Morgunblaðið - 11.05.1978, Page 19

Morgunblaðið - 11.05.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978 19 Flogið í Þórsmörk FLUGFÉLAGIÐ Vængir hafa ákveðið að fljúga með farþega til Þórsmerkur um hvítasunnuna, en flug þangað tekur um 20 mínútur. Ráðgert er að fljúga á föstudag og laugardag og til baka á mánudag. í þessa fólksflutninga notar félagið Twin-Otter flugvél, sem tekur 19 farþega. 24 rithöfundum úthlutað úr Rithöfundasjóði íslands STJÓRN Rithöíundasjóðs ís- lands ákvað nýverið á fundi sínum að úthluta 24 rithöf- undum í viðurkenningar- skyni úr Rithöfundasjóði 325 þúsund krónur hverjum. Þá ákvað stjórnin einnig að veita Jónasi Guðmundssyni rithöfundi 100 þúsund krón- ur til dvalar á Norðurlönd- um. Nöfn þeirra 24 rithöfunda sem úthlutun fengu fara hér á eftir: Björn Bjarman, Björn Th. Björnsson, Einar Ólafsson, Einar Pálsson, dr. Einar Ól. Sveinsson, Elías Mar, Erlendur Jónsson, Gestur Guðfinnsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Guðmundur Steinsson, Gunnar Benediktsson, Gunnar Ðal, Hilmar Jónsson, Jakob Jónasson, dr. Jón Helgason, Jónas Árnason, Jónas E. Svafár, Líney Jóhannesdóttir, Málfríður Einarsdóttir, Rósberg G. Snædal, Sigurður A. Magnússon, Ulfar Þormóðsson, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þröstur Karlsson. Stjórn Rithöfundasjóðs ís- lands skipa nú þessir menn: Kristinn Reyr rithöfundur, Ingimar Erlendur Sigurðsson rithöfundur og Runólfur Þórarinsson stjórnarráðs- fulltrúi. Öryggisvarzla aukin í ísrael Tel Aviv. 10. maí. Reuter. MIKLAR öryggisráðstafanir voru viðhafðar í Israel í dag og þúsundir fjölskyldna búa sig undir að sækja minningarathafn- ir um fallna hermenn í tilefni 30 ára afmælis Israelsríkis. Eldflaugum til varnar flugvél- um hefur verið komið upp á stöðvum fyrir utan borgir lands- ins og herflokkar á strandlengju landsins og varðbátar utan henn- ar gæta sjóleiðarinnar til ísraels. í dag er sorgardagur í Israel og haldnar eru í öllum herkirkjugörð- um landsins minningarathafnir um fallna hermenn. Ráðherrar og aðrir leiðtogar halda ræður við minningarathafnirnar. Arla morg- uns voru þegar komnir hópar kvenna í svörtum klæðum í ýmsa kirkjugarða til að heiðra ætt- menni. Til öryggisráðstafananna er gripið þar sem stjórnin óttast að eldflaugaárás á úthverfi Jerúsal- em í vikunni og endurteknar tilraunir til að sprengja strætis- vagna í loft upp sé fyrirboði tilrauna af hálfu Palestínumanna til að trufla hátíðahöldin í tilefni afmælis Ísraelsríkis. Hundruð þúsunda Israela hyggj- ast verja hátíðardögunum á úti- vistarsvæðum við ströndina eða í skógum landsins. Hátíðahöldin ná hámarki á morgun, sjálfstæðis- daginn, en þá verður haldin mikil hersýning á íþróttavelli hebreska háskólans í Jerúsalem. Aðalfundur veggfóðrara AÐALFUNDUR félags vegg- fóðrarameistara í Reykjavík var haldinn nýlega í húsakynnum félagsins að Skipholti 70. Starf- semi félagsins sem nýlega hefur haldið upp á 50 ára afmælið er með ágætum. I stjórn voru kjörnir: Formaður Ólafur Ólafsson, vara- form. óuðmundur J. Kristjánsson, ritari Gunnar Jónsson, gjaldkeri Steinþór Eyþórsson, meðstjórn- andi Stefán Jónsson. FR YSTIKERFI Dagard frysti- og kæliklefar eru samsettir úr einingum þannig afi mjög auövelt er áö stækka og minnka þá og jafnvel flytja til. Möguleikarnir eru margir, klefarnir henta allt frá stórum eldhúsum upp i stærstu frystihús. Komiö I veg fyrir rýrnun og skemmdir á matvælum. - Notiö Dagard frysti- og kæliklefa. 19 KRISTINN SÆMUNDSSON Safamýri 71. Reykjavik. Simi 30031 Með krakkaiia tíl Kaupmannahamar Fáar borgir bjóöa jafn marga möguleika á skemmtun fyrir alla fjöl- skylduna. Tívolí - dýragaröur - sjódýrasafn — sirkus — strönd — skemmtigarður á Bakkanum — og svo er líka hægt aö skreppa og skoöa Legoland — eöa yfir til Svíþjóðar. Kaupmannahöfn — einn fjölmargra staöa í áætlunarflugi okkar. flugfélac LOFTLEIDIR LSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.