Morgunblaðið - 21.06.1978, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 21.06.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978 51 Sjálfshjálp besta lausn heimsvandamála Brýnustu vandamálin í heiminum — fæðu-, orku-, húsnæðis- og heilbrigðismál — verða best leyst á hverjum stað og af því fólki, sem vandinn mæðir mest á. Undirstöðuþörfum fólks má best mæta með því að fá einstaklinga og samfélög til að gera meira til að hjálpa sér sjálf. Þetta er niðurstaðan úr rannsókn, sem Worldwatch stofnunin lét gera og birti í Washington í febrúarmánuði sl. „Pólitískur vilji dugar ekki til þess að flytja fjármagn frá ríkum til fátækra í þeim tilgangi að útrýma vannæringu eða sjúkdóm- um. Margar þjóðir og alþjóða- stofnanir eru farnar að skilja mikilvægi sjálfshjálpar og þess að verða sjálfum sér nógur", sagði Bruce Stokes, einn af sérfræðing- um þessarar alþjóðlegu stofnunar og höfundur skýrslunnar, sem ber heitið: Viðbrögð heimamanna við vandamálum heimsins. Lykillinn að lausn velferðarmála almenn- ings.“ „Alþjóðastofnanir og ríkis- stjórnir eru nú farnar að fjár- magna og veita stuðning áætlun- um um sameiginlegt átak með heimamönnum, þreyttar orðnar á sínum eigin mistökum við að leysa vandann á eigin spýtur. Stuðning- ur stjórnvalda við framtíðaráætl- anir ætti í framtíðinni að nýta sér betur möguleika hvers sveitarfé- lags og möguleika einstaklingsins til sjálfshjálpar, ef ná á betri árangri." Nokkur af þeim áformum, sem mest gagn hafa gert til að leysa alþjóðavandamál, byggjast ekki á miðstýrðum alþjóðlegum áætlun- um eða stjórnstýrðum á landsvísu, heldur á framtaki heimamanna. • Tvær af hverjum fimm bandaríkjafjölskyldum drýgja tekjur sínar um 10% að meðaltali með eigin ræktun og fjórðungur tekna fjölskyldnanna í sósíalista- ríkjunum koma af smáskikum, sem fjölskyldan ræktar sjálf. • Eigin vinna um 200 þúsund húsbyggjenda í Bandaríkjunum á árinu 1976 sparaði fjorðung til helming af byggingarkostnaði, þar sem Alþjóðabankinn eyddi 866 milljón dollurum til byggingar fyrir fátæka í þróunarlöndunum á síðustu 5 árum. • Athuganir sýna að yfir 90% af þeim, sem koma til fjölskyldu- læknisins í nokkrum iðnaðarríkj- um, hafa sjálfir hafist handa um árangursríka eigin lækningu og að frumþarfir heilbrigðisþjónustunn- ar eru leystar í Kína af 1,3 milljón berfættum læknum. • Yfir 5000 heimili í Bandaríkj- unum draga úr erfiðleikunum vegna hækkandi olíuverðs og olíuskorts með því að taka upp hitun að einhverju leyti með sólarorku. Og 17 milljón Kínverja nota methan, framleitt úr úrgangi húsdýra og plantna, til eldunar og lýsingar heimilanna, og gera um leið þorpin sín óháðari aðfluttu eldsneyti. Hækkandi verðlag og skortur á fæðu á afmörkuðum svæðum eykur erfiðleikana vegna matar- skorts í heiminum í heild. Alþjóða- stofnanir, sem vilja vel, hafa á einum mannsaldri beitt sér í þeim tilgangi að kveða niður hungrið í heiminum, en hafa mátt horfa upp á það að næringarskortur hefur farið vaxandi meðal þeirrar sömu kynslóðar. Samt sem áður hafa tekist tilraunir í Kína, Japan, Taiwan og Suður-Kóreu til að auka matarframleiðslu til eigin nota, með því að koma upp smábýlum sjálfseignabænda, sem ná mjög hárri framleíðni. Um 32 milljónir garðeigenda í