Morgunblaðið - 29.06.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
Nýr segulhallamælir stórbætir
viðvörunarklerf i vegna eldgosa
Verdur settur upp þar sem eldgosa og jardskjálfta er von
í öllum þeim eldsumbrotum og miklu jarðhræringum,
sem orðið hafa á íslandi undanfarna áratugi, hefur þekking
á þessu náttúrufyrirbrigði og öll tækni til að bregðast við
tekið gífurlegum framförum, enda komnir til starfa margir
hæfir og velmenntaðir menn á því sviði.
En til að geta brugðist við þessum vágesti, sem piagaði
og skelfdi þjóðina í aldir, verða spár og upplýsingar um
komandi eldgos að berast í tæka tíð, svo að ráðrúm gefist
til athafna áður en það skellur yfir.
Nú hefur Norræna eldfjallastöðin lagt nýjan og
mikilvægan þátt til viðvörunarkerfisins, segulhallamæli,
sem upp er fundinn og gerður af starfsmönnum
stofnunarinnar. Mælir hann nákvæmlega allar breytingar
á landinu sjálfu og sískráir, svo að vart verður breytinga,
sem eru undanfari gosa, um leið og þær verða.
Dr. GuAmundur Sigvaldason íyrir framan línuritið, sem sýnir hvernig land lyftist hægt við Kröflu og
sígur svo hratt á milli.
Þessi nýja mælitækni á án efa
eftir að skipta sköpum í þessu efni,
hvort sem er vegna þeirra eldgosa
og jarðskjálfta, sem nú eru
yfirvofandi á næstunni eða vegna
mannvirkjagerðar og ákvarðana-
töku um mannvirki í framtíðinni.
— Ef við hefðum haft slíka
mæla við Kröflu, gætu ákvarðanir
um hana t.d. hafa orðið á anoan
veg, sagði dr. Guðmundur Sig-
valdason, forstöðumaður Norrænu
eldfjallastöðvarinnar, íviðtali við
fréttamann Mbl., sem ræddi við
hann um þennan merka áfanga í
viðvörunarkerfinu.
Guðmunduc Sigvaldason, sem er
jarðefnafræðingur að mennt, hef-
ur lengi haft áhuga á og unnið að
því að þróa slík viðvörunarkerfi.
Ekki löngu eftir að hann kom til
starfa á Islandi, kom hann á
mælingum á kemiskum efnum í
ám, er koma undan Mýrdalsjökli,
sem aðvörunartæki vegna Kötlu-
gosa, þar sem efnabreyting verður
skömmu fyrir gos. Því var Guð-
mundur spurður í upphafi viðtals-
ins, hvað hefði orðið úr þeim
mælingum. Hann sagði, að Sigurð-
ur Steinþórsson, jarðfræðingur,
hefði haldið þeim áfram og fengi
alltaf sýni úr ánum með nokkru
millibili. En þetta reyndist of
umfangsmikið nema sem einn
þáttur í stærra viðvörunarkerfi.
Sérstaklega ef dregst að fá sýnin,
enda geta liðið nokkrir dagar frá
því sýnin eru tekin og þar til búið
er að efnagreina þau og fá
niðurstöður.
— Ef viðvörunarkerfi á að
koma að gagni, verður þaö að vera
sjálfvirkt, sagði Guðmundur. Upp-
lýsingarnar verða líka að koma
það fljótt, að ráðrúm gefist til að
gera eitthvað. Því eru jarðskjálfta-
mælingar svo mikilvægar, þar sem
samstundis er vitað ef tíðni
jarðskjálfta eykst. En af því
jarðskjálftamælingar gefa aðeins
eina tegund upplýsinga, þarf að
hafa aðrar aðferðir samhliða.nfzm
treysta upplýsingarnar og túlkun
þeirra.
— Þá hafa verið notaðar mæl-
ingar á breytingum þeim, sem
verða á landi, bæði lengdarbreyt-
ingum og hallabreytingum, hélt
Guðmundur áfram skýringum sín-
um. Suð aðferð hefur einna helzt
verið notuð með árangri á Hawaii
en annars staðar hefur hún gefizt
æði misjafnlega.
