Morgunblaðið - 23.05.1978, Síða 35

Morgunblaðið - 23.05.1978, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 Þjóðleikhuskorinn. Ummæli Garðars Cortez skóla- stjóra Söngskólans í Reykjavík á öftustu blaðsíðu í söngskrá VIII- stigs tónleika nemenda Söng- skólans í Reykjavík gætu valdið misskilningi, og leiðréttast því hér með. 1) Cortez segir um „Islenska óperu": „Þykir mér tilhlýðilegt að kynna þetta fyrirtæki lítillega og undirbúa þannig jarðveginn fyrir íslenska óperustarfsemi". Upplýst skal, að íslensk óperu- starfsemi hefur verið í Þjóðleik- húsinu frá stofnun þess og var einmitt óperan sem Cortez ætlar að flytja, La Travíata eftir Verdi, annað óperuverkefni Þjóðleik- hússins undir stjórn dr. Victors Urbancic og sungin af Þjóðleik- húskórnum, ásamt einsöngvurum. 2) Cortez segir síðar orðrétt á sömu blaðSíðu: „óperuflutningur í Þjóðleikhúsinu hafði legið niðri um árabil þar til o.s.frv." Til þess að hnekkja þessum leiða mis- skilningi þykir rétt að birta hér á eftir lista yfir allar þær óperur, óperettur og söngleiki, er Þjóð- leikhúsið hefur flutt frá stofnun þess og til þessa dags. Því þess ber að gæta að hafa jafnan í huga við samningu ritverks það er sannara rejfnist. Operur, óperettur og stærri söngleikir í Þjóðleikhúsinu. 1950 Brúðkaup Fígarós, Gestal. frá Svíþjóð. 1951 Rígólettó. 1952 Leðurblakan. 1953 Österbottningar Gestal. frá Finnlandi. 1953 La Traviata. 1954 Nitouch. 1954—55 Cavalleria Rusticana og I Pagliacci. 1956 Káta ekkjan. 1956—57 Töfraflaut- an. 1957 Sumar í Tyrol. 1957 Tosca. 1957 Cosi fan tutte Gestal. frá Wiesbadenásamt ísl. kórfólki. .1957—58 Kysstu mig Kata. 1958—59 Rakarinn í Sevilla. 1959 Betlistúdentinn. 1960 Rigoletto. 1960 Selda brúðurinn Gestal. frá Tékkóslóv. ásamt ísl. kórfólki o.fl. 1960—61 Don Pasquale. 1961 Sígaunabaróninn. 1962 My Fair Lady. 1963 II Trovatore 1964 Sardasfurstinnan. 1965 Madame Butterfly. 1966 Ævintýri Hoff- manns. 1966—67 Marta. 1968 Brosandi land. 1969 Fiðlarinn á Þakinu. 1969—70 Brúðkaup Figaros. 1970 Albert Herring Gestal. frá Skotlandi. The Turn of the Screw Gestal. frá Skotlandi. 1971 Zorba. 1972 Oklahoma. 1972 Draumur á Jónsmessunótt Gestal. frá Skotlandi. 1973 Kabarett. Ia73—74 Leðurblakan. 1974 Þrymskviða. 1975—76 Carmen. 1977 Helena fagra. 1978 Káta ekkjan. Með bestu framtíðaróskum og einlægum vinarkveðjum Þorsteinn Sveinsson formður Þjóðleikhúskórsins Ólína Björnsdóttir sjötíu og fimm ára Þorsteinn Sveinsson, formaður Þjóðleikhússkórsins: Er íslenzk óperu- starfsemi nýmæli? I dag, 23. maí 1978, er merkur borgari Sauðárkrókskaupstaðar 75 ára, Ólína Björnsdóttir, húsfreyja að Aðalgötu 5, Sauðárkróki. Vel hefði sæmt og raunar verið skylt að senda Ólínu myndarlega afmæliskveðju, en seint tók ég við mér og í þessu greinarkorni ætla ég því ekki að rekja ævi né ættarsögu Ólínu, aðeins grípa tækifærið til þess að árna henni heilla og þakka henni vinsemdina, sem aldrei hefur brugðizt frá fyrstu kynnum, og nú eru orðin löng. Ólínu Ingibjörg heitir hún fullu nafni, en við nefnum hana gjarnan Ólínu í bakaríinu og undir því heiti er hún víða þekkt. Hún er Skeflungur, en svo nefnum við okkur, sem eigum rót og uppvöxt í Skefilsstaðahreppi á Laxárdal og Skaga austanverðu. Og á þingstað hreppsins, Skefilsstöðum, fæddist Ólína 23. maí 1903 næstyngst fjögurra barna Björns bónda Ólafssonar og konu hans Guðrún- ar Björnsdóttur. Ólína er að Skíðastaðaætt, forstandsmenn eru flestir Skíð- ungar og vart bregzt þeim dugur. Þessar eigindir Skíðastaðaættar á Ólína Björnsdóttir í ríkum mæli, skörungsskapur hennar og dugn- aður er með fádæmum. Dagsverk hennar er orðið mikið og enn lætur hún ekki deigan síga. Á gest- kvæmu heimili hennar hefur margur notið góðra stund og veitinga og margir munu með mér minnast í dag þeirra með þakklát- um huga. Ólína er tvígift, fyrri maður hennar