Morgunblaðið - 27.04.1978, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1978
47
.
Þossi myndaröð lýsir hinum æsispennandi lokasekúndum í
úrslitaleik Vals og Víkings á dögunum. Leiktíma er lokið og
Víkingur á eftir að taka aukakast. Víkingarnir stilla sér upp en
Valsmenn mynda varnarvegg. Skotið ríður af en boltinn fór í
varnarvegginn og á neðstu myndinni sjást Valsmenn stíga
trylltan sigurdans.
Koma Víkingar
fram hefndum?
NÚ FARA endalokin að nálgast á handknattleiksvertíðinni og í kvöld
fer fram í Laugardalshöllinni næstsíðasti stórleikur tímabilsins.
Islandsmeistarar Vals leika gegn Víkingi í undanúrslitum
bikarkeppni HSÍ. Mönnum er enn í fersku minni sú hörkubarátta,
sem þessi lið háðu f úrslitaleik íslandsmótsins og nú fá Víkingar gullið
tækifæri til að koma fram hefndum og sýna hvað í þeim býr.
VALSMENN eiga tækifæri á að
sigra tvöfalt, það er að segja bæði
> Islandsmótinu og í bikarkeppn-
inni, en það hefur aðeins einu liði
tekist, FH árið 1976. Leikir Vals og
Víkings hafa ávallt verið miklir
baráttuleikir og allsendis ómögu-
legt er að spá um úrslit í þeim.
Víst er, að í kvöld verður ekkert
gefið eftir og áhorfendur fá að sjá
spennandi og harðan leik. Jón H.
Karlsson í Val sagði, að Valsmenn
stefndu að því að hafa Víkinga
Breiöablik
með sundmót
SUNDDEILD Breiðabliks er 10
ára um þessar mundir og í tilefni
afmælisins efnir deildín til sund-
móts í Sundhöll Reykjavíkur 7.
maí n.k. og hefst mótið klukkan 15.
Keppt verður í 13 greinum og þarf
að senda þátttökutilkynningar
fyrir 29. apríl í pósthólf 150 í
Kópavogi eða til Grétars M.
Sigurðssonar, Þinghólsbraut 53 í
Kópavogi.
HM
FH-ingarnir seigir
þegar mest á ríður
FH-INGAR eru enn einu sinni í úrslitum bikarkeppni IISÍ. í gærkvöldi lögðu þeir Hauka að velli í
æsispennandi leik og þurfti framlengingu til að fá fram úrslit. FH-liðið hefur ekki verið upp á sitt bezta
í vetur, en þegar mest á ríður er FH-seiglan mikil og þó liðið væri undir lengst af leiknum á móti Ilaukum
gáfust leikmenn liðsins aldrei upp og yfirgáfu fjalirnar sem sigurvegarar. Urslit leiksins urðu 23.22 fyrir
FH, en að venjulegum leiktíma loknum var staðan 21.21.
Síðustu mínútur þessa leiks voru
æsispennandi og mikið um að vera
inni á vellinum. I fyrri hluta
framlengingarinnar skoraði Þórir
Gíslason eina markið og Haukar
voru yfir 22:21, en FH-ingar byrjuðu
framlenginguna með einum manni
minna inn á. I byrjun seinni hluta
framlengingarinnar var dæmd töf á
Haukana og Guðmundur Magnússon
jafnaði fyrir FH. Þá var aðeins ein
mínúta eftir af leiknum og sumir
voru farnir að reikna með vítakasts-
keppni, en svo varð aldeilis ekki og
mikið átti eftir að gerast.
Andrés Kristjánsson fékk víta-
kast, en meiddist í látunum. Þórir
framkvæmdi vítakastið, en brást
illilega bogalistin eða öllu heldur:
Sverrir Kristinsson varði mjög vel.
Næst á dagskrá var að Stefáni
Jónssyni var vikið af velli og
FH-ingar sneru vörn í sókn. FH fær
víti og Geir Hallsteinsson fékk það
erfiða hlutverk að skila knettinum í
netið. Það tókst og hálf mínúta eftir
af leinum. FH-ingar börðust vel og
brutu grimmt á Haukunum, Geir var
rekinn af velli, en allt kom fyrir ekki,
Haukum tókst ekki að jafna á ný.
FH sigraði 23:22 og enn einu sinni er
liðið í úrslitum bikarkeppninnar,
þessarar einkakeppni FH-inga.
