Morgunblaðið - 27.05.1978, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAI 1978
—Ovissa um úrslit kall-
ar á þrotlaust starf
Framhald af bls. 1
upp dagvistarstofnanir og skipu-
leggja jafnframt dagvistun á
einkaheimilum, svo að sem flestir
foreldrar, sem þurfa og vilja, geti
komið börnum sínum fyrir á
slíkum stofnunum.
Við höfum áhuga á að tryggja
borgarhúum áfram næga orku,
bæði raforku og hitaorku. — Efla
atvinnulífiö i borginni og halda
áfram uppbyggingu hafnarinnar.
Þannig mætti áfram telja. Alls
staðar hlasa verkefnin við í vax-
andi borg. En þótt við höfum þessi
mörgu áhugamál, gerum við okkur
grein fyrir því, að hraðinn við
framkvæmdirnar og það hversu
fljótt okkur tekst að koma þessum
hugsjónum okkar fram fer eftir
fjárhag borgarinnar. Fjárhagurinn
er traustur í dag og honum má ekki
spilla með ótímabærum fram-
kvæmdúm.
En borg byggist ekki einungis á
framkvæmdum og í rauninni eru
það ekki þær, sem skera úr um það,
hvernig lífi er lifað í borginni. Þess
vegna hafa Sjálfstæðismenn lagt
mikla áherzlu á mannúðiega fé-
lagsmálastefnu, sem miðar að því
að styðja sem flesta til sjálfsbjarg-
ar. Fegrun umhverfisins og ötuli
Guzman sigr-
aði í forseta-
kosningiinum
Santo Domingo. 2fi. mai. Reuter.
í DAG var tilkynnt opinber-
lega í Santo Domingo að
Antonio Guzman. mótfram-
bjóðandi forseta landsins,
hefði farið með sigur af hólmi
í forsetakosningunum f land-
inu. en herinn stöðvaði taln-
ingu atkvæða fyrir nokkru
þegar sýnt var að Guzman
stefndi að sigri.
Tilkynningin batt enda á
níu daga óvissuástand í land-
inu, sem skapaðist þegar
talningu var hætt, en henni
var haldið áfram undanfarna
daga á ineðan beðið var þess
að herinn gerði upp við sig,
hvort yfirmenn hans hygðust
hafa úrslitin í heiðri. Hinn nýi
forseti Dóminíkanska lýðveld-
isins er 67 ára bóndi og
jafnaðarmaður. Hann mun
formlega taka við embætti
forseta í ágúst nk.
14 ára fullur
á stolinni
skellinöðru
LOGREGLAN í Árbæjarhverfi
handsamaði í gærkvöldi unglings-
pilt, sem ók um hverfið á skelli-
nöðru.
Hafði lögreglan ýmislegt við
akstur drengsins að athuga, því að
hann var aðeins 14 ára gamall,
augafullur og auk þess á stolnu
hjóli.
Leiðrétting
í KOSNINGAHANDBÓK, sem
f.vlgdi Mbl. í gær, stóð að A-listinn
á Daivík væri listi óháðra. Það er
ekki rétt, heldur er A-listinn listi
Alþýðuflokksins.
3201 hafði kosið
utan kjörstaðar
ÞEGAR Morgunblaðið hafði sam-
band við Miðbæjarskólann eftir að
utankjörstaðaratkvæðagreiðslu
lauk í gærkvöldi hafði 3201 kosið
utan kjörstaðar. Utankjörstaðar-
kosning verður á sama stað í dag.
stuðningur við margs konar menn-
ingarstarfsemi borgaranna eru og
greinar á sama meiði.
Allt er þetta gott og blessað, en
það, sem úr sker um velfarnað
borgarasamfélagsins, eru borgar-
búar sjálfir. Dugnaður þeirra og
áræði, hugvit þeirra og vinnusemi
og aðrir kostir borgaranna ráða
úrslitum um það, hvernig til tekst
um framtíð þessarar borgar. Þessa
kosti hafa Reykvíkingar haft
hingað til, og hin farsæla stjórn í
borgarmálum hefur ekki sízt verið
fólgin í því, að kostir einstakling-
anna hafa fengið að njóta sín.
Borgarsamfélagið hefur eflt þá og
styrkt, en ekki orðið þeim til
tálmunar og því síður til niður-
dreps.
