Morgunblaðið - 08.07.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978
13
Sigurlaug Bjarnadóttir;
Merkileg vegaáætlun
S j álfstæðisf lokksins
þarfnast nánari skýringa
ÚR
ÝMSUM
ÁTTUM
Noregur
Framfærsluvísitalan norska
hækkaöi um 0.2% frá apríl til maí
á þessu ári og varð því hækkunin
frá maí 1977 til maí 1978 á
framfærsluvísitölunni 7.7%.
Bandaríkin
General Motors seldi á síðasta
ári 9 milljónir bíla, þ.e. bæði
fólksflutninga- og vörubíla. Með
þessari sölu tókst þeim að slá
fyrra met sitt um 4% en það var
frá árinu 1973. Bandarískir bíla-
framleiðendur seldu á heimamark-
aði 13.5% fleiri bíla í maí í ár en
á sama tíma í fyrra en hins vegar
seldi Volkswagen 20% minna sé
miðað við sama tímabil.
Japan
Japanir munu í ár flytja inn um
45000 bíla og virðast það vera
smámunir einir miðað við það sem
reiknað er með að japanskir
bílaframleiðendur selji á heims-
markaði á þessu ári en það eru 2.5
milljónir bíla.
Svíþjóð
Ef marka má nýjustu tölur um
viðskiptajöfnuð í Svíþjóð virðist
svo sem betri tímar séu í vændum
hjá þeim. Viðskiptajöfnuðurinn
var hagstæður um 600 millj. s. kr.
í marz en hafði aukist í 1200 millj.
S. kr. j lok apríl.
Pólland
I fyrsta skipti í níu ár hefur
viðskiptajöfnuður Pólverja verið
hagstæður. Á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs var hann hagstæður um
1254 millj. D. kr. Til að ná þessu
marki varð útflutningur að aukast
um 10.4% meðan innflutningur
dróst saman um 12.6%.
Efnahags-
bandalagið
hefur ákveðið að verð á stáli í
aðildarlöndum þess hækki um 5%
nú í júlí og einnig hefur það hvatt
meðlimi sína til að herða eftirlit
með verði á innfluttu stáli. Til að
samræma framboðið eftirspurn-
inni hefur Efnahagsbandalagið
sent út lista um það framleiðslu-
magn sem hvert landa þess á að
framleiða á næstu árum. I sumum
tilvikum er um nokkurn samdrátt
að ræða og í öðrum meiri s.s. í
Frakklandi en þar munu um 25000
manns missa atvinnu sína í
stáliðnaði fram til 1981.
Frakkland
Citroén-verksmiðjurnar munu
kynna nýja bílategund á alþjóð-
legri bílasýningu sem haldin
verður í Paris í október. Þessi nýja
tegund hefur fengið nafnið Visa og
mun vera mitt á milli 2CV og GS
módelanna.
Bretland
Breskir sérfræðingar gera ráð
fyrir að launakostnaður þar í landi
hækki um 15% á þessu ári og telja
það jafnframt innan þeirra marka
sem þjóðarbúið fær risið undir.
Skömmu fyrir nýafstaðnar
Alþingiskosningar birtist í
Morgunbl. stefnuyfirlýsing Sjálf-
stæðisflokksins í vegamálum,
samin af málefnanefnd flokksins
sem fjallar um samgöngumál.
Þarna koma fram tillögur um, að
á næstu 15 árum verði gert
stórátak í vegamálum — varanleg-
ir vegir lagðir til allra byggðar-
laga. Tillögunum fylgir einnig
áætlun um, hvernig fjár skuli
aflað til framkvæmda.
í þriðja
og síðasta
áfanga
Ástæða er til að fagna þessum
tillögum og heilshugar tek ég
undir það, að bættar samgöngur
eru eitt okkar stærsta byggðamál
í dag. Ekki get ég þó látið hjá líða
að gera nokkrar athugasemdir við
þessar ágætu tillögur. Mér þykir í
fyrsta lagi einkennilegt, að í þeim
og álitsgerð málefnanefndarinnar,
sem birt er í heild í Morgunbl. h.
