Morgunblaðið - 11.05.1978, Side 18

Morgunblaðið - 11.05.1978, Side 18
MORÐIÐ Á ALI)() MORO Moro fjórði leiðtogiim sem myrtur er á Ítalíu MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978 Rómaborg, 10. maí. AP. ALDO Moro. fyrrverandi for- sa'tisráóherra Italiu. er fjórði meiriháttar stjórnmálamaður- inn sem ráðinn er af dögum á Ítalíu það sem af er þessari öld. Umhcrto fyrsti af Savo.y, konuniíur ítaia. var ráðinn af dö^um 29. júlí árið 1900 þegar hann ók í vagni sinum í garði konunKsbústaðarins í Monza. Banamaður hans var stjórn- leysinjíinn Arnaldo Brcsci. Hinn 10. júní 1924 fannst lík Giacomo Matteotti leiðtoga sósíalista, úti á víðavangi, en honum hafði áður verið rænt nálægt heimili hans. Matteotti var einn helzti andstæðingur Benito Mussolinis og fasista- flokksins. Það umrót sem hiaust af morðinu á Matteotti varð til þess að fasistar afnámu aílt stjórnmálafrelsi í landinu. Mussolini var síðan myrtur 25. apríl 1945, ásamt hjákonu sinni Klöru Petacci, þar sem þau voru á gangi við vatnið Como. Lík þeirra voru hengd upp á torgi nokkru í Mílanó og þar svívirti þáu reiður fólksfjöldinn. Loks varð Palmiro Togliatti, leiðtogi ítalskra kommúnista, særður í skotárás 14. júlí 1948. Verknaðinn framdi ofstækis- fullur and-kommúnisti, Antonio Pallante að nafni. Togliatti náði sér af sárum sínum og Pallante var dæmdur til 10 ára fangelsis- vistar. Fyrir rúmum 2000 árum réð Brutus fósturföður sínum Júl-_ íusi Sesar bana. Almennt telja’ sagnfræðingar að Brutus hafi framið verknaðinn á tröppum þinghússins í Róm, en síðustu rannsóknir og ný sönnunargögn benda til þess að aftakan hafi átt sér stað á verzlunartorgi við Largo Argentino í Róm. Þaðan er um tveggja mínútna gangur að Via Michelangelo Caetani, þar sem lík Aldo Moro fannst. Kosningar á Ítalíu í skugga Moromorðsins Iíóm 10. maí. Reuter. TÍUNDI hver kjósandi á Ítalíu hefur rétt til þátttöku á sunnu- daginn í bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum sem snúast að mestu leyti um hrvðjuverka- (ilduna i' landinu. og talið er víst að geðshra'ringin út af morðinu á Aldo Moro muni hafa mikil áhrif á úrslitin. Úrslitin verða fyrsta vísbend- ingin sem tveggja mánaða göm- ul minnihlutastjórn kristilegra demókrata undir forystu Giulio Andreotti fær um hug kjósenda. Það var enginn annar en Moro sem var höfundur ríkisstjórnar- innar, hinnar fvrstu sem nýtur formlegs stuðnings kommúnista í 30 ár, og það var táknrænt að Rauðu herdeildirnar rændu honum daginn sem þingið átti að staðfesta myndun hennar. Stjórnin var mynduð eftir tveggja mánaða stjórnarkreppu og Moro lagði álit sitt að veði til að fá hægrisinna i flokki sínum til að fallast á samstarfið við kommúnista. Kristilegir demókratar og kommúnistar héldu því strax fram að ránið á Moro hefði í raun og veru beinzt gegn hinu nýja bandalagi þeirra. Kommúnistar ganga jafnvel svo langt að halda því fram að um hafi verið að ræða „samsæri afturhaldsmanna“ um að spilla fyrir velgengni þeirra. Komm- únistar hafa í tíu ár unnið að því að breyta þeirri hugmynd manna að þeir séu byltingar- sinnaðir marxistar og lenínistar og telja mönnum trú um að þeir séu verndarar frelsis og lýðræð- is. Nú hafa þeir miklar áhyggjur af kosningunum á sunnudaginn og hafa lagt sig í framkróka um að fordæma Rauðu herdeildirn- ar og krefjast þess að ríkið beygi Framhald á bls. 30 Sjúkraliðar bera jarðneskar leifar Aldo Moros inn í sjúkrabifreið, sem kom á vettvang rétt eftir hádegið í gær. (AP-símamynd) Raudu