Það hefur verið gæfa Reykjavík-
ur, að stjórnendur borggrinnar
hafa aldrei viljað ráðskast með öll
málefni borgaranna að hætti
vinstri manna. Þess vegna hefur
frumkvæði og kraftur einstakl-
ingsins notið sín betur hér en víða
annars staðar.
Skutu tvo landa-
mæraverði
Vín. 2fi. maí. Reuter. AP.
TVEIR Austurríkismenn ruddust í
dag yfir landamæri V-Þýzkalands
og Austurríkis og tóku traustataki
bíl austurríks landamæravarðar.
Þegar aðrir landamæraverðir
hugðust hafa hendur í hári mann-
anna skutu þeir á verðina og létu
tveir þeirra lífið. Mannanna
tveggja er nú leitað um allt
Austurríki, en talið er að hér séu
á ferðinni glæpamenn, sem lög-
reglan hefur verið á höttunum
eftir um nokkurt skeið.
Kosníngaald-
ur lækkaður
í Danmörku
Kaupmannahöfn. 2fi. mai. Reuter.
DANSKA þjóðþingið sam-
þykkti í dag með yfirgnæfandi
meirihluta atkva>ða að la'kka
kosningarétt í landinu í 18 ár.
Aður en ákvörðun þessi getur
komið til framkvæmda verður
að fara fram þjóðaratkvæða-
greiðsla í landinu um málið.
— Zambía
Framhald af bls. 21
féllu í innrásinni.
Annars staðar í Shaba héraði er
nú mjög erfitt samkomulag með
hvítum mönnum og hermönnum
Zairestjórnar og hafa herménn
stjórnarinnar farið um rænandi og
ruplandi í bústöðum hvítra manna
að því er flóttamenn herma. Hefur
fjöldi hvítra manna flúið úr
héraðinu með eigur sínar vegna
ásælni hermannanna. Belgár í
þessum—hópi' hafa- sagzt ekki
mundu snúa aftur fyrr en þeim
væri séð fyrir vernd, sem aðrir en
stjórnarhermenn veiti.
Þróunarmálaráðherra Belgíu,
Lucien Outers, sagði í dag, að
atburðirnir í Kolwezi mættu ekki
hafa áhrif á þróunaraðstoð Belgíu
við Zaire. Hann sagði, að þann
lærdóm mætti draga af atburðun-
um, að nauðsynlegt væri fyrir
Evrópumenn, sem þar byggju, að
geta haft beint fjarskiptasamband
við Evrópulönd, svo að hægt væri
að liðsinna þeim þegar í stað, ef
þess þyrfti með.
— Hjónalífeyrir
Framhald af bls. 48
aldri verður upphæðin 48.172
krónur, frá 69 ára aldri 53.748
krónur, frá 70 ára aldri 59.287
krónur, frá 71 árs aldri 66.590
krónur, frá 72 ára aldri 74.176
krónur á mánuði.
Hjónalífeyrir er 90% af tvöföld-
um lífeyri einstaklinga. Hjónalíf-
eyrir verður samkvæmt því 79.920
krónur. Tekjutrygging einstakl-
inga verður 39.706 krónur og
ásamt 67 ára lífeyri 84.106 krónur.
Tekjutrygging hjóna verður 71.471
króna og ásamt 67 ára lífeyri
beggja 151.391 króna.
Barnalífeyrir verður 22.719
krónur, heimilisuppbót 13.800
krónur, vasapeningar, samkvæmt
50. grein almannatryggingalag-
anna, verða 10.350 krónur og
mæðralaun með einu barni verða
3.895 krónur, tveimur börnum
21.143 krónur og þremur börnum
42.282.
Ekkjulífeyrir til ekkna á aldrin-
um 60 til 66 ára er 44.400 krónur,
ekkjubætur, 6. mánaða, eru 55.632
krónur, og ekkjubætur 12 mánaða
eru 41.716 krónur. Fæðingarstyrk-
ur verður 51.721 króna og fæðing-
arkostnaður 22.648 krónur.
Þá verða sjúkradagpeningar
fyrir þá sem eru heima, 17 ára og
eldri, 1.894 krónur á dag og með
hverju barni 515 krónur á dag.
