Morgunblaðið - 13.06.1978, Page 48
Verzliö
í sérverzlun með
rlitasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19,,
sími 29800
AU(iLÝSIN(;ASÍMrVN EK:
22480
JHareunbtnÖiti
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
Upplýstu smygl
á hassi fyrir
rúma milljón
TOLLGÆZLAN og ííkni-
efnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hafa nýlega upp-
lýst smygl á 700 grömmum
af hassi til landsins og þar
af voru 300 grömm gerð
upptæk. Söluverðmæti þessa
magns er talið vera rúm ein
milljón króna.
Málavextir voru þeir, að sögn
Kristins Ólafssonar tollgæzlu-
stjóra, að statfsmaður í vöru-
geymslum Hafskips fór til Rotter-
dam og keypti þar um 300 grömm
af hassi. Hassið faldi hann í
öskubakka með fæti og bjó um
hann til flutnings til Islands og
skráði pakkann á annað nafn en
sitt eigið. Var pakkinn fluttur til
landsins með skipi Hafskips.
Þrátt fyrir að hassið væri vel
falið tókst árvökulum tollvörðum
að finna það. Var það tekið úr
pakkanum og hann settur á sinn
stað í vörugeymslunni. Síðan
gerðist það að brotizt var inn í
vörugeymsluna og pakkanum stol-
Olminnflutn-
ingsbannið
ekki framlengt
„VIÐ HÖFUM engán áhuga á því
að landið verði olfulaust í byrjun
júlí og höfum ekki boðað fram-
lenginu á olíuinnflutningsbann-
inu, sem rennur út á fimmtudag-
inn, en slíkt þarf að boða með sjö
daga fyrirvara,“ sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður
Verkamannasambands íslands í
samtali við Mbl. í gærkvöldi.
Guðmundur sagði að mjög hefði
verið rýmkað til í útflutnings-
banninu, þar sem sannanlega
hefði verið um það að ræða að
markaðir væru í alvarlegri hættu
og nefndi til undanþágur til
útflutnings á saltfiski til Spánar
og Ítalíu, á mjöli, söltuðum
Framhald á bls. 30.
ið. Við rannsókn beindust böndin
að starfsmanninum og játaði hann
brot sitt. Jafnframt viðurkenndi
hann að hafa leikið þennan leik
einu sinni áður. Fór hann þá til
Rotterdam og keypti 400 grömm af
hassi, sem hann faldi í sams konar
öskubakka og sendi heim til
Islands. Gat hann notað aðstöðu
sína í vöruskemmunni og náð
hassinu úr öskubakkanum áður en
pakkinn var afhentur en það tókst
honum ekki í seinna skiptið.
Rainbow Warrior:
Skipverjar
hættir að
svara í
talstöðina
SKIPVERJAR á Rainbow
Warrior, skipi Green-
peace-samtakanna, eru nú
hættir að svara köllum
loftskeytastöðvarinnar í
Gufunesi og er sama hver
það er sem reynir að ná
tali af þeim. Var Morgun-
blaðinu tjáð i gær, að
Greenpeace-menn bæru
því við, að rafmagn um
borð í Rainbow Warrior
væri af skornum skammti,
og rafgeymar við tal-
stöðvarnar lélegir.
Þá var Morgunblaðinu tjáð í
gær hjá Hval h.f., að veiðar
íslenzku hvalbátanna gengju
ágætlega, en í gærmorgun
komu allir hvalbátarnir til
hafnar með hvali, og var þá
kominn 41 hvalur á land, 33
langreyður og 8 búrhvalir.
Segja skipverjar á hvalbátnum,
að þeir verði aldrei varir við
Rainbow Warrior nema þegar
þeir komi til lands með veiði og
þegar þeir eru á útleið á ný á
hvalamiðin.
Ljósm. Mbl.: Friðþjófur.
Viðræðunefndir meirhlutaflokkanna í borgarstjórn á fundi í gær í flokksherbergi
Framsóknarflokksins í Alþingishúsinu. Frá vinstri: Adda Bára Sigfúsdóttir og Sigurjón
Pétursson fulltrúar Alþýðubandalagsins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Björgvin
Guðmundsson fulltrúar Alþýðuflokksins og Eiríkur Tómasson og Kristján Benediktsson
fulltrúar Framsóknarflokksins.
