Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 18
MORÐIÐ Á ALI)() MORO
Moro fjórði leiðtogiim
sem myrtur er á Ítalíu
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
Rómaborg, 10. maí. AP.
ALDO Moro. fyrrverandi for-
sa'tisráóherra Italiu. er fjórði
meiriháttar stjórnmálamaður-
inn sem ráðinn er af dögum á
Ítalíu það sem af er þessari öld.
Umhcrto fyrsti af Savo.y,
konuniíur ítaia. var ráðinn af
dö^um 29. júlí árið 1900 þegar
hann ók í vagni sinum í garði
konunKsbústaðarins í Monza.
Banamaður hans var stjórn-
leysinjíinn Arnaldo Brcsci.
Hinn 10. júní 1924 fannst lík
Giacomo Matteotti leiðtoga
sósíalista, úti á víðavangi, en
honum hafði áður verið rænt
nálægt heimili hans. Matteotti
var einn helzti andstæðingur
Benito Mussolinis og fasista-
flokksins. Það umrót sem hiaust
af morðinu á Matteotti varð til
þess að fasistar afnámu aílt
stjórnmálafrelsi í landinu.
Mussolini var síðan myrtur
25. apríl 1945, ásamt hjákonu
sinni Klöru Petacci, þar sem þau
voru á gangi við vatnið Como.
Lík þeirra voru hengd upp á
torgi nokkru í Mílanó og þar
svívirti þáu reiður fólksfjöldinn.
Loks varð Palmiro Togliatti,
leiðtogi ítalskra kommúnista,
særður í skotárás 14. júlí 1948.
Verknaðinn framdi ofstækis-
fullur and-kommúnisti, Antonio
Pallante að nafni. Togliatti náði
sér af sárum sínum og Pallante
var dæmdur til 10 ára fangelsis-
vistar.
Fyrir rúmum 2000 árum réð
Brutus fósturföður sínum Júl-_
íusi Sesar bana. Almennt telja’
sagnfræðingar að Brutus hafi
framið verknaðinn á tröppum
þinghússins í Róm, en síðustu
rannsóknir og ný sönnunargögn
benda til þess að aftakan hafi
átt sér stað á verzlunartorgi við
Largo Argentino í Róm. Þaðan
er um tveggja mínútna gangur
að Via Michelangelo Caetani,
þar sem lík Aldo Moro fannst.
Kosningar á Ítalíu í
skugga Moromorðsins
Iíóm 10. maí. Reuter.
TÍUNDI hver kjósandi á Ítalíu
hefur rétt til þátttöku á sunnu-
daginn í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum sem snúast
að mestu leyti um hrvðjuverka-
(ilduna i' landinu. og talið er
víst að geðshra'ringin út af
morðinu á Aldo Moro muni
hafa mikil áhrif á úrslitin.
Úrslitin verða fyrsta vísbend-
ingin sem tveggja mánaða göm-
ul minnihlutastjórn kristilegra
demókrata undir forystu Giulio
Andreotti fær um hug kjósenda.
Það var enginn annar en Moro
sem var höfundur ríkisstjórnar-
innar, hinnar fvrstu sem nýtur
formlegs stuðnings kommúnista
í 30 ár, og það var táknrænt að
Rauðu herdeildirnar rændu
honum daginn sem þingið átti
að staðfesta myndun hennar.
Stjórnin var mynduð eftir
tveggja mánaða stjórnarkreppu
og Moro lagði álit sitt að veði til
að fá hægrisinna i flokki sínum
til að fallast á samstarfið við
kommúnista.
Kristilegir demókratar og
kommúnistar héldu því strax
fram að ránið á Moro hefði í
raun og veru beinzt gegn hinu
nýja bandalagi þeirra.
Kommúnistar ganga jafnvel
svo langt að halda því fram að
um hafi verið að ræða „samsæri
afturhaldsmanna“ um að spilla
fyrir velgengni þeirra. Komm-
únistar hafa í tíu ár unnið að því
að breyta þeirri hugmynd
manna að þeir séu byltingar-
sinnaðir marxistar og lenínistar
og telja mönnum trú um að þeir
séu verndarar frelsis og lýðræð-
is. Nú hafa þeir miklar áhyggjur
af kosningunum á sunnudaginn
og hafa lagt sig í framkróka um
að fordæma Rauðu herdeildirn-
ar og krefjast þess að ríkið beygi
Framhald á bls. 30
Sjúkraliðar bera jarðneskar leifar Aldo Moros inn í sjúkrabifreið,
sem kom á vettvang rétt eftir hádegið í gær. (AP-símamynd)
Raudu herdeildirnar:
Ódædin framkvæmd
helzt á af mælisdögum
Rómaborg, 10. maí. AP.
