Morgunblaðið - 16.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.1978, Blaðsíða 1
151. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaósins. Forseti skipar Youngaðþegja Bonn. 15. júlí — Reutcr. CAIITER Bandaríkjaíor.seti skip- aði sendiherra Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Andr- ew Youn^. að hafa hljótt um si« eftir að sendiherrann gaf víð- fræga yfirlýsingu sína um póli- ti'ska fanga í Bandarikjunum. að sögn handarískra embættis- manna. Forsetinn á að hafa sagt Young, að athugasemd hans hefði verið röng og klaufalega tímasett og hefði unnið Bandaríkjunum ógagn. Mun forsetinn einnig hafa skilað því til Youngs, að þvílíkt mætti ekki endurtaka sig. Talsmönnum stjórnarinnar kom saman um að tilmælin bæri ekki að skilja sem svo að sendiherrann fengi héðan í frá ekki að láta álit sitt í ljós, en þess myndi vænst að hann hagaði orðum sínum í samræmi við opinbera stefnu stjórnarinnar. Ennfremur kom fram að ekki hefði verið rætt um hugsanlega afsögn Youngs á fundi hans með Vance í Genf, en það var banda- ríski utanríkisráðherrann, sem flutti honum skilaboð forsetans. Nýtt gullæði í Frakklandi París 15. júlí — AP 1>ÓTT flestir snúi þeir aftur tóm- hentir virðist það ekki aftra þeim. búsundir fjálgra gulleitarmanna hafa að undanförnu anað út um sveitir Frakklands með reku og haka í lcit að földum f jársjóðum. Að sögn sérfra-ðinganna cr um dálag- legar fúlgur að ræða undir gras- sverði og glitrandi stöðuvötnum Frakklands. Margir sjóðanna hafa legið óhreyfðir í meira en 2000 ár, aðrir eru nýrri af nálinni og aðeins áratuga gamlir. Mest kvað vera um gull og tímans tönn vinnur seint á gulli. Nú hafa ákafamenn skrifað bók til aðstoðar gullgröfurunum, þar sem getið er um 248 líklega staði. „Það er sama tilfinningin sem knýr gullleit- armanninn áfram og veiðimanninn,“ segir annar hQfundur bókarinnar, Henri Tell. „Fólk ætti að grafa eftir öllum landsins fjársjóðum í Peres afar bjartsýnn I.ondon — 15. jiilí. \I*. FYRRVERANDI varnarmálaráð- herra Israels og leiðtogi stjórnar- andstöðu. Shimon Peres. hefur sagt að friðarhorfur í Mið-Aust- urlöndum séu nú betri en nokkru sinni fyrr. Peres lét þetta álit sitt í ljós við fréttamenn í London. en þar er fyrirhugað að ráðstefna utanríkisráðherra Egyptalands. ísraels og Bandarikjanna hefjist á þriðjudag. tómstundum... Er það ekki verald- leg íklæðning ástarinnar að grafa eitthvað upp sem legið hefur og beðið um aldabil?" spyr hann. Meðal staða, sem nefndir eru og koma til greina er Calvi á Korsíku- strönd, þar sem skúta hlaðin gulli sökk árið 1869 og land í nágrenni Chateuneuf-kirkju við Marseille. Eldsumbrot á Krakatá Jakarta. 14. júlí — Reuter. ELDFJALLIÐ á Krakatá. sem olli mestri sprengingu er um getur í mannkynssiigunni og drap 36000 manns fyrir 95 árum. mun hafa látið á sér bæra í dag og greindu vísinda- menn og blaðamenn frá því að fjallið hefði gosið á tíu mín- útna fresti. Þýzkur framkvæmdastjóri gistihúss á ströndinni nærri bænum Labuhan sagði -frétta- mönnum, að umbrotin hefðu byrjað klukkan þrjú á miðviku- dag og virtist sér sem stöðugt liði skemmra ntilli hrinanna. Krakatár-eyjarnar eru fjórar talsins um 50 kílómetra vega- lengd frá vesturodda Jövu. Núverandi eldsumbrot munu eiga sér stað á lítilli eldfjalla- eyju með nafninu Anak Kraka- tá pg mun eyja þessi hafa risið úr hafi um 44 árunt eftir að hamfarirnar urðu 1883. Er eyjan um 120 metrar á