Morgunblaðið - 27.04.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1978
21
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ áttu
íslendingar í höggi við A-þjóð-
verja í untanúrslitum Ólympíu-
keppninnar í Telex-skák. Keppn-
in hófst klukkan fimm siðdegis í
hinu nýja húsnæði Skáksam-
bands íslands við Laugaveg.
Síðustu skákunum lauk síðan
ekki fyrr en rúmlega þrjú um
nóttina, þannig að keppnin stóð
yfir f tfu klukkustundir sam-
fleytt.
Islenzka sveitin hafði gert sér
góðar vonir um sigur f keppn-
inni. því að áður höfðu þeir lagt
að velli Englendinga og Finna.
Austur-Þjóðverjar höfðu áður
aðeins sigrað Svfa, að vísu
töluvert sannfærandi.
Úrslit einstakra skáka á
þriðjudaginn urðu þessi>
Friðrik Olafsson
— Uhlmann 0—1
Guðmundur Sigurjónsson
- Malich 1-0
Ingi R. Jóhannsson
— Knaak 0—1
Helgi Ólafsson
- Vogt 1-0
Haukur Angantýsson
— Bönsch fer í dóm
Margeir Pétursson
— Liebert 1—0
Ingvar Ásmundsson
— Hesse 0—1
Ásgeir Þ. Árnason
— Griinberg 0—1
ísland 3 — A-þýzkaland 4 og
ein skák f dóm.
Eins og sjá má af þessari
upptalningu tefldu báðar þjóðirn-
ar fram sínu sterkasta liði. Að
vísu forfallaðist Jón L. Árnason á
sjöunda borði hjá okkur, en á móti
kom að alþjóðlegi meistarinn
Espig gat heldur ekki teflt. I liði
A-Þjóðverja voru fjórir stór-
meistarar og tveir alþjóðlegir
mejstarar, en við íslendingar
höfðum á að skipa tveimur stór-
meisturum og tveim alþjóðlegum
meisturum.
í byrjun keppninnar leit alls
ekki vel út fyrir okkur. Þeir
Ingvar Ásmundsson og Ásgeir Þ.
Árnason fengu snemma mjög
erfiðar stöður og urðu að lúta í
lægra haldi. Á móti kom að vísu
að Guðmundur Sigurjónsson tefldi
mjög vel gegn Malich og þegar
Þjóðverjinn loksins gafst upp,
hafði staða hans lengi verið töpuð.
Ingi R. Jóhannsson átti í höggi við
stórmeistarann Knaak, sem er í
geysigóðu formi um þessar mund-
ir. Knaak tefldi af miklu öryggi og
þótt Ingi reyndi lengi að klóra í
bakkann varð ekki við neitt ráðið.
Friðriki Ólafssyni, sem hafði
svart, tókst að ná frumkvæðinu
eftir byrjunina í skák sinni við
Uhlmann. Uhlmann varðist þó af
nákvæmni og tókst að halda sínu.
I framhaldinu teygði Friðrik sig
síðan of langt, í stað þess að
einfalda taflið til jafnteflis, og
tapaði.
Byrjendataflmennska stór-
meistarans Vogts gegn Helga
Ólafssyni var mjög vafasöm. Helgi
notfærði sér það af öryggi og vann
án teljandi erfiðleika. Eg undir-
ritaður átti í höggi við alþjóðlega
meistarann Liebert og tókst að fá
góða stöðu upp úr byrjuninni, sem
að ég vann síðan eftir nokkrar
sviptingar. Þá er komið að skák-
inni sem allt veltur á um úrslit
keppninnar, viðureign þeirra
Bönsch og Hauks Angantýssonar.
Haukur jafnaði talið fljótlega og
stuttu síðar lék Þjóðverjinn af sér
skiptamun. Vinningur virtist þá
blasa við Hauki, en svo virðist sem
honum hafi orðið á mistök í
úrvinnslu og þegar skákin fór í
dóm virtust vinningsmöguleikar
hans í lágmarki. Staðan er þessi:
Séð yíir hluta af keppnissalnunti Frá vinstri, Haukur Angantýsson, Einar S. Einarsson (standandi),
llelgi Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Sigurjónsson og Friðrik Olafsson.
Hvítti Helgi Ólafsson
Svarti Lothar Vogt
Kóngindvcrsk vörn
1. RÍ3 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. g3
- Bg7. 4. Bg2 - (H), 5. (H) -
d6, 6. d4 - Rbd7, 7. Rc3 - e5,
8. e4 — a6,9. Be3 — Rg4,10. Bg5
- f6, 11. Bd2 - c6, 12. b4 -
Kh8,13. Dc2 - exd4,14. Rxdl -
Re5,15. h3 - Rh6,16. Ra4 - c5,
Framhald á bls. 28
Svarti Haukur Angantýsson
Hvítti Uwe Bönsch
I stað þess að leika 51. leik
sínum setti Þjóðverjinn skákina í
dóm. Ef 51. leikur hans verður
Ha8, er ekki að sjá að svartur hafi
neina vinningsmöguleika.