— Við tókum þá stefnu hér í
Norrænu eldfjallastöðinni að taka
fyrir slíkar mælingar á hreyfingu
jarðskorpunnar og fengum að ráða
i eina stöðu jarðeðlisfræðings til
þess verkefnis. Sá maður er
Eysteinn Tryggvason.
— Og þar kemur nýja mæli-
táeknin inn í myndina?
— Já, spurningin var hvernig
ætti að standa að þessum mæling-
um, svaraði Guðmundur. Fyrsta
skrefið eru fjarlægðarmælingar,
sem eiga að segja til um það hvort
lengdarbreytingar verða milli
fastamerkja, sem komið er fyrir
þar sem búast má við umbrotum.
Eru fastamerki þá sett niður
beggja megin við sprungukerfi og
mælt aftur og aftur, til að athuga
hvort einhver þensla eða þjöppun
á sér stað. Með þessum mælingum,
sem framkvæmdar eru með leiser-
geisla, fást upplýsingar um allar
láréttar hreyfingar í jarðskorp-
unni.
— En til þess að fá upplýsingar
um lóðréttar breytingar er hægt
að framkvæma hallamælingar,
sem má gera með hallamæli eða
stöng, eins og tíðkast hefur.
Gallinn er sá, að þær eru tíma-
frekar, kostnaðarsamar og í mörg-
um tilvikum ekki nægilega ná-
kvæmar.
• Smíðað nýtt
mælitæki
— En hvað er þá tekið til
bragðs?
— Ókosturinn við báðar þessar
mælingaaðferðir er sá, að þær
verða ekki gerðar nema með
margra mánaða millibili og því
ekki gagn að þeim til samtímavið-
varana, þó með þeim fáist upplýs-
ingar um ástand svæðisins í heild.
Því er nauðsynlegt að hafa ein-
hverja mælingaaðferð, sem gefur
stöðugt vitneskju um hallbreyting-
ar á jarðskorpunni, sagði Guð-
mundur.
— Verða slíkar breytingar jafn-
an miklar á jarðskorpunni fyrir
eldgos?
— Þær geta orðið nokkuð mikl-
ar. Á markaðinum eru til tæki,
sem geta skráð slíkar hreyfingar
með verulegri nákvæmni. Eitt
slíkt tæki er venjulegt samgangs-
ker, þar sem lesið er af tveimur
vatnskerjum, sem tengd eru með
slöngu. Þannig tæki hefur verið
sett upp í stöðvarhúsinu við
Kröflu. En þar er aðstaðan slík, að
vatnið frýs ekki í slöngunum að
vetri til. Slíkum tækjum er erfitt
að beita nema við hagstæðar
aðstæður á borð við þessar.
— En þið funduð ráð við því,
ekki satt?
— í sambandi við geimferðirnar
voru smíðuð tæki til að stilla
raketturnar í flugtaki. Þau hafa
verið notuð til að mæla breytingar
á jarðskorpunni með nokkrum
árangri á Hawaii, eins og áður er
sagt. Okkur þótti þetta tæki
nokkuð dýrt í innkaupi, enda
reynslan af því misjöfn.
Þessvegna tóku starfsmenn
Norrænu eldfjallastöðvarinnar til
við að velta því fyrir sér, hvort
þeir gætu ekki smíðað sér sjálfir
tæki til þessara nota. Og eftir
miklar vangaveltur og umræður
kom fram hugmyndin að þessu
nýja mælingatæki, sem síðan var
hannað og smíðað, að því er
Guðmundur sagði. Að því unnu
rafeindafræðingurinn Sigurjón
Sindrason og rennismiðurinn
Halldór Ólafsson, sem báðir eru
starfsmenn eldfjallastöðvarinnar,
og Ævar Jóhannesson, tæknimað-
ur á Raunvísindastofnun, sem átti
stóran þátt í að benda á hvaða
skynjara mætti nota í þessu skyni.
• Mælitækni við
Kröflu og í Eyjum
— Er þessi mælir líkur þeim
mælum, sem notaðir hafa verið
erlendis?
