Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAI 1978 31 Hlýtur styrk til doktorsverkefnis í heimskautarétti Atlantshafsbandalagið tilkynnti nýlega hverjir hljóta vísindastyrki Nato árin 1978 og 1979. Að þessu sinni hljóta 18 vís- indamenn styrki frá bandalaginu og er einn íslendingur í þeim hópi, Guðmundur S. Alfreðsson lögfræðingur. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Guðmundur að hann hygðist nota styrkinn til að vinna að doktorsverkefni í þjóðarrétti við lagadeild Har- vard-háskólans í Bandaríkjun- um. Fjallar doktorsritgerð Guðmundar um heimskauta- rétt og verður réttarstaða Grærilands uppistaðan í rit- gerðinni. Guðmundur mun nota styrkinn sumarið 1979. Vísindastyrkur Nato nemur rúmlega 180 þúsund íslenzkum krónum á mánuði í 4 mánuði. Guðmundur S. Alfreðsson er 28 ára gamall. Hann lauk lagaprófi við Háskóla Islands 1975. Síðan hefur hann stund- að framhaldsnám við Uni- versity of Texas og New York University í Bandaríkjunum, en frá síðarnefnda skólanum lauk hann meistaraprófi í samanburðarlögfræði og þjóð- arrétti 1976. í vetur hefur Guðmundur numið við Max-Planck-Institut í Heidel- berg í Vestur-Þýzkalandi þar sem hann vinnur jafnframt að ritgerð sinni. Veggskjöldur SVFÍ í TILEFNI 50 ára afmadis Slysa- varnafélags tslands í janúar s.l. hefur félagið látið gera vegg- skjöld hjá fyrirtækinu Bing & Gröndahl f Kaupmannahöfn og mun skjöldurinn verða til sölu á skrifstofu félagsins á Granda- garði og hjá slysavarnadeiidum um land allt og kostar 5000 krónur. Eggert Guðmundsson listmálari teiknaði skjöldinn og er fyrir* myndin sótt í þann þátt félags- starfsins, sem öðru fremur hefur einkennt störf SVFÍ í fimm áratugi — björgun manna úr sjávarháska. Fjölbrautaskóli Suð- urnesja sigurvegari í skákkeppni stofnana NÝLEGA lauk skákkeppni stofn- ana og fyrirtækja 1978. Keppninni var skipt í tvo riðla A- og B-riðil. í A-riðli tefldu 16 sveitir 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Sigurvegari varð Fjölbrautaskóli Suðurnesja, hlaut 19 vinninga af 28 mögulegum. Röð efstu sveita varð þessii Nr. vinn. 1. Fjölbr.sk. Suðurnesja 19 2. Búnaðarbankinn 18 3. Grunnsk. Reykjav. 17'/2 4. Utvegsbankinn 16'/2 5. Breiðholt hf. 15'/2 6. Flugleiðir a-sveit 15 Sigursveit Fjölbrautaskóla Suður- nesja skipuðu þessir skákmenn: 1. Bragi Hallctórsson. 2. Björgvin Víglundsson. 3. Jón G. Briem. 4. Gísli K. Sigurkarlsson. varam.: 1. Jón Böðvarsson. 2. Baldur Kristjánsson. Listi Al- þýðuflokks á Selfossi LAGÐUR hefur verið fram og birtur framboðslisti Alþýðu- flokksins á Selfossi og skipa hann eftirfarandii 1. Steingrímur Ingvarsson, verk- fræðingur, 2. Einar Elíasson framkvæmdastjóri, 3. Jónas Magnússon vörubílstjóri, 4. Sig- urður Guðjónsson pípulagning- arm., 5. Björg Þ. Sörensen hús- móðir, 6. Sigurjón Bergsson sím- virkjameistari, 7. Guðmundur Guðmundsson húsasmiður, 8. Erla Eyjólfsdóttir húsmóðir, 9. Eygló Lilja Gránz bankaritari, 10. Árni Sigursteinsson framkvæmdastjóri, 11. Engilbert Þórarinsson rafvirki, 12. Hlín Daníelsdóttir kennari, 13. Sigurbjörg Gísladóttir húsmóðir, 14. Guðbjörg. Ólafsdóttir húsmóð- ir, 15. Jón Ingi Sigurmundsson kennari, 16. Hreinn Erlendsson verkamaður, 17. Stefán A. Magnússon kennari, 18. Guð- mundur Jónsson skósmiður. 3. Garðar Oddgeirsson. 4. Sigmundur Böðvarsson. Að lokinni aðalkeppninni i A-riðli var efnt til hraðskákmóts og sigraði þá sveit frá Skákprent, en Búnaðar- bankinn varð í 2. sæti. í B-riðli tefldu 24 sveitir. Flesta vinninga hlaut unglingasveit frá Taflfélagi Reykjavíkur (14 ára og yngri) alls 21 vinning. Sú sveit keppti sem gestur í mótinu, og hlaut því 1. verðlaun í B-riðli skáksveit Landspítalans, sem hlaut 19 vinn- inga. 2. verðlaun hlaut Ríkisútvarpíð með 18 vinninga og 3. verðlaun Þýsk-íslenska verslunarfélagið með 17 V4 vinning. I sigursveit Landspít- alans voru þessir skákmenn: 1. Ingólfur Hjaltalín. 2. Bjarni Þjóðleifsson. 3. Sverrir Bergmann. 4. Snorri Páll Snorrason. varam.: 1. Davíð Gíslason. 2. Guðjón Sigurbjörnsson. 3. Auðunn Sveinbjörnsson. 4. Þórður Harðarson. Hraðskákmót fór einnig fram í B-riðli og sigraði Þýsk-íslenska verslunarfélagið, sem hlaut 41 vinn- ing, en unglingasveit frá Taflfélagi Reykjavíkur hlaut 39'/2 vinning. Fyrirlest- ur um hóp- slys í Norr- æna húsinu KARL Gustav Dhuner, yfirlæknlr á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. er staddur hér á landi og mun flytja fyrirlestur um „hópslys" í Norræna húsinu í kvöld klukkan 17.00. Fyrirlestur þessi er fiuttur í samvinnu viö Almannavarnir ríkisins. Dhuner hefur m.a. unnið mikið að hópslysamálum í Svíþjóð, auk þess sem hann starfaði um skeið í Beirtít í' Líbanon á véfþírb Raúða krossins í borgarastyrjöldinni þar. œvis LEVrS EÐA EKKERT Varist eftirlíkingar Snið sem við eigum á lager LEVI’S SNIÐ IBLÁU DENIM OG FLAUELI Laugavegi 37 og 89. 521 Símar 12861/10353. JS2 Okkar vinsælasta gallabuxnasmið, beinar skálmar (22 tommur) í bláu gallabuxnaefni (denim) einnig í flaueli, dökkbrúnu. Verð kr. 9950.- Nýja kvensniðið frá LEVI‘S beinar skálmar (20 tommur) í denim og flaueli, drapplitaðar og beinhvítar. Verð kr. 9950- Barnonúmer 6-8-10-12-14 Levis stœrða tafla í tommum mitti 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 34 skrefsidd 36 skrefsidd Vinsamlegast krossið við stærð og lit sem þið óskið eftir. Við sendum strax, meða birgðir endast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.