Snæbjörn Sigurðsson, bakarameistari, and- aðist 1932 og síðar giftist hún Guðjóni Sigurðssyni bakara- meistara. Börn eignaðist hún níu og eru 7 á lífi. Fyrr á árum var rekin nokkur greiðasala í bakaríinu á Sauðár- króki og veitti Ólína henni for- stöðu ásamt mönnum sínum. Að því leyti heldur þessi greiðasala áfram að þá er „góða veizlu gjöra Rafverktakar: Fagna nýrri verðlagslöggjöf og hvetja til raunhæfs verðlagseftirlits NÝVERIÐ var haldinn aðalfundur Félags löggiltra rafverktaka og meðal umræðuefna á fundinum voru ýmis hagsmunamál rafverk- taka. Fundurinn samþykkti álykt- un þar sem fagnað er nýrri verðlagslöggjöf en þeim tilmælum er jafnframt beint til stjórnvalda að á grundvelli hinnar nýju löggjafar verði komið á fót raun- hæfu verðlagseftirliti byggðu á þekkingu en úrelt vinnubrögð hafta og vanþekkingar verði lögð niður. Hvatti fundurinn í því sambandi til þess að kannanir, sem gerðar hafa verið á rekstri fyrirtækja í nokkrum starfsgrein- um, verði notaðar til viðmiðunar en ekki.látnar rykfalla í skápum viðkomandi embætta. Ennfremur hvetur fundurinn til meiri al- mennrar fræðslu um verðmyndun og viðskiptahætti til að fyrir- byggja hleypidóma og tortryggni gagnvart viðskiptum. I annarri ályktun fundarins er þeim tilmælum beint til fjármála- ráðherra og annarra opinberra aðila að beir láti fara fram athugun á raunverulegu og endan- legu verði tilboðsverka og tryggi að slíkar upplýsingar séu hand- bærar fyrir viðkomandi aðila í verklok til að tryggja að útboð séu ekki viðhöfð í blekkingarskyni og/eða til að sýnast. Þá lýsti fundurinn yfir eindregnum stuðningi við íslenzk- an skipaiðnað og vakti athygli á því að þróun framleiðslu og viðgerða skipa á íslandi er mikil- vægari en stuðningur við uppbygg- ingu erlendra skipasmíða sem viðgengist hefur um áraraðir. Stjórn félagsins var endurkjörin en hana skipa: Gunnar Guðmunds- son formaður, Hannes Vigfússon varaformaður, Guðjón Á. Ottósson ritari, Þórarinn Helgason gjald- keri og Böðvar Valtýsson með- stjórnandi. skal“ og efnt er til mannfagnaðar, er Ólínu falið að sjá um veizlukost- inn, og nær allar erfisdrykkjur á Sauðárkróki annast hún og er sú framkvæmd öll með viðurkennd- um myndarbrag. Ólína Björnsdóttir hefur verið og er mikil húsmóðir og „matmóð- ir“. En mest og bezt hefur hún verið móðir börnum sínum og verið þeim í einu og öllu til fyrirmyndar í manndómi, ráðdeild og fyrirhyggju. Eigi alllítið hefur Ólína Björnsdóttir starfað að félagsmálum, þrátt fyrir allt annríki annað og nú er hún formaður í sjálfstæðisfélagi kvenna á Sauðárkróki. Hún hefur alla tíð verið einarður stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins og það eru menn á borð við hana, sem hafa gert þann flokk að því áhrifavaldi í íslenzkum stjórnmál- um sem hann er. Ólína Björnsdóttir er einörð kona, feimulaust segir hún hug sinn um allt, er henni sýnist til ófremdar horfa og við vinir hennar misskilj- um ekki hreinskilni hennar og hreinskipti. Hún er vinur, sem til vamms segir og gerir það af góðum hug velvildar. Gerir það af því að hún þolir ekki ódyggðir og læpu- skap og hún hefur sannarlega efni á að segja okkur til syndanna, hvað allan ónytjungshátt varðar, svo víðsfjarri allt hugleysi er henni sjálfri, geði hennar og gerð. Víst óskum við þess að fá enn sem lengst að njóta starfa hennar og samferða. Slíkir menn sem Ólína Björnsdóttir eru mannbótamenn og þeir setja svip á samtíð og sögu. Og að lokinni dagsönn snúa þeir heim með sæmd í fylgd þakkar- og blessunaróska. Enn og aftur þökk Ólínu og lifðu heil. Sr. Gunnar Gíslason. D-listinn boðar til framboösfundar þriðjudag- inn 23. maí kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1, 3. hæö. Framsöguræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri Stefnir Helgason. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.