Morgunblaðið - 08.06.1978, Page 1
44 SIÐUR
119. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kúbumenn sækja
fram í Angóla
að sögn UNITA
London, 7. júní — AP
FIMM þúsund manna lið
Kúbumanna hefur hafið
harða sókn gegn þeim skæru-
liðum sem enn berjast gegn
marxistastjórninni í Angóla
að því er talsmaður UNITA
skæruliðahreyfingarinnar
sagði í London í dag. Sagði
talsmaðurinn að Kúbu-
mennirnir hefðu sér til styrkt-
ar þyrlur og sovétsmíðaðar
MIG herþotur. UNITA hreyf-
ingin var önnur tveggja
skæruliðahreyfinga sem beið
ósigur fyrir MPLA hreyfingu
Netos sem nú er forseti
Angóla.
Talsmaður UNITA, Tony
Fernandes, sem er fulltrúi
hreyfingar sinnar í London,
sagði að framsókn Kúbumanna
hefði hafizt á sunnudaginn og
að margir óbreyttir borgarar
Sovétríkin:
Fjórir
fyrir af-
tökusveit
Moskvu — 7. júní — AP.
DÓMSTÓLL í rússnesku
borginni Rostov við Don
hefur dæmt fjóra menn til
dauða fyrir að hafa liðsinnt
nazistum í síðari heims-
styrjöldinni að því er verka-
lýðsblaðið Trud segir frá í
dag. Mennirnir verða leiddir
fyrir aftökusveit og skotnir
til bana. í frétt blaðsins
segir að þrír aðrir menn
hafi fengið 15 ára fangelsis-
dóma og annar 13 ára dóm.
Mennirnir hlutu dómana
fyrir að hafa aðstoðað Þjóð-
verja í aðgerðum þeirra
gegn andspyrnuhreyfingu
Rússa á stríðsárunum.
hefðu þegar beðið bana. þótt
staðfesting á tölu þeirra hefði
ekki borizt. Hann sagði að
hreyfing sín hefði haldið
áfram baráttu sinni frá því
MPLA tók völdin í landinu og
hefði hún nú tögl og hagldir í
stórum hlutum landsins. Væri
sókn Kúbumanna hin sjöunda
frá því borgarastríðinu gegn
UNITA lauk, og nytu þeir
engrar aðstoðar stjórnar-
hersins í Angóla.
Egyptaland sendir
Senegal hermenn
Kinshasa 7. júní. Router. AP.
EGYPTAR hafa ákveðið að senda
vopn og menn til að kenna
meðferð þeirra til Zaire til
þátttöku í sameiginiegu gæzluliði
Afríkuþjóða í Shaba héraði að því
er skýrt var frá í Kinshasa.
höfuðborg Zaire, í dag. Mun
utanríkisráðherra Egyptalands.
Mohammed Ibrahim Kamel, vera
væntanlegur til Zaire til við-
ra>ðna við stjórn Mobutus um
ástandið í Shaba og á hvern hátt
Egyptar geti helzt orðið að liði en
hernaðarsendinefnd frá Egypta-
landi hefur verið f landinu að
undanförnu til undirbúnings
komu Egyptanna.
Stjórn Senegal tilkynnti einnig í
dag að hún hefði ákveðið að leggja
fram liðsmenn í gæzluliðið í Shaba
en ekki var látið uppi hve margir
hermenn það yrðu.
Hermenn annarra Afríkuþjóða
voru í dag að koma sér fyrir í
Shaba-héraði á meðan fallhlífa-
hermenn Belga og Frakka bjuggu
sig til heimfarar. Bandaríski
flugherinn aðstoðar við flutning
frönsku herdeildarmannanna
heim á leið og einnig við flutning
á afrísku liðsmönnunum til Shaba.
Mobutu Sese Seko forseti Zaire
sneri í dag til Kinshasa eftir
vikudvöl í Lubumbashi höfuðborg
Shaba-héraðs en þar átti hann
m.a. fund með Kenneth Kaunda
forseta Zambíu í gær og fékk hann
Karl 16. Gústaf Svíakonungur
er í opinberri heimsókn í Sovét-
ríkjunum og er myndin tekin á
flugvellinum í Moskvu er
Brczhnev forseti Sovétríkjanna
tók á móti konungi og Sylvíu
drottningu í gær. Sænsku
konungshjónin verða í níu daga
í Sovétríkjunum en í för með
þeim er utanríkisráðherra Svía.
Karin Söder. Sjónvarpað var frá
komu þeirra um gervöll Sovét-
ríkin í gær.
í ra'ðu sem Brezhnev hélt í
gærkvöldi í veizlu til heiðurs
konungi hrósaði hann m.a.
Svíum fyrir hlutleysisstefnu
þeirra og hvatti þá til að styðja
afvopnunartillögur Sovétmanna
á afvopnunarráðstefnunni í New
York. Svíakonungur fór lofsam-
legum orðum um samvinnu
Svíþjóðar og Sovétrikjanna á
ýmsum sviðum.
