Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978
63
— Við
gluggann
Framhald af bls. 52.
vissan stimpil stórmenna og
sérfræðinga? Hafa þeir kannske
líka dæmt eða fordæmt hina
sígildu meistara á sinni tíð?
En væri hægt að segja eitt-
hvað svipað og haft er eftir
einhverjum listaverkasalanum
þarna, sem æpti:
„Burt með ykkur. Skyldi ekki
fólk fá að ráða sínum eigin
smekk og til hvers það vill eyða
aurum til að fegra í kringum
sig?
Hvaða rétt hafið þið til að
blanda ykkur í persónulegt mat
minna viðskiptavina?"
Árelíus Níelsson.
— Tónlist
Framhald af bls. 40
Óskarsson, Magnús Kjartans-
son, Þórður Árnason og Tómas
Tómasson en söngurinn sér
Sveinbjörn Oddson um. Lagið
hefur á sér nokkurn austrænan
blæ og samspil gítars og píanós
í laginu er smekklega útsett.
Þorsteinn frá Hamri samdi
textann við lag Ómars Þ.
Halldórssonar „Sumir dagar",
en Ómar leikur á öll hljóðfæri
í laginu og syngur það einnig
sjálfur. Hljómborðsleikur
Ómars gefur laginu dálítið
væmið yfirbragð enda gefur
textinn tilefni til að útsetja
lagið á væminn hátt.
„Hvurs er hvað“ er fjörugasta
lagið á hlið eitt og syngur
höfundur lagsins, Sveinbjörn
Oddsson það sjálfur en sömu
undirleikarar eru í laginu og í
„Hver er ég?“. Texti lagsins er
frekar ruglingslegur en hann
samdi F. Steingrímsfjörð. Ann-
ars standa undirleikararnir
fjórir allir fyrir sínu, og sér-
staklega er gítarleikur Þórðar
lipur í laginu.
Hlið eitt lýkur með laginu
„Bak við Bláfjöll" eftir Björn
Þórarinsson en texti er eftir
Ómar Þ. Halldórzzon. „Bak við
Bláfjöll" er flutt af hljómsveit-
inni Evrópu sem kom til höfuð-
borgarinnar fyrir stuttu og lék
á einu af veitingahúsum borgar-
innar. Evrópu skipa þeir Hörður
Friðþjófsson (gítar), Ómar Þ.
Halldórzzon (hljómborð).
Sigurður I. Ásgeirsson (bassi)
og Sigurjón Skúlason (tromm-
ur), en Björn Þórarinsson syng-
ur lagið. Lag þetta er í svipuðum
stíl og „Sopur götunnar" og
„Nótt með þér“, það er country-
stíll og verður að segja að
hljómsveitin skilar sínu verki
vel án þess þó að sína nein
sérstök tilþrif.
Um hlið tvö er bezt að hafa
sem fæst orð, en þó getur
undirritaður ekki látið hjá líða
að minnast lítillega á „Til
gleðinnar", sem kór barnaskól-
ans á Selfossi flytur, en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem
kórinn kemur fram á hljóm-
plötu. Þá er sérstætt að upptak-
an fór fram í Garðakirkju og er
þetta eina lagið á hljómplötunni
sem tekið er upp utan Hljóðrita
í Hafnarfirði.
„Selfoss" var tekin upp í
Hljóðrita í desember í fyrra og
fór pressun og skurður fram í
Sound Tek í Bandaríkjunum og
var sá þáttur máianna í höndum
Gunnars Þórðarsonar. Hönnun
á umslagi sá Bjarni Jónsson um
ásamt útgefanda. Með hljóm-
plötunni fylgir vönduð bók þar
sem í er að finna ýmsar
upplýsingar um flytjendur lag-
anna en textar eru ekki í
bókinni og er það miður.
S.A.
— Frá
Borgarfírði
Framhald af bls. 43.
sér þannig að skepnan horast
smám saman niður og lognast
síðan útaf, án þess að við fáum
rönd við reist. Þá er það mjög
misjafnt hversu skepnurnar eiga
lengi í þessum hörmungum, sumar
drepast mjög fljótlega eftir að
sjúkdómsins verður vart en aðrar
„tóra“ jafnvel allan veturinn.
Hvað með að lóga ákveðnum
stofnum? — Það þýðir ekkert úr
þessu, því þegar að veikin er komin
á ákveðið stig þýðir ekkert að lóga
fénu, ekki einu sinni þó að öllu fé
hér í Borgarfirði væri lógað og
nýir stofnar fengnir í staðinn. Til
að sú aðferð hefði komið að notum
hefðum við þurft að grípa til þess
þegar í upphafi þegar veikinnar
varð vart hér.