hæð. Framhald á bls. 46. A myndinni sjáum við goshverinn Strokk íHaukadal ííullum skrúða. Það eru danskir kórfélagar, sem komu í heimsókn til landsins fyrir skemmstu, sem mæna hér upp á undrið. Verður árangur af Bonnfundinum í dag? Frankfurt — 15. júlí. AI' JIMMY Carter. Bandaríkjafor- seti. olnbogaði sig gegnum fagn- andi mannþröng í Frankfurt í dag og heilsaði fólki glaðhlakk- andi líkt og hann a>tti í kosninga- baráttu. Einnig hélt hann stutta ra'ðu þar sem hann lét í Ijós þá ósk að takast mætti að sameina býzkaland á ný ( samra>mi við Bidur Carter um vægari úrskurd? Washington. 15. júlí. Al’. Keuter. EIGINKONA sovéska andófs- mannsins Anatoly Scharansky kom til Bandarfkjanna i dag til að reyna að hafa áhrif á viðhrögð ráðamanna þar við þeirri ákvörð- un Sovétríkjanna að dæma eigin- mann hennar til 13 ára nauðung- arvinnu og fangelsisvistar. Sam- kva-mt aðstoðarmönnum Carters forseta, sem nú ferðast um Vestur-Þýzkaland. munu Banda- rikjamenn fara fram á það við sovésk yfirvöld að þau kveði upp annan vægari dóm yfir Shchar- ansky. Frú Shcharansky kom fram í sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum skömmu eftir komu sína þangað og ræddi hún þar við öldunga- deildarþingmanninn Alan Cran- ston, sem sagði við hana: „Þú ert komin á stað þar sem Tólk mun ekki liggja á liði sínu.“ Frúin kom frá París og hafði áður skorað á stjórnir vestrænna rikja að slíta öllum menningarlegum og vísinda- legum samskiptum við Sovétmenn. I Washington veltu menn vöng- um yfir því í gær hvort yfirvöld þar myndu freista þess að fá Shcharansky og Ginzburg skipt Framhald á bls. 38 vilja ..hinnar stórkostlegu þýzku þjóðar". Ilelmut Schmidt kanzlari hefur fylgt forsetanum. og eiginkonu hans Rosalynn og dóttur á ferð þeirra um Vestur-Þýzkaland. þar sem forsetanum hefur hvarvetna verið vel tekið. Kanzlarinn sagði í dag að heimsóknin staðfesti „og a'tti að staðfesta" hernaðarlegan samstarfsvilja bandarísku og vestur-þýzku þjóðarinnar. Kom fram hjá honum að hann þættist þess fullviss að sjöveldafundur- inn um efnahagsmál. sem hefst í Bonn í dag. sunnudag. a'tti eftir að verða árangursríkur í því að stuðla að meira atvinnuöryggi og hagstæðari efnahagsskilyrðum. ..Öryggi okkar hvílir á traustari efnahagslegri undirstiiðu." sagði hann. Carter fór einnig ásamt fjöl- skyldu sinni til Berlínar á laugar- dag þar sem hann fetáði í fótspor forvera síns, John F. Kennedys. Kennedy hafði fyrir 15 árum vakið óskoraða hrifningu með ræðu í Vestur-Berlín, þar sem hann hrópaði „Ich bin ein Berliner" eða „Eg er Berlínarbúi'* 1. Carter lauk hins vegar ræðu sinni með orðun- um „Was immer sei, Berlin bleibt frei“ eða „Hvað svo sem gerist verður Berlín ávallt frjáls“. Yfir- völd í Austur-Berlín auðsýndu óánægju sína með för Carters til Framhald á bls. 46. Þorpi eytt í Rhódesíu Salisbury 15. júli — AP IIERNAÐÁRYFIRVÖLD í Rhódes- íu skýrðu frá því í dag að þjóðcrnissinnaðir blökkumenn hefðu strádrepið nær alla íbúa þorps cins i landinu. en tala dauðra. sem gefin er upp. er 21. Þetta er í þriðja sinn sem hern- aðaryfirvöld saka uppreisnarmenn um fjöldamorð saklausra borgara á undanförnun þremur vikum. Sagði talsmaður hersins, að í þetta sinn hefði aðeins einn íbúi þorpsins lifað af og væri hann nú á sjúkrahúsi þungt haldinn. Þorpið, sem um er að ræða er um 150 km norður af Salisbury á slóðum Zwimba-ætt- flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.