Morgunblaðið - 06.07.1978, Síða 1
36 SÍÐUR
142. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 178
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fellur
Begin
átrúar-
ákafa?
Jerúsalcm. 5. júlí. Reuter.
RÁÐAGERÐIR^ um að
breyta lögum í ísrael, sem
kveða á um herþjónustu
kvenna í landinu, hafa
valdið miklu fjaðrafoki og
er talið að þrætan geti
orðið til þess að stjórn
Begins neyðist til að segja
af sér.
Þær breytingar, sem um er að
ræða, miðast að því að veita
konum, er lýsa sér sem mjög
trúhneigðum Gyðingum, undan-
þágu frá herþjónustu, en öflug
mótmæli hafa komið fram gegn
tillögunni þar sem margir telja
að þetta verði til þess að allar
konur geti komizt hjá herþjón-
ustu með því einu að þykjast
vera trúaðar.
Enda þótt ríkisstjórn Begins
hafi borið sigur úr býtum í
kosningum um traust á ríkis-
stjórnina á þriðjudag eftir að
mótmælin komu fram, hefur
hinn svokallaði Lýðræðislegi
Framhald á bls. 20
Nýjar tillögur Egypta
skerpa ágreininginn
Karíró—Washington,
5. júlí. AP. Reuter.
EGYPTAR afhjúpuðu í dag ný
friðaráform í sex liðum í
Mið-Austurlandadeilunni og
kröfðust þess sem fyrr að ísraels-
menn drægju sig til baka frá
Gaza-svæðinu og vesturbakka
Jórdanárinnar, þar með talinn er
austurhluti Jerúsalem.
ísraelsmenn hafa þegar hafnað
helztu atriðum þessara áforma og
er lítil von um árangur að sögn
egypskra embættismanna. Enda
þótt bandarísk stjórnvöld hafi
látið í ljós von um að nú megi
gera nýja atlögu í friðarumleitun-
um eftir að báðir aðilar hafa lagt
skýrt afmarkaðar tillögur sínar á
horðið gætir hóflegrar bjartsýni
meðal ráðamanna vestanhafs.
í ísraelska útvarpinu í dag var
látið að því liggja að áform Egypta
væru bæði „ósveigjanleg og vitna
ekki um neina breytingu". Israels-
stjórn hefur á hinn bóginn ekkert
látið hafa eftir sér enn um
tillögurnar, en í þeim kemur
einnig fram krafa um að Israels-
Kanadast jórn kref ur
Rússa um 3 milljarða
Brota gervihnattarins enn leitað
S.Þ.. 5. júlf. AP.
KANADAMENN lýstu því yfir í dag að þeir myndu fara fram á
það við sovézk yfirvöld að þau greiddu meira en 12 milljónir dollara
eða jafnvirði meira en 3.1 milljarða íslenzkra króna í skaðabætur
vegna óhappsins er varð 24. janúar sl. er kjarnorkuknúinn
gervihnöttur Sovétmanna féll til jarðar í Norður-Kanada.
Kanadískur geimvísindamað- kjölfar atburðarins. Búist er við
ur, Erik B. Wang, skýrði nefnd
á vegum Sameinuðu þjóðanna,
er fjallar um friðsamlega nýt-
ingu geimsins, frá því að Kan-
adamenn myndu einnig krefja
Moskvuyfirvöld bóta vegna
tjóns er varð af völdum geisla-
virkni á kanadísku landsvæði í
að Sovétmenn muni andæfa
kröfunni.
Síðan gervihnötturinn féll til
jarðar í janúar hafa hópar
vísindamanna í Kanada og frá
Bandaríkjunum leitað gaum-
gæfilega á um 80000 ferkíló-
metra stóru svæði í norðanverðu
Saskatchewan og Alberta eftir
brotum úr hinum geislavirka
gervihnetti. Að sögn Wangs
hefur til þessa tekizt að finna
brak, sem í heild vegur um eitt
hundrað kíló, þar á meðal tvo
hluta, „sem yrðu hverjum þeim
banvænir, er væru í nálægð við
þá í nokkrar klukkustundir"
sagði Wang. Það kom fram hjá
honum að hlutir þeir, er leitað
hefur verið að, eru mjög ólíkir
að stærð, sumir hverjir minni en
svo að mannsaugað greini þá
Framhald á bls. 20
Sálarstríð
hefst fyrir
skákeinvígi
Baguioborg, Filippseyjum,
þ. júlí. Reuter.
SÁLARSTRÍÐ þeirra Karpovs,
heimsmeistara í skák og Viktors
Korchnois, áskoranda hans virð-,
ist þegar vera hafið. Meistararnir
eru nú báðir komnir til Baguio
þar sem áætlað er að einvfgi
þeirra hefjist þann 17. júlí.
Fyrrihluta dags á miðvikudag
sátu skákmeistararnir báðir boð
Marcosar Filippseyjaforseta, í höll
hans í Manila, um 250 kílómetra
frá skákstaðnum.
