Morgunblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
45
tt ^rrr" mje
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
i\y ujy\jn^K''aa'u n
landsteinana og eyða þar gjaldeyri
okkar, sem vissulega er aldrei nóg
til af.
Telja sumir aö ferðir til
útlanda séu hinar mestu reiðileys-
is- og eyðsluferðir sem beri að
leggja af og næstum banna. Þessi
hugsun finnst mér bera vott um að
frekar skammt sé hugsað, því að
hvaða þýðingu hefur það ekki í för
með sér að geta haft samskipti við
erlendar þjóðir? Og hvérnig mynd-
ast erlend samskipti nema fyrir
ferðir milli landa? Hafa verður og
það í huga að erlendir ferðamenn
streyma hingað og eyða sínum
gjaldeyri, sem þýðir að við getum
keypt hann og farið til útlanda
fyrir. Eru það ekki nokkuð jöfn
skipti? Því að vera með læti þó
að nokkrir fari til útlanda?
Það er líklega rétt að fara að slá
botninn í þessi skrif því þau eru
orðin nógu löng.
Aldraður.“
• Móðgun við
kjósendur?
„Það er heilög helgi og stærsti
lífsréttur hvers fulltíða manns að
neyta atkvæðisréttar síns í lýð-
frjálsu landi og ber að setja
hátíðarsvip á kjörstaðinn með
okkar fagra og tignarlega þjóð-
fána.
En nú skeði það lágkúrulega
smánarathæfi á kjörstað, að illa
útlítandi, sóðaleg flaggstöng stóð
þar fánalaus. Beint á móti yfir-
kjörstjórn.
Þetta er sá mesti ósómi og
virðingarleysi við kjósendur og
þjóðartáknið sjálft og andlegur
dofi fyrir notkunarreglum fánans.
Ef fáninn hefði verið skorinn
niður býst ég við að strax hefði
verið sett á laggirnar rannsóknar-
nefnd í málið. En af hverju var
fáninn ekki dreginn upp? . . .
Saknaði enginn þessara topp-
manna hans? Hvað veldur því?
Við þessu óskast svar.
K.K.“
Þessir hringdu . . .
• Hvaða fánar?
Maður nokkur sagðist hafa
tekið eftir að minjagripabúðir og
aðrir aðilar flögguðu oft á sumrin
hinum ýmsu fánum og veifum.
Sagði hann að þessar veifur
margar virtust vart þjóna neinum
tilgangi og kvaðst vilja koma því
á framfæri að reynt væri til
dæmis að flagga kanadíska fánan-
um í staö einhverra veifna og
nefndi þann kanadíska sem dæmi
því oft væru hér á ferð Vestur-ís-
lendingar.
• Góðir pistlar
Kona>
— Ég vil bara fá með örfáum
orðum að koma á framfæri þakk-
læti til sr. Árelíusar fyrir pistil
hans í Mbl. á dögunum og annað
sem hann hefur látið frá sér fara
í ræðu og riti. Gamalt fólk hefur
orðið fyrir oft mjög miklum
ágangi og ónæði af völdum ung-
linga, gamla fólkinu er ýtt til
hiðar í verzlunum og verður fyrir
ýmsum átroðningi á stundum.
SKÁK
Veldur þessu e.t.v. lítið uppeldi, og
þyrfti að gera eitthvað í þessum
málum t.d. fá unglingana til að
vinna landinu gagn og gæti ekki
kirkjan haft einhverja forgöngu
um það mál? Þá vil ég þakka
Morgunblaðinu fyrir að birta
pistlana um svar Billy Grahams,
þeir eru mjög góðir og þar er að
finna ýmsar þarfar ábendingar og
ráðleggingar.
• Hásmæðra-
orlofið
Önnur kona hringdi og kvaðst
vilja benda á, vegna skrifa hjá
Velvakanda nú um helgina, að til
væri nokkuð sem héti orlof fyrir
húsmæður að Hrafnagili í Eyja-
firði. Þar væri hægt að fá vikudvöl.
eða lengri og nánari upplýsingar
væri að fá að Traðarkotssundi 6.
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Róm í
desember í fyrra kom þessi staða
upp i skák þeirra Toth, Ítalíu, sem
hafði hvítt og átti leik, og
ungverska stórmeistarans
Forintos
34. Hxe4! og svartur gafst upp.
Eftir 34. .. • fxe4 35. Df7+ Kh8 36.
e7 er hann varnarlaus. Röð efstu
manna á mótinu varð þessi: 1,—2.
Vaganjan og A. Mikhailchisin
(báðir frá Sovétr.) 8 v. af 11
mögulegum. 3. Mariotti (Ítalíu)
71/2 v. 4. Pfleger (V-Þýzkal.) 7 v.
5. Ostojic (Júgóslavíu) 6‘/2V. 6.-8.
Toth, Tatai (Báðir frá Ítalíu) og
Forintos (Ungverjalandi) 5'Av.
HÖGNI HREKKVÍSI
Ileppinn varstu að vera með öryggishjálminn
þinn!
m CATERPILLAP
Til sölu „
jarðýta
VÉLADEILD
HEKLA HF
Laugavegi 170-172, - Sími 21240
CaterpiMor, Cot.og CB eru skrósett vbrumerki
0 RR BYGGINGAVÖRUR HE^
Suðurlandsbrau t 4. Sími 33331. (H. Ben. húsið)
ARCITECTURAL
SOLIGNUM
er besta fáanlega
f úavarnamál n i ng i n
á markaðnum í dag.
B RR BYGGINGAVÖRUR HEB
Suðurlandsbrau t 4. Sími 33331. (H. Ben. húsiö)