Morgunblaðið - 30.04.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.04.1978, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 89. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Þessa daga stendur yfir Alþjóðleg flugvélasýning í Hannover í þýzkalandi. l>ar á meðal er þessi Tornado-orrustuvél sem hönnuð hefur verið í samvinnu brezkra, ítalskra og vestur þýzkra sérfra^iinga. Er búizt við að vélin verði komin í umferð eftir tvö ár. Enn barist í Afghanistan Nýju Dehlí, 29. apríl, Reuter. AP. SVEITIR uppreisnarmanna sem efndu til blóðugrar bylt- ingar og steyptu Mohammad Daoud forseta í vikunni, áttu enn í bardögum í gærkvöld. Uppreisnarmönnunum er enn veitt mótspyrna í einstökum hverfum Kabul. að því er áreiðanlcgar heimildir skýrðu frá. Hinir nýju valdhafar í Kabul staðfestu í dag að þeir hefðu ráöið Daoud forseta og bróður hans og aðstoðarmann, Mo- hammad Naim, af dögum á fyrsta degi byltingarinnar. Daoud var skotinn til bana þar sem hann þvertók fyrir að gefast upp fyrir sveitum upp- reisnarmanna sem umkringdu forsetahöllina. Þegar uppreisn- in var gerð stóð yfir fundur ráðherra ríkisstjórnar Afghan- istan, og áreiðanlegar heimildir herma að Ghulam Haider Rasuli hershöfðingi og varnar- málaráðherra landsins hafi einnig verið líflátnir. Areiðanlegar heimildir hafa skýrt frá því að hinir nýju valdhafar séu vinstrisinnar sem aðhyllast valdhafa í Moskvu. Sendiráð Afghanistan í Nýju Dehlí skýrði frá því í dag Framhald á bls. 47. Moshe Dayan, utanríkisráðherra ísraels hefur verið í Bandarikjunum síðustu daga og m.a. setið á löngum fundum með Cyrus Vance, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Að svo stöddu virðist óljóst hver árangur verður af þeim. Þeir sjást hér á myndinni í móttöku sem haldin var skömmu eftir að Dayan kom til Washington. Kinverjar handtaka svikahrapp Peking, 29. apr. Reuter. HIN opinbera kínverska fréttastofa Hshinua tilkynnti í morgun að porpari einn hefði verið handtekinn sem bæri ábyrgð á bví að 166 menn voru handteknir og sumir létust. Bar maðurinn sem heitir Shan Kuei Chang á bessa menn sem flestir voru samstarfsmenn hans, falskar og lognar njósnaákærur. Sumir peirra sem voru handteknir vegna svikabragða hans dóu við pynding- ar og aðrir frömdu sjálfsmorð. Nú eru uppi eindregnar kröfur um að pessum manni verði refsaö harð- lega. í frétt Hshinua sagði að málið hefði verið tekið fyrir í Norðaustur-Kína, í Kirin-héraði fyrir níu árum. Málið var síðan tekið til endurskoðunar eftir handtöku „bófanna fjögurra" í októ- ber 1976 og er nú komið í Ijós að fólkið var allt saklaust borið sökum. Þá er tekið fram að Shan hafi sjálfur haldið því vendilega leyndu að hann hafi starfað í þágu Japana um og upp úr 1940. Þeir af sakborningum sem eru á lífi hafa nú allir fengið uppreisn æru og reynt að bæta þeim fyrir þær þjáningar sem svikarinn hefur valdið þessu fólki sem sumir voru merkir vísindamenn. Sovétar sleppa kór- eska flugstjóranum Seul, 29. apr. Reuter. ÁREIÐANLEGAR heimildir Reuterfréttastofunnar sögðu í dag að Sovétmenn myndu láta lausa úr haldi í dag flugstjóra suður kóresku þotunnar og sigl- ingafra'ðinginn, sem hafa verið í haldi þar síðan vélin villtist inn yfir sovézkt land fyrir nokkrum dögum. bar sagði að Kóreumenn- irnir tveir myndu fara frá Lenin- grad síðdegis f dag, laugardag. og að trúlega færu þeir til Kaup- mannahafnar í fyrsta áfanga. Fréttir um þetta munu hafa verið sendar til Seulstjórnarinnar með milligöngu bandaríska sendi- ráðsins í Moskvu, sem hefur m.a. haft afskipti af málinu, þar sem engin stjórnmálatengsl eru milli S-Kóreu og Sovétríkjanna. Skömmu eftir að fréttir komust á kreik um þetta birti Tass Aldo Moro hvetur enn til samninga í sjöunda bréfi sínu Rómahorg. 