Sigurjón Pétursson:
Endanleg ákvörðun í
vísitölumálinu hefur
enn ekki verið tekin
„Það er ekki búið að
ákveða eitt eða neitt endan-
lega í sambandi við vísitölu-
málið,“ sagði Sigurjón
Pétursson borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í samtali
við Mbl. í gærkvöldi. „Vísi-
tölumálið verður að öllum
likindum kynnt á borgar-
ráðsfundi á morgun og ég
vil ekki ræða þetta mál
frekar nú.“ Þegar Mbl.
vísaði til ummæla, sem höfð
voru eftir Lúðvík Jóseps-
syni, formanni Alþýðu-
bandalagsins, af framboðs-
fundi á Austurlandi um
helgina, þess efnis, að búið
væri að ákveða að meirihlut-
inn í borgarstjórn gengi að
tilboði Verkamannasam-
bandsins og yrði því útflutn-
ingsbanni aflétt af Bæjarút-
gerð Reykjavíkur, svaraði
Sigurjón, að hann þekkti
ekki til orðréttra ummæla
Lúðvíks um þetta, en kvaðst
búast við að Lúðvík hefði
verið að vísa til stefnu
Alþýðubandalagsins í
Reykjavík fyrir og eft-
ir borgarstjórnarkosningar.
Tveir þingmenn Alþýðubandalags:
Samstarf vid S jálf-
stæðisflokk útQokað
„Ákvörðunin í þessu máli
verður tekin af réttum aðil-
um, sem eru borgarráð og
borgarstjórn,“ sagði Sigur-
jón.
Sigurjón sagði áð borgarmála-
ráð Alþýðubandalagsins væri búið
að samþykkja málefnasamning
meirihlutans í borgarstjórn efnis-
lega,“ en það er ekki búið að setja
hann endanlega niður á papppír-
inn.“ Sagði Sigurjón að málefna-
samningurinn yrði kynntur á
borgarstjórnarfundi á fimmtudag-
inn og kvaðst að svo stöddu ekki
vilja svara spurningum Mbl. um
einstök efnisatriði málefna-
samningsins.
„Borgarmálaráð Framsóknar-
flokksins og stjórn fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
hafa fjallað um efni málefnasamn-
ingsins og samþykkt það fyrir sitt
leyti og í kvöld er svo fundur í
fulltrúaráðinu, þar sem fjallað
verður um borgarmálin," sagði
Kristján Benediktsson borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins í sam-
Framhald á bls. 30.
TVEIR af þingmönnum Al-
þýðubandalagsins, þeir
Garðar Sigurðsson og Stef-
án Jónsson, hafa gefið af-
dráttarlausar yfirlýsingar
um, að samstarf af hálfu
Alþýðubandalagsins við
Sjálfstæðisflokkinn um
stjórnarmyndun komi ekki
til greina. Stefán Jónsson
sagði á framboðsfundi á
Ólafsfirði sl. laugardags-
kvöld, að samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn kæmi ekki til
greina af sinni hálfu. Þetta
kom fram í svari við spurn-
ingu á fundinum í ólafs-
firði. Stefán Jónsson sagði,
að afstaða sín til samstarfs
við Sjálfstæðisflokkinn
byggðist á því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn mundi
aldrei fallast á að herinn
færi úr landi og því kæmi
samstarf við hann ekki til
greina.
í viðtali við dagblaðið Vísi
í gær segir Garðar Sigurðs-
son: „Það er ekkert
launungarmál, að útilokað er
fyrir Alþýðubandalagið að
stjórna með Sjálfstæðis-
flokknum. Ef Alþýðubanda-
lagið ætti að mynda stjórn þá
yrði það auðvitað að vera
með öðrum flokkum og allir
vita hverjir þeir eru.“
Eins og Morgunblaðið
skýrði frá fyrir helgi sagði
Halldór Ásgrímsson, þing-
maður Framsóknarflokksins
í Austurlandskjördæmi, á
framboðsfundi í síðustu viku,
að Framsóknarflokkurinn
væri tilbúinn að fara í vinstri
stjórn og Andri ísaksson einn
af frambjóðendum SFV sagði
í blaðaviðtali, að flokkur
hans stefndi að myndun
vinstri stjórnar sömu flokka
og 1971-1974.
Setlagarannsóknir;
Viðræður
hefjast
FULLTRtJAR annars banda-
ríska fyrirtækisins sem sótt
hefur um leyfi til setlagarann-
sókna á landgrunninu eru
væntanlegir til landsins í dag til
viðræðna við fulltrúa iðnaðar
ráðuneytisins.
Reiknað cr með að viðræðum
við fulltrúa beggja fyrirtækj-
anna verði lokið á föstudag.