Morgunblaðið - 29.06.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
37
lítill tími afgangs fyrir tóm-
stundaiðkun af einhverju tagi eða
lestur til þess að auðga anda sinn.
Þetta fólk er einfaldlega svo þreytt
að það veltur um steinsofandi ef
það sezt niður smástund.
Nei, það er ekki hægt að hrópa
húrra fyrir svona frelsi. Þetta er
sú staðreynd sem blasir við. Sú
kona sem vill vera heima og nota
sína krafta fyrir börn, mann og
heimili er alveg réttlaus. Hún
neyðist til þess að fara út að vinna
vegna brauðstritsins.
Ein örg.“
Svo mörg voru þau orð hinnar
örgu og spyrja má hversu almenn
þessi lýsing geti verið. Eru flestar
útivinnandi konur svo langt leidd-
ar að þær séu að niðurlotum
komnar, hvort sem það er vegna
þess að þær vinna úti auk þess að
sjá um heimilisstörfin eða vegna
þess að karlmennirnir á heimilinu
veita þeim ekki þá hjálp sem þær
eiga skilið? Vissulega væri fróð-
legt að heyra álit fleiri kvenna á
þessum málum og hvort þær teldu
það allar æskilegra að fá að vera
heima við, en vera ekki neyddar til
að vinna úti. En nóg um það og
snúum okkur að lítilli ósk aldraðr-
ar konu.
• Handrið
vantar
„Ég er 88 ára gömul og á orðið
erfitt um gang, vegna kölkunar í
liðamótum. Ég á heima nálægt
Grensáskirkju. Þar er gott að vera,
bæði á samkomunum á fimmtu-
dagskvöldum og einnig við sunnu-
dagsguðsþjónustur. Mér datt í hug
að leita aðstoðar hjá þeim sem
ráðin hafa við framkvæmdir til
úrbóta og lagfæringa í borginni.
Viljið þið nú gjöra svo vel að setja
handrið meðfram tröppunum neð-
an við kirkjuna, þá kæmist ég án
krókaleiða beina leið til kirkjunn-
ar. Stytzta Teiðin heiman frá mér
liggur einmitt um þessar tröppur,
sem væru alveg ágætar ef komin
væru handrið. Þetta er ekki
stórvirki, en er samt mikilsvert
fyrir fólk eins og mig. Kannski
yrðu fleiri fegnir.
Með kærum kveðjum.
Ein 88 ára.“
• Vinnusemi
hjá því
opinbera
„Þegar unnið er á vegum þess
opinbera við ýmiskonar störf úti
við er það mjög algeng sjón að sjá
fólkið, sem á að vera að vinnu,
liggja í sólbaði, eða hanga og
styðja sig við verkfærin.
Þvi vil ég geta þess að tveir
ungir piltar sem unnið hafa við að
slá græn svæði í Fossvogi, hafa
vakið sérstaka athygli vegfarenda
fyrir dugnað og vinnusemi. Þess
utan eru þeir kurteisir og liprir og
taka vel ábendingum, sem hafa
leitt til þess að blettir sem aldrei
fyrr hafa verið slegnir, og borginni
ber skylda til að sjá um, eru nú vel
hirtir og snyrtilegir.
Með þökk fyrir birtinguna.
Kona í Fossvogi.“
Þessir hringdu . . .
• Bjórinn
ekki viðbót?
Örn Ásmundssoni
— Ég vil leyfa mér að mót-
mæla þeim skrifum sem birtust
hjá Velvakanda í gær, miðvikudag,
þar sem kona nokkur ræðir um
bjórinn og telur hann ekki eiga
rétt á sér hér á landi og nefnir
Svíþjóð sem dæmi um hversu
slæmt ástand hafi verið. Ég vil
segja að auðvitað var ástandið
slæmt í Svíþjóð, en það batnaði
eftir að bjórinn kom til sögunnar.
Það er algjör misskilningur að
bjórinn verði hrein viðbót hér á
landi, það er jafnvel bruggað
annað eins núna og hann getur
engu spillt. Mér finnst það aðeins
bera vott um þröngsýni að geta
ekki unnt mönnum þess að fá
bjórinn og jafnvel ætti bara að
breyta kirkjum í ölstofur, — þá
kæmi einhver í þær.
• Tveir taxtar
Einnig vildi Örn koma því á
framfæri að taxtar iðnaðarmanna
ættu að vera tveir, einn fyrir
lærlinga og annar fyrir réttinda-
menn og fleiri taxta þyrfti ekki og
ættu að vera þeir sömu hjá öllum
stéttum.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Svartur leikur og vinnur
Staðan kom upp á alþjóðlegu
skákmóti í Belgrad í fyrra í
viðureign Júgóslavanna Jovicics
og Rajkovics, sem hafði svart og
átti leik. Hann lék: 61. ... gl=D+,
62. Hxgl — Rf3+!! og hvítur gafst
upp, því að eftir 63. Hxf3 — fl=D+!
er hann óverjandi mát. Hvítur
gæti reynt 63. Kh3, en þá veitir 63.
...g4+! honum lausn frá frekari
þjáningum.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Ég hélt aö Högni væri að drukkna."
Innanlandsflug með afslætti
Fljilgir þú í hópi áttu rétt á afslætti. Einnig í
hópi fjölskyldu þinnar. Láguraldur þinn. eða
hár, veitir þér sama rétt.
AthugaÓu afsláttarmöguleika þína
FLUGFÉLAG ÍSLAJVDS
INNANLANDSFLUG
Opið hús í kvöld
Kl. 20:30 Fyrirlestur: Vésteinn Ólason
„Moderne islandsk litteratur“
Kl. 22:00 Kvikmyndasýning „Sveitin milli sanda"
Aögangur ókeypis — kaffistofan opin
20:00—23:00 Sýning í bókasafni: Vigdís Kristj-
ánsdóttir „íslenskar jurtir og blóm“.
Sýning í kjallara: Sveinn Björnsson, málverk.
NORRíNA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
Glæsilegt
úrval
af
sumarjökkum.
þcrnhard laxtjal
KJÖRGARÐI