Morgunblaðið - 21.07.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
3
„Vel kemur til greina
ad Alþýduflokkurinn
myndi minmhlutastjóm”
— segir Ami Gunnarsson
ÁRNI Gunnarsson ritstjóri og
alþingismaður segir í leiðara
sem hann ritar í Alþýðublaðið
í gær, að það sé hans skoðun
að vel komi til greina að
Alþýðuflokkurinn myndi einn
minnihlutastjórn, ef vinstri
stjórnar umræðurnar fara út
um þúfur. í leiðaranum segir
Árnii
„Alþýðuflokkurinn hefur gert
tilraun til að mynda nýsköpun-
Jarðýtan rann í
veg fyrir fólksbíl
Hólmavík, 20. júlí.
ÞAÐ óhapp varð síðari hluta dags
í gær, að lítil fólksbifreið lenti
framan á jarðýtu og skemmdist
mikið. Ökumaður hílsins meiddist
töluvert á fæti og var fluttur til
læknis, en kona sem sat í framsæt-
inu við hlið ökumannsins slapp að
mestu ómeidd.
Nánari tildrög óhappsins voru
þessi: Stór vörubifreið var að flytja
jarðýtu á palli. Þegar kom að
svokallaðri Grind yzt á Gálmaströnd
í Steingrímsfirði kom á móti flutn-
ingabílnum lítil Toyota fólksbifreið.
Þannig hagar til á þessum stað að
blindbeygja er á veginum, þar sem
beygt er fyrir Grindina. Bílstjóri
vörubílsins segist hafa verið á hægri
ferð eða 35 km. hraða og dregið úr
ferð í beygjunni. Þá birtist fólksbíll-
inn snögglega, en ökumaður vöru-
bílsins beygði til hliðar til að forðast
árekstur. Við það lenti hann á steini,
hnykkur kom á bílinn og jarðýtan
rann af pallinum. Toyotabíllinn lenti
þá framan á tönn jarðýtunnar með
áðurgreindum afleiðingum.
Mikið lán var að ekki hlauzt
manntjón af óhappinu.
Andrés.
arstjórn. Hún mistókst. Nú
gerir hann tilraun til að mynda
svokallaða vinstri stjórn. Fari
sú tilraun einnig út um þúfur
er ljóst, að Alþýðubandalagið
eða Framsóknarflokkurinn
hafa ekki þor til að taka að sér
stjórn efnahagsmálanna.
Verði enginn árangur af
þeirri tilraun, sem nú er gerð,
eru ekki margir möguleikar
fyrir hendi um myndun meiri-
hlutastjórnar. Þá hafa stjórn-
málaflokkarnir gerst brotlegir
gagnvart kjósendum sínum,
sem vonast hafa eftir sterkri
ríkisstjórn til að bjarga þjóð-
inni frá bráðum voða.
Það er skoðun leiðarahöfund-
ar, að vel komi til greina að
Alþýðuflokkurinn myndi einn
minnihlutastjórn. Hann fari
ekki fram á hlutleysi nokkurs
flokks, heldur leggi fram tillög-
ur sínar í efnahagsmálum og
setji ákveðin tímamörk á
árangur. Þessar tillögur og
tilgangur þeirra verði rækilega
kynntur þjóðinni."
Stjóm Vinnuskólans fal-
ið að kanna launahækkun
ÁBORGARRÁÐSFUNDI á
þriðjudag var stjórn Vinnuskóla
Reykjavíkur falið að kanna hvort
unnt sé að greiða unglingunum,
sem starfa við hann, hærri laun
þær tvær vikur sem eftir eru af
starfseminni í sumar. Björgvin
Guðmundsson. borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins. sagði Morgun-
blaðinu að sín hugmynd væri, að
athugað yrði hvort ekki væri
hægt að borga unglingunum í
Vinnuskólanum sama vfsitölu-
álag og verkamenn fengu 1. júlí
s.1.
I kröfugöngu, sem unglingar í
Vinnuskóla Reykjavíkur fóru fyrir
nokkru, var farið fram á hærri
laun og vinnu í ágúst. Björgvin
sagði að ekkert hefði verið rætt
um framlengingu á starfsemi
skólans á fundinum.
er grilltíminn
Nauta-T-bone ...................... kr. 2.240 - kg.
Nauta-grillsteik .................. kr. 1.480- kg.
Nauta-bógsteik .................... kr. 1.480- kg.
Nauta-snitchel .................... kr. 4.600- kg.
Nauta-roast ....................... kr. 3.840 - kg.
Nauta-hamborgari kr. 130- stk.
Svínakótelettur kr. 3.270- kg.
Lambalærisneiöar kr. 1.664- kg.
Lambakótilettur kr. 1.496- kg.
Folaldabógsteik kr. 890- kg.
Folaldagrillsteik kr. 890- kg.
Unghænur kr. 1.450- kg.
Kjúklingar kr. 2.090- kg.
Folaldakjöt
Folaldagullasch
Folaldasnitchel
Folaldamörbrá .
Folaldafillet ..
kr. 2.680-
kr. 2.888-
kr. 2.900-
kr. 2.900-
Odýr matarkaup
Kjúklingar 10 stk. í kassa ............... kr. 1.790- kg.
Unghænur 10 stk. í kassa ............... kr. 1.290- kg.
Villigæsir ............................... kr. 3.100- stk.
Nýr svartfugl ............................ kr. 300- stk.
Glænýr lax (heill) ....................... kr. 1.950- kg.
Folaldahakk .............................. kr. 990- kg.
Kálfahryggir ............................. kr. 810- kg.
Saltaö folaldakjöt ...................... kr. 690- kg.
Reykt folaldakjöt ........................ kr. 790 - kg.
Nýtt hvalkjöt ............................ kr. 695- kg.
Reykt hvalkjöt ........................... kr. 750- kg.
10. kg. nautahakk ........................ kr. 2.150- kg.
Bacon í sneiðum ......................... kr. 2.100- kg.
Lambasviö (lækkaö verö) .............. kr. 665- kg.
ATH:
Fránskar lortöfur, frystar, Kynningar-
tilbunar beint i ofninn. verö kr
790.
kg,
Ath: Nú veröur lokaö á laugardögum í
sumar. Verzliö tímanlega.
Opiö föstudaga til kl. 7.
Laugalaek 2, sími 35020.