herdeildirnar: Ódædin framkvæmd helzt á af mælisdögum Rómaborg, 10. maí. AP. RAUÐU herdeildirnar, hryðju- verkasamtökin sem rændu Aldo Moro, virðast helzt velja dagana fyrir aðgerðir sínar þannig að þær beri upp á afmælis- eða merkisdaga. Daginn sem Moro var rænt var hann á leið til þingsins til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um vantraustsyfirlýsingu á rík- isstjórn kristiiegra demókrata sem kommúnistar styðja. Moro lagði sjálfur grundvöllinn að samstarfi kristilegra demókrata og kommúnista á þingi. Þegar herdeildirnar tilkynntu að Moro hefði verið líflátinn og Mord Moros einróma fordæmt: „Þeim til sóma að þeir misstu ekki kjarkinn” Vín, 10. maí. Reuter. AP. BLÖÐ í Austur-Evrópu og Vest- ur-Evrópu fordæmdu einróma í dag morðið á Aldo Moro fyrr- verandi forsætisráðherra Italíu. Nokkur helztu viðbrögð blaða í austri og vestri: Moskva: Fréttastofan Tass sagði morðið til þess ætlað að valda andrúmslofti spennu og ofbeldis á Ítalíu. Búdapest: Blaðið Nepszabad- sag kallaði banamenn Moros „skuggalega afturhaldsseggi“ og „örvinglaða óvini friðsamlegs lífs og framfara". Búkarest: Blaðið Scinteia kallaði morðið viðurstyggilegan glæp. „Hryðjuverkastarfsemi einstaklinga hefur aldrei komið byltingarbaráttunni við,“ sagði blaðið Sofia: Málgagn búlgarska kommúnistaflokksins kvað glæpinn hafa „afhjúpað hryðju- verkastarfsemi sem vopn aftur- haldsins". London: The Times sagði. „Aðeins ríki sem eru nógu öflug til að standast svona þrýsting hafa minnstu möguleika til að sigrast á hryðjuverkastarf- semi.“ Blaðið bætti við: „Það er þeim til sóma að þeir misstu ekki kjarkinn.“ Ncw York: The New York Times kvað það markmið Rauðu herdeildanna að knésetja stjórnvöld „en (þær) byðu í þeirra stað aðeins upp á ein- hverja þokukennda vinstrisinn- aða hugsjónafræði og blóðugt ofbeldi." Blaðið sagði ennfremur: „Ef einhverja huggun er að finna í þessu skuggalega máli er hún sú að ítalir stóðu fastir fyrir þrátt fyrir öll vandræði sín.“ Washington: Washington Post lét í ljós þá ósk að „þessi hryllilegi glæpur" yrði til þess að Italir endurskipulegðu stjórnarfar sitt þannig að óskir almennings ættu greiðari að- gang að stjórnvöldum og að stjórnvöld sýndu meiri dug og skiluðu betri árangri. Ziirich: Blaðið Tat sagði: „Á herdeildirnar bundið enda á sundrungu og komið á þjóðar- einingu." Genf: Blaðið La Suisse sagði að baráttuaðferðir Rauðu her- Framhald á bls. 30 líkama hans væri að finna í vatni upp í fjöllum, hinn 18. apríl, voru liðin nákvæmlega 30 ár frá því að kristilegir demó- kratar unnu mikinn kosninga- sigur á Ítalíu og Moro komst í fyrsta sinn á þing. Loks þegar lík Moro fannst í bifreið mitt á milli höfuðstöðva ítalskra kommúnista og kristi- legra demókrata á þriðjudag, voru liðnir nákvæmlega tveir mánuðir frá því að þriðju réttarhöldin hófust yfir 15 leiðtogum Rauðu herdeildanna í Tórínó. Þá 55 daga sem Moro var í haldi gáfu Rauðu herdeildirnar flestar tilkynninga sinna út á miðvikudögum eða laugardög- um. Hryðjuverkamennirnir eru taldir hafa gert það til að sem mest yrði gert úr tilkynningun- um í blöðunum á miðvikudag og sunnudag, en þá eru ítölsku blöðin hvað stærst. örfáum dögum hafa Rauðu það eftir fimm klukkustundir. Hér sést inn í Via Caetani þar sem lögreglan heldur aftur af múgnum, sem safnaðist saman á torginu. en svæðinu þar sem lík Moros fannst var lokað fyrir allri umferð þegar loks hafði tekizt að rýma (AP-símamynd).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.