Morgunblaðið - 26.05.1978, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
107. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter ræðst
á Kúbumenn
Chicago. 25. maí. Reuter. AP.
CARTER forseti sagði í dag
að Kúbumenn hefðu átt
mikinn þátt í að þjálfa og
útbúa uppreisnarmennina
sem réðust inn í Zaire frá
Angola.
Hann sagði á blaðamanna-
fundi að þótt innrásin væri
aðallega Angola að kenna
heðu Kúbumenn gegnt lykil-
hlutverki. Hann sagði að
Kúbumenn hlýðnuðust skip-
unum Rússa í Afríku. „Að
kalla Kúbu hlutlaust ríki er
brandari,“ sagði hann.
Forsetinn kvað þingið binda svo
mjög hendur sínar að Bandaríkja-
menn gætu ekki gripið til kröft-
ugra aðgerða þegar hættuástand
skapaðist einhvers staðar í heim-
inum. Þess vegna kvaðst hann ekki
Framhald á bls. 20.
Giscard býður
til ráðstefnu
New York. 25. maí. Reuter. AP.
FRAKKAR hvöttu í dag þær
35 þjóðir Evrópu og Norð-
ur-Ameríku sem tóku þátt í
öryggisráðstefnunni í
Helsinki 1975 að efna til
nýrrar ráðstefnu til þess að
semja áætlanir um afvopnun
alla leið frá Atlantshafi til
Úralfjalla.
Tillaga um slíka afvopn-
unarráðstefnu Evrópu kom
fram í ræðu sem Valery
Giscard d‘Estaing Frakk-
landsforseti flutti á Allsherj-
arþinginu og er liður í
víðtækri franskri áætlun um
að binda enda á vígbúnaðar-
kapphlaupið í heiminum.
Seinna sagði Giscard forseti
fréttamönnum að boð yrðu send á
morgun til 34 þjóða um að taka
þátt í undirbúningi ráðstefnunnar.
Hann taldi að unnt mundi reynast
Framhald á bls. 20.
Líbanir semja
við skæruliða
Reykjavík úr lofti,
Hermenn Frakka
á brott frá Kolwezi
París. 25. maí. Reuter.
Beirút. 25. maí. AP
PALESTÍNSKI skæruliða-
leiðtoginn Yasser Arafat
hefur heitið líbönsku stjórn-
inni því að palestínskir
skæruliðar muni hafa sam-
starf við friðargæzluher-
menn Sameinuðu þjóðanna í
Suður-Líbanon enda þótt
harðlínumenn í hreyfingu
hans hóti uppreisn gegn
honum
Hófsamir leiðtogar Frelsissam-
taka Palestínu (PLO) og Salim E1
Hoss forsætisráðherra hafa gert
með sér samkomulag í fimm liðum
þar sem kveðið er á um slíka
FRJÁLSLYNDI flokkurinn
í Bretlandi tilkynnti í dag að
hann mundi hætta stuðningi
sínum við stjórn Verka-
mannaflokksins og þar með
er talið nær alveg víst að
James Callaghan forsætis-
ráðherra efni til þingkosn-
samvinnu. Samkomulagið er talið
mikilvægt skref í þá átt að draga
úr hættuástandinu í Suður-Líban-
on og stuðla að friðsamlegri
sambúð Palestínumanna og líb-
anskra stjórnvalda.
Kurt Wahdheim, framkvæmda-
stjóri SÞ, og yfirmenn gæzlusveita
SÞ hafa áður fengið loforð frá
Arafat um að skæruliðar hans
verði ekki sendir á laun gegnum
víglínu gæzlusveitanna inn í Suð-
ur-Líbanon, en líbönsk stjórnvöld
hafa svo til engin loforð fengið frá
honum.
Samningurinn er að dómi kunn-
ugra fyrsta skrefið í átt að
fullnaðar friðarsamningi þar sem
Framhald á bls. 20.
inga í haust, sennilega í
október.
Þrettán þingmenn Frjáls-
lynda flokksins hafa haldið
Verkamannaflokknum við
völd undanfarna 15 mánuði.
í dag tilkynntu þeir að þeir
mundu hætta stuðningnum
við stjórnina þegar yfir-
FRAKKAR hófu í dag brott-
flutning fallhlífahermanna
Útlendingahersveitarinnar
frá Kolwezi þar sem tekizt
hefur að tryggja brottflutn-
standandi þingi lyki og þá
mun Callaghan skorta 10
þingsæti í Neðri málstof-
unni til að hafa hreinan
meirihluta.
Ástæðan fyrir ákvörðun þing-
manna Frjálslynda flokksins er sú
að þeir vilja fjarlægjast stjórnina
Framhald á bls. 21
ing hvítra manna frá svæð-
inu í suðurhluta Zaire sem
uppreisnarmenn gerðu inn-
rás í.
Forseti Zaire, Mobutu
Sese Seko, kvartaði þó yfir
því að hann hefði ekki verið
hafður með í ráðum 1 sam-
bandi við brottflutninginn.
Og diplómatar í höfuðborg-
inni Kinshasa sögðu að 150
til 300 uppreisnarmenn
væru í felum skammt frá
Kolwezi og þess albúnir að
sækja aftur inn í bæinn
þegar frönsku hermennirnir
væru farnir.
Franska landvarnaráðuneytið
sagði að hafinn væri brottflutn-
ingur fallhlífahermanna til
Lubumbashi, höfuðborgar
Shaba-héraðs, og þaðan yrðu þeir
fluttir úr landi. Talið er að
brottflutningurinn taki um 36
klukkustundir.
Jafnframt var haft eftir heim-
ildum í frönsku stjórninni að
Frakkar hefðu lýst yfir heilshugar
stuðningi á fundi æðstu manna
Framhald á bls. 20.
Flóðin
minnka
StuttKart. 25. maí. Reuter.
NOKKUÐ dró úr alvarlegum flóð-
um í Suðvestur-Þýzkalandi í dag og
hætta á því að Rín flæddi yfir
bakka sína dvínaði.
Innanríkisráðuneytið í
Baden-Wiirtemberg sagði að viðbún-
aði vegna flóða hefði verið hætt í
Stuttgart, Freiburg og Túbingen. En
enn er í gildi bann frá því í
gærkvöldi við allri umferð á Rín frá
Sviss til Worms.
Á Mannheim-svæðinu er vatns-
borð Rínar enn fimm metrum fyrir
ofan meðallag á þessum tíma árs.
Við Neckar hækkar vatnsborð Rínar
enn og mældist 8.60 metrar í kvöld.
Hættumarkið er níu metrar.
Frjálslyndir hætta við
stuðning við CaUaghan
London. 25. maí. Reuter.