Bandaríkj- unum og félagar þeirra í Rúss- landi, Kína og Vestur-Evrópu sýna að margir neytendur hafa nú snúið sér að eigin fæðuframleiðslu til að bæta mataræði og draga úr ört hækkandi verði á matvælum," segir Stokes. „Yfir 800 milljónir manna um allan heim búa í heilsuspillandi húsnæði — og vaxandi byggingar- kostnaður gerir draum fjölda annarra um að komast yfir eigið húsn4ði að engu. í hvatningu stjórnvalda til sjálfshjálpar í þessum efnum búa sennilega mestu möguleikarnir til að leysa þarfir þeirra sem í hreysum búa og jafnframt fjárvana millistéttar- fólks“, segir í skýrslunni. „í Bandaríkjunum hafa yfir 22 þúsund nanns sent umsóknir um ríkislán til húsbygginga. Á árinu 1976 eyddu húseigendur 5 billjón- um dollara í viðgerðir og endur- nýjun á húsum sínum, sem þeir unnu sjálfir. Slíka sjálfshjálp ætti að nýta segir Stokes. Þrátt fyrir miklar framfarir læknavísindanna, er heilbrigðis- þjónusta veitt á spítölum of dýr og gerir raunar lítið til að komast fyrir rætur margra megin heil- brigðisvandamála núímans, segir Stokes. Heilsurækt — þar sem sjúklingurinn tekur meiri ábyrgð og þátt í sjúkrameðferðinni — hefur dregið um helming úr spítalalegu vegna langvarandi sjúkdóma. Á Kúbu hefur útfærsla frumheilbrigðisþjónustu til fleiri staða dregið úr dauðsföllum af völdum magasjúkdóma, mislinga og berkla. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að breytt mataræði og regluleg líkamsþjálfun getur bjargað lífi fleiri miðaldra manna í Bandaríkjunum en nokkrar framfarir í læknavísindum. Þegar olíuna þrýtur lofa sólar- orka og orkusparnaður góðu um lausn á orkuþörf framtíðarinnar. Þessar orkuuppsprettur eru í seilingafjarlægð frá hverjum orkuneytanda og geta gert hann óháðari fjarlægum og oft við- kvæmum orkuverum. I iðnaðar- löndum geta einfaldar breytingar á hönnun húsa minnkað hitunar- kostnaðinn um 50%. I lok þessarar aldar mun sólarorkuvinnsla verða fjárhagslega hagkvæm lausn á raforkuþörf hvers húseiganda. Um leið og sólarorkuvinnsla hefst þá mun hlutverk neytandans í orku- framleiðslunni skipta sköpum, segir í skýrslunni. „Allt þetta framtak er skref í þá átt að sýna hvernig mæta ber brýnustu þörfum mannkynsins," segir Stokes. „Framtak af þessu tagi hefur auðvitað sínar takmark- anir og margt slíkt á eftir að missa marks þegar leysa á vandann í skyndi. En það eitt að einstakling- ar og samfélög fólks vinni saman að lausn frumvandamálanna, er út af fyrir sig nokkur árangur" „Þessi margumrædda og árang- urslitla uppbygging réttlátara þjóðfélags er reyndar á góðri leið í sveitarfélögum eða smáum sam- félögum, þar sem fólkið tekur fremur þátt í því að leysa vandann en með því að horfa á hann Framhald á bls. 63. Þorpsbúar f Afrfku reisa sér heimili. Til LiLxembo flucfélac LOFTLEIBIR ÍSLAJVDS Luxemborg er friösæll töfrandi ferðamanna- staöur, mótaöur af frönskiun og þýskum menningaráhrifum - þar sameinast franska glaölyndiö og þýska nákvæmnin. Þar sem landiö er lítið, er stutt aö skjótast til ýmissa stórborga í nágrannalöndunum. Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta- héruö Evrópu sameinast, á mótum Mosel og Rinar. Luxemborg — einn fjölmargra staöa í áætlunarflugi okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.