Morgunblaðið - 08.07.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978'
Karólína prinsessa af Mónakó og Philippe Junot héldu í vikunni til Papeete á Tahiti en þaðan héldu
þau áleiöis til Ranyiroaeyjaklasans, sem er 320 kílómetra noröaustur af Tahiti. Þar hyggjast þau eyöa
hveitibrauðsdögum sínum. Myndin hér aö ofan var tekin af hjónunum viö komuna til Tahiti.
Minnesota:
Mikið tjón
vegna flóða
Rochestor. Minnesota. 7. júlí. AP.
ÞÚSUNDIR manna misstu heim
ili sín og þúsundir húsa voru án
rafmagns samkvæmt upplýsing-
um yfirvalda eftir að rannsókn
var hafin á skemmdum sem urðu
í miklum flóðum í sfðustu viku
þar sem 5 manns iétu lifið.
Um 80% húsanna í bænum eru
rafmagnslaus og lítil von er um að
viðgerðum verði lokið fyrr en á
laugardag. Um 5000 manns urðu
að yfirgefa heimili sín vegna
flóðanna á miðvikudag en flestir
gátu snúið til baka seinni part
fimmtudagsins.
Fylkisstjóri Minnesota, sem
flaug yfir flóðasvæðið, skýrði frá
því að hann hefði beðið Carter
forseta um að lýsa neyðarástandi
á svæðinu. Tjón vegna flóðanna
hefur verið metið á um 50
milljónir dollara eða um 13
milljarða íslenzkra króna.
Mótmæltu átök-
unum í Líbanon
Afsagnar forsætisráðherra
Baden-Wurtemberg krafizt
Honn. 7. júlí. AP.
HART HEFUR verið iagt að dr. Hans Filbinger,
forsætisráðherra Baden-Wuerttemberg í V-Þýzka-
landi. að undanförnu að segja af sér embætti vegna
dauðadóma sem hann kvað upp er hann gegndi
dómaraembætti fyrir 33 árum.
Fylkisleiðtoginn sem er 64 ára að aldri,
viðurkenndi í fyrradag að fjölmiðlar færu rétt með
að hann hefði dæmt tvo þýzka sjómenn til dauða í
Noregi, er nazistar réðu þar völdum, aðeins tveimur
vikum fyrir stríðslokin. Annar hlaut dóm sinn fyrir
strok og hinn fyrir strok og manndráp. Hvorugum
dómnum var fullnægt þar sem báðir mennirnir voru
flúnir til Svíþjóðar áður en þeir voru dæmdir.
Fyrr á þessu ári var ráðizt á dr. Filbinger í blöðum
vegna þess að hann hefði krafizt dauðadóms yfir 22
ára gömlum liðhlaupa, en sá var líflátinn í Ósló í
mars 1945. Þar til þessar nýju árásir byrjuðu í
blaðinu Stern á fimmtudag, hefur Filbinger haldið
því fram að það mál hafi verið það eina sem hann
hefði átt þátt í varðandi dauðadóma. í útvarpsviðtali
í gær kvaðst hann ekki hafa munað eftir máli
sjómannanna.
Mörg blöð í V-Þýzkalandi hafa krafizt afsagnar
dr. Filbingers og einn flokksbræðra hans í Kristilega
demókrataflokknum hefur tekið undir þau sjónar-
mið. Leiðtogi flokksins í Bremen, Uwe Holweg, lét
þess þó getið að formaður flokksins Helmut Kohl
ætti að ræða við Filbinger um málið, en Kohl studdi
hann mjög í árásunum fyrr á árinu.
Dr. Filbinger hefur hingað til lýst því yfir sér til
varnar að hann hefði aldrei verið nazisti og hann
hefði í starfi á stríðsárunum aðeins hlýtt skipunum
yfirboðara sinna.
Allt fór friðsamlega fram og
lögregla aðhafðist ekkert, enda
þótt nokkrir lögreglumenn fylgd-
ust með mótmælunum úr fjarska.
Rummunga
ákaft leitað
Limerick. íriandi 7. júlí. AP.
ÍRSKA lögregian leitaði dauða-
leit í dag að sex mönnum, sem
rændu póstbíl. í póstbifreiðinni
voru iðnaðardcmantar, sem metn-
ir eru á hálfa milljón sterlings-
punda, eða jaínvirði 242,5 millj-
óna íslenzkra króna.
Sexmenningarnir rændu bifreið-
inni og ökumanni hennar seint á
fimmtudagskvöld, er hann var á
leiðinni til Limerick frá Shann-
on-flugvelli. Skömmu síðar rændu
ræningjarnir öðrum bíl og eiganda
hans og komust undan lögreglunni
í þeim bíl.
Anatoiy Karpov, núverandi heims-
meistari í skák, sést hér svara
spurningum fréttamanna á blaða-
mannafundi í Manilla. Með honum
eru á myndinni Viktor Baturinsky
vara-formaður sovéska skáksam-
bandsins (til vinstri) og Florencio
Campomanes • vara-formaður al-
þjóðaskáksambandsins (FIDE).
