Morgunblaðið - 06.07.1978, Side 5

Morgunblaðið - 06.07.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978 5 Utideild og lögreglustjóri hafa áhyggjur af Læragjá: Menn nær drukknaðir, slagsmál tið og ástarlíf með áhorfendum Fyrir tilstuðlan Æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar er nú lækurinn í Nauthólsvík eða Læragjá, eins og hann er oft nefndur, að nýju kominn á dagskrá í borgarstjórn. Upphaf pessa nýja erindis fyrir borgarstjórn má rekja til bréfs frá Útideild /Eskulýösráðs og Félagsmálaráös, en par kemur fram að ástandið að næturlagi við lækinn veldur starfsfólki deildarinnar miklum áhyggjum og að paö telur nauðsynlegt að koma vitneskju peirra um ástandiö á framfæri við viðkomandi yfirvöld. Sendi pví Útideildin bréf til Æskulýösráðs, Félagsmálaráðs og Heilbrigðisráðs. Fjölmenni í Læragjá einn góövidrisdag í maí. í bréfi Útideildar kemur fram, aö hún hefur margsinnis í störfum sínum kannaö ástand og fjölda ungs fólks viö hinn margumtalaða læk viö Nauthólsvík. Á umliönum vetri hafi oft veriö mjög slæmt ástand þar en þó einkum aö næturlagi um helgar. * Ástarleikir á almannafæri Þá hafi fólk safnazt saman í tugatali, yfirleitt dauöadrukkiö og tekið sér baö í læknum, ýmist ( alfatnaöi, hálfnakiö og jafnvel allsnakiö. Ekki hafi veriö óalgengt aö sjá fólk í samförum og stóran hóp áhorfenda umhverfis. Mikiö er um flöskubrot og annan óþrifnaö, og fólk gerir þarfir sínar í lækinn eöa nánasta umhverfi hans, þar sem engin hreinlætisaðstaða er fyrir hendi. Meiðsli eru einnig tíö aö því er fram kemur í bréfinu. Flest er fólkið yfir tvítugt en einnig eru áberandi hópar ung- linga og hefur sá hópur alltaf stækkaö með hækkandi sól, að því er segir f bréfinu. Er þaö álit starfsmanna Útideildar aö mesta mildi sé aö ekki skuli nú þegar hafa hlotizt þarna af stórslys, og segir í bréfinu aö miöaö viö núverandi aöstæöur telji starfs- menn deildarinnar algjörlega ófor- svaranlegt aö fólk hafi aðgang aö læknum aö næturlagi. * Blöðin auglýstu staðinn í framhaldi af þessu ritaöi Æskulýösráö lögreglustjóranum í Reykjavík bréf og óskaöi umsagn- ar hans, og er sú umsögn barst var hún lögð fram í borgarráöi ásamt bréfi Útideildar. Umsögn lögreglu- stjóra er mjög á sömu lund og bréf Útideildar. Hann getur þess í upphafi aö þessi afrennslislækur hafi lengi veriö búinn aö renna til sjávar í Nauthólsvík án þess að nokkur vandræöi hlytust af. Hins vegar hafi loks komiö aö því aö ölvaö fólk fór aö sækja í lækinn um nætur, dagblöð aö birta myndir og þar meö hafi veriö komin sú athygli og auglýsing er þurfti til aö stefna því fólki þangaö er sizt skyldi. Borgarstjórn hafi þá látiö lagfæra lækjarbakkana og snyrta til svo vistlegra yröi á svæöinu en slíkt hafi dugaö skammt er baö- gestir kunnu ekki fótum sínum forráð. Fram kemur í umsögn lögreglu- stjóra, aö lögreglan hafi aö undanförnu þurft aö hafa dagleg afskipti af baögestum sakir ölvun- ar, slagsmála og slysa og sé nú svo komiö aö ekki veröi viöunaö lengur. Sérstaklega sé ástand viö lækinn um nætur slæmt eftir aö dansleikjum lýkur, fólk haldi aö baöstaönum, og leggist t lækinn ýmist nakiö á nærfötum eöa í öllum fötum. * Slysahætta mikil Af þessum sökum hafi hlotizt alvarleg slys og einn maöur háfi fundizt örendur í læknum. Hinn 17. júní sl. hafi rænulaus maður verið fluttur í gjörgæzludeild eftir aö hafa sofnaö í læknum og næstum drukknað og margir hafi þarna skorizt illa á glerbrotum, slasazt í slagsmálum og hrasað. Fyrir liggi margar lögregluskýrslur um óhöpp á staönum og slæma hegöun fólks, m.a. vegna þess aö engin snyrtiaöstaða sé á staönum og menn gangi þar örna sinna á víöavangi og í læknum. Ekki er heldur aöstaöa til aö hafa fata- skipti og geyma verðmæti, svo aö talsvert hefur borið þarna á þjófnaöi á fötum og munum. Þá kemur fram aö aöfaranótt 17. júní Framhald á bls. 20 Meðlaga- greiðslur hafa hækk- að jafnt og laun „MEÐLÖG hafa hækkað jafn- hliða launahækkunum í land- inu en hins vegar hefur tekjutrygging lífeyrisþega hækkað meira, samkvæmt heimild sem ríkisstjórnin hef- ur,“ sagÖi Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri i heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Páll kvað meðlagagreiðslur byggjast á álagalögum og þar væri tilgreint að meðlaga- greiðslur skyldu hækka til samræmis við launahækkanir í landinu. I lögunum væri gert ráð fyrir að ríkisstjórnin hefði sérstaka heimild til að hækka tekjutryggingu, og það hefði verið gert. Baldur Bald- vinsson á Ófeigs- stöðum látinn Húsavík, 5. júlí. BALDUR Baldvinsson bóndi á Ófeigsstöðum í Kinn andaðist s.l. nótt á sjúkrahúsinu hér, eftir alllöng veikindi. Hann var rúmlega áttræður að aldri, fæddur 8. apríl 1898. Baldur er þjóðkunnur hag- yrðingur og um langt árabil var hann oddviti sveitar sinnar á margan hátt. Hann var stjórnarformaður Kaupfélags Þingeyinga og gegndi marg- háttuðum trúnaðarstörfum stéttar sinnar, bæði innan- sveitar og utan. Eftirlifandi kona Baldvins er Sigurbjörg Jónsdóttir frá Geirastöðum við Mývatn. — fréttaritari. fiÁBULDUS TRACKS BOVS , Ross Amd Thl Supiumfs 2o Golden Greats """ ..IHHWWr' ÞRAUTREYHDaR storstjornur á hinu frábæra Fálkaverði. Kr. 4100- Kr. 4100- LONDON >TOWN Kr. 4100- Kr. 4350- Einkaumboð Fálkinn Hf. Þessar stórstjörnur skipa allar ákveöinn sess í huga og hjörtum fólks. Því allar hafa þær staöið af sér hinar öru breytingar sem átt hafa sér staö í tónlistarheiminum síðastliðin ár. Því getum viö óhræddir mælt meö hverri þessara hljómplatna handa hverjum sem er. Verslið þar sem úrvalið er mest. FALKIN N Suðurlandsbraut 8. Laugavegur 24. Vesturveri. Sími 84670 Sími 18670. Sími 12110.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.