Sjúkrapeningar fyrir þá, sem eru
í sjúkrahúsi verða þannig að fyrir
fyrirvinnu heimilis greiðist 1.263
krónur, fyrir aðra en 17 ára og
eldri 631 króna og með hverju
barni 407 krónur á dag.
Dagpeningar sl'ysatrygginga
fyrir einstaklinga eldri en 17 ára
verða 2.397 krónur á dag og með
hverju barni 515 krónur á dag.
—10 manna
nefnd
Framhald af bls. 23
kynni ekki góðri lukku að stýra
þegar embættismenn í „kanselíi"
færu að búa til launataxta, sem
erfitt væri að túlka. Hins vegar
væru síðari lögin skárri en hin
fyrri hvað varðar verkamanna-
taxtana, þótt þau í raun væru árás
á kjör fólksins.
Karl Steinar Guðnason, varafor-
maður Verkamannasambandsins,
tók undir það, að lögin væru ekki
verri en hin fyrri, en í eðli sínu
væru þau eins, þótt þau væru
þagstæðari láglaunafólki, hin síð-
ari. Talað hefði verið um frumskóg
samninga fyrir lagasetninguna en
hún hefði þétt frumskóginn til
muna. Bónusvinna hefði t.d. verið
atvinnurekendum ódýrari í fisk-
vinnslu. Samt væri bónusinn ekki
tekinn inn í og skertur. Hann kvað
lögin dæmd til að mistakast, m.a.
af því að þau væru samin af
kunnáttuleysi.
Þá var á blaðamannafundinum
rætt nokkuð um útflutningsbann-
ið, en Verkamannasambandið hef-
ur boðað til formannaráðstefnu á'
þriðjudag til þess að fjalla um
aðgerðir sambandsins. Þar sögðu
þeir félagar að afstaða yrði tekin
til aðgerða. -Bent var á fullyrðing-
ar Hagstofu íslands um, að
útflutningsbannið virtist ekki hafa
haft nokkur veruleg áhrif í apríl-
mánuði, þegar vöruskiptajöfnuður
hefði verið hagstæður.
Guðmundur J. Guðmundsson
kvað vöruskiptajöfnuð hafa verið
hagstæðan vegna þess að útflutn-
rngur hefði verið gífurlegur fram-
an af aprílmánuði, er fiskvinnslu-
fyrirtækin hefðu frétt af væntan-
legu útflutningsbanni. Því væri
útkoman í apríl svona.
Þá tók til máls Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannaféiags Islands
og talaði um kjör sjómanna. Óskar
sagði, að á hverjum tíma hefði
fiskverð fylgt launaþróun í land-
inu og ef það gerði það ékki, yrði
hlutur sjómanna fyrir^borð borinn.
Við síðustu fiskverðsákvörðun
kvað hann lágma'rkstrygginguna
hafa tekið á sig launahækkanir,
sem félagar í ASI hefðu fengið, en
hækkaði fiskverð erlendis færi
mismunurinn jafnan í sjóði,, en
ekki til sjómannanna. Frá síðast-
liðnu hausti kvað hann sjómenn
eiga inni um 20% hækkun fisk-
verðs, þrátt fyrir þær hækkanir,
sem fengizt hefðu fram. Er þessi
mismunur vegna áfangahækkana
launafólks. Við síðustu fiskverðs-
hækkun fengu sjómenn aðeins
13%, þegar þeir áttu að fá 19%, og
það væri ekki í samræmi við
kaupgjald í landinu. Hann kvað nú
standa yfir átöþ r Verðlagsráði
sjávarútvegsins, þar sem fisk-
kaupendur hefðu lýst því að þeir
þyldu enga hækkun. Hann kvað
ríkisstjórnina hafa farið þess á
leit, að þetta fiskverðsmál yrði
leyst að loknum kosningum. Það
kvað Óskar sjómenn ekki mundu
taka í mál; fiskverð yrði að
ákvarðast áður en ríkisstjórnin
færi frá og það „skal liggja fyrir
1. júní,“ sagði Óskar Vigfússon.
Þá kom það fram á blaðamanna-
fundinum, að það fólk, sem bezt
færi út úr lögum ríkisstjórnarinn-
ar, væru félagar í Verkamanna-
sambandi Islands, Iðjufélögunum,
verzlunarmannafélögunum og fé-
lögum í Sókn. Þó skertist vakta-
álag Sóknarkvenna úr 33% í 29,6%
og væri það talsverður hlutur
tekna kvennanna.
