Morgunblaðið - 07.07.1978, Síða 1
32 SÍÐUR
143. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
ísraelsmenn hóta
íhlutun í Líbanon
Sadat rædir vid
Shimon Peres
11 íarast í lestarbruna á Bretlandi. — Ellefu manns fórust og 17
slösuðust þegar eldur kom upp í næturlest á leið til Lundúna í
fyrrinótt. Talið ér að kviknað hafi í út frá sígarettu eins farþegans
í kojum lestarinnar. Á myndinni sést slökkviliðsmaður fikra sig
eftir brenndum gangi lestarinnar. Ekki hefur orðiö dauðsfall af
völdum bruna í brezku lestunum frá því á árinu 1910 fyrr en nú.
(Símamynd AP).
Hrossataði
dreift yfir
þingmenn
London, 6. júlí. Reuter. AP.
TVEIR stuðningsmenn frska
iýðveldishersins fleygðu í dag
mörgum pokum fullum af
hrossataði yfir þingmenn að
störfum í neðri málstofu
brezka þingsins með þeim
afleiðingum að gera þurfti hlé
á þingstörfum meðan húsa-
kynni voru þrifin og mótmæla-
fólkið fjarlægt. Einn þing-
manna fékk hrossataðspoka í
höfuðið og sprakk pokinn og
innihald hans dreifðist um
salinn. Fleiri pokar sprungu á
borðum þingmanna og á gólf-
inu en þingmenn leituðu skjóls
undir borðum sínum eða flýðu
fram á ganga.
Þeir sem pokunum fleygðu
voru á áhorfendapöllum þings-
ins og vildu með þessu leggja
áherzlu á kröfur sínar um að
brezkur her fari frá Norður-ír-
landi og að félagsmenn írska
lýðveldishersins, IRA, hljóti
betri aðbúnað í brezkum
fangelsum.
Fyrr um daginn höfðu fjórar
stúlkur lagzt fyrir framan
Buckingham-höll og komið í
veg fyrir að hinir skrautklæddu
varðmenn drottningar gætu
haft vaktaskipti með hefð-
bundnum hætti en fjöldi ferða-
manna safnast jafnan saman
við það tækifæri til að fylgjasl
með vaktaskiptunum
Stúlkurnar vildi með þessu lýsí
stuðningi við IRA.
ísraels hefur þegar hafnað þess-
um tillögum, en ckkert hefur
heyrzt frá stjórnarandstöðunni í
landinu um þær enn þá.
Bruno Kreisky, kanzlari Austur-
ríkis, lét hafa eftir sér í gær í
egypzka blaðinu Al-Ahram, að
Peres væri hlynntur því að stofnað
yrði sameiginlegt ríki Palestínu-
manna og Jórdaníu.
Fundur Sadats og Peresar verð-
ur annar fundur þeirra á árinu en
I þeir hittust áður í Vín í febrúar.
Jerúsalem, Beirút, Washington.
6. júlí. AP. Reuter.
ÍSRAELSSTJÓRN lýsti því
yfir í dag að hún myndi
aldrei láta það viðgangast
að Sýrlendingar útrýmdu
kristnum mönnum í Líban-
on. Til að leggja áherzlu á
þetta sendu Israelsmenn
nokkrar herþotur í flug
yfir Beirut, höfuðborg
Libanons, og er litið á
flugið sem viðvörun fyrir
Sýrlendinga. Mjög harðir
bardagar hafa verið
undanfarna daga í og við
Beirut og hafa Sýrlending-
ar ráðizt með öflugu stór-
skotaliði á stöðvar hægri
sinnaðra kristinna manna
þar um slóðir.
