Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
• Undir lok leiksins gerðust leikmenn ÍBK dálítið aðgangsharðir við mark Þróttar. Á myndinni sækir
Gísli Torfason að Rúnari Sverrissyni markverði Þróttar, sem hefur betur að þessu sinni.
Matthías Hallgrímsson var heldur betur á skotskónum í Kaplakrika
kom eftir slæm mistök í vörn FH-inga, sem Matthias nýtti sér til fulls.
ÞAÐ rigndi eins og hellt væri úr fötu Þegar FH-ingar og Akurnesingar léku
ó Kaplakrikavelli i laugardaginn og áttu pví leikmenn og áhorfendur heldur
illa vist í vætunni og kuldanum. En Það rigndi líka mörkum í
Kaplakrikanum Þennan eftir miðdag og Þeirra vegna hefur áhorfendum
fundizt Það Þess virði að fylgjast með leiknum Þrátt fyrir slæmar aðstæður.
Ekki færri en 8 mörk voru skoruð í leiknum, sjö sinnum hafnaði boltinn
í marki heimamanna en aðeins einu sinni í marki Íslandsmeístaranna frá
Akranesí. Matthías Hallgrímsson skoraði Þrjú af mörkum Akurnesinga í
leiknum og er hann nú langmarkhæsti leikmaður 1. deildar.
I þann mund sem leikurinn hofst
byrjaöi úrfellið og rigndi allan
leiktímann. Völlurinn var því ákaflega
háll og eins og oft vill veröa viö slíkar
aöstæöur var leikurinn mjög opinn
og skemmtilegur. Strax á fyrstu
mínútunum fengu liðin opin mark-
tækifæri en þau nýttust ekki.
Á 12. mínútu kom fyrsta mark
leiksins. Karl Þóröarson tók horn-
spyrnu frá vinstri. Hann gaf stutt á
Matthías, sem gaf boltann aftur á
Karl. Karl gaf nú boltann inn í
markteiginn að nærstönginni, þar
sem Jón Alfreösson var staddur og
sneiddi boltann laglega í markið. 1:0.
Annaö markiö kom á 19. mínútu og
aftur var Karl Þórðarson á ferðinni.
Hann fékk boltann eftir hornspyrnu
frá hægri og gaf mjög góöa sendingu
yfir vörn FH að fjærstönginni, þar
sem Matthías Hallgrímsson var vel
staösettur og vippaöi boltanum í
markið af stuttu færi. 2:0
Akurnesingar voru öllu betri en
FH-ingarnir í fyrri hálfleik en af og til
brá fyrir góöum leikköflum hjá
Hafnarfjarðarliðinu. Hins vegar voru
Akurnesingarnir skarpari fyrir framan
markið og þeir dreiföu spilinu
ákaflega vel og er ÍA fremst íslenzkra
liða í þeim efnum ásamt Val.
Flóögáttirnar opnast
Áfram rigndi í seinni hálfleik og nú
fór mörkunum að rigna líka fyrir
alvöru. FH-ingarnir voru mun betri í
upphafi seinni hálfleiks og Viöar
Halldórsson misnotaöi þá mjög gott
færi. Þaö var því andstætt gangi
leiksins þegar þriöja mark Akurnes-
inga kom á 7. mínútu seinni hálfleiks.
Árni Sveinsson sendi þá langa
sendingu frá vinstri kantinum yfir í
vítateigshorniö fjær, þar sem Karl
Þórðarson var til staöar og negldi
boltann neðst í hornið nær. Var
Þorvaldur markvörður klaufskur að
verja ekki þetta skot. 3:0
Á 10. mínútu seinni hálfleiks kom
eina mark FH-inga. Leifur Helgason
lék vel upp vinstra megin og gaf
boltann fyrir inn í vítateiginn til
Viöars. Hann var fljótur að meta
stööuna og renndi boltanum laglega
út á vítateigslínuna til Janusar
Guölaugssonar, sem kom á fullri ferö
og skoraöi með góðu skoti neöst í
markhornið óverjandi fyrir Jón Þor-
björnsson. Var mjög vel að þessu
marki unnið hjá FH-ingunum. 3:1
Á 13. mínútu seinni hálfleiks
skoruöu Akurnesingar ódýrt mark.