Hugsanlegt er þó að einhver
möguleiki leynist i stöðunni og ef
hann finnst verður hægt að
krefjast vinnings. Ef svo fer að
Hauki verður dæmdur sigur í
skákinni, vinna íslendingar
keppnina vegna hagstæðari stiga.
Vinningsskákir íslendinga tefld-
ust þannig
Hvftti Guðmundur Sigurjónsson
Svarti Dr. Burkhardt Malich
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. RÍ3 - e6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
d6, 6. f4 - Be7, 7. Be3 - 0-0, 8.
Df3 - e5!?, 9. Rf5 - Bxf5, 10.
Þeir Högni Torfason, varaforseti S.í. og Jón Pálsson, t.h.
störfuðu við fjarritann, en flokkur ungra skákmanna sá um að
koma leikjunum til keppenda.
exf5 - Da5, 11. (HH) - e4, 12.
Dh3 - Hc8, 13. Dd4 - Rc6, 14.
Bc4 - Db4,15. Bxf6 - Bxf6,16.
Bb3 - Rd4, 17. Rd5! - Dc5 (17
.. .Hxc2+!?, 18. Kbl!) 18. c3 - a5,
19. Rxf6+ - gxf6, 20. Bxf7+ -
Kg7, 21. Hhel - Rb5, 22. He3 -
Hc7, 23. Be6 - Kh8, 24. Hxe4 -
Df2, 25. a4 - Hg7, 26. De3! -
Dxe3, 27. Hxe3 — Rc7, 28. g3 —
IId8. 29. Hd3 - Re8, 30. Bc4 -
h5,31. h3 - Kh7,32. Hd2 - He7,
33. Be6 - Hg7, 34. Kdl - Hb8,
35. Ke2 — b5, 36. axb5 — Hxb5,
37. Kf3 - a4, 38. g4 - Hgb7, 39.
Bd5 - H7b6. 40. BÍ7 - Rc7, 41.
Hxd6 — Hxb2, 42. Bg6+ og
svartur gafst upp.
Mjött á mununurn
í telexkeppninni
78 stúdentar fá
dóma í Rhódesíu
Salishurv. 26. apríl. AP
EINI SVARTI dómarinn í Rhó-
desíu dæmdi í dag 78 stúdenta f
þriggja mánaða fangelsi skiiorðs-
bundið fyrir þátttöku í mótmæla-
aðgerðum fyrr í vikunni gegn
samkomulaginu sem leiddi til
myndunar bráðabirgðastjórnar
hvítra manna og svartra fyrir
tveimur mánuðum.
Annar stúdent var ákærður
ásamt hinum en kemur fyrir rétt
síðar. Ilann er skyldur dómaran-
um, Ernest Tsomondo.
Stúdentaleiðtogi sagði eftir rétt-
arhöldin að dómarnir væru alvar-
legt áfall fyrir hreyfingu stúdenta
og yllu miklum vonbrigðum. Sam-
kvæmt rhódesískum lögum verða
hinir dæmdu tafarlaust færðir í
fangelsi ef þeir gerast sekir um
svipaðar sakir innan fimm ára.
Nokkrir blakkir stúdentar söfn-
uðust saman fyrir utan dómhúsið
til að, mótmæla dómunum en til
átaka kom ekki. Flestir þeirra 1300
stúdenta sem stunda nám við
háskóla hvítra manna og svartra
mættu ekki í tíma í dag til að
mótmæla dómunum. Hvítir stúd-
entar hafa ekki tekið þátt í
mótmælaaðgerðum svartra stúd-
enta sem hafa staðið í þrjá daga.
Dæmdur fyrir
Bubackárásina
StultRart. 26. apríl. AP.
VESTUR-þýzkur dómstóll dæmdi
í dag í ævilangt fangelsi stjórn-
leysingjann Giinter Sonnenberg
sem var ákærður fyrir að vera
viðriðinn vélbyssuárásina sem
varð Siegfried Buback rfkissak-
sóknara að bana 7. apríl í fyrra.
Sonnenberg var fundinn sekur
um að hafa reynt að myrða tvo
lögreglumenn. Ilann og vinkona
hans, Verena Becker, voru hand-
tekin 3. maí eftir skotbardaga við
lögreglu í smábænum Singen
nálægt svissnesku landamærun-
um.
lingfrú Becker hefur áður
verið dæmd í ævilangt fangelsi
fyrir svipaðar sakir. Réttarhöld
Sonnenbergs fóru fram sérstak-
lega þar sem hann hefur lengi
verið að ná sér af skotsári sem
hann fékk á höfði.
Dómurinn var kveðinn upp í
dómsal hins víggirta Stamm-
heim-fangelsis. Sonnenberg
hrópaði ókvæðisorð að dómaran-
um og var þá leiddur burt.
Nú er loksins komin ný sending af
hinum vidfrægu og dásamlegu
CftarFes cl ffie Jlífz,
snyrtivórum fyrir dömur.
Mikið úrval
Einnig köfum við mikið úrval af
öðrum snyrtivömm,
bæði dýrum og ódýmm.
LAUGAVEGS APOTEK
Snyrtivörudeild