Morgunblaðið - 08.07.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 10 — 11
FRÁ MANUDEGI
gamlir sósíalistar sem sannleik-
ann hafa sagt um þetta helkerfi.
Var það ekki Krúsjoff sem fletti
helgigrímunni af Stalín?
Þjóðviljamenn hafa örugglega
vitað eins vel og Hjalti, að þegar
uppreisnin var gerð í Ungverja-
landi, þá var hann búinn að segja
þetta: „Bændurnir urðu að láta af
hendi afurðir sínar á því verði,
sem stjórnin setti, 1% af þjóðinni
var í fangabúðum, lífskjör fólksins
fóru síversnandi og enginn mátti
um frjálst höfuð strjúka." Það
hefur verið föðurlandsástin, sem
rak ungversku sósíalistana til þess
að berjast með Rússum, þegar þeir
réðust inn. í Ungverjaland. Ekki
stóð þá á Þjóðviljanum að skamma
Heimdellinga og stúdenta, sem þá
mótmæltu við rússneska sendiráð-
ið. Ef þeir hefðu ekki gert það, þá
hefðum við verið eina þjóðin í
hinum frjálsa heimi sem ekki
mótmælti.
Alþýðublaðið spurði nokkur
íslenzk skáld um álit þeirra á
aðgerðum Rússa. Þeir sem voru
sósíalistar afsökuðu þetta, en
Snorri Hjartarson svaraði eins og
Orwell og Freda Utley og Steinn
Steinarr hefðu gert.
Nei, íslensku sósíalistarnir eru
eins og sósíalistar allra landa, þeir
kyrja ennþá sama sönginn:
„Stalín, Stalín, blessuð séu verk
þín,. því þú varst sá besti fram-
kvæmdastjóri sem sósíalisminn
hefur átt.
Húsmóðir.“
Öllu fleiri eru orð „Húsmóður"
ekki, og skal engu við þau bætt. En
á, eftir fer smá helgarhugleiðing
um andann og efnishyggjuna:
• Of upptekinn?
„Mig langar gjarnan til að fá að
beina nokkrum orðum til lesenda
Velvakanda. í dag ræður efnis-
hyggýan svo miklu yfir hinum
siðmenntuðu þjóðum að harla
erfitt er það fyrir manninn að gefa
sér tíma til andlegra hugleiðinga,
sbr. þú skalt tilbiðja Guð þinn í
anda og sannleika, sem er hverjum
manni nauðsyn.
Tæknin hefur gert það að
verkum að við erum farin að
treysta á hana í flestum tilfellum
og trúin þar af leiðandi á Guð
farið síminnkandi. En þó við
viljum ekki viðurkenna tilvist
hans segir heilög ritning eitthvað
á þá leið að örvæntingarfull
tilraun mannsins til að fylla það
tóm, sem skapaðist er maðurinn í
upphafi sneri sér frá skapara
sínum veði ekki brúað með fyll-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í vor lagði Viktor Korchnoi,
áskorandi Karpovs um heims-
meistaratitilinn í skák, leið sína til
Noregs, þar sem hann tefldi m.a.
nokkur fjöltefli. Staðan hér að
neðan er frá einu þeirra. Það er
Korchnoi sem hefur hvítt og á leik
gegn Petter Stigar, Noregi.
20. Rg6+! — hxg6 21. hxg6+ og
svartur gafst upp. Eftir 21.... Kg8
22. Hh8+! - Kxh8 23. Dh2+ - Kg8
24. Dh7 er hann mát.
ingu nema með endurnýjun sam-
bandsins við Guð.
Verum því ekki of sjálfumglöð
til að hugsa um hann, ekki of stolt
né ástfangin, ekki of upptekin og
gömul svo það verði ekki of seint
einn góðan veðurdag. Látum mun-
að efnishyggjunnar ekki tefja
fyrir okkur með of mikilli vinnu
með það að kynnast Jahve, því
efnishyggjan seður ekki hungur
mannandans en Jahve seður allt
sem lifir.
Með kærri þökk fyrir birting-
una,
Einar Ingvi Magnússon.“
• Er bjórinn
lausn?
Fylgjandi bjórs á íslandi:
— Nú er þessi blessuð „Læra-
gjá“ nokkuð umtöluð og finnst
sumum sem helzt beri að loka
henni fyrir öllum böðum bæði að
nóttu og degi að því er virðist. Það
er venjan hjá okkur að segja bara
loka og loka og banna og banna,
það er alltaf lausnin virðist vera.
