Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 Fráhvarf frá námi sínum að loknum prófum Ljósm. Ól.K.M. 50—60% á fyrsta ári STUDENTUM. sem luku námi við Háskóla Islands í vor, voru s.l. laugardag aíhent prófskírteini sín. en alls var það 241 kandidat sem iauk námi. Flestir luku embættisprófi í læknisfræði eða 47, 39 luku prófi í viðskipta- fræðum, 39 prófi í heimspekideild og 17 lögfræðiprófi. Próf. Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor flutti ræðu við athöfnina og kom fram í máli hans að fráhvarf nemenda við Háskól-( ann væri mikið, einkum á fyrsta ári og við lok prófa þess árs. „Síðustu 4—5 árin hafa aðeins 40—50% nemenda 1. árs skilað sér til náms á öðru ári. 50—60% hafa annað hvort ekki staðizt próf eða hætt námi af öðrum sökum. I flestum deildum er hins vegar ekki um að ræða neitt verulegt fráhvarf frá námi eftir fyrsta árið“. Rektor sagði það verðugt rannsóknarefni að afla vitneskju um hvað yrði af þessu fólki, hversu stór sá hópur væri sem hyrfi frá. vegna þess að hann væri vonsvik- inn og hversu margir hefðu ekki hugsað sér annað en að fá nasasjón af námi. Þá kom fram í máli Guðlaugs Þorvaldssonar að á síðustu fjórum áruru hafi tala nýrra nemenda á ári verið milli 1100—1150 og hafi því nemendafjöldinn í heild ekki vaxið vegna vaxandi aðsóknar! nýrra nemenda. A því ári sem nú væri að ljúka væri fjöldinn jafnvel nokkru minni en árið á undan eða um 2760, en t.d. árið 1974 hafi heildarfjöldinn verið rúmlega 2400. Tvöhundruð kennarar starfa nú við skólann í fullu starfi og stundakennarar jafngilda 125 árs- mönnum. Sagði rektor þennan fjölda vera viðunandi og væri nánast sambærilegur við það sem gerðist í háskólum nágrannalanda, þ.e. 1 kennari á hverja 9 nemendur. „Því er þó ekki að leyna, að á sumum sviðum er hlutfallið allmiklu óhæfilegra og sérstök ástæða er til að vekja athygli á óhæfilega stórum hlut lausráðinna stundakennara í nokkrum deildum“, sagði rektor. Nemendafjöldi skiptist þannig eftir deildum: í guðfræðideild 51, þar af 8 konur, í læknadeild 466 þar af 196 konur. í þessari tölu (466) eru 307 í læknisfræði, 40 í lyfjafræði lyfsala, 76 í hjúkrunar- fræði og 43 í sjúkraþjálfun, 213 eru í lagadeild, þar af 67 konur, 387 í viðskiptadeild, 79 konur, í heimspekideild 714, þar af 374 konur, í verkfræði- og raunvís- indadeild 61 í, þar af 150 konur, í félagsvísindadeild 269, þar af 156 konur og í tannlæknadeild 49, þar af 12 konur. I heildina er hlutfall kvenna í námi nú 37,5% og sagði rektor að hlutfallið ykist jafnt og þétt. Þá rakti próf. Guðlaugur Þor- valdsson nokkur atriði varðandi húsnæðismál skólans, Happdrætti Háskólans o.fl. Að lokum vék hann að nokkrum málefnum sem hann sagði að háskólinn hlyti að takast á við auk byggingar- og skipulags- mála og sagði m.a. að háskólinn hefði lagt meiri áherzlu á kennslu- hlið starfsins en flestir aðrir háskólar sem hann hefði kynnzt, en minni áherzlu á rannsóknahlið- ina. Sagði hann ástæðu þess m.a. vera þá að erfitt hafi verið að afla fjár til að byggja upp fjölþætta rannsóknaaðstöðu og sagði það einnig skoðun sína að afstaða fólks til rannsókna hér væri neikvæðari en í nágrannalöndum, margir litu það sem peningasóun og einskis vert dútl. „Ég óttast að við eigum eftir að súpa seyðið af þessu er fram líða stundir. Ef til vill hefur aðskilnaður rannsóknastofnana atvinnuveganna frá háskóla- rannsóknum spillt fyrir æskilegri þróun á þessu sviði.