Morgunblaðið - 08.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.07.1978, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK 144. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 2 andófsmenn fyrir rétt í dag Moskvu 7. júlí. Reuter. RÚSSAR tilkynntu í dag að andófsmað- urinn Anatoly Shcharansky urði leiddur fyrir rétt á morgun og höfðu þar með að Áður hefur verið tilkynnt að andófsmaðurinn Alexander Ginz- burg verði leiddur fyrir rétt á morgun og þar með mæta tveir virkustu félagar „Helsinki" nefnd- engu viðvaranir frá Washington um þau áhrif sem slík ráðstöfun getur haft á samskipti Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. vörnum fyrir Shcharansky og Ginzburg. Réttarhöldin gegn þessum tveimur kunnustu andófsmönnum Framhald á bls. 19 ar andófsmanna fyrir rétti sama daginn. Sú ráðstöfun er að dómi vestrænna diplómata ögrun við Bandaríkjastjórn og aðrar ríkis- stjórnir sem hafa haldið uppi Flök sex bifreiða sem leyniskyttur skutu á í austurhluta Beirút. Þrír biðu bana. Hægra megin er lögreglustöðin Bourj Hamoud með líbanska fánanum. Lengst til vinstri hefur verið unnið skemmdarverk á stórri mynd af Camille Chamoun fyrrverandi forseta og leiðtoga hægrimanna. Gamall heyrnarlaus maður (undir fánanum) hélt áfram göngu sinni og hann sakaði ekki. Sadat í Vín Vín 7. júlí — Reuter ANWAR Sadat forseti kom til Vínar í dag ásamt fjölmennu fylgdarliði til viðræðna við aust- urríska ráðherra og ísraelska Verkamannaflokksleiðtogann Shimon Peres um helgina. Peres hefur tekið fram að hann komi ekki fram fyrir hönd ísra- elsku stjórnarinnar og sagði í dag að á fundinum færu fram skoðana- skipti „sem ættu að vekja vonir' um lausn deilumálanna Mið-austurlöndum. Vegirnir opnaðir í Austurríki Vín 7. júlí. Reuter. AUSTURRÍSKIR vörubflstjórar hættu í dag fimm daga mótmæla- aðgerðum, sem hafa leitt til þess að flestir vegir til Austurríkis hafa verið lokaðir þar sem stjórnin hefur eindregið neitað að fallast á kröfu þeirra um afnám umdeilds vegatolls. Aðeins við Salzburg og á nokkr- um minni stöðum lokuðu vörubíl- stjórar enn vegum í kvöld. Sums staðar gáfust bílstjórarnir upp af þreytu, annars staðar vegna áskorana vinnuveitenda, sums staðar af því að lögreglan hótaði að beita valdi. Vantrauststillaga hefur verið borin fram vegna málsins á þingi þar sem jafnaðarmannastjórn Bruno Kreiskys kanzlara hefur í aðeins þriggja atkvæða meiri- hluta. Samstaða um forseta Ítalíu Róm. 7. júlí. Reuter. Kristilegir demókratar jöfnuðu í kvöld ágreining sinn við vinstri- flokkana og samþykktu sam- eiginlegan frambjóðanda flokk- anna í kosningunni um nýjan forseta Ítalíu. Hann er Sandro Pertini 81 árs gamall sósíalisti, hetja úr and- spyrnuhreyfingunni í síðari heimsstyrjöldinni og fyrrverandi forseti fulltrúadeildar þingsins. Fráfarandi forseti, Giovanni Leone, sagði af sér í síðasta mánuði vegna ásakana um fjár- málamisferli og skattsvik. Kjörmannasamkunda öldunga- Framhald á bls. 19 ísraelskur liðsauki að landamærum Líbanon John Silkin. Bretar semja vid Norðmenn um Norðursjó London 7. júlí. AP. JOHN SILKIN, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Bretlands, skýrði Neðri málstofunni frá því í dag, að Bretar og Norðmenn hefðu komið sér saman um leiðir til að auka eftirlit með fiskveið- um í Norðursjó og að þjóðirnar hefðu „mjög líka“ afstöðu til fiskverndunar í Norðursjó. Silkin kom til Osló í fyrri viku og sagði að Norðmenn hefðu fullvissað hann um að þeir myndu leyfa brezkum sjómönnum að veiða í norskri landhelgi og að þeir vonuðust til að Bretar leyfðu þeim slíkt hið sama í brezkri landhelgi. Beirút. 7. júlí. AP. Reuter. LÍBANSKIR stjórnmálaleiðtogar og erlendar ríkisstjórnir skoruðú í dag á Elias Sarkis forseta að láta ekki verða af þeirri hótun að segja af sér þar sem óttazt er að hættuástandið í Libanon geti leitt til árekstra milli Sýrlendinga og ísraelsmanna. Israelsmenn lýstu því yfir að þeir hefðu sent liðsauka að landa- mærum Líbanons til þess að leggja áherzlu á stuðning sinn við kristna menn í Líbanon og þetta varð til þess að Sýrlendingar skipuðu herafla sínum að vera í viðbragðs- stöðu. Kortið sýnir Beirút og nágrenni. Kyrrt hefur verið í kristna hverfinu í Beirút síðan fallbyssur Sýrlendinga þögnuðu eftir sex daga harða skothríð í gær þegar ísraelskar herflugvélar flugu yfir borgina en leyniskyttur láta að sér kveða og flestir íbúar austurhluta Beirút halda sig innan dyra. Forseti Sýrlands Hafez Assad skoraði í dag á Sarkis að halda áfram í embætti forseta til þess að fryggja öryggi í landinu. En Salim E1 Hoss forsætisráðherra sagði að Sarkis væri enn ákveðinn í því að hætta. Forsetinn sagði stjórn- málamönnum að hann yrði að fá völd til þess að geta stjórnað Framhald á bls. 18 Niðurskurður eftir skattauppreisnina Sacramento 7. júlí — Reuter ÁHRIF SKATTAUPPREISNARINNAR í Kaliforníu sögðu til sín í dag er Jerry Brown ríkisstjóri beitti neitunarvaldi gegn kauphækkun ríkisstarfsmanna og samþykkti niðurskurð á fjárveitingum til fóstureyðinga. Áður en Brown beitti neitun- arvaldinu samþykkti hann fjár- lög þar sem gert er ráð fyrir því í fyrsta skipti um langt árabil að dregið verði úr ríkisútgjöld- um. Niðurstöðutölur fjárlag- anna eru að vísu 14 milljarðar dollara og hærri en á fjárlögum margra ríkja en samkvæmt þeim er gert ráð fyrir niður- skurði á ýmsum sviðum. Sparnaðarviðleitni Browns lýsir sér í því að hann hefur ákveðið að hætta með öllu aukningu útgjalda til velferðar- mála og er það bein afleiðing atkvæðagreiðslunnar fyrir rétt- um mánuði þegar íbúar Kali- forníu samþykktu að skera niður fasteignaskatta, sem hafa . farið sífellt hækkandi, um sjö milljarða dollara. Þar með hófst svokölluð skattauppreisn í Kaliforníu sem er fjölmennasta ríki Bandaríkj- anna og fastlega er gert ráð fyrir því að hún breiðist til langflestra ríkja Bandaríkjanna á þessu ári sem er kosningarár því að bæði verður kosið til þjóðþingsins og ríkisþinga í haust. Niðurskurðurinn á fjárlögum Kaliforníu er talinn töluvert hættuspil fyrir Jerry Brown sem er 38 ára gamall og talinn líklegasti keppinautur Carters forseta um tilnefninguna í forsetaframboðið 1980.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.