Morgunblaðið - 08.07.1978, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.07.1978, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978 Góð rækjuveiði á djúpslóð; 1850 krónur fást nú fyrir rækjukíl- óið í í>ýzkalandi Nú eru útlendingarnir farnir að semja sig að siðvenjum okkar. Þegar þeir fara fram hjá Peningagjá þykir sjálfsagt að æja þar stutta stund og útlendingarn- ir eru ósparir á peninga í gjána. Þarna gæti því verið farinn að myndast álitlegur gjaldeyrisvarasjóður innan um allar gömlu verðlausu krónurnar. Varði doktorsritgerð um krabbamein í London Bent Scheving Thorsteinsson. Nýr fjár- málastjóri RARIK BENT Scheving Thorsteinsson hagfræðingur hcfur nýlega verið skipaður fjármálastjóri Raf- magnsveitna rikisins. Bent er 56 ára gamall. Hann lauk hagfræðiprófi í Bandaríkjun- um 1945. S.l. 20 ár hefur hann starfað hjá Rarik, þar af sem yfirmaður innkaupa- og birgða- deildar stofnunarinnar frá 1961. Kona Bents er Margrét Scheving Thorsteinsson og eiga þau 7 börn. EFTIR að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins tæmdist og SH og sjávarafurðadeild Sambandsins neyddust til að lækka útborgun- arverð til frystihúsanna, hefur færst mjög í vöxt að útgerðar- menn reyni að koma skipum sínum í siglingar til Englands og eru næstu þrjár vikurnar alveg ásetnar. og eftirspurn eftir lönd- unum eykst dag frá degi. Ágúst Einarsson viðskiptafræð- ingur hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna sagði í samtali við Mbl. í gær að þó svo að eftirspurn eftir löndunum ykist dag frá degi væri ekki þar með sagt að allir þeir, sem vildu, kæmust að, og ekki þýddi að ræða um möguleika á Saksóknari fær Guðmundar- og Geirfinnsmál til umfjöllunar SAKADÓMUR Reykjavíkur sendi í fyrradag Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu til embættis rikissaksóknara. Svo sem kunnugt er af fréttum féllu dómar í málunum á s.I. hausti og hefur síðan verið unnið að frágangi málsins í sakadómi. Málin eru mikil að vöxtum, dómurinn sjálfur 874 blaðsiður og fylgiskjöl skipta þúsundum. Þyngstu dómunum bar sam- kvæmt lögum að áfrýja til Hæstaréttar en ríkissaksóknari mun taka um það ákvörðun hvort öðrum dómum verður einnig áfrýjað. Vestmannaey seldi í Hull Skuttogarinn Vestmannaey frá Vestmannaeyjum seldi 123.2 lest- ir af fiski í Hull í gær fyrir 27.7 millj. kr. Meðalverð á kíló var 225.39 kr. ÁGÆTIS djúprækjuveiði hefur verið að undanförnu undan Norð- urlandi og norðanverðum Vest- fjörðum og koma djúprækjubát- arnir til lands með allt að sjö tonnum af rækju eftir þriggja daga útivcru. Góðir markaðir eru í Evrópu fyrir djúprækjuna, sem er stór og falleg. Fást allt að 1850 kr. fyrir kflóið af stærsta flokkn- um. Talið er að um tuttugu bátar séu nú við djúprækjuveiðar og er aflinn unninn frá ísafirði til Kópaskers. Með þeim góða árangri, sem nú hefur náðst á djúprækjuveiðunum, má segja að rækjuveiðar séu nú stundaðar allt árið um kring. Er rækjan unnin á Isafirði, Hvamms- stanga, Skagaströnd, Dalvík, Húsavík- og Kópaskeri og leggja 3—4 bátar upp á hverjum stað. Ingimundur Konráðsson hjá íslenzku útflutningsmiðstöðinni h.f., en það fyrirtæki. hefur flutt mikið út af djúprækjunni, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að um 200 stykki af pillaðri rækju færu í pundið, sem þætti mjög fleiri siglingum næstu þrjár vik- urnar. Kvað Ágúst algjört hámark vera að 2 skip gætu landað á degi hverjum í Bretlandi, annað í Hull og hitt í Fleetwood, sem þýddi að 10 skip gætu selt þar á viku. Um markaðinn í Þýzkalandi sagði Ágúst, að ekki þýddi að huga að sölum þar fyrr en í lok september eða byrjun október. „Gengisfelling er búin að vera hin hefðbundna leið hér á landi,u segir Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins í samtali sem birtist í Mbl. á föstudag og hann segir einnig, að í könnunarvið- ræðum Alþýðuflokks og Alþýðu- gott, en þegar rækja væri veidd innanfjarðar færu yfirleitt 300—400 stk. í pundið. Kvað Ingimundur að markaðir fyrir rækjuna væru nú góðir víða í Evrópu eins og t.d. í Þýzkalandi, Hollandi, Danmörku og jafnvel í Noregi. Sagði hann að Þjóðverj- arnir borguðu mest fyrir rækjuna eða 14.50—15.00 mörk fyrir pundið eða um 1850 kr. fyrir kólóið. Fyrir hráefniskílóið af djúprækjunni eru