Morgunblaðið - 29.06.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
23
Hermann Sigurjónsson
Jón ólafsson
Aukið fylgi sjálfstæðis-
manna í Búnaðarþings-
kosningum á Suðurlandi
KOSNINGAR til Búnaðarþings á
Suðurlandi fóru fram samhliða
alþingiskosningunum á sunnudag
og voru tveir listar í kjöri.
Sjálfstæðismenn buðu fram lista
undir bókstafnum D en framsókn-
armenn B-listann. Alls kusu í
þessum kosningum 1370 og urðu
úrslit kosninganna þau að B-list-
inn fékk 799 atkvæði en fékk við
síðustu kosningar fyrir fjórum
árum 786 atkvæði. Listi sjálfstæð-
ismanna fékk nú 525 atkvæði en
fékk við síðustu kosningar 479
atkvæði. Auðir seðlar voru 39 og
ógildir 7.
Þeir, sem kjörnir voru til setu
á Búnaðarþingi, voru af B-lista:
Hjalti Gestsson, Selfossi, Jón
Kristjánsson, Lambey, og Jón
Júlíusson, Norðurhjáleigu. Af D-
lista voru kjörnir Hermann Sigur-
jónsson í Raftholti og Jón Ólafs-
son, Eystra-Geldingaholti.
Elisabet B. Reytsme. íorseti Alþjóðasamtmnds tnner-Wheei, t.v. ásamt
Eddu Guðmundsdóttur forseta Inner-Wheel á Islandi.
Forseti alþjóðasambands
Inner-Wheel á Islandi
„INNER-WHEEL“ heitir félags-
skapur tengdur Rotary-hreyfing-
unni, en í honum eru eiginkonur
Rotarymanna, og þessa dagana er
stödd hér á landi Elisabet B.
Reytsme frá Hollandi, forseti
International Inner-Wheel.
Inner-Wheel var fyrst stofnað
fyrir rúmri hálfri öld í Manchester
í Englandi, en nú eru Inner-Wheel
klúbbar í 48 löndum víðs vegar um
heim og um 80 innan alþjóðasam-
bandsins. Starf klúbbanna er
nokkuð mismunandi eftir þjóð-
löndum og má nefna, að í þróunar-
löndunum stuðla þeir einkum að
bættri heilzugæzlu og menntun.
Elisabet Reytsme hefur þegar
heimsótt Inner-Wheel klúbbana í
Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík
og Akureyri. Þá sat hún umdæm-
isþing Rotary á Þingvöllum um
síðustu helgi.
— Krón-
prinsar...
Framhald af bls. 18
öllu og vinir hans eru sagðir
hafa áhyggur af þessum áform-
um og sömuleiðis því áformi
Mauroys að auka völd stærstu
landshlutasamtaka flokksins
sem mundi enn auka áhrif
Mauroys.
Þó er lítill munur á afstöðu
Mauroys og Mitterands í helztu
málum. Mauroy fylgir rétttrún-
aðarskoðunum og kýs fremur
sænskan sósíalisma en nýjar
hugmyndir í franska flokknum.
Vinir hans neita því að hann rói
að þvi öllum árum að ná
völdunum í flokknum og honum
virðist lítið liggja á. Hann
virðist aðhyllast þá skoðun
margra franskra stjórnmála-
manna að það eina sem geti
komið í veg fyrir kosningu
Giscard dOEstaings forseta
1981 sé einhver ófyrirsjáanleg
efnahagskreppa svo að hann vill
ógjarnan hætta á persónulegan
kosningaósigur með því að taka
of snemma við af Mitterand.
Aðalmunurinn á Rocard og
Mauroy er það aðdráttarafl sem
þeir hafa ístjórnmálum. Vin-
sældir Rocards aukast óðum í
skoðanakönnunum en völd hans
í flokknum eru lítil og líklega
styðja hann innan við 20%
fíokksmanna. Mauroy hefur
líklega flokksvélina á bak við sig
en kjósendur láta hann sig engu
skipta.
— Býðst til að
verja stjórn
flokkanna
Framhald af bls. 18
þingflokkurinn reiðubúinn að taka
til athugunar að veita stjórn
Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
hlutleysi og verja hana
vantrausti."
Morgunblaðið spurði Ólaf
Jóhannesson, hvort þessi ályktun
þýddi það, að Framsóknarflokkur-
inn ætlaði sér að vera í stjórnar-
andstöðu þetta kjörtímabil. Ólafur
kvaðst ekkert vilja um það segja
frekar en ályktunin gæfi til kynna.
