Morgunblaðið - 12.07.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.07.1978, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1978 Portúgalir vilja að Islendingar gangi frá skipasamningum: Neita þeir að taka við 4000 lestum af saltfiski? Myndin var tekin á Kirkju- sandi í gær en þar var verið að flokka og pakka salt- fiski. Portúgalir íhuga nú að neita að taka við um 4000 lestum af saltfiski sem átti að afgreiða í næsta mánuði nema því aðeins að íslendingar gangi frá samningi um smíði fiski- skipa í Portúgal. MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað eftir áreiðanlegum heimildum að Portúgalir íhugi nú að neita að taka við 4000 lestum af saltfiski sem áttu að afgreiðast þangað í næsta mánuði. nema því aðeins að íslendingar gangi frá samningi á a.m.k. einu og helzt þremur fiskiskipum þar í landi. Ilalda Portúgalir því fram að fslenzk stjórnvöld hafi verið búin að gefa jákvætt svar um. að frá skipasamningunum yrði gengið fyrir miðjan þennan mánuð. Gróft reiknað er verðmæti þessara 4000 lesta af saltfiski á hilinu 1350—1500 millj. kr. Eins og frá var skýrt í Morgun- blaðinu á sínum tíma tókust samningar milli Sölusambands ísl. fiskframleiðenda og portúgalskra kaupenda um sölu á 8000 lestum af saltfiski til Portúgal. k’jögur þúsund lestir áttu að afgreiðast strax og er sá farmur farinn úr landi með Eidvíkinni og Mávinum, síðan áttu fjögur þúsund lestir að Landsvirkj- un samþykkir 35% hækkun STJÓRN Landsvirkjunar hcfur samþykkt að óska eftir 35% hækkun á rafmagnsverði til almenningsrafmagnsveitnanna, en það þýðir um 14 — 17% hækkun á raforkuverði til neytenda eftir því hverjar rafmagnsveiturnar eru. Kom þetta fram hjá Halldóri Jónatanssyni, aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar, er hann var spurður að því hvað liði þessum málum 1 gær. Að sögn Halldórs er miðað við að hækkun þessi komi til fram- kvæmda 1. ágúst n.k. en samþykkt þessi hefur verið tilkynnt iðnaðar- ráðherra með ósk um að ríkis- stjórnin heimili hækkunina fyrir sitt leyti, jafnframt því sem leitað hefur verið umsagnar Þjóðhags- stofnunar um hækkunina. Halldór kvað hækkun þessa nauðsynlega til að mæta hækkun rekstrargjalda á árinu vegna óhagstæðra verðlagsbreytinga, en einnig kæmi hér til að fyrsta rekstrarár nýrrar virkjunar — í þessu tilfelli Sigölduvirkjunar, væri ávallt fjárhagslega erfitt. I'ramhald á bls. 18 afgreiðast í ágúst n.k. og það er sá fiskur sem Portúgalir íhuga nú að neita að taka á móti, nema gengið verði að ofangreindum skilyrðum. Portúgalir halda því einnig fram að þrátt fyrir margendurtekin loforð íslendinga um aukin kaup á vörum frá þeirra landi, gangi viðskiptaaukningin alltof hægt og íslendingar séu enn með alltof hagstæðan greiðslujöfnuð við landið. Benda Portúgalir á, að Norðmenn standi miklu betur að vígi í þessum efnum, en engu að síður eigi saltfiskverkun þeirra við gífurlega erfiðleika að etja og að Norðmenn þrýsti stöðugt á um að Portúgalir kaupi saltfiskinn það- an. Þegar portúgalska viðskipta- Framhald á bls. 18 Fjöldauppsagnir yfir- vofandi í fataiðnaðinum Fyrirtæki eiga við mikla erfiðleika að etja og stöðvun blasir við að óbreyttu ástandi ÍSLENZKI fataiðnaðurinn á við gifurlega erfiðleika að etja um þessar mundir og samkvæmt upp- lýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað, mun koma