Morgunblaðið - 11.05.1978, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAI 1978
39
Þorleifur Guðnumdssm
Hafnarfírði — Muming
Fæddur 1. september 1902 Kristín í Hafnarfirði og Hjördís í
Dáinn 2. maí 1978. Keflavík.
í dag verður Þorleifur
Guðmundsson, fyrrum verkstjóri,
Arnarhrauni 13, Hafnarfirði, til
moldar borinn. Þorleifur fæddist
hinn 1. september 1902 aö Steina-
nesi við Arnarfjörð og var því 75
ára er hann lést eftir stranga
sjúkdómslegu, Foreldrar Þorleifs
voru Kristín Þorleifsdóttir og
Guðmundur Asgeirsaon, sem bæði
voru Vestfirðingar í húð og hár og
komin af þekktum vestfirskum
ættum. Að Steinanesi stunduðu
þau búskap, þaðan var sótt á
sjóinn og stunduð selatekja, eins
og títt var á þeim tíma á
Vestfjörðum. Árið 1913 fluttust
þau til Hafnarfjarðar og bjuggu
þar æ síðan. Kristínu og
Guðmundi fæddust 10 börn og
komust sjö þeirra til fullorðinsára.
Að Þorleifi gengnum eru nú
einungis tvær systur eftirlifandi,
í Hafnarfirði settust þau
Kristín og Guðmundur fyrst að í
Grund og síðan að Re.vkjavíkur-
vegi 14 B. Fjölskyldan var stór,
húsakostur þröngur og ekki alltaf
úr miklu að spila, eins og verða
vildi á þessum árum Þorleifur fékk
því strax í barnæsku að kynnast
kjörum hins vinnandi manns og
fór snemma að vinna fyrir sér. I
fyrstu stundaði hann almenna
verkamannavinnu, einkum í fiski,
en fljótlega réðst hann til Ásgríms
Sigfússonar og Þórarins Egilsson-
ar í fyrirtæki þeirra Akurgerði og
var þar verkstjóri í mörg ár.
Þaðan lá leiðin í vegavinnu og
gatnagerð. Þorleifur var verkstjóri
við lagningu Krísuvíkurvegarins
og að því loknu var hann um
áratugaskeið verkstjóri í bæjar-
vinnunni í Hafnarfirði. Síðustu
árin var hann svo við eftirlitsstörf
á vegum brunavarnanna í Hafnar-
firði.
Hinn 16. júní 1923 kvæntist
Þorleifur Sigurlínu Jóhannes-
dóttur, sem lést árið 1969. Sigurlín
og Þorleifur eignuðust fimm börn:
Guðmund, mælingafulltrúa,
Kristínu, gifta Hauki Magnússyni,
húsasmið, Margréti, gifta Sigurði
Jónssyni, bifreiðarstjóra, Sigrúnu,
gifta Gísla Jóni Egilssyni,
kaupmanni, sem er nýlátinn og
verður jarðsunginn um leið og
Þorleifur og Gyðu, sem lézt í
•barnæsku. Síðast en ekki síst tóku
þau Þorleifur og Sigurlín eitt
barnabarna sinna að kjörsyni,
Grétar Þorleifsson, formann
Félags byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði.
Það er fjölmennur hópur, sem
sér nú á bak föður, tengdaföður,
afa og langafa. Um þennan hóp
var Þorleifi annt og bar velferð
þeirra allra fyrir brjósti. Þau hafa
því mikils að sakna.
Þorleifur var starfsamur og
tryggur verkmaður. Hann vann
bæ sínum vel og vildi honum
aðeins hið besta. Allur sá tími sem
fór í verkstjórnarstörfin var ekki
mældur svo nákvæmlega. Höfuð-
atriðið var að inna verk sín sem
best af hendi.
Þorleifur var félagslyndur, án
þess að vilja þó trapa sér fram.
Hann hafði líka mikla unun af
söng og var meðal stofnenda
karlakórsins Þrasta og var síðar
kjörinn heiðursfélagi hans. Þor-
leifur hafði kynnst kjörum
alþýðunnar í landinu þegar á
uppvaxtarárum sínum og skildi
gildi jafnaðarstefnunnar og verka-
lýðshreyfingarinnar fyrir fólkið í
landinu, enda skipaði hann sér
ótrauður í raðir Álþýðuflokksins
og var dyggur stuðningsmaður
hans og þeirra hugsjóna, sem hann
vinnur að.