RAUÐU herdeildirnar, hryðju-
verkasamtökin sem rændu Aldo
Moro, virðast helzt velja dagana
fyrir aðgerðir sínar þannig að
þær beri upp á afmælis- eða
merkisdaga.
Daginn sem Moro var rænt
var hann á leið til þingsins til
að taka þátt í atkvæðagreiðslu
um vantraustsyfirlýsingu á rík-
isstjórn kristiiegra demókrata
sem kommúnistar styðja. Moro
lagði sjálfur grundvöllinn að
samstarfi kristilegra demókrata
og kommúnista á þingi.
Þegar herdeildirnar tilkynntu
að Moro hefði verið líflátinn og
Mord Moros einróma fordæmt:
„Þeim til sóma að þeir
misstu ekki kjarkinn”
Vín, 10. maí. Reuter. AP.
BLÖÐ í Austur-Evrópu og Vest-
ur-Evrópu fordæmdu einróma í
dag morðið á Aldo Moro fyrr-
verandi forsætisráðherra Italíu.
Nokkur helztu viðbrögð blaða
í austri og vestri:
Moskva: Fréttastofan Tass
sagði morðið til þess ætlað að
valda andrúmslofti spennu og
ofbeldis á Ítalíu.
Búdapest: Blaðið Nepszabad-
sag kallaði banamenn Moros
„skuggalega afturhaldsseggi“ og
„örvinglaða óvini friðsamlegs
lífs og framfara".
Búkarest: Blaðið Scinteia
kallaði morðið viðurstyggilegan
glæp. „Hryðjuverkastarfsemi
einstaklinga hefur aldrei komið
byltingarbaráttunni við,“ sagði
blaðið
Sofia: Málgagn búlgarska
kommúnistaflokksins kvað
glæpinn hafa „afhjúpað hryðju-
verkastarfsemi sem vopn aftur-
haldsins".
London: The Times sagði.
„Aðeins ríki sem eru nógu öflug
til að standast svona þrýsting
hafa minnstu möguleika til að
sigrast á hryðjuverkastarf-
semi.“
Blaðið bætti við: „Það er þeim
til sóma að þeir misstu ekki
kjarkinn.“
Ncw York: The New York
Times kvað það markmið Rauðu
herdeildanna að knésetja
stjórnvöld „en (þær) byðu í
þeirra stað aðeins upp á ein-
hverja þokukennda vinstrisinn-
aða hugsjónafræði og blóðugt
ofbeldi."
Blaðið sagði ennfremur: „Ef
einhverja huggun er að finna í
þessu skuggalega máli er hún sú
að ítalir stóðu fastir fyrir þrátt
fyrir öll vandræði sín.“
Washington: Washington
Post lét í ljós þá ósk að „þessi
hryllilegi glæpur" yrði til þess
að Italir endurskipulegðu
stjórnarfar sitt þannig að óskir
almennings ættu greiðari að-
gang að stjórnvöldum og að
stjórnvöld sýndu meiri dug og
skiluðu betri árangri.
Ziirich: Blaðið Tat sagði: „Á
herdeildirnar bundið enda á
sundrungu og komið á þjóðar-
einingu."
Genf: Blaðið La Suisse sagði
að baráttuaðferðir Rauðu her-
Framhald á bls. 30
líkama hans væri að finna í
vatni upp í fjöllum, hinn 18.
apríl, voru liðin nákvæmlega 30
ár frá því að kristilegir demó-
kratar unnu mikinn kosninga-
sigur á Ítalíu og Moro komst í
fyrsta sinn á þing.
Loks þegar lík Moro fannst í
bifreið mitt á milli höfuðstöðva
ítalskra kommúnista og kristi-
legra demókrata á þriðjudag,
voru liðnir nákvæmlega tveir
mánuðir frá því að þriðju
réttarhöldin hófust yfir 15
leiðtogum Rauðu herdeildanna í
Tórínó.
Þá 55 daga sem Moro var í
haldi gáfu Rauðu herdeildirnar
flestar tilkynninga sinna út á
miðvikudögum eða laugardög-
um. Hryðjuverkamennirnir eru
taldir hafa gert það til að sem
mest yrði gert úr tilkynningun-
um í blöðunum á miðvikudag og
sunnudag, en þá eru ítölsku
blöðin hvað stærst.
örfáum dögum hafa Rauðu það eftir fimm klukkustundir.
Hér sést inn í Via Caetani þar sem lögreglan heldur aftur af múgnum, sem safnaðist saman á torginu.
en svæðinu þar sem lík Moros fannst var lokað fyrir allri umferð þegar loks hafði tekizt að rýma
(AP-símamynd).