Forseti Líbanon, Elias Sarkis,
var i dag sagður ætla að segja af
sér embætti, en hann varð forseti
á árinu 1976 og unnu Sýrlendingar
ötullega að kjöri hans. Stjórn-
málaleiðtogar í Beirut og banda-
ríski sendiherrann í borginni
fengu Sarkis ofan af fyrirætlan
sinni a.m.k. að sinni, en talið er að
Sarkis hafi hótað að segja af sér
þegar honum bárust úrslitakostir
Sýrlendinga um að afvopna skyldi
kristna hægri menn í landinu og
heimila sýrlenzkum hermönnum
að fara frjálsir ferða sinna álls
staðarí Líbanon.
Alls hafa um 200 manns látið
lífið undanfarna fimm daga í
bardögum kristinna manna og
Framhald á bls. 19
Kaíró, 6. júlí. Reuter.
SADAT Egyptalandsforseti held-
ur á morgun áieiðis til Vínar í
opinbera heimsókn þar sem hann
mun m.a. eiga viðræður við
leiðtoga ísraelsku stjórnarand-
stöðunnar, Shimon Peres, um
hinar nýju friðartillögur sínar. í
tillögunum er sem fyrr gert ráð
fyrir því að ísraelsmenn láti af
hendi Vesturbakka Jórdanár,
Gaza-svæðið og Austur-Jerúsalem
á meðan samið verði um varan-
iegan frið á svæðinu. Stjórn
Sovétmenn standa
Leiðtogar EBE funda:
Stefnt að aukinni samvinnu
í peninga- og gengismálum
við samninga sína
segir Gromyko utanríkisráðherra
framkvæmdastjórn bandalagsins
undirbúið viðamiklar skýrslur
um ýmsa þætti efnahagsmála sem
nú eru til umfjöilunar.
Frakkar og Þjóðverjar hafa að
undanförnu lagt áherzlu á sam-
stöðu innan bandalagsins um
aukna samvinnu landanna í pen-
inga- og gengismálum, m.a. með
þátttöku fleiri landa í „snáknum"
svokallaða. Er stefnt að því að
Efnahagsbandalagið verði áður en
yfir lýkur ein peningaleg heild.
Framhald á bls. 19
Moskvu. 6. júlí. AP. Reutor.
ANDREI Gromyko utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna varaði í dag
við því að óvinir „detente“-stefn-
unnar væru að reyna að sigla
samningaviðræðum Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna um tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar f
strand og grafa undan vinsamleg-
um samskiptum stórveldanna
tveggja. Gromyko sagði í ræðu
sinni sem hann flutti á fundi
Æðsta ráðs Sovétríkjanna að
„ákvcðnir aðilar á Vesturlönd-
um“ stefndu að því að etja
heiminum fram á barm heims-
styrjaldar með sifelldu tali um
hina svokölluðu „sovézku hættu.“
Ræða Gromykos var haldin fyrir
1500 áheyrendum í ráðstefnusal
Framhald á bls. 19
í V-Þýzkalandi til undirbúnings
fyrirhuguðum leiðtogafundi í
Bonn en þar munu helztu ráða-
menn stærstu iðnrikja heims
hittast til að fjalla um alþjóðleg
efnahagsmál.
A fundinum f Bremen sem
haldið verður áfram á morgun er
unnið að því að samræma stefnu
þeirra aðildarrfkja EBE sem
Bonn-fundinn munu sækja.
Frakklands, Bretlands. V-Þýzka-
lands og ítalfu, og viðhorf ann-
arra EBE-landa. Hefur
Karpov og Korchnoi á íundi hjá Marcos forseta. — Marcos forseti Filippseyja bauð
skákmeisturunum tveimur, sem á næstunni munu heyja keppni um heimsmeistara-
titilinn í skák, til fundar við sig í skrifstofu sinni í gær. „Okkur er mikill heiður
að því að heimsmeistaraeinvígið í skák skuli fara fram á Filippseyjum," sagði
forsetinn við Korchnoi og Karpov sem hefja keppni sína 17. júlí nk.
(Símamynd AP).
Gromyko.
Hremon. f>. júlí. Reuter. AP.
LEIÐTOGAR aðildarrfkja Efna-
hagshandalags Evrópu komu
saman til fundar í dag í Bremen