Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 Eyjólfur ísfeld Eyjófsson: Gengislækkun er óhjákvæmileg Að afloknum kosningum er ekki úr vegi að líta á þann vanda sem blasir við nýjum þingmönnum og væntanlega nýrri ríkisstjórn. Hér verður þó eingöngu fjallað um stöðu útflutningsgreina, en slæm staða þeirra hefur bæði bein og óbein áhrif á marga aðra þætti efnahagsmála. Um s.l. áramót er innistæða frystideildar Verðjöfnunarsjóðs 1050 milljónir. Áætla má að greiðslur úr sjóðnum fyrir vertíð- ina, eða tímabilið 1. janúar til 31. maí, nemi um 450 milljónum, þannig . að við upphaf yfirstand- andi verðtímabils frá 1. júní, sé 'inneign aðeins 600 milljónir. Fiskverð er nú ákveðið til septem- berloka, en viðmiðunarverð í Verðjöfnunarsjóði gildir ekki nema til júlíloka, eða á meðan sjóðurinn getur staðið við skuld- bindingar sínar. Frá 1. júní verða mjög snögg umskipti til hins verra fyrir sjóðinn vegna iauna- og fiskverðshækkana. Þá er viðmið- unarverð sjóðsins fyrir frystan fisk ákveðið 15% hærra en mark- aðsverð á núgildandi gengi krón- unnar gagnvart dollar, en viðmið- unarverð er sem næst því verði sem útflutningsframleiðslan þyrfti að fá á hverjum tíma. Vegna þess að sjóðurinn greiðir 75% af mismun viðmiðunarverðs og markaðsverðs, þá jafngildir þetta að sjóðurinn hefur skuldbundið sig til að greiða 11,25% á núgildandi útflutningsverð. Þrátt fyrir þessa greiðslu er afkoma frystihúsanna mjög léleg þar sem tap á heilu ári Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson. er 1800 til 2000 milljónir, eð'a um 3,5% af veltu. Augljóst er að slíkt tap er ekki hægt að búa við nema í skamman tíma og verður að bæta. rekstrarstöðu þeirra sem fyrst ef afstýra á stöðvun fleiri frystihúsa á næstunni. Það sem af er árinu hefur orðið mikil magnaukning í frystingu, eða um 20%, sem m.a. stafar af slæmri markaðsstöðu skreiðar og saltfisks. Miðað við núverandi aðstæður þýðir þetta rúmlega 700 milljóna útgreiðslu frystideildar Verðjöfnunarsjóðs á heilu ári. Ef gert er ráð fyrir að þessi fram- leiðsluaukning haldist á yfirstand- andi verðtímabili, þá þarf sjóður- inn að greiða 550 milljónir á mánuði. Þar sem innistæða í sjóðnum er nú aðeins 600 milljónir, þá er ljóst að hann getur ekki staðið við skuldbindingar sínar nema til loka þessa mánaðar. Verði ekki gerðar ráðstafanir nú þegar sem tryggja greiðslugetu Verðjöfnunarsjóðs, munu frystihúsin verða að loka, nema ef til vill þau fyrirtæki sem rekin eru af sveitar- eða bæjarfé- lögum. Ef einhverjum finnst að þessar tölur séu ekki nægilega háar til að skapa verulegan vanda, þá má benda á að staða saltfiskverkunar er jafnvel enn lakari, nema að því leyti að nokkur innistæða er ennþá í saltfiskdeild Verðjöfnunarsjóðs, sem þó mun þurrkast út á árinu að óbreyttum aðstæðum. Þá er ljóst að staða vinnslu- og veiða á bræðslufiski má ekki tæpari vera og nú er mun verra útlit með vinnslu og sölu síldar en var á s.l. ári. Framleiðendur útflutningsvöru úr innlendum hráefnum, eins og t.d. ullar- og skinnavöru, hafa einnig kvartað undan mjög slæmri afkomu. Verðbólgan hefur því grafið undan samkeppnisstöðu flestra greina útflutnings óg verður því ekki hægt að draga það mikið lengur að leiðrétta það misræmi sem nú ríkir í tekjuskiptingu, ef þetta ástand á ekki að leiða til samdráttar í atvinnurekstri og gjaldeyristekjum. Að lokum má minna á að ný holskefla kostnaðarhækkana er yfirvofandi með áfanga- og vísi- töluhækkun launa sem kemur til framkvæmda .í síðasta lagi 1. september n.k. og síðan ný fisk- verðsákvörðun í lok þess mánaðar. Allur dráttur á viðbrögðum eykur aðeins þann vanda sem við er að glíma. „Fjöllin eru vitlausu megin” í samræmi við endurlífgun- arstefnu Morgunblaðsins hvað varðar efni blaðsins, nú eftir langt tímahil kosningabaráttu. töltum við RAX út í „ferskt og heilnæmt sjávarloftið“ í höfuð- horginni í gærdag, í leit að lífrænu blaðaefni. Okkur varð brátt ljóst á ferð okkar, að víða um bæinn mátti sjá hina góðkunnu blöndu af sólbrennd- um andlitum, lopapeysum. húf- um og rcgnkápum sem við köllum erlenda ferðamenn. Þeir litu í búðaglugga, mund- uðu myndavélar, brostu upp í vindinn og