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, kvað lítið frétt-
næmt hægt að segja af þingflokks-
fundi Alþýðuflokksins, sem
haldinn var í gær. Þingmennirnir
komu þar saman í fyrsta skipti og
ræddu þar um hlutina vítt og
breitt. Hann kvað enga ákvörðun
hafa verið tekna á fundinum um
það að hverju flokkurinn myndi
stefna í sambandi við myndun
ríkisstjórnar. „Ákvörðunarvald
um þátttöku í ríkisstjórn er allt
hjá flokksstjórn hjá okkur,“ sagði
Benedikt, en bætti því við, að í dag
yrði flokksstjórn Alþýðuflokksins
boðuð saman til fundar á mánu-
daginn kemur. Því voru engar
pólitískar ákvarðanir teknar, en
Benedikt kvað hópinn þurfa að
kynnast innbyrðis og ræða ýmis
eldhússtörf, skipulagsleg störf og
vinnubrögð.
Þá spurði Morgunblaðið, hvort
herbergi þingflokksins hefði
reynzt nógu stórt. Benedikt sagði:
„Það voru nú forföll, þar sem einn
þingmannanna er erlendis. Svo eru
að auki alltaf einn til tveir menn,
sem eiga sæti í þingflokkunum,
ritstjórar og aðrir, þannig að
þetta bjargaðist í þetta sinn, en
herbergið er sýnilega of lítið og
Alþingi er í hinum mestu vand-
ræðum, því að menn vilja gjarnan
hafa flokksherbergin inni í gamla
húsinu til þess að vera nærri
fundarsölunum og geta skotist á
fundi, þegar mikið er að gerast. Þá
eru þetta söguleg og hefðbundin
herbergi en skrifstofustjórinn
mun líta á þetta vandamál og
finna lausn á því.“
— Líklegt að
stór hluti
þorskins...
Framhald af bls. 48
A-Grænlandi og alist þar upp,“
sagði Sigfús.
Þá sagði hann að framangreint
kæmi heim og saman við rann-
sóknir danskra vísindamanna, sem
fundu ársgömul þorskseiði í tölu-
verðum mæli við S-Grænland árið
1974 og árið 1975 hefði fundist
töluvert af 2—3 ára þorski. „Þetta
allt getur því þýtt að þorskurinn
sé íslenzkur. Þá gerist það í vetur
að mikið af hlýjum sjó barst
vestur fyrir Grænland og virðist
þorskurinn hafa fylgt þessum sjó.
Á þessum slóðum fannst líka ýsa,
sem er mjög óvanalegt. Þá hefur
líka komið í ljós, að þorskurinn,
sem veiðst hefur mest af við
Grænland í vetur, hefur meiri
vaxtahraða en almennt er þar.
Því er ekki ólíklegt að þessi
þorskur sé upprunalega íslenzkur
og má því búast við að hann leiti
á ný til upprunalegra heimkynna
þegar hann verður kynþroska
1980—1981, þ.e.a.s. ef ekki
verðurbúið að drepa megnið af
honum," sagði Sigfús.
Þá sagði hann að þar sem
ástandið á Grænlandsmiðum væri
mjög bágborið, hefði borið meira
á þessum fiski en ella.
— Sovézk
Framhald af bls. 1
fyrst til bandaríska sendiráðsins í
Genf, og lætur blaðið að því liggja
að forráðamenn þar hafi ráðlagt
honum að snúa sér heldur til Breta
þar sem sambúð stjórnanna í
Kreml og Hvíta húsinu væru venju
fremur slæm um þessar mundir og
ekki á frekari vandræði bætandi.
Rezun er sagður kunningi Genn-
adi Sjevsjenkos, sonar Arkadí
Sjevsjenkos, fyrrum aðstoðar-
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, sem í apríl s.l’. bað um
hæli í Bandaríkjunum, en Gennadi
var til skamms tíma í sovézkri
afvopnunarsendinefnd í Genf, en
var sendur heim í fylgd með
KGB-mönnum þegar mál föður
hans var í brennidepli.
SLATTUVELAR
Það er leikur einn að
slá grasflötinn með INÍorlett
-íf
Nú fyrirliggjandi margar gerðir
á hagstæðum verðum.