Morgunblaðið - 12.07.1978, Page 1

Morgunblaðið - 12.07.1978, Page 1
32 SÍÐUR 147. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Lokuð réttarhöld í máli Shcharansky Moskvu, 11. júlí. AP. Reuter SOVÉZKIR dómstólar sökuðu í dag andófsmanninn Anatoly Shcharansky um að afhenda bandarískum fréttamanni ríkis- leyndarmál ok sökóu að kona andófsmannsins Alexander Ginz- burgs hefði hótað vitni lifláti. Ákveðið var að réttarhöldin Ke^n Shcharansky færu fram fyrir luktum dyrum í dag af öryKKÍsástæðum ok í réttar- höldunum KCKn GinzhurK var kona hans, Irina, rekin út þcKar hún hrópaði að vitni ákæruvalds- insi „Guð mun Vefsa þér.“ Shcharansky á yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hafa afhent bandarískum njósnurum vísinda- leg og hernaðarleg leyndarmál og í dag var gefið í skyn að frétta- maðurinn Robert C. Toth frá Los Angeles Times væri einn þeirra. Hversvegna jarðskjálfti? Washington 11. júlí — Reuter. BANDARÍSKIR vísindamenn vonast til að geta leyst þá ráðgátu hvcrs vegna jarð- skjálftar eiga sér stað með því að bora 1.6 km. holu á hafsbotni. Bandaríska vísindastofnun- in segir að rafeindatæki sem vcrði komið fyrir í jarðskorp- unni geti varpað nokkru ljósi á málið. Irina kona Alexander Ginzburgs. sem er fyrir rétti í Moskvu. talar við fréttamenn fyrir utan dóm- húsið í Moskvu þar sem réttar- höldin fara fram. Fréttastofan Tass sagði að vitnaleiðslum væri lokið í máli Ginzburgs sem á yfir höfði sér fimm ára fangelsi auk fimm ára Síberíuvistar og að yfirheyrslur yfir honum hefðu byrjað strax gær. Tass sagði að vitnin hefðu meðal annars verið spurð hvernig Ginz- nurg hefði notað fé sem hann hefði fengið frá rithöfundinum Alex- ander Solzhenitsyn til að hjálpa pólitískum föngum. Fréttastofan sagði að vitni hefðu sagt að Ginzburg hefði notað féð til að kaupa tryggð andófsmanna. Eitt vitnanna var að sögn Tass, Leonid Tsypin, einn af baráttu- mönnum Gyðinga sem hefur iðrazt opinberlega. Annað vitni var Sasha Zakharov, viðgerðarmaður í byggingunni þar sem Toth bjó. Hann var sagður hafa fundið skjöl með rithönd Shcharanskys. Enn eitt vitnið var „Ted“ Rukhadze, fréttamaður fréttastofunnar Novosti, sem snæddi oft með Toth. Yfirvöld kvöddu einnig sem vitni Zinaida Popova þýðanda Los Angeles Times sem vann með Toth en hún sendi læknisvottorð og kvaðst ekki geta mætt. Toth var Framhald á bls. 18 Konur úr samtökum sem berjast fyrir hagsmunum sovézkra Gyðinga í setuverkíalli fyrir framan sovézka sendiráðið í London til að mótmæla réttarhöldunum gegn Schcharansky í Moskvu. Logandi gasbíll varð tugum að bana á Spáni Tarragona 11. júlí. AP. Reuter Lögreglumenn höfðu fundið 180 lík í kvöld í tjaldbúðum nálægt Tarragona við strönd Miðjarðar- hafs eftir sprengingu í vörubíl hlöðnum bútangasi en töldu að miklu fleiri hefðu farizt í sprengingunni og mörg hundruð slasazt. Vörubílafyrirtæki í Madrid tók á sig ábyrgðina á slysinu sem er talið hið mesta sinnar tegundar í heiminum og sagði að hafin væri rannsókn til að ganga úr skugga um kringumstæður slyssins. Sprengingin varð þegar 38 tonna gasflutningabíll hlaðinn bútangasi valt í beygju og hentist inn í tjaldbúðirnar yfir steinvegg við veginn frá Castellon til Tarragona um 75 km suður af Barcelona. Bíllinn rákst á steinvegginn áður en sprengingin varð og mörg hundruð bútanflöskur brotnuðu Frú Gandhi Stjórn Desais ákærir Gandhi Nýju Delhi 11. júlí. Reuter. LÖNG og flókin málaferli hófust í dag gegn frú Indiru Gandhi fyrrverandi forsætisráðherra mcð því að indverska rann- sóknarlögreglan (CBI) ákærði hana fyrir lögbrot á tíma neyðar- ástandslaganna