29. apríl. Router. ÍTALSKI stjórnmálamaðurinn Aldo Moro grátbiður enn stjórnvöld um að hafast eitthvað að svo lífi hans verði þyrmt. í bréfi sem hirtist í blaðinu II Messaggero í dag, en í því gagnrýnir hann einnig harðlega leiðtoga kristilegra demókrata. Bréf Moros er hið sjöunda frá honum frá því að honum var rænt 16. marz. Moro gagnrýnir í bréfinu flokksmenn sína fyrir afstöðu þeirra til mannræningjanna, en þeir hafa þverneitað að semja við ræningja Moros, Rauðu herdeildina. Gagnrýni Moros er bitur, og segir hann félaga sína í raun og veru fallast á „dauðadúm" herdeildarinnar yfir sér. með því að neita samningum við hryðjuverkasamtökin. Giulio Andreotti forsætisráð- herra lagði í gærkvöldi áherzlu á þá afstöðu stjórnarinnar að semja ekki við ræningja Moros, og virðist sem bréf Moros sé beint svar við ummælum Andreottis, að því er heimildir herma. „Það verður að taka það enn einu sinni fram við þessa harðlínumenn kristilegra demókrata, að skipti á föngum hafa átt sér stað áður í mörgum Hussein í Páfagarði Páfagarði, 29. apr. AP. IIUSSEIN Jórdaníukonungur flaug á fund Páls páfa á laugardagsmorgun. Hafði Hussein komið til Rómahorgar síðla í gærkvöldi og fór svo með þyrlu til Páfagarðs. Þeir hafa einu sinni hitzt að máli í aðsetri páfa. Hussein hafði verið að koma frá heim- sókn í Júgóslavíu. Hann heldur heimleiðis í dag. Páfagarður og Jórdan hafa ekki með sér stjórnmálasamband. Hussein mún síðan hitta Leone forseta Italíu að máli. tilfellum svo að þyrma mætti lífi gísla og saklausra fórnarlamba,“ sagði Moro í bréfinu. Engin dagsetning var á bréfi Moros, en í því fer hann orðum um áskorun leiðtoga sósíalista, Bettino Craxi, að Rauðu herdeild- inni verði sýnt eitthvert viðmót sem hugsanlega gæti leitt til þess að samtökin láti Moro af hendi. „Til vandræða kemur, Craxi vinur, ef uppástungur þínar verða virtar að vettugi," segir Moro í bréfinu. í bréfinu þakkaði Moro fjöl- skyldu sinni fyrir skilaboð til hans sem birtust í blöðum í Mílanó fyrir þremur dögum. Hann sagðist ennfremur harma að ýmsir vina sinna skyldu hafa dregið í efa sannleiksgildi bréfa sinna að undanförnu. Hann sagðist ekki hafa hlotið illa meðferð í fanga- vistinni. Aldo Moro krefst þess einnig í bréfinu sem birtist í morgun að flokksráð kristilegra demókrata verði kallað saman hið snarasta til að ráðgast um mál sín. Sem formaður flokksins hefur Moro vald til þess að kalla flokksráðið saman og einnig getur hann skipað forsvarsmenn í fjarveru sinni. Flokksráðið kveður að öllu jöfnu á um stefnu flokksins í þjóðmálum. stuttorða tilkynningu um málið. Þar sagði að flugstjórinn og loftsiglingafræðingurinn hefðu játað að hafa rofið lofthelgi Sovétríkjanna og myndi þeim verða visað úr landi tafarlaust, en ekki aðhafst frekar í málinu. í orðsendingunni var sagt að það hefði verið Leonid Brezhnev sem ákvað að haga málinu á þennan veg, einvörðungu af „mannúðar- ástæðum“. sagði þegar þessar fréttir voru bornar undir hann að það kæmi óneitanlega nokkuð á óvart að mönnunum yrði sleppt svona fljótt. Væri ástæða til að þakka Sovétmönnum fyrir hversu liprir þeir hefðu verið. Hann sagði að þeir myndu koma heim á þriðju- dag eða miðvikudág og KAL myndi ekki senda sérstaka vél til að ná í þá. Líbanskir fLóttamenn fórust er hús hrundi Beirút. 29. apr. Reuter. UNNIÐ var að því árdegis á laugardag að Ieita að fólki sem kynni að hafa komizt lífs af í rústum fjögurra ha'ða húss í Beirut sem hrundi í gær. Er vitað að þrettán manns létu lífið og 40 slösuðust. Ekki er vitað hversu margir voru í húsinu þegar það hrundi.'en venjulega héldu þar til um 150 manns. Fólkið var flest flóttafólk frá Suður-Líbanon sem kom til Beirut í kjölfar innrásar ísraela í S Líbanon í marzmán- uði. Björgunarmenn sögðu að þeir byggjust við því að tala látinna myndi hækka verulega þegar á liði daginn. Hús þetta er í fyrrverandi hótelhverfi Beirut þar sem nú er allt í rúst og rétt hjá leifum gistihússins Holiday Inn sem áður var vinsæll gististaður í borginni. Þá sprakk sprengja í bíl í úthverfi Beirut og öruggt að tveir létust og ef til vill þrír. Þá mun að sögn lögreglunnar hafa verið kastað handsprengjum að óþekkt- um byssumönnum í öðru úthverfi Beirut. Leyniskyttur eru á kreiki í þessu hverfi og eru einkum úr röðum vinstri sinnaðra Múhamm- eðstrúarmanna. Öflug sólgos Boulder, Colorado, 29. apríl. AP. SÓLGOS hafa verið einkar öflug undanfarna daga og á föstudagsmorgun voru gosin þau öflugustu í fjögur ár. Ollu gosin miklum truflunum á fjarskiptum, einkum á hærri tíðni bylgjusviðsins, í yfir þrjár klukkustundir á þeim svæðum jarðar sem sneru að sólu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.