“ Einnig sagði háskólarektor það skoðun sína að Háskólinn ætti að selja ýmis konar þjónustu stofnana sinna í ríkara mæli en nú væri gert og nota hagnaðinn til frekari uppbyggingar, jafnframt því sem það myndi skapa stúdentum skil- yrði til fjölþættari verk- menntunar. Við athöfnina söng Háskólakór- inn nokkur lög undir stjórn frú Rutar Magnússon og fór síðan fram afhending prófskírteina, sem kandídatar tóku við úr hendi deildarforseta. Hér fer á eftir skrá yfir þá sem luku prófum: Próf við Háskóla íslands vorið 1978 I lok vormisseris luku eftirtaldir stúdentar, 241 að tölu prófum við Háskóla Islands: Embættispróf í guðfræði (5) Gunnar Jóhannes Gunnarsson Gunnlaugur Andreas Jónsson Magnús Björn Björnsson Miyako Kashima Þórðarson Þórhildur Ólafs B.A-próf í kristnum fræðum (1) Sigurður Pálsson Embættispróf í læknisfræði (47) Andrés Magnússon Arnbjörn H. Arnbjörnsson Arni Jón Geirsson Arni Jónsson Arthur Löve Björn Tryggvason Einar Ólafsson Einar Stefánsson Einar Kr. Þórhallsson Geir Gunnlaugsson Guðjón Elvar Theodórsson Guðmundur Ásgeirsson Guðmundur Björnsson Guðrún J. Guðmundsdóttir Gunnar Herbertsson Hallgrímur Guðjónsson Haraldur Dungal Haraldur Hauksson Helgi Jónsson Hjörtur Sigurðsson Ingibjörg Georgsdóttir Ingrid Norheim Ingiríður A. Skírnisdóttir Ingvar Teitsson Jóhannes J. Kjartansson Jón Hrafnkelsson Jón V. Högnason Jón Karlsson Cathy M. Helgason Oddur Fjalldal Ólafur Magnússon Óskar Arnbjarnarson Páll Ágústsson Pétur Haukur Hauksson Sigurbjörn Sveinsson Sigurður Halldórsson Snorri Ólafsson Stanton B. Perry Sæmundur G. Haraldsson Tómas Jónsson Úlfur Agnarsson Valgerður Sigurðardóttir Vilhjálmur K. Andrésson Þórður Óskarsson Þórir S. Ragnarsson Þorvaldur Jónsson Þröstur Finnbogason Kandídatspróf f viðskiptafræðum (39) Árni Árnason Ársæll Guðmundsson Ásgeir Valdimarsson Einar Jónatansson Einar Sveinbjörnsson Einar Þór Vilhjálmsson Eiríkur Tómasson Friðbert Pálsson Guðmundur Bárðarson Guðmundur Reykjalín Guðni Jónsson Guðrún Guðmannsdóttir Gunnar Maack Gunnhildur Lýðsdóttir Halldór Árnason Haraldur Helgason Haraldur Reynir Jónsson Helena Alma Ragnarsdóttir Héðinn Eyjólfsson Hilmar Guðmundsson Hrólfur Hjaltason Hörður Sverrisson Jón Guðni Bergsson Jón Kristinn Jónsson Karl Þór Sigurðsson Kristján G. Jóhannsson Leifur Eysteinsson Lovísa Marínósdóttir Margrét Guðmundsdóttir Ólöf Pálsdóttir Reynir Vignir Sigurður Arnþórsson Sigurður H. Ingimarsson Símon Ásgeir Gunnarsson Skúli Axel Sigurðsson Stefán B. Stefánsson Sverrir Sigurjónsson Sævar Reynisson Tór Einarsson Kandídatspróf í íslenzku (1) Atli Rafn Kristinsson Próf í íslenzku fyrir erlenda stúdenta (1) William W. Rasch B.A.-próf í heimspekideild (39) Aðalbjörg Björnsdóttir Anna Jensdóttir Arnþór Helgason Eiríkur Þorláksson Elín S. Konráðsdóttir Elísabet Valtýsdóttir Erla Elín Hansdóttir Eva Hallvarðsdóttir Guðný Sigurgísladóttir Gunnar Skarphéðinsson Guðrún Jóhannesdóttir Guðrún R. Jónsdóttir Halldór Halldórsson Hanna S. Þorleifsdóttir Helga Guðmundsdóttir Helga Þórarinsdóttir Helgi S. Sigurðsson Hermann Páll Jónasson Hjalti Jón Sveinsson Jóhanna H. Sveinsdóttir Jónas Hvannberg Júlía G. Ingvarsdóttir Júlíana Þ. Lárusdóttir Linda Rós Michaelsdóttir Lovísa Kristjánsdóttir Lovísa Sigurðardóttir Guðrún Dóra Guðmannsdóttir tekur við prófskirteini sínu en hún Iauk B.S. prófi í hjúkrunarfræðum ásamt 7 öðrum. Aðstoðarlyfjafræðingspróf (7) Ásgeir Ásgeirsson Elsa Harðardóttir Kristín Ingólfsdóttir Sigríður K. Ragnarsdóttir Sigurður Traustason Sveinn Sigurðsson Sveinn Sigurjónsson B.S. próf í hjúkrunarfræði (8) Guðrún Dóra Guðmannsdóttir Ingibjörg Einarsdóttir Kolbrún Jensdóttir Margrét Bruvik Sigríður Halldórsdóttir Sigrún Kristjánsdóttir Sigurveig Erna Ingólfsdóttir Svava Þóra Þórðardóttir Kandídatspróf f tannlækningum (6) Björn Baarregaard Jón Ásgeir Eyjólfsson Ólöf Regína Torfadóttir Ragna Birna Baldvinsdóttir Trausti Sigurðsson Þorsteinn Sch. Thorsteinsson Embættispróf í lögfræði (17) Árni Pálsson Ásgeir Magnússon Berglind Ásgeirsdóttir Bragi Kristjánsson Drífa Pálsdóttir Guðmundur Björnsson Helga Jónsdóttir Ingvar Sveinbjörnsson Jón Sigurgeirsson Kjartan Gunnarsson Kristján Guðjónsson Lárus Ögmundsson Ólafur Helgi Kjartansson Pétur Guðmundsson Sigurður Eiríksson Þorgeir Örlygsson Örn Sigurðsson Hér má sjá nokkurn hluta þeirra er tóku við prófskirteinum 241 luku prófum frá Háskóla íslands í vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.