11. júní 8.1., sé ég hvergi eftir
hvaða tímaröð hinir ýmsu lands-
hlutar komi inn í framkvæmda-
áætlun í þremur áföngum, nema
hvað því er slegið föstu, að í
þriðja og síðasta áfanga „yrði
lokið við hringveginn og náð
fullri tengingu við Vestfirði og
önnur byggðarlög tengd góðvega-
kerfi.“
Og ég fór að velta fyrir mér,
hver væri skýringin á þessu.
Líklegast væri hún sú, að höfund-
ar áætlunarinnar teldu, að tenging
Vestfjarða við „góðvegakerfið"
væri sú framkvæmd, sem væri
minnst aðkallandi og Vestfirðing-
ar það vel settir að því er
samgöngur varðar að óþarfi væri
að setja þá ofarlega á blað. Líklega
verða þessir sömu menn aldeilis
hissa, þegar ég bendi þeim á þá
hlálegu staðreynd, að daginn áður
en frásögn af áætlun þeirra birtist
í Morgunbl. — yfir þvera forsíðu,
þá tepptist Þorskafjarðarheiðin af
snjó. Baráttufúsir frambjóðendur
(ég hafði sloppið yfir daginn áður)
ásamt fleira fólki sátu þarna fastir
og misstu af fyrsta framboðsfundi
á Vestfjörðum norður í Árnesi þá
um daginn. Við þessu var auðvitað
ekkert að gera annað en að bíta á
jaxlinn og bölva í hljóði — og
dugði reyndar skammt.
Samfellt forað
Þremur vikum seinna, síðasta
dag júnímánaðar, átti ég aftur leið
um sömu heiði. Tveir undanfarnir
dagar hefðu verið þurrir og
sólríkir, en svo tók hann upp á því
að rigna þennan föstudagsmorgun
með þeim raunalegu afleiðingum,
að Þorskafjarðarheiðin varð eitt
samfellt forað frá upphafi til enda.
Oft hafði ég séð hana og reynt
ófrýnilega, en aldrei þessu líka —
á almennum mælikvarða var hún
í mesta lagi „jeppafær“. Og sem ég
öslaði þarna og pældi á minni
þrautseigu Cortinu varð mér
hugsað til snillinganna i málefna-
nefndinni okkar — hvað það væri
nú gaman, að þeir væru komnir
hér norður á heiðina, til að herðast
í sannfæringu sinni um, að tenging
Vestfjarða við „góðvegakerfið"
gæti beðið í 10—15 ár. Kannski
hefðu þeir líka góðfúslega hjálpað
til við að ýta á Cortinuna mína upp
síðasta brattann í „Töglunum",
áður en halla tók suður af, en þá
var rafkerfið búið að fá einum of
mikið af svaðinu og bíllinn kraft-
laus. „Þú hefðir átt að binda
plastpoka yfir kveikjulokið, góða
mín,“ sagði bóndi (einn af þeim
fáu, sem eftir eru í Gufudalssveit-
inni) — er ég hitti í Bjarkarlundi,
þangað komin við illan leik. „Við
gerum það hérna í sveitinni" —
hélt hann áfram — „þegar hann
rignir á heiðinni." Þessu hollráði
er hér með komið á framfæri til
þeirra vegfarenda, sem á næstunni
hugsa til ferðar um Þorskafjarðar-
heiði í rigningu, en eru kannski
ekki alveg eins kunnugir aðstæð-
um og bóndinn í Gufudalssveit-
inni.
Vegleysa en
ekki vegur
I leiðurum Morgunbl. að undan-
förnu hefir umrædd vegaáætlun
Sjálfstæðisflokksins ítrekað verið
gerð að umtalsefni, m.a. í leiðara
s.l. sunnudag undir fyrirsögninni
„Heillandi og stórbrotið verkefni".
