Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978 SÍMAR 28810 24460 bílaleigan GEYSIR BORGARTUNI 24 iR car rental LOFTLEIDIR I^BÍLALEIGA Hópferöabílar allar stæröir Snæland Grímsson hf., símar 75300 og 83351. Opið laugardaga kl. 10—12. Dragtin, Klapparstíg 37. Nýtt — Nýtt a. —- Enskar og danskar dragtir. Kjólar stuttir og síðir í st. 36-50. Sokkar í st. 36—50. Blússur í st. 36—50. Plíseruð pils, glæsilegt úrval. Elisaheth Sedin — Brygííartorps- Katan 10 — 63358 Eskilstuna — Elísabeth er tólf ára oglangar að skrifast á við íslenska stúlku. Hún upplýsir í bréfi sínu að hún hafi áhuga á fuglaskoðun, frímerkjasöfnun, siglingum og skíðaferðum. Hún segist eiga systur sem heiti Eva og bróður sem heiti Anders — og fugl sem heiti Frasse. Útvarp Reykjavík FIM41TUDKGUR 11. maí MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunba-n kl. 7.55. Morgunstund harnanna kl. 9.15: Guðrún Guðlaugsdóttir les þýzkar smásiigur fyrir börn eftir Úrsúlu Wölfel í þýðiitgu Vilborgar Auðar Isleifsdótturs síðari lestur. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milii atriða. Til umhugsunar kl. 10.25: I>áttur um áfengismál í umsjá Karls Ilelgasonar. Tónlcikar kl. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00: Jacueline Eymar og strengjakvartett leika Píanókvartett í g-moll op. 45 ■ eftir Gabriel Fauré./,.Collegium con hasso" tónlistarflokkurinn leikur Septett í C-dúr op. 114 eftir Johann Ncpomuk Hum- mel. SIÐDEGIÐ____________________ 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og frétt- ir. Tilkvnningar. Á frívaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing" eftir Friðrik Á. Brekkan. Bolli Gústavsson les (19). 15.00 Miðdegistónleikar Julius Baker og Hljómsveit Ríkisóperunnar í Vín leika Konsert í Cdúr, fyrir pikkólóflautu og strengi eftir Antonio Vivaldi: Felix Frohaska stjórnar. David Glazer og Kammersveitin í Wiirttemberg leika Klarín- ettu-konsert í Es-dúr eftir Franz Krommer: Jörg Faerber stjórnar. Ríkis- hljómsveitin í Berlín leikur Konsert í gömlum stíl op. 123 eftir Max Regen Otmar Sutncr stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.20 Lagið mitt Ilelga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÓLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.40 Islenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.00 Leikrit: „Rung læknir" eftir Jóhann Sigurjónsson Magnús Ásgeirsson íslenzk- aði. Leikstjórar: Viðar Eggerts- son og Anna S. Einarsdóttir. og flytja þau formálsorð. — Persónur og leikendur: Harald Rung læknir/ Arnar Jónsson. Otto Locken rithöfundur/ Jón Júlíusson. Vilda Locken systir hans/ Svanhildur Jóhannesdóttir. Aðstoðarmaður/ Hákon Waage. 21.05 Útvarps- og sjónvarps- efni fyrir sjómenn. Ingólfur Stefánsson flytur erindi. 21.25 Lög eftir Loft Guð- mundsson og Magnús Á. Árnason. Guömundur Jónsson syngur. Ólafur Vignir Albertsson leikur með á píanó. 21.35 Franska fæðingaraðferð- in. Ásta R. Jóhannesdóttir ra“ð- ir við Huldu Jensdóttur forstöðukonu Fæðingar- heimilis Reykjavíkurborgar. Sigurð S. Magnússon pró- fessor, Gunnar Biering barnalækni o.fl. