Morgunblaðið - 06.07.1978, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978
Svona mikil yfirvinna
ætti ekki að vera til
NÝLEGA kom til framkvæmda yfirvinnubann ýmissa verkalýðsfélaga, þ.e. bann, sem gerir ráð
fyrir að ekki sé unnið um helgar í fiskvinnslustöðvum. Til að heyra örlítið hvað starfsfólk
fiskvinnslustöðva hefði um þetta bann að segja leit Mbl. við í Bæjarútgerð Reykjavíkur og ræddi
þar fyrst við Magnús Magnússon verkstjóra. — Það reyndi fyrst á þetta bann hjá okkur um
síðustu helgi, sagði Magnús, og fengum við þá ekki að vinna á laugardegi eins og æskilegt hefði
verið, en urðum að geyma fiskinn fram yfir helgina. Það gerði ekki meira en svo að sleppa, þar
sem við höfum ekki kæligeymslu heldur verðum að geyma fiskinn í kössum og það gefur auga
leið að ísinn bráðnar í sólarhitanum.
Frá einum vinnslusalnum í Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Ræ,tt við starfsfólk
B.Ú.R. umhelgarfríin
— I fyrra var svipað bann í
gildi, en við fengum alltaf undan-
þágur þegar á þurfti að halda, en
það var æði oft. Það var yfirleitt
þannig að þegar undanþágan var
fengin þá var það borið undir
fólkið hvort það vildi vinna eða
ekki og langoftast — ég held ég
megi segja alltaf — var það
samþykkt. Auðvitað mættu ekki
allir alltaf, en langflestir.
— Núna skilst mér að ætlunin
sé að félögin verði mun strangari
á banninu og kom það reyndar
fram um síðustu helgi.
Hvaða áhrif hefur þetta á starf
útgerðarinnar?
Þetta hefur þau áhrif að
togararnir verða að koma inn um
miðja viku eða ekki síðar en á
fimmtudegi til að hægt sé að vinna
það mesta af aflanum fyrir
helgina því við getum ekki skilið
mikið eftir og geymt það yfir helgi.
Þetta þyrfti ekki að vera svo
bagalegt ef við værum búnir að fá
kæligeymslu eins og er ráðgert að
komi í Bakkaskemmu þegar hún
verður tilbúin einhvern tíma á
næstunni. En við getum bjargað
þessu nokkuð með því að láta
vinna á kvöldin, því það er ekki
bann við því, sagði Magnús
Magnússpn verkstjóri að lokum.
Dagvinnukaup ætti að nægja
Rætt var við nokkra starfsmenn
Bæjarútgerðarinnar um leið og
fyrstur varð á vegi okkar Magnús
Guðjónsson sem vinnur við flökun.
— Svona mikil yfirvinna á ekki
að vera til, sagði Magnús, venju-
legt dagvinnukaup á að nægja til
að við getum lifað af því mann-
sæmandi lífi. Mér finnst það líka
rangt að vera að taka fulla skatta
af þessari næturvinnu okkar; það
er slæmt að taka skatta af fólki
þegar það leggur svona mikið á
sig.
— Stundum þarf að vinna af
illri nauðsyn, sagði Magnús enn-
i
Á hverjum degi er auglýst ekki
síðar en í síðdegiskaffi hversu
lengi eigi að vinna þann daginn.
fremur og er þá oft verið að bjarga
verðmætum og þá held ég að mér
sé óhætt að segja að allir vilji
vinna það sem þarf og þá skorast
menn ekki undan.
Lízt vel á bannið
Þá var rætt við Elvu Björnsdótt-
ur, en hún sagðist um þessar
mundir vinna að eftirlitsstörfum:
— Mér lízt vel á þetta helgar-
vinnubann og mér finnst líka að
það ætti bara ekki að vinna nema
til klukkan 5 á sumrin, en að
undanförnu höfum við oftast
unnið fram eftir á kvöldin og
venjan er að vinna flesta laugar-
daga að vetrinum. Annars er
kaupið ekki svo hátt að maður geti
leyft sér að vinna aðeins dagvinnu,
flestir gera orðið það miklar
kröfur til lifnaðarhátta að það
nægir ekki að unnin sé hin
venjulega dagvinna. Þannig er til
dæmis með mig, en ég er fjöl-
Magnús Magnússon verkstjóri.
0$
Ágúst Vernharðsson.
skyldumanneskja og endar ná
varla saman hjá okkur þó við
vinnum bæði úti hjónin. Það er
e.t.v. vegna þess hversu miklar
kröfur við gerum eins og ég gat um
áðan og hitt skal einnig tekið fram
að við höfum það mun betra
fjárhagslega með því að vinna svo
mikið.
