Morgunblaðið - 27.04.1978, Page 45

Morgunblaðið - 27.04.1978, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRIL 1978 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI MiuvwnLTK-ass'D* meö sanni segja að kommúnism- inn hefur aldrei getað brauðfætt fólk almennilega. Sagan af Krúsjeff hefði sennilega ekki orðið löng ef hann sem ritari flokksins fyrir stríð hefði neitað Stalín um að fara og skipa verkamönnunum í Moskvu að auka vinnuafköstin um 10% án þess að þeir fengju svo mikið sem eina rúblu fyrir það. Hefði þeim þó ekki veitt af kauphækkun, því þeir voru eins og Krúsjeff sagði: „Kjör þeirra voru ólýsanleg, þeir voru hungraði, klæðlitlir og kvaldir af veggjalús." Þetta hefðu atvinnulausu verka- mennirnir á Vesturlöndum þurft að vita þegar menningarvitarnir og útsendarar Stalíns voru að syngja lofsönginn um dyggð verkamannanna í Rússlandi sem ekki gengu atvinnulausir. Hefðu verkamennirnir vitað það að atvinnuleysisstyrkurinn þeirra var miklu hærri en kaupið í Rússlandi þá hefðu þeir áreiðanlega sagt stofukommúnistum að éta það sem úti frysi. Þá hefði hann Þórður minn í „Stalín er ekki hér“ ekki verið að taka af kaupinu sínu til að styrkja Þjóðviljann ogjítið hefði hann þá gefið fyrir lofkvæðin um Stalín. Eg segi nú eins og Pravda ah það er ekki hægt að treysta Evrópu- kommúnistunum, því þeir hafa dáðst of mikið og of lengi varið glæpina sem framdir hafa verið í nafni kommúnismans til þess að nokkur frjáls maður ætti að fela þeim alla sína forsjá. Það eru alltof mörg ár sem marx-lenin-stalínisminn hefur getað kvalið 366 milljónir manna sem allt sitt líf verða að lifa í skugganum af fangabúðum, geðveikrahælum og KGB og geta enga björg sér veitt. Hvernig fer fyrir þeim mönnum í Austurblokk- inni sem leyfa sér að fara fram á smá kauphækkun og bætt vinnu- skilyrði? Hvar eru frjálsir lista- menn og hvar finnst málfrelsi og ferðafrelsi? Þeim sem leggja blessun sína yfir svona stjórnaraðgerðir, verða þeir nokkuð betri? Þeir vita að vísu að það er gott að vera í Nató því Natóríkin ráðast ekki hvert á annað eins og gerist í Varsjár- bandalaginu, en það er meira sem maður verður að hafa sér til bjargar. Allir eiga að hafa mál- frelsi, tjáningarfrelsi og athafna- frelsi, því maðurinn má ekki verða réttindalaus lýður, sem á að sitja og standa eftir fyrirskipun ein- hvers Stalíns. IIúsmóðir.“ Þessir hringdu . . . • Kynna ráðherraefni? Maður nokkur sem sagðist ekki vilja segja til nafns kvaðst hafa hlýtt á útvarpserindi fyrir skömmu þar sem því var m.a. varpað fram að flokkarnir kynntu ráðherraefni sín fyrir kosningar. — Mér fannst þetta athyglisverð tillaga sem fram kom í þessu útvarpserindi og á margan hátt nýstárleg, en kannski eru á henni einhvers konar vankantar, sem valda því að menn geta ekki framkvæmt hana. Væri það samt ekki þægilegra að vita það með vissu hverjir yrðu hugsanlega ráðherrar hvers flokks strax og atkvæðatölur lægju fyrir þ.e. að þá væri hægt að velta því fyrir sér með nokkurri vissu hverjir færu með hvern málaflokk um sig í næstu ríkisstjórn. Þetta er kannski eins og ég sagði áðan ofur einfalt svona að segja það og getá verið einhverjar hindranir sem koma í veg fyrir ða þetta sé framkvæmanlegt, en vissulega væri gaman að heyra fleiri ræða SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á Skákþingi Bandaríkjanna 1977, sem fór fram í haust, kom þessi staða upp í skák þeirra Walthers Browne, sem hafði hvítt og átti leik, og Roberts Byrne. 22. Rb5! - cxb5, 23. Dc3+ - Rcf), (Ef 23... Dxc6 þá 24. Hxb8++) 24. e5 — Dc7, 25. e6! og svartur gafst upp. Browne varð Bandaríkja- meistari þriðja árið í röð, hlaut 9 v. af 13 mörulegum. Byrne varð annar með 8‘/2 v. Þriðja sætinu deildu þeir Reshevsky og Grefe, hlutu báðir 7!/2 v. þessi mál og fá að sjá álit stjórnmálamanna og flokkanna á þessum hugmyndum. • Snör viðbrögð Að lokum vill Velvakandi þakka lesendum fyrir skjót viðbrögð varðandi fyrirspurn frá konu hjá Velvakanda s.l. laugardag þar sem hún spurðist fyrir um höfund kvæðis er hún vitnaði til. Hafa þegar verið birt svör við þessu, en fleiri hafa sent bréf sem nú eru að berast og þakkar Velvakandi viðbrögðin. matarkaup _LAMB f ý Sf.A, * s \ % t**-', II ......—- - /v- gfg Nýtt hvalkjöt ........................ 530 kr. kg. Reykt hvalkjöt....................... 690 kr. kg. Kálfa læri ........................... 930 kr. kg. Kálfa hryggir ........................ 650 kr. kg. Kálfa kótilettur ..................... 930 kr. kg. Folalda saltkjöt .................... 690 kr. kg. Reykt folaldakjöt .................... 790 kr. kg. Folalda snitchel ................... 2.250 kr. kg. Folalda gullasch ................... 1.960 kr. kg. Nýr hamflettur svartfugl ........... 300 kr. stk. Ný svínarif .......................... 735 kr. kg. Söltuð rúllupylsa .................... 950 kr. kg. Reykt rúllupylsa.................... 1.050 kr. kg. Kindahakk .......................... 1.325 kr. kg. Folaldahakk .......................... 815 kr. kg. Ærhakk ............................... 925 kr. kg. Kálfahakk ........................... 1120 kr. kg. Svínhakk ........................... 2.080 kr. kg. Nautahakk ......................... 1.945 kr. kg. 1/2 svínaskrokkar tilbúnir í frystirinn ............. kr. kg. aöeins 1.290- V2 folaldaskrokkar tilbúnir í fyrstirinn ....................... kr. kg. 790- Opid föstudag til kl. 7. Opið laugardaga til kl. 12. Allt álegg ávallt í miklu úrvali og góði súrmaturinn: Sviðasulta — Svínasulta — Hrútspungar — Lundabaggi — Hvalur — Bringukollar — Slátur — Urvals hákarl — reyktur Mývatns- silungur — Úrvals síld. CSnJ^TTOífflDCÐSTJ^íSDKÍI LAUQALÆK 2. •íml 3BOSO

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.