Morgunblaðið - 03.06.1978, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Atkvæða-
greiðsla
erlendis
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
utanríkisráöuneytinu:
„Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
erlendis vegna alþingiskosninga
25. júní n.k. getur farið fram á
sömu stöðum og tímum og utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna
alþingiskosninganna, sem getið er
í fréttatilkynningu ráðuneytisins
nr. 15, dags. 23. maí 1978, að
frátöldum aðalræðisskrifstofunum
í Tokyo, Singapore og Tel-Aviv.
I fréttatilkynningu ráðuneytis-
ins nr. 15. var ekki tekið fram
hvenær utankjörfundarkosning
hjá ræðismanninum í Tórshavn
Færeyjum, gæti farið fram. Hann
verður við til að taka á móti
kjósendum vegna nefndra
kosninga frá 5.-9. júní kl. 15—17.
Safna fyrir
litasjónvarpi
UM ÞESSAR mundir gangast
sjúklingar á bæklunardeild Land-
spítalans, deild 12 A, fyrir fjár-
söfnun til kaupa á litsjónvarpi
fyrir deildina.
Sjúklingarnir safna fénu með
því að halda söfnunarbaukum
sínum frammi í anddyri spítalans.
Jámiðnaðarmenn
mótmæla bráða-
birgðalögunum
Félagsfundur í Félagi járn-
iðnaðarmanna, haldinn 30. maí
1978, mótmælir harðlega bráða-
birgðalögum frá 24. maí s.l., þar
sem lagasetningin er endurtekning
á riftun og skerðingu löglegra
gerðra og gildandi kjarasamninga
verkalýðsfélaga við atvinnurek-
endur.
Lög um efnahagsráðstafanir nr.
3,17. febrúar 1978 og bráðabirgða-
lögin frá 24. maí 1978, raska
verulega grundvelli og uppbygg-
ingu þeirra kjarasamninga, sem
samningsaðilar hafa með frjálsri
samningsgerð aðlagað óskum
verkafólks og þörfum atvinnuveg-
anna.
Báðar þessar lagasetningar
valda því m.a. að útreikningur
kauptaxta er nú nær eingöngu á
valdi sérfræðinga og að verkafólk
getur vart lengur fylgst með
útreikningi vinnulauna sinna.
Fjórtán lista-
menn sýna í
Gallerí
Suðurgötu 7
Afmælissýning aðstandenda og
gesta Gallerí Suðurgötu 7 verður
opnuð laugardaginn 3. júni
klukkan 4 e.h. Fjórtán íslenzkir
listamenn munu taka þátt í
sýningunni. Auk þess taka að-
standcndur gallerfsins þátt í
sýningu í París um þessar mund-
ir, og er það hluti afmælissýning-
arinnar.
Galleríið hefur nú starfað í
rúmt ár og aðsókn að sýningum
þess hefur verið góð. Innlendir og
erlendir listamenn hafa sýnt verk
sín. Lítil kvikmyndahátíð var
haldin í galleríinu, og nýlega voru
haldnir tónleikar með Evan Park-
er. I sumar mun Gallerí Suðurgata
7 leggja áherzlu á að kynna verk
erlendra listamanna.
Afmælissýningin stendur fram
til 18. júní og verður opin virka
daga kl. 4—10 og kl. 2—10 um
helgar.
Þessir hvítu miöar
eru vörumerkin ~
sem er sportfatnaöur
hannaöur og fram-
leiddur eftir ströng-
ustu kröfum tískunn-
ar.
sportfatnaöur fæst i
verslunum Karna-
bæjar, svo og öllum
verslunum sem hafa
umboö fyrir Karnaþæ
Ekki
bara
buxur