Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 8

Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978 'finsældalistar og fréttir ör poppheiminuir.. Vinsœldalistar SKÖTUHJÚIN John Travolta og Olivia Newton-John eru nú í efsta sæti brezka vinsældalistans en þau eru auk þess ofarlega á blaði í Bandaríkjunum, Hollandi og Ilong kong. Þá eru Rolling Stones nú komnir í 10. sætið með lagið „Miss you“. í Bandaríkjunum er athyglisvert að ABBA eru í 9. sæti, en Iangt er um liðið síðan sænski kvartettinn hefur verið svo ofarlega þar. London 1. (2) You’re the one that I want — John Travolta og Olivia Newton-John 2. (1) Rivers of Babylon — Boney M. 3. (3) Bo.v from New York city — Darts 4. (12) Davy’s on the road again — Manfred Mann 5. (15) Annie’s song — James Galway 6. (7) Love is in the air —John Paul Young (5) Night fever — Bee Gees 8. (6) What a waste — Ian Dury 9. (8) Ca plane pour moi — Plastic Bertrand 10. (17) Miss you — Rolling Stones Tvö lög jöfn í sjötta sæti. New York 1. (1) Shadow dancing — Andy Gibb 2. (4) Baker street — Gerry Rafferty 3. (3) You’re the one that I want — Olivia Newton-John og John Travolta 4. (2) Too much, too little, too late — Johnny Mathis og Deniece Williams 5. (7) It’s a heartache — Bonnie Tyler 6. (5) Baby hold on — Eddie Money (6) Feels so good — Chuck Mangione 8. (10) Love is like oxygen — Sweet 9. (15) Take a chance on me — ABBA 10. (12) Because the night — Patti Smith Tvö lög jöfn í sjötta sæti. Amsterdam 1. (1) Rivers of Babylon — Boney M. 2. (3) Ca plane pour moi — Plastic Bertrand 3. (2) Substitute — Clout 4. (6) Kad.v McCorey — Band Zonder Naam 5. ( —) You’re the one that I want — John Travolta og Olivia NewtonJohn 6. (4) Night fever — Bee Gees (10) If you can’t give me love — Suzi Quatro 8. (5) Met de clam in de pijp — Henk Wigengaard 9. (9) Achter de rhododendrons — Tol Hansse 10. (—) Golden years of rock’n’roll — Long Tall Ernie Tvö lög jöfn í sjötta sæti. Bonn 1. (1) Rivers of Babylon —Boney M. 2. (3) Stayin’ alive — Bee Gees 3. (2) Take a chance on me — ABBA 4. (6) Night fever — Bee Gees 5. (4) For a few dollars more — Smokie 6. (8) If you can’t give me love — Suzi Quatro (5) Runaround Sue — Leif Garrett 8. (7) If paradise is half as nice —Rosetta Stone 10 9. (13) Follow me — Amanda Lear 10. (9) Don’t stop the music — Bay City Rollers Tvö lög jöfn í sjötta sæti. Hongkong 1. (1) I was only joking —Rod Stewart 2. (3) Night fever — Bee Gees 3. (2) You’re the one that I want — John Travolta og Olivia Newton-John 4. (5) With a little luck — Wings 5. (10) It’s a heartache — Bonnie Tyler 6. (13) Moving out — Billy Joel (20) Even now — Barry Manilow 8. (4) Dust in the wind — Kansas 9. (7) Fantasy — Earth, Wind and Fire 10. (11) Tqo much, too little, too late — Johnny Mathis og Denice Williams Tvö lög jöfn í sjötta sæti. Smokie. enn í hópi þeirra tíu efstu í Vestur-Þýzkalandi. John Travolta og Olivia Newton- -John gera Íað gott essa dag- ana beggja vegna At- At-lants- hafsin Santana, Beach Boys og Joan Bæz í Lenlngrad SÁ FRÆGI kappi Rill Graham tilkynnti fyrir skömmu að Beach Boys, Joan Baez og Santana myndu halda til Sovétríkjanna í næsta mánuði og halda hljóm- leika í Leníngrad hinn 4. júlí. Aðgangur að tónleik- unum verður ókeypis og er búizt við að allt að 200.000 manns muni sækja þá en þeir verða haldnir á hallar- torginu í Leníngrad. Graham sagði að hljóm- leikarnir væru þáttur í „menningartengslum Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna.“ „Það er vissu- lega erfitt fyrir ‘okkur að halda hljómleika í Lenín- grad,“ sagði Graham, „eftir því sem mér er kunnugt hafa engir svona hljómleik- ar verið haldnir í löndum Austur-Evrópu." Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem bandarískar hljómsveitir halda hljóm- leika í Sovétríkjunum. Bæði Nitty Gritty Dirt band og Roy Clark hafa komið þar fram. En þetta er í fyrsta sinn sem hljóm- sveitir halda austur yfir múrinn án þess að banda- ríska stjórnin taki þátt í kostnaði vegna hljómelika- haldsins. „Það eina sem stjórnin hefur gert fyrir okkur," sagði Graham, „er að hún aðstoðaði okkur við að fá vegabréfsáritun og ráðlagði okkur að láta bólusetja okkur gegn kóleru áður en við færum austur. “ Það hefur tekið Graham fimm ár að skipuleggja hljómleikana og fá leyfi stjórnvalda í Sovétríkjun- um til að halda þá en hann neitaði því að stjórnmál hafi valdið hinum langa afgreiðslutíma. „Við erum aðeins að fara þangað til að leika tónlist okkar," sagði Joan Baez. „Við höfum alls ekki í hyggju að koma stjórnmálaskoðunum okkar að.“ Tónlist við allra hæfi á ..Selfoss” „Hljómplatan sem hér birtist flytur þverskurö af hljómlistar- lífi Selfoss veturinn 1977—‘78. Ekki mun fjarri lagi að nær 300 manns hafi hér lagt hug og hönd að eða fast að 10% íbúanna. Hún geymir þannig mikið starf margra — fullorðinna — ung- linga og barna! Svo ritar Óli Þ. Guðbjartsson þáverandi oddviti Selfoss, á plötuumslag nýút- kominnar hljómplötu, sem ber nafnið „Selfoss". Útgefandi plöt- unnar er Hljómteiti og að sögn G. R. Lúðvíkssonar, eiganda Hljómteitis, er fyrsta upplag plötunnar, um 2000 eintök, nú uppselt, en von er á næzta upplagi fljótlega og ætti það jafnvel að vera komið í verzlanir þegar þessar línur birtast. „Selfoss" er um margt sér- kennileg hljómplata. Tónlistin á henni er margbreytileg og víst er að þar geta allir fundið sitthvað við sitt hæfi. Á fyrri hlið plötunnar eru lög sem miðuð eru við yngri kynslóðina en á seinni hliðinni eru lög sem kórar flytja auk þess sem þar er að finna tvö lög sem leikin eru af lúðrasveitum. Margir kunnir kappar úr íslenzka popptón- listarheiminum aðstoða við gerð þessarar hljómplötu og má þar nefna þá Þórð Árnason gítar- leikara, Tómas Tómasson, bassaleikara, Ásgeir Óskarsson trommuleikara, Magnús Kjartansson hljómborðsleikara og Ragnar Sigurjónsson trommuleikara. Fyrri hlið plötunnar hefst á laginu „Sonur götunnar" sem er eftir G. R. Lúðvíksson en textinn er eftir Jóhannes úr Kötlum. Lag þetta er í country- stíl eins og raunar flest lögin á G.R Lúðvíksson útgefandi plöt- unnar Selfoss. fyrri hliðinni. G. R. Lúðvíksson leikur á öll hljóðfærin í laginu utan trommur og verður ekki annað sagt en að honum farist það vel úr hendi. Kannski hefði söngurinn mátt vera kraftmeiri en annars er skemmtilegur heildarsvipur á laginu og sér-j staklega er gaman að heyra hvernig kassagítarleikurinn kemur út. Næsta lagið er samið af Ólafi Þórarinssyni og ber nafnið „Nótt með þér“, en texti er eftir Ómar Þ. Halldórsson. Vælandi munnharpa og lipurleg gítar- innskot setja svip á lagið en á bæði þessi hljóðfæri leikur Ólafur Þórarinsson sem raunar leikur á öll hljóðfærin í laginu nema trommur. „Hver er ég?“ tekur þá við en það lag er að mati undirritaðs bezta lagið á plögunni. Lagið samdi Steindór Leifsson og texta gerði F. Steingrímsfjörð. I laginu aðstoða þeir Asgeir Framhald á bls. 63.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.