kom frá Þýska- landi og sýndi Gústaf og félaga hans í hátiðasal Hagaskóla. Hon- um til aðstoðar var Ingrid Höfer. Roser er meistari brúðuleikhúss- ins, hreif áhorfendur með brúðum sínum og mannlegri afstöðu til lífsins. Sá heimur sem hann túlkar er einkum veröld trúða og minnist ég þess varla að hafa séð einn mann tjá hug sinn af jafn mikilli leikni og sannfæringakrafti. Hann sýndi okkur hve brúðuleikhúsið er áhrifamikill miðill án alls hávaða, sló aðeins á hina lágværu og fíngerðari strengi. Margir munu nú gera sér ljóst að íslenskt brúðuleikhús er orðinn merkur þáttur í leiklistarlífinu og mun heimsókn Rosers verða því hvatn- ing til dáða. Hann er góður fulltrúi þess besta í evrópskri list. Alþjóöleg bílasýning í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa ♦ BÍLAHAPPDRÆTTI — vinningur MAZDA 323 GESTUR DAGSINS hlýtur utanlandsferó með Samvinnuferóum GESTAGETRAUN — vinningur Casio tölvuúr TUGÞÚSUNDASTI hver gestur hlýtur Pioneer segulbandstæki í bílinn frá Karnabæ opió f rá 17— til 22— nema laugard. og sunnud. f rá 14— til 22— Símar sýningarstjórnar: 83596 og 83567

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.