Morgunblaðið - 07.05.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1978
35
Líkan af smábátahöfninni. Súðarvogurinn er efst á myndinni, en vesturáll Elliðaánna fremst. Austurállinn sést ekki. í höfninni verður rúm fyrir 200 báta við flotbryggjur.
Höfn fyrir 200 smábáta
ákveðin við Elliðavog
SMÁBÁTAHÖFNIN, sem borgar-
stjórn sambykkti nýlega, verður
gerð á jarðvegsfyllingu milli
lónsins framan við Súðarvoginn
og vesturóls Elliðaánna, og
verður vestanvert við enda upp-
fyllingarinnar, pannig að bátum
er aetlað að fara út rennu með
Elliðavogi vestanverðum. í skipu-
lagstillögunni aö bátahöfn, sem
sampykkt hefur verið, er Reykja-
víkurhöfn falin umsjón og eftirlit
meö umgengni á sjó og landi og
strangar reglur um slíkt. Félags-
skap smábátaeigenda verður
úthlutað hafnarsvæðinu og á að
annast og bera ábyrgð á rekstri
og viðhaldi svæðisins undir
eftirliti hafnarstjórnar. i sam-
bykktinni er gert ráð fyrir að
hægt sé að setja fyrirvaralausa
takmörkun á notkun hafnarinnar
í júlímánuði vegna laxagangna, ef
purfa pykir.
Smábátahöfnin verður fremst í
uppfyllingunni, sem gengur
lengst til vinstri út í Elliðavog-
inn.
í skipulagstillögunni aö smá-
bátahöfn er gert ráö fyrir viðlegu-
rými fyrir 200 báta af stærðinni
15—25 fet og möguleiki til að
skapa 100 bátum undir 20 fetum
aöstöðu í skemmu í landi, sem er
bannig útbúin aö bátar eru fluttir
til sjósetningar með hlaupaketti.
Ætlunin er að dýpka hafnarsvæð-
ið og siglingarennu og gera
garða, sem mynda viðlegurými,
en vegna mikils munar flóðs og
fjöru verða flotbryggjur til við-
legu.
I skipulagi, sem teiknistofa
Reynís Vilhjálmssonar hefur unn-
ið, ásamt Hannesi Valdimarssyni
verkfræðingi, er ætlast til að
hafnarsvæðið og umhverfi bess
sé hluti af útivistarsvæði Elliðaár-
svæðisins og opið almenningi. Er
bar gert ráð fyrir aö í stað
grasflatar veröi landslagið mótaö
upp i hæðarhryggjum, sem veita
nokkurt skjól gegn austanátt og
afmarka svæðið að austan og
sunnan (ármegin). En mannvirki
hafnarinnar og athafnasvæði eru
í skjóli hæðarhryggjarins í kvos í
landslaginu upp af höfninni. Þá er
gert ráð fyrir grænum grundum
til leikja og skjólgóðum lautum,
og lagt til að gróðursettur verði
trjágróður í talsveröum mæli til
skjóls og prýðis. Er reiknað með
að svæðið geti bannig haft mikið
aðdráttarafl fyrir borgarbúa auk
bess sem bað veitir hinum
fjölmörgu bátaeigendum að-
stöðu.
Á þessari mynd aí líkaninu af smábátahöfninni sést tilhögun í höfninni sjálfri. Meðfram landi að sunnan er gert ráð fyrir
samfelldri flotbryggju, en síðan yrði bætt við þverbryggjum. 2—3 landgangar verða af pölium í landi.
4
SKIPAUTGCRB RÍKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavík þriöjudaginn
9. þ.m. vestur um land í
hringferð og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: ísafjörö,
Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn,
Þórshöfn Bakkafjörö, Vopna-
fjörð og Borgarfjörö eystri.
Móttaka til hádegis á mánudag.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 16., 19. og 21. tölublaði Lögbirtinga-
blaösins 1978 á hluta í Auðbrekku 19, þinglýstri eign Páls
Sæmundssonar, til slita á sameign hans og Bjarneyjar
Sighvatsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 10.
maí 1978 kl. 16 að kröfu sameiganda, Bjarneyjar
Sighvatsdóttur.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 105. og 107 tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1977 á hluta í Kársnesbraut 79 (íbúð á 1. hæö í
suöurenda), þinglýstri eign Indriða Indriöasonar, fer fram á
eigninni sjálfri föstudaginn 12. maí 1978 kl. 10.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.