Enn einu sinni tókst Haukum að
klúðra þegar verðlaun blöstu við, enn
einu sinni mega þeir horfa upp á að
erkióvinurinn úr Firðinum á mögu-
leika á Evrópukeppni. Haukarnir
virkuðu sem betri heild í þessum
leik, vörn liðsins var götótt og
einstaklingar í FH-liðinu erfiðir við
að eiga. Beztu menn Hauka í
leiknum voru þeir Elías Jónasson,
Sigurgeir Marteinsson og Þórir
Gíslason, sem þó brást illa í lokin.
FH-ingar eru óútreiknanlegir, en
að þessu sinni léku nokkrir leik-
manna liðsins betur en í langan
tíma. Það hafði líka mikið að segja
að markvarzla liðsins var góð.
Sverrir Kristinsson byrjaði vel og
kom síðan inn á í lokin til að verja
vítakastið frá Þóri. Magnús Ólafsson
kom inn á þegar 15 mínútur voru
eftir af venjulegum leiktíma og án
þess að spyrja kóng eða prest leyfis
tjaldaði hann hreinlega í markinu,
varði mjög vel hin erfiðustu skot.
Janus, Geir, Guðmundur Árni,
Guðmundur Magnússon og Val-
garður sýndu einnig allir góðan leik
og baráttan var mikil í FH.
Mörk FH. Geir Hallsteinsson 9
(5v), Janus Guðlaugsson 5,
Guðmundur Árni Stefánsson 6 (lv),
Valgarður Valgarðsson 3.
Mörk Ilauka. Þórir Gíslason 9
(2v), Sigurgeir Marteinsson 3, Elías
Jónasson 3, Stefán Jónsson 2, Andrés
Kristjánsson 2, Sigurður Aðalsteins-
son 1, Árni Hermannsson 1. Ólafur
Jóhannesson 1. -áij.
FRAMMEÐ PALM-
ANN í HÖNDUNUM
FRAMSTÚLKURNAR standa með pálmann í höndunum eftir að þær unnu FH 11.9 í fyrri
úrslitaleik liðanna í 1. deild kvenna í handknattleik. Leikurinn fór fram í Hafnarfirði í
gærkvöldi og ætti Fram einnig að hafa betur í seinni leiknum, sem fer fram í Laugardalshöll
á föstudagskvöld.
Leikurinn í gærkvöldi var vel leikinn af báðum liðum, með betri kvennaleikjum, sem sést
hafa á keppnistímabilinu. FH byrjaði betur og komst í 3.0, en Framstúlkurnar sóttu sig og
í leikhléi var staðan 7.5 fyrir FH. I seinni hálfleiknum dapraðist Hafnfirðingunum flugið, Fram
náði að jafna og skoraði síðan tvö sfðustu mörk leiksins. Vann verðskuldað 11.9. Munurinn
hefði.þó ekki þurft að vera tvö mörk, en Kristjana Aradóttir misnotaði vítakast í lok leiksins.
''IRK "
]\1ÖRK FRAM. Oddný 6, Guðríður 4, Steinunn 1, Jóhanna 1.
MORK FH. Sigrún 3, Svanhvít 2, Kristjana 2, Katrín 1, Anna 1.
- áij.
Enska
knatt-
spyrnan
BOLTON sigraði Biackburn í 2. deild í
gærkvöldi 1.0 og tryggði sér þar moð rótt
til þátttöku í 1. dcild á na’sta kcppnistima-
bili. Aður halði Southamton trysvit sór s«eti
í 1. deild. Tottenham þarf citt stÍK úr síðasta
leik sínum til þess að komast líka í 1. deild.
ÚRSLITIN ( BREZKll
KNATTSPYRNUNNI í GÆRKVÖLDI
URÐU ÞESSL
l.DEILI).
titillausa í vetur, og að hann
efaðist ekki um sigur Vals í
leiknum. Þeirra trompspil væri
ekki enn komið út, en því yrði að
öllum líkindum kastað í kvöld.
Jón Sigurðsson í Víkingi sagði
að Víkingar kæmu til leiksins með
það eitt í huga að sigra, þeir ættu
Valsmönnum grátt að gjalda og nú
væri það auga fyrir auga og tönn
fyrir tönn. Ein breyting verður á
Víkingsliðinu frá síðasta leik.