— Brynjólfur
áttræður...
Framhald af bls. 2
sig í hlé frá stjórnmálastarfinu og
snúa sér í ríkari mæli að heim-
speki. Liggja eftir hann fimm rit
á þessu sviði en einnig hefur úrval
stjórnmálaræða hans komið út á
prenti. Brynjólfur var kvæntur
Hallfríði Jónasdóttur en hún er
látin. Brynjólfur Bjarnason dvelst
nú hjá dóttur sinni í Kaupmanna-
höfn.
Einar Olgeirsson ritar um
Brynjólf áttræðan í Þjóðviljanum
í gær og segir þar m.a.: „Það var
fyrir þrábeiðni mína að Brynjólfur
tók að sér menntamálaráðuneytið
í Nýsköpunarstjórninni, því ekkert
var fjær huga hans en ýmislegt
sem laut að ráðherradómi. En
mikil gæfa var það fyrir ísland,
ekki aðeins að eignast einhvern
allra bezta og víðsýnasta mennta-
málaráðherra, sem ísland hefur
átt, heldur og hitt að einmitt hann
og Ólafur Thors fundu í þeirri
ríkisstjórn hvor annan — ekki sízt
í „húmornum" — og leysu með
ágætum margan þann vanda, ekki
sízt í kaupgjaldsmálum, sem hefði
getað orðið þeirri stjórn að
fótakefli áður en bandaríski hnef-
inn grandaði þeirri vinsælustu og
gifturíkustu stjórn, sem Island
hefur átt. — Og ekkert Kalt stríð
áratugi á eftir megnaði að kæla þá
vináttu er tókst þá með þeim Ólafi
og Brynjólfi — og væru þeirra
viðskipti efni í undraverðustu.
frásögn í íslenzkri stjórnmála-
sögu.“________ ________
r
— Ibúar
Setbergslands
Framhald af bls. 22.
þess að taka sig inn á kjörskrá þar
með dómi. Steingrímur Gautúr
Kristjánsson héraðsdómari í
Hafnarfirði fékk málið til dóms-
meðferðar, og féll dómur hans á
þann veg að umræddir kjósendur
skyldu vera á kjörskrá í Hafnar-
firði. Málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar og fór málflutningur
fram á fimmtudag og dómur féll
í gær. Dómur Hæstaréttar hljóðar
svo:
„Ár 1978, föstudaginn 26. maí,
var í Hæstarétti í málinu nr.
105/1978:
Sigurður Gíslason
gegn
bæjarstjórn Garðakaupstaðar
uppkveðinn svohljóðandi
dómur:
Mál þetta dæma hæstaréttar-
dómararnir Ármann Snævarr,
Benedikt Sigurjónsson, Björn
Sveinbjörnsson, Logi Einarsson og
Magnús Þ. Torfason.
Áfrýjandi hefur áfrýjað máli
þessu með stefnu 25. maí 1978.
Hann krefst þess, að stefnda verði
dæmt skylt að taka nafn áfrýjanda
á kjörskrá þá í Garðakaupstað, er
gildir við bæjarstjórnarkosningar,
sém fram eiga að fara 28. maí
1978.
Stefndi krefst staðfestingar hins
áfrýjaða dóms.
I ákvæði til bráðabirgða í lögum
nr. 34/1978 um breytingu á lögum
nr. 46/1971 um lögsagnarumdæmi
Hafnarfjarðarkaupstaðar felst, að
áfrýjandi skuli vera á kjörskrá í
Hafnarfirði við bæjarstjórnar-
kosningar 28. maí 1978. Lög þessi
voru staðfest af forseta Islands 12.
s.m. og birt í A deild Stjórnartíð-
inda 18. s.m. í 3. gr. laganna segir,
að þau öðlist þegar gildi.
Áfrýjandi er á kjörskrá í
Hafnarfirði.
Að svo vöxnu ber að staðfesta hinn
áfrýjaða dóm.
Dómsorð:
Hinn áfrýjaði dómur á að vera
óraskaður“
Lögmaður stefnenda var Ingi R.