til fjöldaupp- sagna í þessari atvinnugrein á næstu vikum ef ástandið breytist ekki til batnaðar. í fataiðnaðinum starfa nú um 2000 manns. Fataframleiðendur áttu í gær fund með stjórn Félags íslenzkra iðnrekenda um hina erfiðu stöðu fataiðnaðarins og verður fundinum haldið áfram í dag. Fyrir fundinum í gær lágu ítarlegar upplýsingar um stöðu íslenzks fataiðnaðar í dag. Tals- menn iðnaðarins vildu í gær ekki skýra frá innihaldi skýrslanna, sem fyrir lágu en sögðu að blaðamönn- um yrði gerð grein fyrir stöðunni í dag. Byggingariðnaðurinn: Óttast erfitt atvinnu- ástand næsta vetur HORFUR eru á því að atvinnuástand innan byggingariðnaðarins geti orðið mjög erfitt á vetri komanda, enda er þegar farið að gæta samdráttar t.d. í sölu sements, eins og komið hefur fram, þó að full atvinna sé enn sem komið er. Að því er bæði Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna og Gunnar Björnsson, formaður Meistarasambands byggingarmanna tjáðu Mbl. í gær er áberandi nú að mun minni eftirspurn er eftir vinnuafli innan byggingariðnaðar- ins og ekki sú gífurlega þensla sem verið hefur. Morgunblaðinu er þó kunnugt um að í skýrslunum kemur fram að fataiðnaðurinn á við margvíslega erfiðleika að etja um þessar mund- ir. Launakostnaður hefur stórlega hækkað. Laun hafa hækkað um 185% á síðustu 30 mánuðum á sama tíma og gengi Bandaríkjadollars hefir hækkað um 52%. Verður launakostnaðurinn sífellt stærri liður í rekstrarkostnaði fyrirtækj- anna. í júnímánuði einum hækkaði kaup um 25% og fyrirsjáanleg er 10% hækkun í september. Vegna kostnaðarhækkana hefur fataiðnað- urinn orðið fyrir sífellt harðnandi samkeppni innflutts fatnaðar. Þá hefur hin mikla verðbólga kallað á aukna rekstrarfjárþörf og fjár- magnskostnaður hefur margfaldazt. í skýrslunum kemur fram að við óbreytt ástand verði ekki hjá því komizt að fyrirtæki í fataiðnaði neyðist til að stöðva starfsemi sína og segja starfsfólki upp störfum í stórum stíl. Skattskrá- in væntan- leg í júlílok SKATTSKRÁIN í Reykjavík mun koma út fyrri hluta sfðustu viku júlimánaðar eða einhvern daganna 25.-27. júlí samkvæmt upplýsingum Gests Steinþórssonar skattstjóra, en heildartala álagðra gjalda hjá skattheimtunni liggur ekki fyrir ennþá. 22% hækkun á sterku víni 20% hækkun á tóbaki Benedikt sagði þó, að ekkert atvinnuleysi væri i greinum bygg- ingarmanna en hann taldi líklegt að það ástand ætti eftir að breytast þegar liði fram á árið og kvaðst óttast að næsti vetur gæti orðið mjög erfiður. Gunnar Björnsson tók í sama streng. Næg atvinna væri almennt innan byggingariðnaðarins en hins vegar mun auðveldara að fá menn í vinnu og greinilegt að margt manna væri í ýmiss konar snatt- vinnu. Hann taldi að óbreytt ástand mundi haldast út þetta sumar og fram á haustið en þegar líða tæki á haustið og veturinn taldi Gunnar að ástandið gæti orðið mörgum erfitt. Það væri þó ekki af því að verkefni skorti í byggingariðnaðinum heldur væru fyrirtæki í þessari grein farin að verða tilfinnanlega vör við fjár- skort. ALLAR áfengisútsölur landsins eru lokaðar í dag vegna hækkun- ar á áfengi sem gengur í gildi á morgun, en lokað er vegna þess tíma sem fcr í verðbreytingar. Sterkir drykkir hækka allir um 22%, cn borðvín, sherry og portvín hækka um 18%. Þá hækkar allt tóbak um 20%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.