Morgunblaðið - 02.07.1978, Side 1

Morgunblaðið - 02.07.1978, Side 1
56 SIÐUR 139. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kafbát- urfann þyrlu- flakið Björgvin — 1. júlí — Reuter FLAK norsku þyrlunnar, sem nýlega fórst með 18 manns, er fundið á botni Norðursjávar, en þegar slysið varð var þyrlan á leið að Statfjord-olíu- vinnslustöðinni. Flakið liggur á 600 feta dýpi og búizt við því að tekið geti allt að tvo sólar- hringa að ná því upp. Bolur flaksins er enn í heilu lagi og þar er að finna fjögur þeirra fimm líka, sem sakn- að var, en hin fundust skömmu eftir slysið. Tveir Bandaríkjamenn, tveir Bretar og einn Frakki voru um borð þegar þyrlan fórst, en hinir voru allir Norðmenn. Enn er allt á huldu um orsakir slyssins, en þyrlan var af gerðinni Sikorsky S-16 og hrapaði hún um 50 mílur vestur af Björgvin. Það var „mini-kafbátur“ sem fann flakið í gærkvöldi. Fyrst er spýta. svo er spýta og þá er spýta í kross. Og áður en varir er risið þetta líka merki- iega hús þar sem burðarviðirnir eru eftir merkingunni að dæma komnir frá Austur-Þýzkalandi með viðkomu hjá J. Pálmason hf. inni í Dugguvogi. — Og þegar smíðinni jer lokið birtast broshýr andlit í sérhönnuðum glugga nágrannahússins að virða fyrir sér sköpunarverkið. Japan og 200 mílurnar: Átján sovézk skip sektuð á einu ári Tókýt') — 1. júlí — AP JAPANSKA landhelgis- gæzlan birti í dag skýrslu þar sem fram kemur að síðan 200 mílna efnahags- Bardagar í Beirút Beirút — 1 júlí — AP MIKLIR bardagar urðu í hverfum kristinna manna í Beirút í dag og af óljósum fregnum má ráða, að þar hafi sýrlenzka gæzluliðið átt upptökin. Mikill viðbúnaður er meðal kristinna manna vegna morðanna á 36 úr þeirra hópi í Austur-Líbanon fyrir þremur dög- um, en í landinu en nú um 30 þúsund manna sýrlenzkt lið, sem hefur það verkefni að fylgjast með því, að vopnahléssamningar séu haldnir. lögsaga við Japan gekk í gildi fyrir réttu ári hafa landhelgisgæzlumenn farið um borð í alls 290 sovézk fiskiskip til að rannsaka afla og veiðarfæri. Árangur þessara aðgerða varð sá að 18 skipstjórar voru kærðir fyrir ólöglegar veiðar eða fyrir að gefa rangar upplýs- ingar um aflamagn. Sektir vegna þessara brota nema alls 12 milljónum jena eða sem svarar um 14.8 milljón- um íslenzkra króna og hafa sektirnar verið greiddar í sovézka sendiráðinu í Tókýó. í skýrslunni kemur einnig fram að alls hafi 11.670 sovézk skip og bátar verið að veiðum innan 200 míln- anna við Japan en 12 varðskip auk flugvéla eru að jafnaði við gæzlustörf á miðunum. IATA: Ágreinmgur um nýj- ar verðlagsreglur Montrpai — 1. júlí — Rcuter ALVARLEGUR ágreininKur er ríkjandi meðal flugfélaga innan IATA á aukafundi sem nú stend- ur yfir í Montreal. vegna áforma um að leggja niður hálfrar aldar gamalt kerfi um verðlagningu á alþjóðaflugleiðum. Nokkur smá- félög innan samtakanna hafa brugðizt hin verstu við því að nýjum aðferðum verði beitt við ákvörðun fargjalda þar sem þau telja að við það muni samkeppnis- aðstaða þeirra við hin voldugri flugfélög versna enn frá því sem nú er. Gagnrýni á stefnu IATA í fargjaldamálum hefur farið vax- andi að undanförnu, og Banda- ríkjastjórn hefur til dæmis haldið því fram að samtökin standi í vegi fyrir eðlilegri verðmyndún og stuðli beinlínis að því að halda