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Spurt í þaula. Áslaug Ragnars stjórnar umræðuþætti þar sem Magnús Torfi ólafsson alþingismaðar verður fyrir svörum. — Þátturinn stend- ur allt að klukkustund. Fréttir. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 12 mai 20.00 Fréttir og vcður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Fuglarnir okkar Litkvikmynd um íslenska fugla. gerð af Magnúsi Jóhannssyni. Síðast á dagskrá 11. júní 1972. 21.05 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Helgi E. Helgason. 22.05 Bæjarslúðrið í Bervík (L) (Jagdszenen aus Niedor bavern) \ ___________________________ Þvsk bíómvnd frá árinu 1969. Leikstjóri Peter Fleichman. Aðalhlutverk Martin Sperr og Angela Winkler. Sagan gerist í litlu þorpi í Ba'jaralandi. Uppskeran stendur sem hæst. þegar ungur maður. Abram. kem- ur heim eftir dvöl í borg- inni. Brátt komast á kreik sögur um líferni hans þar. og honum verður lífið f þorpinu óba'rilegt. Þýðandi Eiríkur Haralds- son. 23.30 Dagskrárlok Klukkan 21.15 í kvöld flytur Ingólfur Stefánsson erindi um útvarps- og sjónvarpsefni fyrir sjómenn.. Erindið er 20 mínútna langt. Arnar Jónsson Viðar Eggertsson Leikrit vikunnar: Rannsóknar- störf læknisins í kvöld klukkan 20.10 verður flutt leikritið „Rung læknir“ eftir Jóhann Sigurjónsson. Magnús Ásgeirsson þýddi leik- inn, sem frumsaminn var á dönsku. Leikstjórar eru Viðar Eggertsson og Anna S. Einars- dóttir, og flytja þau jafnframt formálsorð. Með hlutverkin fara Arnar Jónsson, Svanhildur Jóhannesdóttir, Jón Júlíusson og Hákon Waage. Flutningur leiksins tekur röska klukku- stund. Harald Rung læknir er að gera tilraunir með bóluefni gegn berklaveiki. Vitandi eða óafvit- andi gerir hann sér ekki ljósa hættuna, sem slíkum tilraunum er samfara. Hvernig sem vinur hans, Otto Loeken varar hann við, heldur hann lengra á sömu braut. Vilda, systir Ottos, hefur verið erlendis, kemur heim. Hún hefur áður verið hrifin af lækninum og vill fá hann til að iíta upp frá rannsóknarstörfun- um og koma með sér í ferðalag. En Rung hefur tekið ákvörðun, sem ekki verður breytt. Jóhann Sigurjónsson fæddist á Laxamýri í Suður-Þingeyjar- sýslu árið 1880. Hann fór til Kaupmannahafnar 1899 og stundaði nám í dýralækningum en lauk aldrei prófi. Skáld- skapurinn tók hug hans allan. Rung læknir (1905) er fyrsta lerkritið sem birt var opinber- lega, en til er í handriti ar.nað leikrit eldra, „Skugginn“. Þekkt- ustu leikrit Jóhanns hér munu vera „Fjalla-Eyvindur“ og „Galdra-Loftur", sem bæði hafa margsinnis verið leikin og flutt í útvarpi. Önnur leikrit hans, sem útvarpið hefur flutt, eru „Mörður Valgarðsson", „Bónd- inn á Hrauni" og svo „Rung iæknir“, sem þar heyrðist árið 1937 undir leikstjórn Haralds Björnssonar. Á síðustu árum sínum hafði Jóhann uppi ráðagerðir um að gera síldarhöfn við Þórðarhöfða og hafði fengið ýmsa áhrifa- menn í lið með sér. Úr fram- kvæmdum varð þó aldrei af óviðráðanlegum ástæðum, en þetta dæmi sýnir þó stórhug Jóhanns og taugar hans til ættjarðarinnar, sem hann varð að hugsa til úr fjarska hálfa ævina. Hann lézt í Kaupmanna- höfn árið 1919, tæplega fertugur að aldri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.