Elva nefndi tölur um hvernig
kaupið væri:
— Venjuleg vika gerir um það
bil 33.440 krónur en eins og hefur
verið að undanförnu, þ.e. með
laugardegi og kvöldvinnu, þá hefur
vikan komizt í um það bil 50
þúsund. Það er enginn skyldugur
til að vinna eftirvinnu, en flestir
koma þegar um það er beðið enda
má segja að kaupið freisti og
menn, sem virkilega þurfa á
aukapeningum að halda, vilja
leggja nokkuð á sig til að fá meiri
tekjur, sagði Elva Björnsdóttir að
lokum. Að síðustu var rætt við
Morgunblaðið ræðir við forsvarsmenn frystihúsa:
„Rothögg að fá þessa 11% læ
MORGUNBLAÐIÐ ræddi í gær við nokkra íorsvarsmenn frystihúsa víðsvegar um
land og spurði þá um viðhorfin í frystiiðnaðinum í ljósi þess ástands, sem nú er komið
upp í kjölfar ákvörðunar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjávarafurðadeildar
SIS um 11% verðlækkun til frystihúsanna. Fara viðtölin hér á eftir.
Heimatílbúinn vandi —
„Hallinn af rekstrinum nemur
nú um 17% af veltunni, þannig að
það hlýtur að vera öllum ljóst að
rekstrarstöðvun er á næsta leiti
nema til komi skjótar aðgerðir
stjórnvalda", sagði Jón Ingvarsson
framkvæmdastjóri Isbjarnarins í
Reykjavík. „Bankarnir geta ekki
og vilja ekki fjármagna slíkan
hallarekstur enda væri fyrir-
tækjunum vafasamur akkur í því.
Það hrikalega við þetta allt
saman er að hér er um heimatilbú-
inn vanda að ræða, þar sem við
búum nú við hæsta markaðsverð
sem við þekkjum", sagði Jón
Ingvarsson.
Við erum með miklar birgðir
„Það er stjórnarfundur hjá
okkur á morgun, þar sem við
munum ræða stöðuna en ætli verði
ekki reynt að tóra meðan maður er
ekki skorinn", sagði Ólafur
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar h.f. í Neskaup-
stað. „Við höfum ekkert lausafé að
grípa til og við skuldum alltof
mikið þannig að það getur að öllu
óbreyttu komið að því hverja
vikuna sem er að við getum ekki
sett neina peninga í launaumslög-
in og þá halda menn auðvitað ekki
áfram.
Þetta hefur verið mjög erfitt hjá
okkur undanfarna viku. Við erum
með miklar birgðir vegna út-
flutningsbannsins. Á hinn bóginn
er líka mikið tap af því að loka
svona fyrirtæki sem er burðarás í
atvinnulífi síns staðar. Það er
mikiö alvörumál ef enginn aðili í
þjóðfélaginu telur sig eiga að firra
slíkum vandræðum og auðvitað
kann það ekki góðri lukku að stýra
þegar öll fyrirtæki virðast ganga
vel nema þau sem afla gjaldeyris-
ins“.
Dagaspursmál hvenær við
neyðumst til að stöðva
„Mér sýnist það aðeins vera
dagaspursmál hvenær við neyð-
umst til að stöðva", sagði Einar
Sigurjónsson framkvæmdastjóri
ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
„Það liggur ljóst fyrir að þetta
endar með ósköpum og ofan á allt
annað setur útflutningsbannið
okkur í dálitla klemmu með að
geta greitt vinnulaunin. Það er í
hreinskilni sagt hreinasta kvöl
hvernig þetta er allt komið hjá
okkur".
Reynum að forðast stöðvun
í lengstu lög
„Við reynum að forðast stöðvun
í lengstu lög og lítum þá til þess
að kannski verður ekki svo mikið
um fisk, þegar líða fer á mánuð-
inn“, sagði Guðmundur Björnsson
forstjóri Hraðfrystihúss Olafsvík-
ur h.f. „En auðvitað liggur í augum
uppi hver útkoman verður þegar
11% verðlækkun bætist við tapið
sem fyrir var því allt var miðað við
að reksturinn væri heldur með
tapi en hitt.
Ætli verði ekki þorskveiðibann
fyrir verzlunarmannahelgina eins
og í fyrra og svo fara bátarnir hér
að búa sig á síldveiðar upp úr
miðjum mánuðinum þannig að
sjálfgert verði að hætta þá ef
okkur tekst að skrimta þangað til“.