Leiðarahöfundur dregur ekki í efa,
að verði Sjálfstæðisflokkurinn
aðili að nýrri ríkisstjórn muni
flokkurinn leggja áherzlu á, að
þessi vegaáætlun verði tekin upp i
málefnasamning. Síðar í leiðaran-
um segir orðrétt: „Morgunblaðinu
er vel ljóst, að slíkar áætlanir
kunna að mæta efasemdum
(léturbr. mín) í þeim landshlutum,
sem ekki eru komnir í vegasam-
band nema hluta úr ári eins og t.d.
á Vestfjörðum. Það er skiljanlegt.
En þessari nýju vegaáætlun sjálf-
stæðismanna er ekki ætlað að
draga úr framkvæmdum við slíka
vegagerð úti á landsbyggðinni.
Hér eiga því hagsmunir einstakra
byggðarlaga ekki að rekast á.“ Hér
er aðeins tæpt á því atriði, sem
skiptir meginmáli: Vegurinn um
Þorskafjarðarheiði, aðaltengi-
braut Vestfjarða við heildarvega-
kerfi landsins, er fær — að
nafninu til — almennri umferð í
aðeins 4—5 mánuði ársins. Þessi
vegur er í rauninni vegleysa,
30—40 ára vegruðningur, sem á
iöngum köflum liggur lægra en
yfirborð heiðarinnar og verður að
ófæru við minnstu úrkomusnjó eða
regn. Með tengingu Djúpvegarins
fyrir tæpum þremur árum færðist
öll þungaumferð frá norðanverð-
um Vestfjörðum yfir á þennan
vesæla veg, sem síðan er í ennþá
ömurlegra ástandi en nokkru sinni
fyrr. Þetta er staðreynd, sem mér
finnst hörmulega sniðgengin af
þeim flokksbræðrum mínum,
höfundum umræddrar vegaáætl-
unar, sem marka tengingu Vest-
Sigurlaug Bjarnadóttir
fjarða stað í síðasta áfanga —
eftir 10—15 ár. Það skilningsleysi
sem hér birtist og skortur á
réttsýni og sanngirni er meira en
svo, að það verði afsakað af
fáfræði og þekkingarleysi á að-
stæðum, sem þó hljóta að vera
ástæðurnar fyrir því, að þeir skuli
láta slíka tillögu frá sér fara, eða
hefði hið „heillandi og stórbrotna
verkefni" ekki verðskuldað nánari
og heildstæðari athugun, meiri
yfirsýn?
Verkefni,
sem ekki þolir
lengri bið
Nú hefir verið talað aðallega um
tvær líklegar leiðir, sem tengingu
Djúpvegar við aðalvegakerfið: um
Þorskafjarðarheiði (Þorgeirsdal)
úr Langadal að Múla í Þorskafirði
eða um Kollafjarðarheiði úr ísa-
firði í botn Kollafjarðar. Ákvörð-
un um, hvor leiðin verður valin
hlýtur nú að vera á næsta leyti.
Hér er um að ræða verkefni, sem
ekki þolir lengri bið — hvað þá
heldur 10—15 ár. Núverandi
ástand er með öllu óviðunandi. Ég
held, að fáir Vestfirðingar geri sér
vonir um að fá veg, hvor heiðin,
sem valin yrði, sem yrði fær allt
árið, heldur einfaldlega vel
uppbyggðan nútímaveg, sem væri
opinn allt að því helmingi lengur
í venjulegu ári en troðningarnir
um Þorskafjarðarheiði í dag. Sem
sagt — veg, sem væri meira en
nafnið eitt. Getur það talizt annað
og meira en einföld sanngirnis-
krafa, að þessari frumþörf Vest-
firðinga í vegamálum verði sinnt,
áður en farið verður út í að
malbika upphækkuðu vegina, sem
fyrir eru í öðrum landshlutum? Og
gæti ekki leiðarahöfundur
Morgunblaðsins fallizt á, að sá
framgangsmáti okkar glæstu
vegaáætlunar gæti í þessu tilliti
afstýrt því að „hagsmunir ein-
stakra byggðarlaga" rækjust
alvarlega á?