Knötturinn var sendur í áttina að
marki FH og virtist engin hætta
iniimiIfiHlbl
Textii
Sigtryggur Sigtryggsson
Myndi
Friðþjófur Helgason
yfirvofandi. En varnarmanni FH uröu
á þau herfilegu mistök þegar hann
ætlaði aö spyrna í boltann að hann
hitti hann ekki og Matthías Hallgríms-
son var skyndilega á auöum sjó. Lék
hann upp aö markinu og renndi
boltanum undir markvöröinn og í
netiö. 4:1
Fimmta mark Akurnesinga kom á
19. mínútu og það var líka fengið á
ódýra markaðinum. Karl Þórðarson
tók hornspyrnu frá hægri, FH-ingar
náöu aö hreinsa út fyrir vítateig þar
sem Jón Áskelsson fékk boltann og
skaut að markinu. Boltinn fór í Loga
Ólafsson og breytti viö þaö stefnunni
þannig að hann sveif í háum boga yfir
markvörðinn og í markiö. 5:1
Á 25. mínútu uröu enn mistök í
vörn FH og Pétur Pétursson brunaöi
upp aö markinu. Hann sendi síöan
Islandsma
V...... -
Þróttarar óheppnir að
sigra ekki í Keflavík
KEFLVÍKINGAR gerðu lítið til að bæta stöðu sína nærri botni fyrstu
deildar. er þeir fengu Þróttara í heimsókn á laugardaginn. Liðin hirtu
sitt stigið hvort í leiðindaleik, en Þróttarar voru mun sterkari og
verðskulduðu bæði stigin. Kcflvíkingar voru vægast sagt lélegir og
þurfa þeir að kippa cinhverju í liðinn ef ekki á illa að fara. Ef marka
má leikinn á laugardaginn, eru aðeins fáeinir menn f liði ÍBK sem
boðlegir eru til að lcika í fyrstu deildar liði og það eina, sem virðist
ekki skorta í liðið. er grimmdarbarátta.
Þróttarar sóttu undan strekk-
ingskalda í fyrri hálfleik og áttu
þeir öll færin sem heitið gátu því
nafni. Það voru einkum þeir Páll
Olafsson, Sverrir Brynjólfsson og
Þorgeir Þorgeirsson sem gerðu
usla í óöruggri vörn ÍBK. Þróttar-
ar áttu nokkur ágæt færi í fyrri
hálfleik og hefðu með dálítilli
heppni getað verið tveimur til
þremur mörkum yfir í hléi.
Á 19. mínútu sendi Sverrir
Brynjólfsson fasta sendingu fyrir
mark IBK og litlu munaði að
heilum flokki ÍBK-manna tækist
að þvæla knettinum í eigið mark
og fáeinum mínútum síðar sýndi
Páll Ólafsson mikið harðfylgi er
hann hljóp af sér vörn ÍBK, sendi
knöttinn fram hjá Þorsteini mark-
verði, en varnarmanni IBK tókst
að bjarga á marklínu. Eftir
hálftíma leik átti síðan Þorvaldur
Þorvaldsson hörkuskot af löngu
færi sem rétt sleikti stöngina
utanverða. Og þrívegis á síðustu
fimm mínútum hálfleiksins voru
Þróttarar nærri því að skora, fyrst
komst Þorgeir Þorgeirsson einn
inn fyrir vörn IBK, en Þorsteinn
varði vel með úthlaupi, síðan varði
Þorsteinn enn er Páll skaut á
markið utan úr vítateignum og að
lokum tók Úlfar Hróarsson auka-
spyrnu langt út á velli, en engu að
síður missti Þorsteinn knöttinn
einkennilega frá sér og í stönginni
skall hann.