Norðurlönd:
Hundaæði vekur skelfingu
HUNDAÆÐI virðist stöðugt
vera að breiðast út um Evrópu-
löndin, en um mánaðamótin
staðfestu yfirvöld 1 Danmörku
hundaæðistilfeili 1 dýrum á
Jótlandi, en sjúkdómurinn hef-
ur ekki fundizt svo norðarlega
áður. Tilfellin voru þrjú í
nágrenni Haderslev og Vojens.
í september í fyrra fannst
fyrsta tilfelli hundaæðis í Dan-
mörku í sjö ár og síðan hafa 44
tilfelli verið staðfest af yfirvöld-
um við Padborg og Tinglev í
nálægð við landamæri Dan-
merkur og V-Þýzkalands. Danir
eru mjög óttaslegnir yfir út-
breiðslu hundaæðisins og hin
Norðurlöndin hafa gert miklar
öryggisráðstafanir af hræðslu
við útbreiðslu sjúkdómsins.
Sænska landbúnaðarráðu-
neytið hefur gefið út yfirlýsingu
þar sem skorað er á alla, sem
minnsta grun hafa um smygl á
hundum til landsins, að tilkynna
það lögreglunni.
Talsmaður ráðuneytisins hef-
ur sagt að ef villt dýr í Noregi
smitist af hundaæði, þá sé
voðinn vís.
HUNDAÆÐI — kettir geta einnig smitast af hundaæði.
Kettlingurinn á myndinni hefur gripið sjúkdóminn.
Stokkhólmur. 7. júlí. AP.
Um 60 líbanskir ríkisborgarar
settust að í líbanska sendiráðinu
í Stokkhólmi í dag, til að
mótmæla ófriðarástandi því, sem
ríkir í Líbanon.
Talsmaður mótmælendanna
sagði, að tilgangur þessara mót-
mæla væri sá að vekja athygli á
þeirri hættu, sem að ættingjum
mótmælendanna steðjar í Líbanon
og að mótmæla bardögum og
vígum í Beirút.
Mótmælendurnir voru bæði
kristnir menn og múhameðstrúar
og komu þeir hvaðan æva að, að
sögn talsmannsins.
ERLENT
Afghanir vilja
bætt samskipti
I'rax 7. júlí. AP.
Þetta gerðist
1976 — 9.000 farast í jarð-
skjálfta á Nýju Guittep.
1971 — 90 farast í jarðskjálfta
í Chile.
1960 — Lumumba biður SÞ um
vernd gegn heríhlutun Belga.
1950 — MacArthur hershöfð-
ingi skipaður yfirmaður herliðs
SÞ í Kóreu.
1940 — Norska stjórnin flýr til
London.
1905 — Frakkar fallast á
ráðstefnu um Marokkó.
1858 — Uppreisn indverskra
hermanna lýkur.
1833 — Dardanellasundi lokað
öllum herskipum nema rúss-
neskum samkvæmt samningi
Rússa og Tyrkja í Unkiar
Skelessi.
1792 — Frakkar segja Prússum
stríð á hendur.
Afmæii dagsinsi Ferdinand
Zeppelin greifi, þýzkur uppfinn-
ingamaður loftskipanna
(1838-1905) - John D.
Rockefeller, bandarískur fjár-
málamaður (1835—1937) — Sir
Arthur Evans, brezkur forn-
leifafræðingur (1851 — 1941)
Neison Rockefeller, fv. varafor-
seti Bandaríkjanna (1908— —)
8. júli
Innlenti Grundarbardagi og
Smiður Andrésson og Jón
skráveifa Guttormsson falla
1361 — Jón Þorláksson verður
forsætisráðherra 1926 — „Gull-
faxi“ kemur 1948 — Bjarg fellur
á langferðabíl í Óshlið og tveir
bíða bana — Laugardalsvöllur
tekinn í notkun 1957 — F.
Ragnar Arnalds 1938.
Orð dagsinst Mennirnir eru
mestu sníkjudýr jarðarinnar —
Martin Henry Fischer, banda-
rískur vísindamaður
(1879-1962). '
NUR Mohammed Tarrakhi, hinn
nýi leiðtogi Afghanistans, sagði í
dag að Afghanistan hefði hafið
undirbúning að því að bæta
samskipti við þau lönd, sem væru
vinveitt hinni nýju stjórn
landsins.
Tarrakhi sagði þetta í viðtali við
málgagn tékkneska kommúnista-
flokksins Rude Pravo. Þá sagði
leiðtoginn að frá því byltingin var
gerð í Afghanistan hefði þúsund-
um fanga verið sleppt úr haldi,
undirbúningur að stofnun verka-
lýðsfélaga hafizt, hundruð skóla
verið stofnaðir og reynt eftir
megni að bæta lífskjörin í landinu.
„Við viljum leika veigamikið
hlutverk í tilraunum til að koma
á friði í nágrannalöndum okkar,“
sagði Tarrakhi.