mæltust við á alls kyns framandi tungum. Við endurlífgunarmenn héld- um inn að tjaldstæði í Laugar- dal til að kanna hvort hinn margumtalaði árvissi ^ferða- mannastraumur hefði nú skollið á landinu með tilheyrandi iðu- köstum. Ekki virtist nú ferðamanna- straumurinn sérlega stríður í Laugardalnum og tjöld þar ekki mörg. Fyrir utan eitt þeirra sat ungur knálegur maður berfætt- ur og hugaði að skótaui sínu og ganglimum. Við tókum þennan mann tali. „Ég heiti Rudy Muller," sagði hann og bætti svo við brosandi, „það er algengasta nafn heima í Þýskalandi. Ég kom hingað til lands fyrir fjórum dögum með Smyrli frá Noregi og fékk bílfar til Reykjavíkur með Þjóðverja sem ég hitti á skipinu. Annars vil ég helst ganga. Sérstaklega þegar landslagið er eins fallegt og það er hér. Þá sér maður Svo margt sem að öðrum kosti færi framhjá manni. Ég ætla að dvelja hér á landi næstu þrjá mánuði og ganga til allra helstu ferðamannastað- anna. Ég mun byrja á að ganga til Þingvalla, en síðan ætla ég áfram til Gullfoss og Geysis og þaðan inn á hálendið og til Öskju og Mývatns. Ég vil komast inn á þessi óbyggðu hraun til að stunda hugleiðslu. Það hlýtur að vera gott. Ég hef reynt það í eyði- mörkunum í Árabalöndunum, en þar er allt of heitt fyrir mig.“ — Hvernig datt þér í hug að koma hingað til lands? „Ja, það er nú þannig að ég er vörubílstjóri og hef það að atvinnu að aka vörubílum frá Þýskalandi til kaupenda í Arabalöndunum og Miðjarðar- hafslöndunum, svo að þegar ég á frí vil ég halda mig fjarri hita og sól í líkingu við það sem gerist þarna suðurfrá. Undan- farin sumur hef ég dvalið á hinum Norðurlöndunum og auk þess var þetta eina landið í Evrópu sem ég hafði ekki heimsótt, fyrir utan löndin handan járntjalds. En þar get ég ekki hugsað mér að ferðast, því ég vil geta þvælst um óhindrað þar sem ég fer. Ég kann líka vel við fólkið hérna norðurfrá. Það er ekki eins auðvelt að ná sambandi við það, en sambandið verður mun tryggara, ef af því verður. Fólkið er líka heiðarlegra. Svo finnst mér líka landslagið feg- urra hér en í sólarhitanum suðurfrá. Litirnir eru svo falleg- ir hér.“ — Hvað er það sem þér þykir mest gaman við svona ferðalög? „Að sjá ný lönd og hitta nýtt fólk. Það er sérstaklega gaman að kynnast sumarnóttinni hér og varðandi veðrið, þá tek ég svolitla rigningu fram yfir sólarbruna og hita. Ég er strax búinn að ákveða að koma hingað aftur næsta surnar." — Ertu ekkert banginn við jökulárnar og öræfin sem þú hyggst fara yfir einn þíns liðs.? „Nei, ég er vel útbúinn með nesti og fatnað og þar að auki er ég í góðri æfingu eftir að hafa verið í Noregi og í Alpafjöllum. Mér þykir verst að hafa ekki meðferðis búnað til að ganga á jöklana. Ég verð að geyma það þar til á næsta ári.“ í Laugardalnum hittum við einnig norska fjölskyldu frá Stafangri, sem var að búa sig undir að tjalda og hafði komið með bíl sinn með sér til Seyðisfjarðar, ekið norður um og hingað suður. Þau hjónin, Ove og Berit Olsen, kváðust hafa ekið unj mest alla Evrópu og sagði Berit að ísland hefði alla tíð heillað sig. Bæði landið og ekki síst tungumálið. „Náttúran hér er stórkostleg og loftið svo ótrúlega tært. Við söknum ekki skóganna, því í Stafanger er lítið um skóga og reyndar er svo margt líkt með Stafangri og Reykjavík að þegar við komum hingað var eins og við værum komin heim, nema hvað fjöllin eru vitlausu megin. Við verðum hér í viku og ætlum að skoða Þingvelli og Gullfoss og Geysi og sem flest annað áður en við förum frá Seyðisfirði áttunda júlí. Það er bara verst að við getum ekki ekið að öllum ferðamannastöð- unum, vegna þess hve vegirnir eru slæmir." Við ræddum síðan mikið um skyldleika norsku og íslensku og þáu Ove og Berit spurðu okkur um framburð og merkingu ýmissa íslenskra orða sem þau höfðu lesið á skiltum á leið sinni frá Seyðisfirði, en síðan kvödd- um við Morgunblaðsmenn og tókum stefnu á húsið númer sex við Aðalstrætið og veltum því fyrir okkur hvernig Reykjavík liti út ef Esjan væri í suðrinu eins og í Stafangri. Ove og Berit Olsen frá Stafangri. ásamt sonunum Stein og Björn Ove. (Ljósm. RAX).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.