Morgunblaðið - 13.06.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.06.1978, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 Guðmundur H. Garðarsson: HIN NÝJA STÉTT ógnar frelsi íslendinga í fyrri grein var gefin stutt lýsing á hinni nýju stétt í þeim ríkjum, þar sem valdakerfis- menn sósíalista á borö viö Alþýðubandalagsmenn hérlend- is hafa náð völdum. En hvað kemur þetta íslandi við? Alþýðubandalagsmenn á íslandi eiga ekkert skylt við erlenda sósíalista! — Skoðum þetta nánar. Hver er núverandi staða Alþýðubandalagsmanna í íslenzku stjórnsýslu- og valda- kerfi? Hverjir mynda „arðráns- stéttina" samkvæmt kenningum kommúnista? í Þjóðviljanum og jafnvel Alþýðublaðinu má lesa, að skcra þurfi niður milliliði, einkum í þjónustu og viðskipt- um, þjóðnýta ýmis fyrirtæki o.s.frv. Þctta þýðir, að nái þessir flokkar viildum munu þúsundir manna við verzlunar- og þjónustustörf missa atvinnu sína og aleigu. Engum hugsandi manni dylst, að sósíalísku flokkarnir og valdamenn hinnar nýju stéttar á Islandi, stefna markvisst að því að eyðileggja lífsgrundvöll þess hluta íslenzku borgara- stéttarinnar, sem hefur tekizt að vernda sjálfstæði sitt fyrir ofríki kerfisins með virku og óháðu starfi út í hinu frjálsa atvinnulífi. Kerfissósíalistarnir vita sem er, að takist að einangra þetta fólk og þann flokk, sem hefur barizt fyrir tilveru þess, Sjálfstæðisflokk- inn, verða völd þeirra í landinu alger. Frelsið er dýrmætt Islendingar mega ekki láta tálsýnir. falshugmyndir og fordóma hinnar nýju stéttar valdamanna, cins og hún birt- ist í gervi frambjóðcnda Alþýðubandalagsmanna og Alþýðuflokksmanna þessa dag- ana, viila sér sýn. Frelsið er of dýrma'tt til þess að því verði fórnað breyting- anna vegna. Sú hætta blasir við, vegna þeirrar auknu valdatil- færslu til vinstriflokkanna, sem ætti sér stað, ef þeir ynnu verulega á í alþingiskosningun- um og mynduðu vinstri stjórn að þeim loknum. Þessu til áherzlu má benda á, að flestir helztu frambjóðendur þessara fiokka eiga rætur sínar í valda- stofnunum hinnar nýju stéttar. Þeir eru annað hvort embættis- menn, stéttaforingjar eða ráðnir talsmenn vinstriflokkanna. Kjarni hinnar nýju stéttar Kjarna hinnar nýju stéttar er nú þegar að finna í fram- bjóðendum Alþýðubandalags- ins og Alþýðuflokksins, vinstri verkalýðsleiðtogum þessara flokka. vinstri mönnum í stjórnsýslukcrfi ríkis og sveft- arfélaga. skólakerfinu. ýmsum opinberum stofnunum o.s.frv. — Síðustu vígi hins frjálsa og óháða einstaklings eru enn Alþingi og hið frjálsa atvinnulíf, þar sem sósíalistar hafa ekki getað hreiðrað um sig. Fái þeir mikið fylgi í næstu alþingiskosningum, hafa þeir öðlazt það úrslitavald, sem dugir til þess að gera út af við athafnafrelsið í landinu og þar með frelsi og sjálfstæði ein- staklinganna. Eg er ekki viss um, að fólkið í landinu geri sér grein fyrir hvað hin nýja valdastétt vinstri manna er búin að koma sér vel fyrir í stjórnunarkerfi þjóðar- innar. Það eina, sem upp á vantar til að fullkomna valda- tökuna er að koma Sjálfstæðis- flokknum — sjálfstæðu fólki — á kné og ná lykilvöldum á Alþingi. Valdið er aðalatriðið Þess vegna gat Lúðvík Jóseps- son, forustumaður kommúnista á íslandi, sagt með sigurvissu í sjónvarpinu fyrir skömmu: „Okkur — Alþýðubandalags- mönnum er ekkert keppikefli að komast í ríkisstjórn aðalatriðið er að ráða“. Og hverju ráða svo kommúnistarnir í íslenzku valdakerfi? Þeir ráða yfir Alþýðusam- bandi íslands, Verkamannasam- bandi Íslands, Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, Launa- málaráði Bandalags háskóla- menntaðra manna, Samtökum' kennara og fjölda stórra verka- lýðsfélaga. Flestir starfsmenn þessara samtaka eru Alþýðu- bandalagsmenn og jafnvel kommúnistar af gamla skólan- um. Þeir fjalla um málefni tuga þúsunda manna og hafa gnótt fjár .