Helgason hrl. en lögmaður Garða-
kaupstaðar var Benedikt Sveins-
son hrl.
—Umfangsmikill
undirbúningur
Framhald af bls. 2
komin, segir talvan, hvert næsti
fulltrúi hefði farið, ef fulltrúar
hefðu verið fleiri.
Miðað er við að kosningasjón-
varp verði til klukkan 03, en þá
verður aðstaðan metin og séð til
hver framvindan verður. Verði þá
t.d. stutt í úrslit í tvísýnni
talningu í stóru sveitarfélagi,
verður haldið áfram. Þá munu
forystumenn flokkanna koma
fram í sjónvarpssal, efstu menn
listanna eftir að fyrstu tölur hafa
birtzt og síðan undir lokin koma
forystumenn 5 stærstu stjórn-
málaflokkanna til umræðna í
sjónvarpinu um niðurstöðurnar.
Fréttamenn munu á kosninga-
daginn fara út á land, í einn
kaupstað í hverjum landsfjórðungi
og ræða við kjósendur. Þeir
fréttamenn, sem verða á faralds-
fæti um landið verða að þessu
sinni þær Sigrún Stefánsdóttir og
Sonja Diegó. Þá verður beint
sjónvarp frá talningu í Austur-
bæjarskólanum, þar sem Helgi E.
Helgason verður fulltrúi sjón-
varpsins á staðnum. Hefur sjón-
varpið fengið að láni tæki frá
norska sjónvarpinu til þess að
unnt sé að senda út beint þaðan.
Þá verður inn á milli sjónvarpað
uppfyllingarefni, kaupstaðakynn-
ingar, þar sem rakin verður í
stuttu máli saga viðkomandi
kaupstaðar og hvernig bæjarfull-
trúar skiptust á síðasta kjörtíma-
bili. Ennfremur verður sjónvarpað
léttri tónlist inn á milli, sem
fengin er úr gömlum dagskráratr-
iðum.
Kári Jónasson, fréttamaður hjá
útvarpinu kvað Þorkel Helgason
dósent og stærðfræðidoktor verða
aðalstjórnanda háskólatölvunnar,
sem útvarpið hefði fengið til liðs
við sig um kosningaspár. Þorkeli
til aðstoðar verður Helgi Jónsson.
Talvan spáir í talin atkvæði á
grundvelli síðustu kosninga um
það hvernig úrslitin verða. Fyrst
reiknar hún út fulltrúatöluna éftir
töldum atkvæðum, en gerir síöan
spá, þar sem hún byggir á
kjörsókn og áður þekktri hegðan
staðreynda í talningu. Þá brýtur
hún upp fylgið, milli stjórn og
stjórnarandstöðu og telur saman,
hve þessir tveir hópar hafa fengið
mörg atkvæði, hve marga fulltrúa
á landinu öllu og ennfremur í
kauptpnum. Er allt tekið með og
hafa starfsmenn útvarpsins skipt
blönduðu listunum niður eftir
beztu sannfæringu til þess að fá
þessi skil skýr. Þá gefur talvan
upp á landsvísu, hve mikiö fylgi,
hver flokkur hefur fengið, þannig
að hlustendur eigi tækifæri til að
átta sig á fylgi flokkanna og
breytingum frá 1974, hve marga
fulltrúa hver flokkur hefur fengið,
hvort hann hefur bætt við sig eða
tapað o.s.frv. Þá verður stúdíó
útvarpsins í beinu sambandi við
háskólatölvuna og birtast útreikn-
ingar hennar á skermi í stúdíóinu,
sem á að gera fréttamönnum
auðveldara að komá meö niður-
stöður tölvunnar þegar í stað.
Morgunblaðið spurði í gær
Þorkel Helgason, hver heföi verið
þróun spánna við síðustu kosning-
ar, hve mikið frávik hafi verið á
fyrstu spá miðað við endanleg
úrslit kosninganna. Þorkell kvaðst
ekki geta svarað þessu, þar sem
bruni hafi orðið í Reiknistofnun
Háskólans í september síðastliðn-
um. Um íkveikju hafi verið að
ræða og þar hefðu farizt öll þessi
gögn. Hins vegar kvað hartn
prógram kosningaspánna hafa
bjargazt og því unnt að nota það
að nýju nú.