Morgunblaðið - 11.05.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
Frú Shevchenko
sviptir sig lífi
Moskvu. 10. maí. AP. Reuter.
KONA Arkady Shevchenkos, sem
sagði aí sér starfi aðstoðarfram-
kva'mdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna og dvelst enn í Bandarikjun-
um. Leongina. hefur svipt sig lífi
að því er Gennay sonur hennar
skýrði frá í das.
í kvöld sakaði Arkady
Shevchenko sovézk stjórnvöld um
að hafa ncytt konu sína tii að
snúa aftur til Moskvu frá Banda-
ríkjunum ok sa>;ði að fréttin um
sjálfsmorð hennar væri sér „mik-
ið áfall". Hann bað Bandarikja-
stjórn að hjálpa sér að koma
dóttur sinni til Bandaríkjanna.
Gennady Shevchenko sagði að
hann gæti aðeins staðfest að móðir
sín hefði framið sjálfsmorð ogekki
veitt nánari upplýsingar. Hann er
starfsmaður sovézku utanríkis-
þjónustunnar eins og faðr hans
var áður en hann hóf störf hjá SÞ.
Aður hafði Shevchenko sagt
fréttamönnum að móðir hans
hefði látizt í sjúkrahúsi af völdum
hjartabilunar. Hann sagði seinna
að fyrst hefði hann ekki getað
fengið sig til að segja að hún hefði
fyrirfarið sér.
Fyrst var haft eftir góðum
sovézkum heimildum að hún hefði
látizt af völdum of stórs skammts
af svefnpillum sem hún hefði tekið
og að lík hennar hefði fundizt í
skáp í íbúð fjölskyldunnar, þar
sem 16 ára gömul dóttir hennar
hefur búið hjá henni.
Vestrænum fréttamönnum í
Moskvu tókst ekki að fá staðfest
hvor frásögnin á dauða frú
Shevchenkos væri rétt.
Mikilvægur árangur
á hafréttarráðstefnu
Genf, 10. maí. Reuter.
MIKILVÆGUR árangur hefur
náðst í einhverju erfiðasta deilu-
málinu á hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í Genf. deilunni
um námagröft á hafsbotni.
Fulltrúar Bandaríkjanna og
Kanada sögðu í dag að þrir hefðu
náð samkomulagi um ákvörðun
hámarksframleiðslu nikkels á
hafsbotni. Kanadamenn og
Bandaríkjamenn eru mestu fram-
leiðendur og notcndur nikkels f
heiminum.
Bandaríkjamenn og Kanada-
menn hafa þrefað um þetta mál
síðan hafréttarráðstefnan hófst
fyrir sjö árum.
Kanadamenn vildu fá tryggingu
fyrir því að engin röskun yrði á
heimsmarkaði af völdum skyndi-
legrar vinnslu í stórum stíl á
nikkel af hafsbotni. Bandaríkja-
menn vildu að bandarjsk námafyr-
irtæki fengju aö framleiða eins
mikið nikkel og þau gætu.
Varaformaður kanadísku sendi-
nefndarinnar, Don Crosby, kvaðst
telja þetta mikilsverðan árangur
þar sem að minnsta kosti tveir af
sjö fundum ráðstefnunnar hefðu
farið í súginn vegna þrefs um
þetta mál.
Crosby kvaðst telja að nú ætti
að vera hægt að ganga frá drögum
að nýjum hafréttarsamningi á
nýjum fundi á næsta ári og að
undirritun gæti kannski farið
fram árið eftir.
Fiskibátar loka höfninni á Helsingjaeyri. Innilokaðar ferjur i baksýn.
Lokuðu 20 höfnum
Stjórnin bregst illa vid aðgerðunum
Kaupmannahöfn, 10. maí, Reut-
er.
DANSKIR sjómenn lokuðu 20
höfnum landsins í átta klukku
stundir í dag til að mótmæla því
að stjórninni hcfir ekki tekizt að
auka aflakvóta þeirra í Eystra-
salti. Aðgerðir sjómannanna ollu
því að samgöngur á sjó til
Svíþjóðar. Noregs. Vestur- og
Austur-Þýzkalands og Póllands
lögðust niður.
Um það bil 1.800 fiskibátar
tóku þátt í aðgerðunum og til að
votta dönskum starfsbra-ðrum
sinum samúð lokuðu 80 þýzkir
bátar Kilarskurði í dag.
Danska ríkisstjórnin brást hart
Þetta gerðist
1976 -y Sendiherra Bólivíu í París
ráðinn af dögum.
1975 — Souvanna Phouma viöur-
kennir sigur kommúnista í Laos.
1972 — irar samþykkja aðild að EBE
víð þjóöaratkvæðí.
1949 — israel fær upptöku í SÞ.
1943 — Bandaríkjamenn ganga á
land í Attu í Aljút-eyjaklasanum og
ná aflur fyrsta bandaríska landsvæð-
inu al Japönum.
1878 — Tilraun gerö til að ráða
Vilhjálm I Þýzkalandskeisara af
dögum.
1867 — Sjálfstæði Luxemborgar
viðurkennt samkvæmt Parísar-sátt-
málanum og Prússum gert aö flytja
herliö sitt þaðan.
1860 — Garibaldi og Rauðstakkar
hans ganga í land í Genúa.
1824 — Bretar taka Rangoon í
Burma
1812 — Spencer Perceval forsætis-
ráðherra ráðinn af dögum í Neðri
málstofunm.
1745 — Franski marskálkurinn Saxe
sigrar Englendinga við Fontenoy.
1709 — Karl XII Svíakonungur sezt
um Poltava.