Þegar verst gekk hjá mér drapst
um 10% af öllu fé og ég hef enn
ekki haft rænu á að fjölga hjá mér
aftur. Það hefur haft svo niður-
drepandi áhrif á mann að sjá
alheilbrigt fé sett á að hausti og
upp úr áramótum fer það að
veikjast og er farið að vori.
Eins og ég sagði áður verður um
algera plágu að ræða hjá okkur
bændum hér ef ekki finnast
einhver ráð við þessum sjúkdómi
innan tíðar. Hann er reyndar
þekktur víða í heiminum, t.d. í
Skotlandi, en þar sem hér hafa
engin ráð dugað.
Sá háttur hefur nú verið tekinn
upp hér að bændur rýja fé sitt nær
allir á veturna þannig að rúnings-
smalamennska er úr sögunni. Við
klippum allt með vélklippum og er
það gert á tímabilinu frá febrúar
til apríl og af þessu fæst mun betri
ull en ella.
Hvað um landskosti hér í
Borgarfirði? — Þetta er nokkuð
harðbýlt „pláss" í vetrarríki, þegar
N-A átt ríkir, en almennt má segja
að landkostir séu hér góðir.
Afréttalöndin eru til að mynda
mjög góð. Á mörgum bæjum hér
eru vel rekin bú og hafa bændur
almennt reynt að fylgjast sem bezt
með öllum nýjungum hvað varðar
vélar til hagræðingar í búskapn-
um. Ræktun er orðin mikil hjá
bændum og í framhaldi þess hafa
dilkar okkar Borgfirðinga verið
mjög vænir.
Að síðustu sagði Jón Sigurðsson
bóndi á Sólbakka, að hann teldi
mannlíf vera mjög gott í Borgar-
firði væri það sérstaklega því að
þakka að íbúarnir þekktu ekki þá
nútíma streytu sem er að fara með
alla. Hann sagði það ósk sína að
listafólk alls staðar af landinu
sækti Borgfirðinga í ríkara mæli
heim, sérstaklega eftir að hið nýja
og glæsilega félagsheimili væri nú
komið í notkun.
— Réttindi
og frelsi...
Framhald af bls. 39
arríkjunum. Slíkum dæmum um
ofsóknir stjórnvalda fjölgar dag
frá degi...
Gerð hefur verið tilraun til þess
að taka tíu börn frá fjölskyldunni
Músiki í bænum Umanuj í Úkra-
níu. Drengirnir Pavel og Ilja hafa
verið settir á sérstaka skólastofn-
un fyrir þroskaheft börn, enda
þótt þeir séu alveg heilbrigðir og
eðlilegir að gáfnafari...
I þessu bréfi eru fleiri dæmi um
þær þjáningar sem börn hafa orðið
að þola en ekki er rúm til að rekja
hér... En það eru ekki aðeins
börnin heldur einnig fullorðnir —
yfir þeim öllum vofir refsihöndN
trúleysingjanna...
Arnhold Rose vildi gera það að
lokaorðum sínum, að stjórnvöldin
i Kreml bæðu alla kristna menn
fyrirgefningar á þeim ofsóknum
sem þau hefðu staðið fyrir. Enn
fremur að þau létu alla fanga
lausa strax. Ef yfirvöld gerðu það,
þá einungis væri hugsanleg frið-
samleg sambúð á milli Ráðstjórn-
arríkjanna og hins vestræna
heims.
Síðan fór trúboðinn Arnhold
Rose með þessa ritningargrein úr
Jóhannesarguðspjalli 14. kapítula,
6. vers:
Jesú sagði við hann: Ég er
vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Enginn getur komið til föðurins
nema fyrir mig.
— Stefnum að...
Framhald af bls. 49.
hálfgert mauk við hnjaskið í
lönduninni, en það verður að
fara varlegar með sumarloðn-
una en vetrarloðnu. En frá
miðju sumri ‘76 og til áramóta
var iandað hér um 40 þúsund
tonnum og mátti segja að við
værum að komast í tölu löndun-
arhæstu staðanna, enda liggur
Sigjlufjörður vel við miðunum.
Á síðasta ári var verksmiðjan
starfrækt allt árið, þ.e. bæði
vetrar- og sumarvertíðina, og
sagði Markús að þá hefði verið
samþykkt að gera hana eins
hæfa og hægt var til að auka
nýtingu og í ár hefði hún verið
auglýst lokuð frá því í apríl þar
til að sumarloðnuveiðar hæfust
eða um 15. júlí.
— Það sem einkum hefur
verið lagfært er t.d. að nú eru
tvær pressur í stað fjögurra
áður og gera sama gagn, skipt
hefur verið um löndunarbúnað,
færibandið lagt af en nú er
loðnu ýmist blásið eða dælt uppí
þrærnar og er það mun þrifa-
legri löndun og betri, því stund-
um gat komið fyrir að hráefnið
fyki ef veður var vont og ef kalt
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 44.