— Nei, hann er allt öðru vísi
upp byggður, svaraði Guðmundur.
Þetta er síriti. Svörun frá tækinu
kemur fram sem rafspenna, og
hægt að skrá upplýsingarnar
stöðugt. Við getum því í framtíð-
inni s'ett tækið upp hvar sem er og
látið það senda upplýsingarnar inn
á tölvu. Enn sem komið er skráir
tækið upplýsingarnar á pappírs-
ræmu, sem lesið er af daglega.
— Er búið að setja upp einhver
tæki af þessu tagi?
— Já, við erum með eitt tæki
við stöðvarhúsið í Kröflu. Annar
segulhallamælir er við hótelið í
Reynihlíð við Mývatn. Og tvo
höfum við sett upp í Vestmanna-
eyjum. Núna erumm við með 4
mæla í smíðum.
— Tekur langan tíma að smíða
hvert tæki? Eru þau dýr í
framleiðslu?
— Reikna má með að það taki
rafeindatæknifræðing og renni-
smið hálfan mánuð að smíða hvert
tæki. Við vildum gjarnan geta sett
upp 1—2 mæla til viðbótar við
Kröflu og 2 á Kötlusvæðinu. En
fjárhagurinn takmarkar fram-
kvæmdir.
• Hröð hallabreyting
fyrir eldgos
— Má reikna með því að breyt-
ingar verði á jarðskorpunni fyrir
eldgos?
— Ekki er hægt að fullyrða það
almennt, svaraði Guðmundur,
öðru vísi en vitna til dæma. Eina
dæmið, sem við í rauninni höfum
hér á landi, er í Kröflu. Þar hefur
komið í ljós að hröð hallabreyting
hefst nokkrum klukkustundum
fyrir eldgos.
Og Guðmundur rekur það sem
gerðist 8. sept. 1977 þegar segul-
hallamælirinn við Kröflu tók að
sýna hratt sig til norðurs, um leið
og stöðugur titringur kom fram á
öllum jarðskjálftamælum. En þá
streymdi bergkvika neðanjarðar
úr kvikuhólfi undir Kröflu í átt til
Gjástykkis. Rétt fyrir kl. 16
byrjaði segulhallamælirinn að
sýna sig, um kl. 17.30 stíflaðist
kvikustraumurinn og um kl. 17.50
ruddist kvikan upp á yfirborðið.
Varaði mælirinn við gosi tveimur
tímum áður en umbrot urðu. 6.
janúar 1978 liðu 18 tímar frá því
að hallamælirinn byrjaði að sýna
breytingu þar til umbrotin hófust
fyrir alvöru.
— Ekki er hægt að segja að
þetta sé algilt, segir Guðmundur,
því hvert svæði hefur sín sérkenni
og hegðun. En reglan er sú, að land
rís þar sem kvika streymir inn í
jarðskorpuna. Hallamælingar eiga
því að geta, séu mælarnir vel
staðsettir, bent á þann stað sem
risið er mest. Snöggar breytingar,
sem verða á útskrift mælisins,
gefa því ástæðu til grunsemda um
að eitthvað sé á seyði. Samkvæmt
reynslu í öðrum löndum, svo og
mælingum, sem Eysteinn
Tryggvason hefur gert með aðferð-
unum sem við minntumst á fyrr,
hefur sannast að breytingar verða
á landi við Öskju, Kötlu og víðar.
Hér er gott dæmi um örar breytingar á mælingum segulhallamælisins
við Kröflu. Mælirinn varar við gosi tveimur timum áður en umbrotin
hefjast. Rétt fyrir kl. 16 hinn 8. sept. fór að sjást hratt sig til norðurs
á hallamadinum. en þá streymdi bergkvika neðanjarðar úr hólfi undir
Kröflu. Um kl. 17.30 stíflaðist kvikustraumurinn og um kl. 17.50
ruddist kvikan upp á yfirborðið. Kl. 18.30 brast fyrirstaðan og kvikan
streymdi til suðurs í átt að Bjarnarflagi og hafði þar með fundið nægt
rými, svo ekki varð af eldgosi í það sinn.