í síðari hálfleik gerðu heima-
menn meðal áhorfenda sér vonir
um að með aðstoð golunnar myndu
þeirra menn nú taka sig saman í
andlitinu og afgreiða Þróttara. Og
framan af virtust Keflvíkingar
leika af meiri krafti, þeir hlupu
meira fram og til baka og þeir
hrópuðu fleiri hvatningaróp hver
til annars. En knattspyrnan sem
þeir léku var söm og í fyrri
hálfleik og enn voru það Þróttarar
sem áttu þau fáu færi sem til féllu.
Eftir tíu mínútna leik í síðari
hálfleik, voru Þróttarar næstum
búnir að skora tvívegis á sömu
mínútunni, fyrst skallaði Úlfar
naumlega fram hjá eftir fyrirgjöf
IBK- Þróttur 0:0
frá hægri og síðan átti Sverrir
Brynjólfsson gott skot, en það fór
einnig rétt fram hjá. Á 17. mínútu
ætlaði Hilmar Hjálmarsson að
senda knöttinn til Þorsteins mark-
varðar, en engu mátti muna, að
Sverri Brynjólfssyni tækist að
pota í knöttinn áður en Þorsteinn
náði tökum á honum.
En nú var röðin komin að
heimamönnum að sækja og þótti
flestum viðstöddum kominn tími
til og þótt fyrr hefði verið. Rúnar
Georgsson kom inn á fyrir Einar
Ásbjörn og var hann langfrískasti
framlínumaðurinn í röðum IBK..
Um miðjan hálfleikinn tók Ómar
Ingvarsson aukaspyrnu rétt utan
við vítateig, skaust knötturinn
óhindrað milli varnarmanna og
upp í faðminn á Rúnari Sverris-
syni markverði Þróttar, en þar
vildi hann ekki vera. Rúnar missti
hann frá sér og í stöngina hrökk
hann og þaðan aftur upp í
hendurnar á Rúnari. Á 32. mínútu
áttu Keflvíkingar sína bestu til-
raun. Eftir fyrirgjöf frá vinstri
átti langbesti maður IBK, Gísli
Torfason, fallegan skalla, sem
Rúnar varði meistaralega og
tveimur mínútum síðar skallaði
Ómar Ingvarsson naumlega fram
hjá. Síðasta orðið átti Ojlafur
Júlíusson, er hann stóð skyndilega
í góðu færi fimm mínútum fyrir
leikslok, en af varnarmanni þaut
knötturinn fram hjá markinu.
Þróttarar stóðu uppi óskrámaðir
eftir þetta síðbúna fjörbrot IBK og
lauk leiknum því án marka.
Heimamenn voru afar slakir að
þessu sinni, mistækir í vörn og
lengst af varla með í sóknarleikn-
um. Þó er ástæða til þess að hrósa
þeim Gísja Grétarssyni og vara-
manninum Rúnari Georgssyni
fyrir frammistöðu sína. Og ekki
má gleyma Gísla Torfasyni, án
hans væri lið ÍBK hvorki fugl né
fiskur.
Lið Þróttar var sem ein heild, en
Sverrir BrynjólfsSon, Páll Ólafs-
son, Þorgeir, Úlfar og Aðalsteinn
voru þeirra bestir að mati undir-
ritaðs.
í stuttu málii
Keflavíkurvöllur 3. júní, 1. deild
ÍBK — Þróttur. 0.0
Áminning. Engin
Áhorfendur. 487
STAÐAN
IA
Valur
Fram
Víkingur
Þróttur
ÍBV
ÍBK
KA
FII
UBK
Markhæstu menn.
Matthías Hallgrímsson ÍA
Arnór Guðjohnsen Víking
Albert Guðmundsson Val
4 3 1 0 14.3 7
3 3 0 0 10.3 6
4 3 0 1 7.4 6
4 2 0 2 7.8 4
4 1 2 1 5.6 4
2 1 0 1 2.3 2
4 0 2 2 5.7 2
4 0 2 2 2.4 2
3 0 2 1 3.9 2
4 0 1 3 3.11 1
MARKAREGN