Karl Gústaf er fvrsti þjóðhöfð-
ingi Svíþjóðar sem kemur til
Rússlands í rúm hundrað ár.
Valið milli sam-
vinnueða andstöðu
segir Carter Bandaríkjaforseti um sambúð stórveldanna
Annapolis. Maryland. — 7. júní. AP. Router.
CARTER Bandaríkjaforseti sagði
í dag að Sovétríkin ættu á hættu
versnandi sambúð við Bandaríkin
nema þau sýndu alvarlega við-
leitni til þess að draga úr spennu
í heiminum. Hann sagði Banda-
ríkjastjórn ákveðna í að fram-
fylgja stefnu sem hefði að mark-
miði að slaka á spcnnunni í
samskiptum ríkjanna.
„detentestefnunni“. en afskipti
Sovétríkjanna af málefnum Af-
ríku og hernaðaruppbygging
þeirra í Evrópu væri þrándur í
götu þess að árangur næðist.
Carter sagði að Sovétmenn ættu
tveggja kosta völ í samskiptum við
Bandaríkin, annars vegar aukna
samvinnu eða andstöðu. Væru
Bandaríkjamenn reiðubúnir að
mæta hvorum kostinum sem væri.
Bandaríkjaforseti flutti ræðu
sína við slit sjóliðsforingjaskólans
í Annapolis og var efnis hennar
beðið með nokkurri eftirvæntingu
þar sem vitað var að hann mundi
fjalla um samskiptin við Sovétrík-
vopn og
til Zaire
til að lofa því að í framtíðinni yrði
komið í veg fyrir umferð innrásar-
manna frá Angóla um Zambíu.
Belgíska stjórnin vísaði í dag úr
landi í Belgíu einum talsmanna
innrásarliðsins, Paul Roger Mo-
kede, fyrir að hafa haldið ólögleg-
an blaðamannafund í landinu.
Brottvísun Mokedes er talin nokk-
ur friðþæging fyrir stjórn Zaire
sem kvartað hefur sáran undan
því að Beigíumenn skytu skjóls-
húsi yfir skrifstofur og talsmenn
innrásarhreyfingarinnar. Er nú
talið að sambúð Zaire og Belgíu sé
að komast í sæmilegt horf eftir
stirt samband að undanförnu í
kjölfar atburðanna í Shaba.
in, og vegna þess að nokkur
ágreiningur hefur verið meðal
ráðgjafa forsetans um stefnuna í
garð Sovétríkjanna á næstunni.
Carter gagnrýndi að nýju harð-
lega framkomu Sovétmanna
heirna fyrir í garð andófsmanna og
án þess að nefna Youri Orlov með
nafni gerði hann mál hans að
umtalsefni og sagði að allir
frelsiselskandi menn hvar sem
væri í heiminum fordæmdu að-
gerðir Sovétstjórnarinnar í máli
þessu.
Kína:
Enn ráðizt
á Lin Piao
Tokýo 7. júní — AP
TENG Hsiao-Ping. varaíor-
maður kínverska kommúnista-
flokksins og aðstoðaríorsætis-
ráðherra landsins. hefur fyrir-
skipað herafla landsins að
taka upp að nýju baráttuna
gegn Lin heitnum Piao fyrrum
landvarnarráðherra Kína.
Teng sagði að haráttuna gegn
Lin Piao og glæpum hans ætti
að tengja gagnrýni á
„fjögurra manna klíkuna“ frá
Framhald á bls. 25
F'orsetinn fordæmdi Sovétmenn
harðlega fyrir afskipti þeirra í
Afríku en bauð þá þó velkomna til
Framhald á bls. 25.
Úrslit
£2 í gær
URSLIT í Heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu í
Argentínu urðu sem hér segir í
gærkvöldi:
Austurríki — Svíþjóð 1:0
Brasilía — Spánn 0:0
Skojland — Iran 1:1
Hoiland — Perú 0:0
Ítalía, Argentína og Austur-
ríki hafa þegar tryggt sér sæti
í 8-Iiða úrslitum keppninnar.
Sjá nánar á íþróttasíðum blað-
sins á bls. 18, 42 og 43.
Eþíópíu-
mönnum
gerð fyrirsát
khartoum — Nairohi — 7. júní. — AI* —
Router.
FJÖLDI eþíópí.skra hermanna
beið bana og flutningabílar
þeirra eyðilögðust þcgar þeir óku
á jarðsprengjur í fyrirsát sem
uppreisnarmenn í Eritreu gerðu
stjórnarhermönnum. að því er
talsmaður uppreisnarmanna
sagði í Khartoum í Súdan í dag.
Fyrirsátin var gerð til að koma í
veg fyrir að stjórnarherinn gæti
tryggt sér ákveðin landsva-ði og
komið upp aðstöðu til að undir-
búa stórsókn gegn uppreisnar-
mönnum.
Annars staðar frá í Eþíópíu
berast m.a. þær fréttir að
v-sómalskir uppreisnarmenn hafi
að undanförnu mjög aukið skæru-
árásir sínar á her Eþíópíumanna
í Ogaden-auðninni þrátt fyrir
Framhald á bls. 25