Spielberg, sem gerði
JAWS árið 1975, mestsóttu
myndina uns STAR WARS
skaut henni aftur fyrir sig,
hefur nú hagnast talsvert á
nýjustu mynd sinni,
CLOSE ENCOUNTERS OF
THE THIRD KIND, en nú
þykir fyrirsjáanlegt að hún
komist jafnvel í annað
sætið á metsölulistanum, á
eftir STAR WARS. Sprel-
berg er um þessar mundir
að undirbúa næstu mynd
sína, 1941, en hún á að
gerast á því ári og mun að
einhverju leiti fjalla um
hörmungar síðari heims-
styrjaldarinnar. Handritið
er skrifað af tveimur skjól-
stæðinga hans, Zameckis og
Gale. Þeir fengu nýlega sitt
fyrsta tækifæri til að fram-
leiða og leikstýra, (I
WANNA HOLD YOUR
HAfÍD sem fjallar um
komu Bítlanna til New
York árið 1964), en ekki
fyrr en Spielberg hafði
lofað að sjá um að fjár-
magna myndina ef í harð-
bakkann slægi.
Schrader, sem skrifaði
handritið TAXI DRIVER,
hóf nýlega að leikstýra.
Fyrstu mynd hans, BLUE
COLLAR, var vel tekið af
gagnrýnendum og almenn-
ingi. Hann er nú að ljúka
við gerð myndarinnar
HARD CORE, (m. George
C. Scott), en hún er fram-
leidd af Milius. Þá er
Schrader að undirbúa gerð
næstu myndar sinnar sem á
að nefnast AMERICAN
GIGOLO og nýju súper-
stjarnan John Travolta
mun fara með titilhlutverk-
ið.
Huyck-hjónin, sem skrif-
uðu AMERICAN
GRAFFITI, eru einnig að
taka stefnuna úr stól hand-
ritahöfundarins í leik-
stjórasætið. Þau hafa nú
lokið við handritið FRENC
POSTCARDS sem fjallar
um bandaríska námsmenn í
París. Hún mun svo fram-
leiða en hann leikstýra
kvikmyndinni. Líkt og BIG
WEDNESDAY og
CORVETTE SUMMER
(mynd sem þeir Barwood og
Robbins eru að ljúka við)
mun mynd þeirra hjóna
fjalla um æskuna, sakleysi
unglingsáranna og alvör-
una sem bíður að baki
þeirra.
Þá taug sem bindur
þennan hóp kvikmyndar-
gerðarmanna saman, segir
Williard Huyck vera „ást
okkar allra á kvikmyndum.
Öll viljum við gera okkar
eigin myndir og hafa yfir-
umsjón með því sem fer
fram í þeim. Það gátum við
ekki á meðan við skrifuðum
bara handritin."
Samstaðan og samhjálp-
in birtast í mörgum mynd-
um. Milius segir að hann
geti alltaf treyst á eina eða
fleri stórkostlegar klipping-
ar frá George og Marsha
sem geti haft mikið að
segja um gengi myndarinn-
ar og gæði. Spielberg minn-
ist þess að á meðan hann
vann að JAWS þá þarfnað-
ist hann atriðis, „virkilega
afgerandi eintals", til að
breyta andrúmslofti mynd-
arinnar og færa það nær
hámarki hennar þegar
söguhetjurnar standa aug-
liti til auglitis við ókindina
sjálfa. Hann minntist þess
að hafa lesið um atburðinn
í seinni heimsstyrjöldinni,
þegar herskipið Indiana-
polis fórst og fjöldi sjóliða
varð hákarlskjöftum að
bráð. Spielberg sagði Milius
frá atburðinum og hversu
hann þarfnaðist þessa ein-
tals frá Robert Shaw sem
fór með hlutverk veiði-
mannsins. „John settist
niður við eldhúsborðið og
dró blað og blýant úr pússi
sínu,“ segir Spielberg.
„Hann spurði mig um stað-
reyndir og síðan lauk hann
verkinu. Á sjö mínútum
afgreiddi hann sjö mínútna
langt eintal Shaw þar sem
hann lýsir örlögum
Indianapolis á napurlegan
hátt. Það var stórkostlegt.
En ef ég á að vera sann-
gjarn,“ bætir Spielberg við,
„þá skal það viðurkennt að
Robert Shaw, sem einnig er
rithöfundur, lagfærði það
lítillega, af því við urðum
að stytta það niður í fjórar
eða fimm. mínútur. En
eintalið sem John skrifaði,
var einmitt það sem mig
vantaði."