1507 — Frakkar innlima Genúa
við aðgerðum sjómannanna. Ank-
er Jörgensen forsætisráðherra
sagði í útvarpsviðtali að stjórnin
hefði frestað fundum sínum um
aðstoð við sjómennina í mótmæla-
skyni. Jörgensen sagði að ef
sjómennirnir hótuðu frekari lok-
unaraðgerðum eftir daginn í dag
yrði lögreglu landsins skipað að
skerast í leikinn.
Framhald á bls. 27
Atmæli dagsins:
bandarískur sönglagahöfundur
(1888— ) — Pauk Nash, brezkur
myndlistamaöur (1889—1946) —
Salvador Dalí, spænskur iistmálari
(1904— ).
Orö dagsins: Vitrir menn tala af því
að þeir hafa eitthvaö aö segja;
hetmskingjar af því að þeir verða að
segja eitthvaö — Platon. grískur
heimspekingur (um 427—347 f.Kr.).
Efri myndin sýnir trúarofstækismenn grýta íranska hermenn. Neðri
myndin sýnir hermcnnina reka ofstækismennina á flótta. Atburðurinn
gerðist í bænum Qum í gær. (Símamynd — AP.
íran:
Fjöldi manns
felldur í átökum
Tohoran. íran. 10. maí. AP.
FJÖLDI manns lét lífið í átökum
á milli hersveita stjórnarinnar og
presta sem í dag réðust á
lögreglustöð í bænum Qum sem
er um 160 kflómetra suður af
Tehcran. Atökin komu í kjölfar
uppþota í bænum í gær, en þá létu
níu manns lífið.
Sjónarvottar sögðu að prest-
arnir hefðu verið í svörtum
skrúða og með vafhúfur á höfði.
Sumir þeirra báru rauða fána í
göngunni að lögreglustöðinni en
auk prestanna tóku þúsundir
manna þátt í átökunum við
stjórnarherinn.
I uppþotunum á þriðjudag var
kveikt í bönkum og hundruð
bifreiða. Til uppþotanna kom eftir
að leiðtogar kirkjunnar hvöttu til
Bandaríkjamenn
hagnýta jarðhita
WollinKton. 10. mai. AP.
WALTER Mondale, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði í lok ferðar
sinnar til fimm Kyrrahafs- og
Asíulanda í dag að Nýsjálendingar
ætiuðu að veita Bandaríkjamönn-
um aðstoð til að hagnýta jarðhita.
Hann sagði á blaðamannafundi
við brottförina frá Nýja Sjálandi
að hann og Robert Muldoon
forsætisráðherra hefðu orðið
ásáttir um sameiginlegar tilraunir
sem mundu grundvallast á forystu
Ný-Sjálendinga á sviði jarðhita-
rannsókna í því skyni að hjálpa
Bandaríkjamönnum að finna nýj-
ar orkulindir.
Varaforsetinn sagði að þeir
hefðu einnig rætt gagnkvæmt
ðrygKÍ, viðskipti landanna og
ástandið í efnahagsmálum heims-
ins. ._____
Fálldinneitar
Stokkhólmi, 10. maí. Reuter — AP.
THORBJÖRN Fálldin forsætisráðherra
Svíþjóðar neitaöi í dag að hafa nokkru
sinni verið í tygjum viö gleðikonu
nokkra sem sagt hefur við yfirheyrslur
aö Falldin hafi verið einn viöskiptavina
sinna. Gleöikonan heldur fram að
margir þekktir menn hafi veriö meðal
viðskiptavina sinna, en rannsóknir hafa
bent til þess að fátt sé raunhæft í
framburSi gleðikonunnar.
Olof Palme fyrrum forsætisráöherra
Svíþjóðar, sem á sínum tíma fékk
leynilega skýrslu frá lögreglunni um
framburö gleðikonunnar. sagöi á þingi
í dag að framburður konunnar væri
illgjarnt kjaftæöi.
mótmælaaðgerða gegn stjórninni
til að minnast þess að 40 dagar
voru liðnir frá því að maður féll
í mótmælaaðgerðum gegn stjórn-
inni.
Mótmælendurnir eru helzt á
móti stjórninni fyrir áætlanir
hennar um að aflétta ýmsum
boðum og bönnum sem hvíla á
konum í Iran, en einnig vilja
andstæðingar stjórnarinnar að
hún loki kvikmyndahúsum og
vínbúðum í landinu.
Til mótmæla og átaka kom í
öðrum bæjum og borgum íran í
dag, en hvergi voru þau eins
alvarleg og í Qum. Þó börðu
mótmælendur þrjá háskólamenn
til bana í Teheran í dag.
Tilkynnt var í Lundúnum í dag
að Bretar hefðu gert hernaðar-
samning við Irani að upphæð um
350 milljarða íslenzkra króna.
Meðal annars munu Bretar reisa
mikla vopnaverksmiðju fyrir ír-
ani.
* ■ /
VEÐUR
víða um heim
Amsterdam 16 skýjað
Aþena 25 heiðríkt
Berlin 10 skýjað
BrUssel 17 heiðríkja
Chicago 15 heiðríkja
Frankfurt 18 skýjað
Genf 14 sólskin
Helsinki 5 heiðríkja
Jerúsalom 25 heiöríkja
Jóh.borg 21 sólskin
Kaupm.höfn 14 sólskin
Lissabon 18 sólskin
London 18 sólskin
Los Angeles 29 skýjað
Madríd 18 heiörfkja
Malaga 19 skýjað
Miami 18 heiöríkja
Moskva 18 rigning
New York 18 heiöríkja
Ósió 12 sólskin
Palma 16 skýjaö
París 19 sólskin
Rómaborg 21 skýjad
Stokkhólmur 10 breytilegt
Tel Aviv 25 heiðríkja
Tókýó 21 rigning
Vancouver 21 rigning
Vínarborg 13 rígning