Mér er Þorleifur minnisstæður á
verkstjóraárum hans hjá bænum.
Við strákarnir fundum ósjaldan
hvöt hjá okkur til þess að hnýsast
í þau verk sem bæjarvinnan var að
fást við. Aldrei tók Þorleifur því
illa. Hann var þvert á móti
gamansamur og hafði skilning á
þessari forvitni okkar strákanna.
Síðar kynntist ég Þorleifi nokkuð
á efri árum, einkum vegna pm-
gengni og vináttu við son hans
Grétar. Þá fann ég glöggt, hve
traustur maður Þorleifur var og
heilsteyptur, og hve sterkum
böndum fjölskyldan var bundin og
hve annt hann lét sén um hana.
Allri þessari fjölskyldu votta ég
innilega hluttekningu mína og
minna.
Kjartan Jóhannsson.
r
c
Viðtalstímar
frambjóóenda
Frambjóöendur Sjálfstæöisflokksins viC
borgarstjórnarkosningarnar munu skiptasl
á um aö vera til viötals á hverfisskrifstofurr
Sjálfstæöismanna næstu daga.
Frambjóöendur veröa viö milli kl. 18—1S
e.h. eöa á öörum tímum, ef þess er óskaö
Fimmtudaginn 11.
frambjóöendur til
hverfisskrifstofum:
maí verða eftirtaldii
viðtals á eftirtöldum
Nes- og Melahverfi, Ingóifsstræti 1 a
Sigurjón Á. Fjeldsted, skólastjóri
Vestur- og Miðbæjarhverfi, Ingólfsstræti 1
a
Sveinn Björnsson, kaupmaöur
Austurbær og Noröurmýri, Hverfisgötu 42,
4. hæð
Markús Örn Antonsson, ritstjóri
Hlíöa- og Holtahverfi, Valhöll, Háaleitcs-
braut 1
Bessí Jóhannsdóttir, kennari
Laugarneshverfi, Bjargi v/ Sundlaugaveg
Páll Gíslason, læknir
Langholt, Langholtsvegi 124
Sveinn Björnsson, verkfræöingur
Háaleitishverfi, Valhöll, Háaleitisbraut 1
Davíö Oddsson, skrifstofustjóri
Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi,
Langagerði 21 (kjallara)
Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri
Árbæjar- og Seláshverfi, Hraunbæ 102 b
(aö sunnanverðu)
Margrét S. Einarsdóttir, ritari.
Bakka- og Stekkjahverfi, Seljabraut 54, 2.
hæð
Fella- og Hólahverfi, Seljabraut 54, 2. hæð
Elín Pálmadóttir, blaöamaöur
Skóga- og Seljahverfi, Seljabraut 54, 2.
hæð
Hulda Valtýsdóttir, húsmóöir
11-lisfinn
■
VORUM AÐ TAKA
UPP
MIKIÐ ÚRVAL AF
VOR- OG SUMAR-
FATNAÐI
Bergstaðastræti 4, sími 14350.
VANTAR ÞIG TAPPA
SEM GETUR HALDIO
þá þarflu að blðja um sterka tappann Irá
1. Vænglrnlr hlndra
tappann frá því að
•núast í gatlnu.
2. Kraglnn aftrar tapp-
anum að fara of langt
Innl gatlð.
3. betta svæðl þenst ekkl út
sem kemur ( vag fyrir
sprungumyndanir ( pússn-
Ingu.
6. i lokastððu verður skrúf-
an að fara 3— 9 mm i gogn-
um tappann til þess að ná
hámarksfestu.
4. benst út í fjórar áttlr tll
þoss að ná (trustu fastu.
5. Yflrborölð er slétt og
gefur þar af lelðandi mesta
viðnám (stærsti snertlflöt-
ur).
Ath.: Höfum einnlg bora sem eru sérstaklega
merktir miðað vlð lengd tappa.
Fæst í flestum
byggingavöruverzlunum
51 Sundaborg
Siml: 84000 - Reykjavík