Ég vil benda á að á n efa myndi
ástandið lagast mikið ef einhvers
staðar væri opin bjórkrá fram
eftir nóttu þar sem menn gætu
setið og drukkið eins og þá lystir,
en þyrftu ekki að vera að þvælast
fyrir öðrum úti á víðavangi. Má í
því sambandi benda á að sú
„auglýsing" sem er jafnan fyrir
vitum ferðamanna á Loftleiða-
hótelinu myndi e.t.v. hverfa. Bjór-
inn er líka ágætis svefnmeðal og
þá myndu menn e.t.v. ekki vaka
svona lengi fram eftir við drykkj-
una eins og oft gerist nú.
• Eru þeir
sigurvegarar?
Birgir Jónasson sagðist vilja
spyrja að því hvers vegna Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag væru
alltaf „titlaðir" sem sigurvegararv
eftir kosningarnar, þeir væru alls
ekki stærstu flokkarnir þótt þeir
hefðu bætt nokkru við sig. — Er
það líka alveg gefið að þeir eigi að
standa að stjórnarmyndun? spurði
Birgir og benti á að þessir flokkar
væru í minnihluta og því væri
vafasamt að tala um þá sem
sigurvegara.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Þetta er kvikmynd... „þetta er betra!"
gerðu eitthvað!“
Frá verðlaunaafhendingunni síðastliðinn þriðjudagi Frá vinstri eru
Elva Björk Garðarsdóttir. Sigríður Erla Baldursdóttir, Jimmy trúður
Helga Aðalheiður Jónsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir.
Ungar stúlkur sigruðu
í textasamkeppninni
BANDALAG íslenzkra skáta
efndi til lita- og textasamkeppni
í Morgunblaðinu fyrir skemmstu,
þar sem börnum 12 ára og yngri
var gefinn kostur á að lita mynd
af Sirkus Gerry Cottle, sem sýnt
hefur í Laugardalshöll. Á
sýningu sirkusins siðastliðinn
þriðjudag voru verðlaun afhent.
Þrjár ungar stúlkur komu með
beztu textana og fengu 10 boðs-
miða á sýninguna hver.
Elva Björk Garðarsdóttir, 10
ára, sendi inn slagorðið: „Frægt er
orðið um víðan völl, að nú verði
sirkus í Laugardalshöll."
Helga Aðalheiður Jónsdóttir, 10
ára, sendi slagorðið: „Sirkus vekur
mikinn hlátur, svo keyptu miða og
vertu kátur.“
Sigríður Erla Baldursdóttir
séndi slagorðið: „Sirkus allir vilja
sjá, skemmtun þessi er sú bezta að
fá.“
Verðlaunin afhenti Sigríður
Þorvaldsdóttir leikkona, sem er
kynnir á sýningum sirkusins.
Fundur norrænna
stúdentaráðsfor-
manna í Reykjavlk
Fyrir nokkru var haldin í
Reykjavík ráðstefna
norrænna stúdentaráðsfor
manna og í frétt frá stúdenta-
ráði segir að umræður hafi
verið hinar gagnlegustu og
meðal umræðuefna var at-
vinnuleysi meðal stúdenta og
atvinnuhorfur að námi
loknu.
Þá var rætt um fjármögnun
náms og hvernig þeim málum
væri komið á Norðurlöndum.
Vöktu íslenzku fulltrúarnir
máls á þessu vegna hins mikla
fjölda íslenzkra námsmanna
erlendis og segir í frétt frá
stúdentaráði að fáir þurfi
sennilega að búa við jafn
ömurleg kjör og íslenzkir
námsmenn, að þurfa að taka
vísitölubundin lán.
Á fundinum voru gerðar
ályktanir um ýmis alþjóðamál
m.a. í „tilefni mannréttinda-
skerðingar er arabíska
stúdentanefndin í Jerúsalem
varð fyrir „og er krafizt m?á.
að nefndin" fái aftur rétt sinn
til að efna til samkomna á
háskólasvæðinu." Þá var sam-
þykkt tillaga um málefni
Suður-Afríku. Næsta ráð-
stefna af þessu tagi verður í
Osló í desember.
Sendíherra Alpýöulýöveldisins Kóreu afhendir forseta íslands
trúnaðarbréf sitt aö viöstöddum utanríkisráðherra.
Sendiherrar afhenda forseta
íslands trúnadarbréf sín
Nýskipaður sendiherra Thai-
lands hr. Chet Navarat og nýskip-
aður sendiherra Alþýðulýðveldisins
Kóreu hr. Chon Gi Gap afhentu í
dag forseta íslands trúnaðarbréf
sín aö viðstöddum utanríkisráö-
herra Einari Ágústssyni.
Síðdegis þágu sendiherrarnir
boð forsetahjónanna að Bessa-
stöðum ásamt nokkrum fleiri
gestum.
Sendiherra Thailands hefur að-
setur í Kaupmannahöfn og sendi-
herra Alþýðulýöveldisins Kóreu
hefur aðsetur í Stokkhólmi.
(Frá skrifstofu forseta íslands)