Bættir vegir
gera landið
byggilegra
Um þann þátt álitsgerðar sjálf-
stæðismanna, um vegamál, sem
lýtur að fjármögnum fram-
kvæmda skal ég ekki vera langorð
en tek eindregið undir tillögu um
að tekjur ríkissjóðs af umferðinni
renni í stórauknum mæli til
vegagerðar. Það er bæði eðlilegt og
sjálfsagt og hefir verið eitt af
mínum baráttumálum á þingi.
Hugmyndin um, að Byggðasjóður
leggi fram fé til vegagerðar er líka
eðlileg að því leyti, að bættir vegir
gera lándið byggilegra. Ég er hins
vegar hrædd um, að 1000 millj. kr.
árlega úr sjóðnum eöa um þriðj-
ungur af ráðstöfunarfé hans — til
vegagerðar myndi rýra hastarlega
getu hans til að sinna öðrum
verkefnum, sem á honum hvíla og
hann hefir átt fullt í fangi með
fram að þessu. Byggð í landinu
stendur víða enn mjög höllum fæti
í atvinnulegu tilliti ekki hvað sizt
i hinum dreifbýlu landbúnaðar-
héruðum þar sem byggð hefir
verið að grisjast ár frá ári, svo að
liggur við auðn. Bættir vegir einir
saman, þótt mikilvægir séu, ráða
hér ekki bót á heldur þurfa til að
koma fleiri markvissar aðgerðir til
styrktar þessum fámennu
byggðarlögum, sem í dag hanga á
bláþræði. Sem dæmi mætti hér
nefna Gufudalssvéitina í A-Barða-
strandarsýslu. Þeir menn sjá
skammt, sem afgreiða þetta
vandamál með því að yppta öxlum
og slá fram staðhæfingum um, að
það sé síður en svo eftirsjá að
þessu eða hinu „kotinu" og að
heilar sveitir tæmist af fólki.
Sannleikurinn er sá, að hér er ekki
einungis um svokallað „byggða-
mál“ að ræða heldur um leið
mikilvægt öryggismál fyrir al-
menna vegfarendur um langar
mannlausar alfaraleiðir —
óhugnanlega stórar eyður í byggð
landsins. Eg fer ekki lengra út í þá
sálma að sinni.
Meira
en stefnu-
yfirlýsing
Tilgangur þessa greinarstúfs er
fyrst og fremst sá að vekja athygli
á því, sem ég vildi helzt mega telja
mistök af hálfu þeirra ágætu
manna, sem sömdu umrædda
vegaáætlun í nafni Sjálfstæðis-
flokksins. Hér á ég að sjálfsögðu
enn við hina fráleitu tímasetningu
á tengingu Vestfjarða við „góð-
végakerfið". En mistök má leið-
rétta og ég er ekki í vafa um, að
það verði gert í þessu máli, fyrst
í orði síðan á borði — verði þessi
vegaáætlun annað og meira en
stefnuyfirlýsing fyrir kosningar,
sem ég sannarlega vona. Jafn-
framt vildi ég mælast til þess, að
höfundar áætlunarinnar gerðu
opinberlega nánari grein fyrir
útfærslu hennar eins og þeir hafa
hugsað sér hana.
r' Nýjar Uliögnr SjálfstæðisflokksTsamgöngumálum?'
Varanlegir vegir til allra
byggðarlaga á 15árum
Fyrsti 5 ára áfangi kostar 27 þúsundjr
milljónir — Svipað átak fyrir þjóðina)
og gatnagerðin var fyrir Reykvikinga)