Forráðamenn- Universal
kvikmyndaversins gorta af
því ' að AMERICAN
GRAFFITI sé arðvænleg-
asta mynd þeirra til þessa
dags. En Milius minnist
þess að það var forsýning í
San Fransisco á
AMERICAN GRAFFITI og
áhorfendur létu hrifningu
sína óspart í ljósi. En á
eftir lýstu þeir Universal
menn því yfir að myndin
væri óhæf til sýninga. Og
enn þann dag í dag botna ég
ekkert í því hversvegna þeir
tóku þá ákvörðun. En hvað
með það, Francis (Ford
Coppola) dró upp veskið og
skrifaði 750 þús. dala tékka
sem hann afhenti þessum
Universal náungum, sem
tryggingu ef dreifing
myndarinnar mundi ekki
borga sig. Þá var hann
nýbúinn að fá fyrstu
greiðsluna fyrir hlutdeild
sína í THE GODFATHER
og hljóðaði hún uppá helm-
ingi hærri upphæð." „Og
eftir því sem best er vitað",
heldur Milius áfram, Þá
geymdu forráðamenn kvik-
myndaversins ávísunina
um nokkurt skeið og skil-
uðu henni að lokum. Þegar
þeir loks höfðu kjark til
þess að dreifa myndinni til
sýninga. Hún varð mest
sótta mynd í sögu fyrirtæk-
isins uns JAWS sló hana út
árið 1975.“ (Niðurlag um
næstu 1 helgi)
yar urðum við að þíða ís og snjó
af færibandinu. Þá hafa verið
endurnýjuð ýmis fleiri tæki ög
er ýmist að sett eru ný tæki í
stað gamalla eða að ný tæki sem
leysir af gamlar aðferðir er
tekin upp en flest þessara tækja
eru mjög gömul og úr sér gengin
og aðalmarkmiðið með þessum
breytingum er sem sagt að bæta
úr nýtingu verksmiðjunnar, sem
við höfum ekki verið alls kostar
ánægðir með fram til þessa.
Markús sagði aö fjöldi starfs-
manna SR væri á bilinu 70—80
á sumrin, en annars nokkuð
breytilegur eftir árstíma. Mest-
ur hluti allra smíðavinnu fer
fram á Siglufirði, vélar eru að
vísu aðkeyptar, og tæknivinna
undirbúin í tæknideild SR í
Reykjavík en síðan annast
starfsmenn nyrðra allar fram-
kvæmdir.
— Við reynum að láta alla
starfsmenn fylgjast með gangi
mála, sagði Markús, það eru
haldnir vikulegir fundir með
verkstjórunum og á þeim er
athugað hvernig verkinu miðar
og ákveðið nánar um fram-
kvæmdina og eru því starfs-
menn með í ráðum um allan
framkvæmdahraða.
— Þegar þessum innri breyt-
ingum á verksmiðjunum er lokið
er ráðgert að snúa sér að
umhverfismálum en hér þyrfti
að malbika eða steypa götur um
lóðina, enda er mikill áhugi
fyrir því að lagfæra svolítið
umhverfið. Það er líka almennur
áhugi og skilningur fyrir öllum
þessum framkvæmdum og erum
við bjartsýnir á eftir áralanga
niðurníðslu og deyfð eigi eftir að
rísa hér upp mjög öflugt at-
vinnulíf, en það er reyndar
þegar byrjað.
_______
— Sjálfshjálp
Framhald af bls. 51.
leystan. Fólk sem áður taldi sig
fórnarlömb utanaðkomandi afla
og kringumstæðna sem það réði
ekkert við er nú farið að skilja
betur pólitíska og efnahagslega
þætti, sem snúa að samfélagi
þeirra."
„Þegar þetta fólk, sem vandinn
brennur mest á, tekur sjálft
ábyrgð á að leysa hann, þá verða
mörg af þeim er virðast illleysan-
legustu vandamál tuttugustu ald-
arinnar — húsnæðismál, fæðu- og
orkuöflun og heilbrigðisþjónusta
— miklu viðráðanlegri," segir
Stokes að lokum.
— Þormóður
rammi
Framhald al bls. 48
verður hún sett á hérna og við
teljum að verkið í heild verði
miklu ódýrara með því að gera
það allt hér heldur en að senda
skipið til Reykjavíkur í slipp.
Ráðgert er að skipið verði
tilbúið til að fara á loðnuveið-
arnar í sumar.
Á þessum góðviðrisdegi, sem
Morgunblaðsmenn stöldruðu við
í Siglufirði, gengum við ásamt
Ragnari i frystihús Þormóðs
ramma og var einnig komið í
frystihúsið ísafold sem Þormóð-
ur rammi hefur á leigu, en í
frystihúsunum samtals vinna á
annað hundrað manns. Þegar
nýja frystihúsið verður tilbúið
er ætlunin að taka gamla
frystihúsið eingöngu undir salt-
fiskverkun og verður þá hætt að
leigja ísafold.
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRATI I SlMAR: 17152- 17355