borgaðar hátt í 200 krónur. Landsvirkjun: Verksamn- ingur upp á hálfan annan milljarð GENGIÐ hefur verið frá verksamningi milli Lands- virkjunar og ítalska fyrir- tækisins Magrini Galileo eftir að stjórn Landsvirkjun- ar hafði samþykkt að ganga að tilboði ítalska fyrirtækis- ins í þrýstivatnspípur, lokur og stöðvarhúskrana Hraun- eyjarfossvirkjunar. Samningsupphæðin nemur samtals um 1458 milljónum króna á núgildandi gengi. Tilboðin í þennan verkþátt voru upphaflega opnuð í febrúar og bárust alls 11 tilboð. Átti Magrini Galileo lægsta tilboðið og sam- þykkti stjórn Landsvirkjunar síð- an í kjölfar þessa að taka upp samningaviðræður við fulltrúa fyrirtækisins, sem nú hefur leitt til undirritunar framangreinds verksamnings. bandalags vilji menn kanna aðrar leiðir og erum að skoða ýmsa möguleika á lausn vanda næstu vikna og mánaða...“. Þjóðhagsstofnun fær því það verkefni að reikna út ýmsa möguleika varðandi beitingu nið- VALGARÐUR Egilsson, læknir, varði þann 14. júní sl. doktorsrit- gerð við Lundúnaháskóla, og fjallar hún um áhrif krabba- meinsvaldandi efna á orkubúskap fruma, svo og um sérhæfingu í krabbameinsfrumum. Doktorsrit- gerðin nefnist á ensku> „Effects of carcinogens and some other compound on mitochondria, with special reference to the yeast model.“ Valgarður Egilsson er fæddur á Grenivík við Eyjafjörð 20. marz urfærslu- og millifærsluleiða til lausnar efnahagsvandanum. En hvað er niðurfærsla og hvað er millifærsla? Millifærsluleið er fólgin í milli- færslu fjár til atvinnuvega þannig að fjár er aflað með beinum og/eða óbeinum sköttum og því síðan varið til beinna eða óbeinna framleiðslustyrkja til útflutnings- atvinnuveganna. „Þessi skatt- heimta myndi jafnframt, ef hún hefur ekki áhrif til hækkunar á kaupgreiðsluvísitölu, draga al- mennt úr kaupmætti og þar með innlendri eftirspurn. Áhrif þessar- ar skattheimt'u á innflutning væru að sjálfsögðu breytileg eftir því hvaða sköttum væri beitt og þeim mun meiri sem innflutningur væri hærra skattlagður," segir í skýrslu efnahagsmálanefndar 1972. Niðurfærsluleiðin felst í niður- færslu á kaupgjaldi og verðlagi. Þá er um að ræða beinar ráðstafanir, með samkomulagi eða lögum, til lækkunar launa, til dæmis með lækkun kaupgjaldsvísitölu, sem síðan er fylgt eftir með lækkun verðlags. Með þessum hætti er „dregið almennt úr innlendri eftirspurn og jafnframt lækkaður launakostnað- ur atvinnuvega. Áhrif niðurfærsl- unnar einnar sér á innflutnings- Framhald á bls. 19 1940, sonur hjónanna Sigurbjargar Guðmundsdóttur og Egils Áskels- sonar. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1961 og prófi frá læknadeild Háskóla íslands 1968. Hann var Valgarður Egilsson héraðslæknir í Eskifjarðarhéraði 1968—69, og vann á Rannsókna- stofu Háskólans við Barónstíg 1970-71. Síðan 1972 hefur hann unnið að krabbameinsrannsóknum við Lundúnaháskóla. Hann fékk viðurkenningu 16. febrúar 1978 sem sérfræðingur í frumumeina- fræði. Valgarður er kvæntur Katrínu Fjeldsted, lækni. Þau eiga tvö börn. Yfirvinnubanni á SR aflétt VERKALÝÐSFÉLAGIÐ í Siglu- firði samþykkti seint í gær- kvöldi að aflétta yfirvinnubanni því sem þar hefur verið í gildi gagnvart Síldarverksmiðjum ríkisins. Mikið verk er framund- an að gera verksmiðjuna klára til að taka á móti loðnu á sumarvertíðinni sem hefst eftir miðjan þennan mánuð, en búizt er við að unnið verði dag og nótt til að svo megi verða. Togarar út af Vestfjörðum hafa verið að fá fisk sem er fullur af stórri loðnu. í gær kom yfirkjörstjórn saman í Alþingishúsinu og úthlutaði uppbótarþingsætum uf Alþingiskosningunum. Fundurinn átti að vera daginn áður, en þar sem heimildir vantaði frá einu kjördæmi, var honum frestað um einn dag. Á fyrri fundinum var mynd þessi tekin af yfirkjörstjórnarmönnum. Þeir eru frá vinstrii Árni Haildórsson, Egill Sigurgeirsson, Vilhjálmur Jónsson formaður yfirkjörstjórnar, Björgvin Sigurðsson, Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis og Gunnar Möller. Sifellt fleiri vilja selja í Englandi: Adeins tvö skip geta selt þar í dag Sölupláss upppöntuð næstu 3 vikumar Niðurfærsla — milli- færsla — uppfærsla — og tillögur Alþýduflokks og Al- þýdubandalags í verðbólgunefndinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.