Ólafur Einarsson fer út en inn
kemur hinn bráðefnilegi unglinga-
landsliðsmaður Sigurður Gunn-
arsson. — þr.
Aston Villa — Leeds 3.1
Leicester — Chelsea 0,2
Newcastle - - Norwich 2,2
2. DEILD*
Blaekburn - - Bolton 0.1
Stoke — Oldham 3i0
Tottenham — IIull 1.0
ÚRVALSDEILDIN ( SKOTLANDI,
Dundee Utd. — Ayr Utd. 3«1
Partick Thistle — St. Mirren 5i0
Clydebank — Celtic 14
Með þessum si«ri er Chelsea svo Kott sem
sloppið við íall. l>á má telja víst að jafntefli
Celtic komi í vck ívrir að félagið leiki í
Kvrópukoppni á næsta tímabili.
• Hastia frá Korsíku ok PSV Eindhoven
skildu jöín án þess að mark væri skorað í
fyrri leik liðanna í úrslitum UEFA keppn-
innar í knattspyrnu í gærkvöldi. Franska
liðið valdi að leika heimaieik sinn á Korsíku
til að gefa trúföstum áhanicendum sínum
tækifæri til að sjá liðið í úrslitunum.
Aðstæður voru væt?ast sagt hörmulcRar
þe^ar leikurinn hófst. völlurinn eitt svað
eftir miklar rÍKninuar ok enn jókst úrhellið
eftir því sem leið á leikinn. Leikmenn
beKKja liða áttu því í hinum mestu
erfiðleikum með að fóta sig á vellinum og
gátu því lítið sýnt af snilli sinni.
• Pólland vann Búlgaríu í vináttulands-
leik í Varsjá í gærkvöldi. Eina mark
leiksins gerði Lato á 60. minútu leiksins. en
Pólverjar. sem léku þarna með allar sínar
IIM-stjörnur. fóru illa að ráði sínu fyrir
framan mark Búlgara. 30 þúsund áhorfend*
ur sáu leikinn.
• Austurl>ýzkaland er komið í úrslit
Evrópukeppni landsliða 21 árs og yngri. í
gærkvöldi unnu Þjóðverjarnir Búlgara 3*1,
en fyrri leikinn unnu Búlgarar 2*1. í hinum
íindanúrslitaleiknum mætast Englendingar
og Júgóslavar.
• B-landslið ítala gerði 1*1 jafntefli við
lið skipað leikmönnum úr skozku úrvals-
deildinni í gærkvöldi. Pruzzo skoraði fyrir
ítali. en Somner fyrir Skota.
• Spánn vann Mexfcó 2i0 í vináttulands-
ieik f knattspyrnu i Uranada í ga'rkvöldi.
Guini og Maranon skoruðu mörk Spánverja
í byrjun leiksins.
• Fimm áhangendur Standard Liege
voru sektaðir um háar uppha'ðir vegna
óspekta á Evrópuleik Standard og Carl
Zeiss Jena í desembermánuði. I>arf hver
óróaseggjanna að greiða félaginu 125
þúsund krónur.
70 ara afmælisfagnaður
Knattspyrnufélagsins Víkings
veröur haldinn í Þórscafé sunnudaginn 30. apríl nk.
og hefst meö boröhaldi klukkan 19.30 stundvíslega.
Húsiö opnar klukkan 19. Miöar veröa seldir í Sportvali
viö Hlemmtorg, í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson-
ar, Austurstræti 18 og í Víkinsheimilinu frá kl. 14—18
á laugardag. Afmælisnefndin.
peAfc/tíA uE.icMetJO,
EÍOSOCT POStCAA
OCf K1DC5 l5
OP>P>í^6SiS»^)v3kU 105'6
vJ&V-tSS
3oWK> CAei_eJ5
CrersÐi oc>F=i>-AJ»JArc-
MaÆKÍ€), 6 róí^; -
LAua-
Skotí !
m
,'.V' •?
í FVfCSTA fcvfeuv TCte&T ^
KJO^SOÍ.-'Ílík.vJM Ae> si^rcA
T é- Vc Ve6 S LAUö.
feö'cvc sé.
cvjsh, v>a«;caijd
Oct
S£iv\ £■• *- - *■ - 1
KJro M*i,i
KA»0(.H6STe.«. OPOÍTfeO
LlJIC PUJH-
SLyjjtU \J - *** -
/: