Morgunblaðið - 11.05.1978, Page 3

Morgunblaðið - 11.05.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978 3 Félagsmálaráð hef- ur samþykkt fjórar dagvistunarstofnanir - sem koma til framkvæmda næst á eftir þeim þremur sem byrjad verdur á í ár „FÉLAGSMÁLARÁÐ hcíur íyrir sitt leyti samþykkt tcikningar og staðsetninjíu fjögurra dagvistunarstofn- ana. tveggja íSeljahverfi, cinnar við Ægissíðu og einn- ar við Blöndubakka. sem munu koma á eftir þeim þremur stofnunum. scm byrj- að verður á á þessu ári og lokið verður við á því næsta,“ sagði Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi, er Mbl. spurði hann í gær, hvaða fram- kvæmdir væru á döfinni í dagvistunarmálum. „Við von- um að með jöfnum fram- kvæmdahraða sé alls ekki óraunhæft að ætla að það takist að fullnægja þörfum forgangshópanna á dagvist- unarrýmum á næstu 4-5 ár- um.“ í fyrradag voru opnuð tilboð í skóladagheimili við Völvu- fell, sem Markús sagði að yrði tilbúið um næstu áramót. Þá verður byrjað á tveimur öðr- um dagvistunarstofnunum á þessu ári, við Iðufell og Arnarbakka, og verða þær teknar í notkun á næsta ári. Þær fjórar stofnanir, sem félagsmálaráð hefur nú sam-* þykkt að verði næstar á framkvæmdaskránni, eru: dagheimili og skóladagheimili í Seljahverfi og á sú dagvist- unarstofnun að rísa við hlið- ina á leikskólanum við Tungu- sel; önnur blönduð stofnun, leikskóli og dagheimili, á að rísa ofar í Seljahverfinu; þriðja dagvistunarstofnunin er dagheimili og leikskóli við Ægissíðu og sú fjórða skóla- dagheimili við Blöndubakka. Markús Örn Antonsson sagði, að nú væru um 440 börn á biðlista forgangsflokkanna, en til þeirra heyra einstæðir foreldrar, námsfólk og fjöl- skyldur, sem eiga við sérstök vandamál að stríða. Þá eru rúmlega 1200 börn á leikskóla- biðlistum, en Markús Örn sagði, að þar af væri nokkur hluti, sem enn hefði ekki náð 2ja ára aldri. Allt að tíu þúsund króna sekt viö því að aka á nagladekkjum LÖGREGLAN í Reykjavík hefur nú tekið upp strangt eftirlit með því að bifreiðir aki ekki á ncgldum hjólbörðum en það er óheimilt frá og með 1. maí s.l. Óskar Olason yfirlögregluþjónn umferðarmála tjáði Mbl. í gær að lögreglan hefði veitt ökumönnum nokkurra daga umþóttunartíma vegna mikils annríkis á dekkja- verkstæðunum. Um helgina byrj- aði lögreglan svo að stöðva bifreið- ir og áminna ökumenn og hér eftir verða þeir bifreiðaeigendur sekt- aðir, sem trassa það að taka nagladekkin undan bílum sínum. Eru háar sektir við brotum af þessu tagi, en þær eru á bilinu 7.500 til 10.000 krónur. Fyrsta daginn, sem lögreglan beitti sekt- arheimildum voru rúmlega 50 ökumenn kærðir fyrir að aka á negldum hjólbörðum í Reykjavík. A lþýðu bandalagið: Lúðvík, Ragnar og Svavar í hár saman um kjördæmamálið FLOKKSMENN í Alþýðubandalaginu hafa margar skoðanir á kjördæmamálinu sem í öðrum flokkum, var svar þeirra Lúðvíks Jósepssonar. formanns Alþýðubandalagsins, og Ragnars Arnalds. formanns þingflokks Alþýðubandalagsins, er Morgunblaðið spurði þá í gær. hvort leiðari Þjóðviljans síðastliðinn sunnudag. er ritaður var af Svavari Gestssyni ritstjóra. væri skoðun flokksins á kjördæmamál- inu. Fyrirsögn leiðarans var „Skert mannréttindi með staðaruppbót“. Ragnar Arnalds sagði, að Al- ið er hvað mest tiltakanlegt. Ég þýðubandalagið hefði ekki markað ákveðna stefnu í kjördæmamálinu og um það hefði ekki verið fjallað sérstaklega á landsfundi flokksins. „Innan Alþýðubandalagsins," sagði Ragnar, „eru eitthvað skipt- ar skoðanir um það eins og innan allra flokka, hvernig bezt verði að því staðið að rétta hlut þessara stóru kjördæma, þar sem misvæg- persónulega er ekki hrifinn af þeirri stefnu, að landið verði allt gert að einu kjördæmi. Eg held að það sé algjörlega óraunhæft í framkvæmd.“ Ragnar kvað Alþýðubandalagið hafa hvatt til þess að kjördæma- málið yrði tekið föstum tökum. Bandalagið lagði það til nú í Framhald á bls. 27 Islendingur fang- elsaður í Þórshöfn „ÍSLENDINGUM, sem leggja leið sína hingað til Færeyja hefur farið mjög fjölgandi og er þar bæði um ferðamenn og svo fólk í atvinnuleit að ræða. Því er ekki að neita. að cinn og einn maður innan um hcfur brotið af sér og við þurft að hafa afskipti af málinu og auðvitað setja þessi einstöku tilvik leiðinlegan blett ó heildina. Hins vegar held ég að við Færcyingar sjáum þessa hluti alvcg í réttu ljósi, þvf fjöldi Færeyinga hefur farið til íslands sömu erinda og þá sla ddust alltaf með einstaklingar, sem komust í kast við lögin á íslandi og settu leiðinlegan hlett á land sitt og þjóð,“ sagði Sune Wintcr, fulltrúi lögrcglustjórans í Þórshöfn, í samtali við Mbl. í gær, en 1. maí s.I. var íslendingur dæmdur í 15 daga fangelsi í Þórshöfn fyrir þjófnaði og ávísanafals. Sune Winter sagði að maður þessi hefði brotizt inn í skip í höfninni og einnig stal hann fötum og peningatösku á hótelum. Maðurinn kom til Færeyja 1. maí og var handtekinn um kvöldið og hafði hann þá í fórum sínum ávísanahefti. sem stolið var hér á landi 28. apríl. í flugvélinni til Færeyja hafði maðurinn borgað með ávísunum úr heftinu. Við Framhald á bls. 30. „DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir, „DERBY" frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og: „Hermetisk“ frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst. Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun. Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið. Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum. Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni. Þetta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn. Einangrunin er hið viðurkerinda „Pelyuretan“ frauðplast. í „DERBY“ frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka. FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.