Gestirnir tveir sátu augliti til
auglitis í veislunni og létu sem
þeir sæju ekki hinn. „Þegar
Marcos minntist á að hann léki
skák sjálfur, reyndi ég að tala
fyrir okkur Karpov báða og vera
léttlyndur" sagði Korchnoi við
fréttamenn. „En ég held að
Karpov, hafi ekki einu sinni
brosað þegar ég og forsetinn
hlógum" bætti hann við.
menn hverfi brott af þeim her-
numdu svæðum, er þeir hafa tekið
sér búsetu á.
Tillögur Egypta eru eins og
kunnugt er fram komnar að
áeggjan Bandaríkjastjórnar, en
Israelsmenn höfðu um langt skeið
kvartað yfir að Egyptar legðu
engar tillögur fram á móti sínum.
I tillögunum er kveðið á um eins
konar fimm ára millibilstíma, en
á þeim tíma er hugmynd Egypta
að hernumdu landsvæðunum verði
stjórnað af fulltrúum kosnum á
„frjálsan" hátt meðal Palestínu-
manna, en undir eftirliti Jórdana
á vesturbakkanum en Egypta á
Gaza-svæðinu. Segir að taka skuli
ákvörðun um framtíð Palestínu-
Framhald á bls. 20
Svía varpað í
dýflissu í Riga
Sakaður um njósnir
Stokkhólmur. 5. júlí. AP.
SÆNSKUR ríkisborgari í hópi
ferðamanna í Sovétríkjunum hef-
ur verið tekinn höndum og
sakaður um njósnir samkvæmt
heimildum sænska utanríkisráðu-
neytisins í dag.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins upplýsti að viðkomandi
ferðamaður væri fyrrverandi
Letti, Laymonds Niedre að nafni
og fimmtíu og fjögurra ára
gamall. Niedre, sem gerðist
sænskur ríkisborgari 1954 var
handtekinn í Riga 23. júnf, sagði
talsmaðurinn.
Enn fremur sagði embættismað-
urinn Manfred Nilsson, að sænsk
yfirvöld hefðu fengið staðfestingu
frá Sovétmönnum þess efnis að
þeir hefðu hefðu handtekið Niedre.
„Við sendum beiðhi um að fá að
sjá hann í fangelsinu í Riga,“ sagði
hann, „en við höfum ekkert svar
fengið frá sovéskum yfirvöldum
ennþá.“
Framhald á bls. 20
Fellibylur
drepur sjö
Bismarck, Norður-Dakóta,
5. júlí. Reuter.
„ÞAÐ tryði því enginn. Þetta var
fyrsti fellibylur, sem ég hef á ævi
minni séð og mig langar aldrei
aftur að sjá annan slikan.“ sagði
Framhald á bls. 20
Þrumugnýr og
reykur í Beirút
Beirut, 5. júlí. Reuter.
FALLBYSSUSKOTIIRÍÐ gall
aftur við í Beirut á miðvikudags-
1 lutnmgabilstjorar loka vegum til Austurrikis. — Myndin sýnir hluta af meira en 10 kflómetra langri
röð austurrískra vöruflutningabfla í Schwarzbach við landamæri Vestur-Þýzkalands. Bifreiðastjórarnir
ákváðu að fara í verkfall með þessum hætti til að mótmæla nýjum vegasköttum fyrir vöruflutningabfla,
sem tóku gildi frá og með 1. júlí. Aðgerðir þessar hafa lokað allri umferð til og frá Austurriki á vegum
og lét austurríski kanzlarinn. Bruno Kreisky, að því liggja í gærkveldi að hann og stjórn hans væru
að missa þolinmæðina. '
kvöld eftir að lát hafði verið á
bardögum f nokkrar stundir milli
sýrlenzkra gæzluliða og hægri-
sinnaðra hersveita.
Miklar sprengingar bergmál-
uðu í borginni og þykkar reyksúl-
ur stigu til himins upp af rústum
þéttbýlla hverfa í Austur-Beirut,
þar sem búa kristnir menn.
Samkvæmt heimildum hægri
manna höfnuðu þeir skilmálum
Sýrlendinga um vopnahlé. Fréttin
hafði ekki verið staðfest þegar
síðast spurðist.
Skothríðinni í borginni hafði
Framhald á bls. 20
Fréttaritari
fær að fara
Boston. 5. jú1í. AJ».
ANNAR bándarisku fréttamann-
anna tveggja, sem sakaðir voru um
að rægja Sovétrflrin frá bækistöðv-
um sínum í Moskvu, hefur nú
fengið að snúa aftur til Bandaríkj-
anna. Fréttaritarinn, Craig R.
Whitney, kom til Boston á þriðju-
dag til að verja sumarleyfi sínu þar.
Whitney kvað starfsbróður sinn
Harold D. Piper enn hafast við í
Sovétríkjunum eftir því sem hann
bezt vissi. Fréttaritararnir neituöu
báðir að taka þátt í réttarhöldum
yfir þeim í Moskvu á mánudag. Búist
er við að Piper fái einnig að fara
frjáls ferða sinna.