fargjöldum óeðlilega háum. Tillögur þær, sem lagðar hafa verið fram á fundinum í Montreal, fela m.a. í sér heimild til ríkisrek- inna flugfélaga að ákveða eigin fargjöld en tillögurnar eru fram komnar vegna kröfu ýmissa meiri- háttar flugfélaga um að þau geti keppt beint við flugfélög utan IATA, og þá fyrst og fremst þau sem bjóða serstök kostakjör, eins og t.d. Laker. Framkvæmdaráð IATA tekur tillögurnar til endan- legrar afgreiðslu í september n.k. en verði þær samþykktar geta flugfélög innan samtakanna sjálf ákveðið fargjöld sín og skilmála en haft sömu áhrif og áður á öryggis- og flugstjórnarmál innan IATA. Zaccagnini kjör- inn forseti 1 dag? Róm — 1. júlí — Reuter KRISTILEGIR demókrat- ar hafa komið sér saman um forsetaefni sem talið er að kommúnistaflokkurinn geti sætt sig við og er þar um að ræða Benigno Zaccagnini. í atvkæða- greiðslum undaníarna tvo daga hefur farið fram nokkurs konar prófkjör í báðum deildum þingsins en í þriðju umferðinni í dag nægir einfaldur meirihluti til að leiða málið til lykta. Zaccagnini er í þeim hópi kristilegra demókrata sem vill fara bil beggja þegar um ágreining er að ræða og er að flestra mati sá frambjóðandi sem líkleg- astur er til að ná kjöri með stuðningi kommúnista. Sósíalistaflokkurinn beit- ir sér ákaft fyrir því að næsti forseti sé óháður kaþólsku kirkjunni en flest bendir til þess að kommún- istar fallist á frambjóðanda kristilegra demókrata fyrst og fremst til að firra frekari vandræðum í innanlands- málum en þeim sem orðin eru ekki sízt vegna hins ótrygga ástands sem Moro-málið orsakaði. Mistókst að marka nýja stefnu Sameinuðu þjóðunum — 1. júlí — AP í LOK sex vikna aukafundar allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna um afvopnunarmál á laugar- dagsmorgun lýsti þingforseti, Laz- ar Mojsov, því yfir að mistekizt hefði að marka nýja stefnu til að stöðva vígbúnaðarkapphlaupið í heiminum en hins vegar taldi hann góðar horfur á því að afvopnunarviðræðum yrði haldið áfram og jafnvel að vænlegar horfði nú um árangur á því sviði en áður. Samkomulag náðist á ráðstefn- unni um nýja tilhögun Genfarráð- stefnunnar um afvopnun sem staðið hefur í 16 ár. Munu Frakkar eftirleiðis taka þátt í störfum ráðstefnunnar og góðar horfur eru í þátttöku Kínverja í þeim innan tiðar. Kambódíumenn segja Víetnama á undanhaldi Bankok — júlí — Reuter KAMBÓDÍUMENN segjast hafa unnið mikinn sigur á víetnömsku innrásarliði og sé þetta í annað skipti á tveimur mánuðum sem tekizt hafi að neyða Víetnama til undan- halds. Hafi 3.500 Víetnamar fallið í bardögum á landamær- um rikjanna undanfarinn hálf an mánuð auk þess sem 19 skriðdrekar hafi verið eyði- lagðir. Víetnamar neita enn ásökun- um um innrás í Kambódíu en segja enn sem fyrr halda aftur af árásarliði sem sæki að landamærunum á mörgum stöð- um. I orösendingu Phnom Penh-útvarpsins í dag var skor- að á stjórnina í Hanoi að hætta tilraunum til stjórnarbyltingar í Kambódíu en sýna í staðinn vilja til að koma á sáttum milli ríkjanna. Enn er engar áreiðan- legar fréttir að hafa af því sem að undanförnu hefur átt sér stað á landamærum Víetnams og Kambódíu en heimildamenn, sem venjulega má treysta, telja þó víst að harka hafi færzt í átökin að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.