Morgunblaðið - 11.05.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
19
Flogið í Þórsmörk
FLUGFÉLAGIÐ Vængir hafa
ákveðið að fljúga með farþega til
Þórsmerkur um hvítasunnuna, en
flug þangað tekur um 20 mínútur.
Ráðgert er að fljúga á föstudag og
laugardag og til baka á mánudag.
í þessa fólksflutninga notar
félagið Twin-Otter flugvél, sem
tekur 19 farþega.
24 rithöfundum úthlutað úr
Rithöfundasjóði íslands
STJÓRN Rithöíundasjóðs ís-
lands ákvað nýverið á fundi
sínum að úthluta 24 rithöf-
undum í viðurkenningar-
skyni úr Rithöfundasjóði
325 þúsund krónur hverjum.
Þá ákvað stjórnin einnig að
veita Jónasi Guðmundssyni
rithöfundi 100 þúsund krón-
ur til dvalar á Norðurlönd-
um.
Nöfn þeirra 24 rithöfunda
sem úthlutun fengu fara hér
á eftir:
Björn Bjarman,
Björn Th. Björnsson,
Einar Ólafsson,
Einar Pálsson,
dr. Einar Ól. Sveinsson,
Elías Mar,
Erlendur Jónsson,
Gestur Guðfinnsson,
Guðmundur Ingi
Kristjánsson,
Guðmundur Steinsson,
Gunnar Benediktsson,
Gunnar Ðal,
Hilmar Jónsson,
Jakob Jónasson,
dr. Jón Helgason,
Jónas Árnason,
Jónas E. Svafár,
Líney Jóhannesdóttir,
Málfríður Einarsdóttir,
Rósberg G. Snædal,
Sigurður A. Magnússon,
Ulfar Þormóðsson,
Vilborg Dagbjartsdóttir,
Þröstur Karlsson.
Stjórn Rithöfundasjóðs ís-
lands skipa nú þessir menn:
Kristinn Reyr rithöfundur,
Ingimar Erlendur Sigurðsson
rithöfundur og Runólfur
Þórarinsson stjórnarráðs-
fulltrúi.
Öryggisvarzla
aukin í ísrael
Tel Aviv. 10. maí. Reuter.
MIKLAR öryggisráðstafanir
voru viðhafðar í Israel í dag og
þúsundir fjölskyldna búa sig
undir að sækja minningarathafn-
ir um fallna hermenn í tilefni 30
ára afmælis Israelsríkis.
Eldflaugum til varnar flugvél-
um hefur verið komið upp á
stöðvum fyrir utan borgir lands-
ins og herflokkar á strandlengju
landsins og varðbátar utan henn-
ar gæta sjóleiðarinnar til ísraels.
í dag er sorgardagur í Israel og
haldnar eru í öllum herkirkjugörð-
um landsins minningarathafnir
um fallna hermenn. Ráðherrar og
aðrir leiðtogar halda ræður við
minningarathafnirnar. Arla morg-
uns voru þegar komnir hópar
kvenna í svörtum klæðum í ýmsa
kirkjugarða til að heiðra ætt-
menni.
Til öryggisráðstafananna er
gripið þar sem stjórnin óttast að
eldflaugaárás á úthverfi Jerúsal-
em í vikunni og endurteknar
tilraunir til að sprengja strætis-
vagna í loft upp sé fyrirboði
tilrauna af hálfu Palestínumanna
til að trufla hátíðahöldin í tilefni
afmælis Ísraelsríkis.
Hundruð þúsunda Israela hyggj-
ast verja hátíðardögunum á úti-
vistarsvæðum við ströndina eða í
skógum landsins. Hátíðahöldin ná
hámarki á morgun, sjálfstæðis-
daginn, en þá verður haldin mikil
hersýning á íþróttavelli hebreska
háskólans í Jerúsalem.
Aðalfundur
veggfóðrara
AÐALFUNDUR félags vegg-
fóðrarameistara í Reykjavík var
haldinn nýlega í húsakynnum
félagsins að Skipholti 70. Starf-
semi félagsins sem nýlega hefur
haldið upp á 50 ára afmælið er
með ágætum. I stjórn voru kjörnir:
Formaður Ólafur Ólafsson, vara-
form. óuðmundur J. Kristjánsson,
ritari Gunnar Jónsson, gjaldkeri
Steinþór Eyþórsson, meðstjórn-
andi Stefán Jónsson.
FR YSTIKERFI
Dagard frysti- og kæliklefar eru
samsettir úr einingum þannig afi
mjög auövelt er áö stækka og
minnka þá og jafnvel flytja til.
Möguleikarnir eru margir,
klefarnir henta allt frá stórum
eldhúsum upp i stærstu frystihús.
Komiö I veg fyrir rýrnun og
skemmdir á matvælum. - Notiö
Dagard frysti- og kæliklefa.
19 KRISTINN SÆMUNDSSON
Safamýri 71. Reykjavik. Simi 30031
Með krakkaiia tíl
Kaupmannahamar
Fáar borgir bjóöa jafn marga
möguleika á skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Tívolí - dýragaröur -
sjódýrasafn — sirkus — strönd —
skemmtigarður á Bakkanum — og svo
er líka hægt aö skreppa og skoöa
Legoland — eöa yfir til Svíþjóðar.
Kaupmannahöfn — einn fjölmargra
staöa í áætlunarflugi okkar.
flugfélac LOFTLEIDIR
LSLANDS