Morgunblaðið - 07.05.1978, Page 30

Morgunblaðið - 07.05.1978, Page 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAI 1978 ^ u l s- i 6 ð r a StÍRakoppni fuRÍanna Eítir Helga Jónsson, 6 ára Reykjavík STOKUR Hvað eru stökur? Stökur eru stakar. stuttar vísur, sem hver ein um síií er sjálfstæó. Ilér áður var mjöjf alseniít aö menn semdu slíkar stuttar ferskeytl- ur eöa stiikur hverjir handa öðrum sem kveðjur eða svör. og hiifðu gaman af. Kannt þú einhverja stiiku? Hér eru tvær, sem þú mátt spreyta þig á að læra utan að: Góða mamma. gefðu mér góða mjólk að drekka. Ek skal vera aftur þér elsku barnið þekka. Ofan Kefur snjó á snjó. Snjóinn vefur flóa tó. tófa Krefur móa mjó. mjóan hefur skó á kló. Bólu Hjálmar Að lesa ok skrifa list er gé)ð la'ri það sem flestir. I»eir eru haldnir heims hjá þjóð hiifðinKjarnir mestir. Skrifaðu bæði skýrt og rétt. svo skiitnum þyki snilli. Orðin standa eiga þétt. en þó bil á milli. Sofnar lóa liinK <>K nijó. ljós á ílóa deyja. Verður ró um víðan sjó. viitn ok skógar þegja. Þorst. Erlingsson Lítið síkkar sokkur minn. seint verður hann húinn. Raular frekur rokkurinn. rífast vinnuhjúin. Ljósið kemur langt og mjótt. logar á fífustiinKum. Halla kerling fetar fljótt framan eftir giinKum. I»essi penni þóknast mér. því hann er úr hrafni. hann hefur skorið Keiragrér Gunnlaugur að nafni. 91 30 II‘9 •<“ :(!J|OAq «) usnBq í BR/M 78E&- T röllabarnið á Krákueyj u Framhaldssaga Persónuri Melker Melkersen. eigandi stærsta hússins á Krákueyju. Palli. sonur hans. 10 ára. Malín. dóttir hans. 20 ára. Pétur. ungur maður úr borginni. giftist Malín. Skella. dóttir Malínar ok Péturs (lítil). Stfna. 5 ára. Skotta. 6 ára. kaupmannsdóttir. Nisse. kaupmaður á Krákueyju. Vestermann. sjómaður. Öllum til ánægju er veör- ið betra daginn eftir. Sólin skín og himinninn er heið- blár. Heima hjá Melker eru allar hendur á lofti, því að von er á brúðkaupsgestun- um um kvöldið. Búrið er fleytifullt af alls kyns mat. Melker grípur hvert tæki- færi, sem gefst, til þess að læðast þangað fram og smakka á góðgætinu. Litlar, bragðgóðar kjötbollur verða sérstaklega fyrir valinu. Melker er maður um fimmtugt, en hann virðist vera eldri vegna þess hve hann er orðinn þunnhærð- ur. Hann hefur yndi af íþróttum og fer oft á skíði eða skauta, þegar viðrar til þess. Hann er einnig góður sundmaður, og án þess að hafa hugmynd um, kemur það honum að góðu haldi í dag. Melker er ekkjumaður, og fram til þessa hefur Malín hugsað um heimili hans. En nú verður hann að leita sér að ráðskonu, þar sem Málín er að gifta sig og flytjast til borgarinnar. Hann er því ekki sérlega ánægður yfir brúðkaupi þeirra, þó að honum líki vel við brúðguma Malínar. Palli er ekki ánægður heldur. Palli er tíu ára og orðinn stór drengur, en honum finnst Malín hafa verið honum svo góð. Hann skilur því ekki, hvers vegna hún hyggst svíkja hann. Palli virðir hana fyrir sér, þar sem hún kemur ofan úr svefnherberginu íklædd hinu fegursta skrúði, síðum brúðarkjól, brúðarslæðu og með litla kórónu á höfðinu. Hann spyr varfærnislega: „Malín, þykir þér mjög vænt um Pétur?“ Malín stendur fyrir framan spegilinn og lagfær- ir slæðuna. Síðan snýr hún sér að bróður sínum. „Já, Palli, það þykir mér,“ svarar hún. Húsgögn í stofuna! Mjög er það misjafnt, hvað fólk almennt vill hafa sem stofuhúsgögn á heimilum sínum. A myndinni sjáið þið marga hluti, sem fljótt á litið gætu átt heima í hvaða stofu sem er — og þó! Einstaka hluti mundu sjálfsagt fáir vilja hafa inni í stofu hjá sér. Geturðu fundið þá? Barna- og fiölskyldusiðan Þorir S. Guðbcrgsson Rúna (>ísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.