sem stóð í 21 mánuð og lauk með kosninga- ósigri hennar í marz í fyrra. Frú Gandhi er fyrst og fremst kærð fyrir handtökur leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Tvær aðrar ákærur eru bornar fram gegn henni og fjalla um meint ólöglegt varðhald sjö manna sem skrifuðu henni til að mótmæla ritskoðun blaða og öðrum ráðstöfunum á tíma neyðarástandslaganna og um áreitni gegn embættismönnum sem rannsökuðu kaupsýslustarf- semi sonar hennar, Sanjay Gandhi. Sanjay Gandhi er kærður ásamt móður sinni og auk þeirra Vidya Charan Chukla fyrrverandi upp- lýsingaráðherra, Bansi Lal og P.C. Sethi fyrrverandi ráðherrar og Zail Singh og Harideo Joshi fyrrverandi yfirráðherrar fylkis- stjórna. Ákærurnar fjalla meðal annars um glæpsamlegt samsæri, Framhald á bls. 18 Viðræður í skugga réttarhalda Gení 11. júlí. Reuter — AP. CYRUS Vance utanríkisráð- herra Bandaríkjanna kom til Genfar í kvöld til tveggja daga viðræðna við Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkj- anna um takmörkun kjarn- orkuvígbúnaðarins. Viðræðurnar hefjast á morg- un og fara fram í skugga réttarhaldanna í Moskvu gegn andófsmönnunum Anatoly Shcharansky og Alexander Ginzburg. Vance hefur fallizt á að ræða við konu Shchar- ansky að loknum viðræðum sínum við Gromyko. Bandarískur embættismaður sagði að Vance mundi líka leggja áherzlu í viðræðunum Framhald á bls. 18 Vance Gromyko að sprengingin varð miklu kröftugri en ella að sögn lögreglunnar. Þar að auki kom sprengingin af stað keðju- sprengingum í gaseldatækjum tjaldbúa. Flestir þeirra sem fórust voru franskir og þýzkir skemmtiferða- menn en einnig nokkrir brezkir, hollenzkir, belgískir og spænskir. Margar fjölskyldur fórust. Um 300 voru fluttir í sjúkrahús með alvarleg brunasár og margir þeirra eru í lífshættu. Tala slasaðra var talin vera á bilinu 200 til 600 í kvöld. Gasbíllinn var á um 60 km hraða þegar hann valt í beygjunni og þeyttist eins og eldknöttur inn í búðirnar. Eldtungur umluktu tjaldbúðargestina eftir sprenginguna. Sumir þeyttust um 150 metra vegalengd í sjóinn og nokkur lík fundust í sjónum eftir slysið. Brunnin lík þeyttust allt að 1.000 metra vegalengd að sögn sjónarvotta. Langflest líkin sem hafa fundizt eru óþekkjanleg. Um 1.000 ferða- menn, flestir aðeins klæddir baðfötum, voru í tjaldbúðunum sem eru um sex kilófhetra frá San Carlos de la Rapita rétt sunnan við Tarragona. Sprengingin varð um hádegisbil þegar margir tjald- búðargestir sátu að snæðingi eða höfðu lagt sig eftir hádegisverð. Tólf hús í grennd við tjaldbúða- svæðið og diskótek eyðilögðust og Framhald á bls. 18 Kína hættir að aðstoða Albani Peking 11. júlí. Reuter. KÍNVERJAR hafa bundið enda á alla efnahagslega og tæknilega aðstoð við Albani, sem eitt sinn voru nánustu bandamenn þeirra, í kjölfar harðra árása stjórnar- innar í Tirana á stefnu Kínverja að því er haft var eftir diplómöt- um í Pcking í dag. Fréttin fékkst ekki staðfest þegar í stað en diplómatarnir í Peking segja að Kínverjar hafi skýrt Albönum frá ákvörðun sinni í orðsendingu síðastliðinn föstudag. Samskipti þjóðanna hafa sífellt orðið stirðari á síðari árum og árásir Tirana-stjórnarinnar á stjórnina í Peking hafa aúkizt stig af stigi á síðustu mánuðum. Albanir hafa einkum gagnrýnt þá kenningu Kínverja að heimurinn skiptist í þriðja heiminn, heim iðnvæddra ríkja og heim risaveld- anna. Samkvæmt heimildunum í Peking hafa Kínyerjar aðeins veitt Víetnömum meiri aðstoð en Albönum. Kínverjar bundu enda á aðstoð sína við Víetnama 3. júií vegna harðrar deilu sem er komin Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.