í félags- og áróðursstarf- semi. Einstakir félagsmenn eða minnihluti eru sjaldan spurðir ráða. Forustan ræður. Það þarf tugi milljóna til að framkvæma og skipuleggja verkföll, hvort sem er í fagleg- um eða stjórnmálalegum til- gangi. Vitað er um skipulagða undir- róðursstarfsemi vinstri sinn- aðra kennara í æðri skólum. Nemendur eru til frásagnar um það. Meðan foreldrar þessara nemenda eru önnum kafnir við störf úti í þjóðlífinu, eru ýmsir þessara vinstri kennara á full- um launum að ástunda þá iðju að grafa undan frjálsu borgara- Hluti legu þjóðskipulagi með þvf að sá efasemdum í hugi ómótaðs ungs fólks um ágæti þess og innræta því sálarlausan sósíalisma. Eftir síðustu sveitarstjórna- kosningar, og við það að vinstri flokkarnir náðu meirihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur, hafa Alþýðubandalagsmenn náð undirtökunum á þessum mikil- væga vettvangi valddreifingar til þessa. Vefur kommúnista Myndin er skýr. Kommúnist- ar hafa ofið sinn vef vel. Alþýðuflokksmenn eru fastir í þessum vef. vegna samstöðu þeirra við kommúnista í ASÍ, BSRB, sveitarstjórnum og víð- ar. Hvert atkvseði til Alþýðu- flokksins í komandi kosningum styrkir völd Alþýðubandalags- ins og samtryggingarkerfi hinnar nýju stéttar. Islendingar verða að gera sér grein fyrir hinni miklu hættu sem vofir yfir þjóðinnt, ef kommúnistar Alþýðubandalags- ins eflast enn meir að völdum með stuðningi Alþýðuflokks- manna, sem fylgja þeim dyggi- lega eftir í valdakerfi hinnar nýju stéttar. Við viljum vera frjáls Víða heyrist fólk segja: Við viljum nýja menn. Við viljum Guðmundur H. Garðarsson breytingar. En áður en endanleg afstaða er tekin, bið ég hvern einstakling að íhuga þetta: Er það breyting til hins betra? Tryggir það betur frelsi mitt og barna minna eða styrkir stuðn- ingur minn við Alþýðubanda- lagið og Alþýðuflokkinn enn meir völd hinnar nýju stéttar, forustumannanna í kerfinu? Kerfi, sem gerir frjálsa menn að þrælum. þrælum félags- sósíalisma hinnar nýju stéttar. Pólitísk endurhæf- ing eða brottrekstur Vinnubrögð hinnar nýju stéttar gagnvart starfsmönnun Reykja- víkurborgar undir vinstri stjórn. — Þjóðviljinn 10. júní sL: „Guörún Helgadóttir sagði fyrir kosningar, að annað hvort þyrfti að endurhæfa embættis- menn borgarinnar eða reka þá. Meirihlutaflokkarnir í borgar- stjórn hljóta nú að setja reglur um það, að enginn af æðstu embættismönnum borgarinnar verði ráðinn lengur en til 4—6 ára. Þeim sem eftir sitja hlýtur að verða gert ijóst að annað hvort sé að endurhæfa sig þannig að þeir séu færir um að framkvæma vilja meirihluta- flokkanna eða að sjá sóma sinn í að segja upp störfum, ef þeir ættu að halda áfram íhalds- þjónkun sinni og grafa undan nýjum meirihluta" (Tilvitnun Þjóðviljans lýkur). Reykvíkingar og allir lands- menn takið eftir> Aðeins hálfur mánuður er liðinn frá því að kommúnistar Alþýðubandalagsins náðu undir- tökunum í borgarstjórn Reykja- víkur. En þrátt fyrir það hversu skammt er um liðið frá valda- töku þeirra, er því slegið föstu, að þeir embættismenn, sem kommúnistar vilja losna við, grafi undan nýja meirihlutan- um. Embættis- og starfsmenn borgarinnar hafa unnið störf sín að venju. Þeir eru þekktir að óhlutdrægni. En persónuofsóknir hinnar nýju valdastéttar Reykjavíkur- borgar eru hafnar. Krafizt er skilyrðislausrar hlýðni við valdaklíkuna og af- neitun eigin persónuleika með endurhæfingu, ef menn eigá að fá að halda stöðu sinni. I kommúnistaríkjunum eru endurhæfingarstöðvar, þar sem persónuleiki einstaklinganna er þurrkaður út, veigamiklar stofn- anir í stjórnsýslukerfinu. Alþýðubandalagið hefur kastað grímunni. Hið sanna eðli valdníðslu og mannfyrir- litningar segir fljótt til sín. Þennan flokk kommúnista eiga íslendingar að varast, vilji þeir halda frelsi og sjálfstæði. Þriðjudagur 30. maf 1978 hinnar nýju stéttar FramkvKmdastjdrn Alþýðubandalagsins héltfnnd I Þórshamri sfftdegis f gær, þar sem r*tt var um kosningadralitin og skipulagntngu kosn- ingastarfsins fyrir alþingiskosningarnar. A myndinni eru m.a. nokkrir þingmenn Alþýðubandalagsins, verkaiýAsleifttogar og fimm borgar fulltrúar Alþýðubandalagsins I Revkiavik. — Liósm. eik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.