Morgunblaðið - 21.07.1978, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
Utvarp kl. 10.25:
Sagt fráland-
námi við Rauð-
ará um aldamót
Þáttur Skeggja Ás-
bjarnarsonar „Eg man
það enn“ verður á dagskrá
útvarpsins klukkan 10.25
árdegis í dag.
í þættinum segir Gunn-
ar M. Magnúss rithöfund-
ur frá landnámi Vil-
hjálms Bjarnasonar á
Rauðará um aldamótin. í
staðinn fyrir að flytjast
til Ameríku, eins og svo
margir gerðu á þessum
Gunnar M. Magnúss
rithiifundur.
tíma, flytur Vilhjálmur
frá Eyjafirði til Reykja-
víkur, þar sem hann kaup-
ir lítið kot við Rauðará —
nú Rauðarárstíg — og
setur þar upp stórbú.
Hann græðir upp mikið
tún og reisif 20 kúa fjós
og íveruhús. Að sögn
Skeggja er nú þarna
Höfðahverfi og Klúbbur-
inn ásamt fleiri stöðum.
Sonur Vilhjáms var
Halldór Vilhjálmsson,
fyrrverandi skólastjóri á
Hvanneyri.
„Lög sem leikin verða í
þættinum tengjast öll
þessu efni á einhvern
hátt“, sagði Skeggji Ás-
bjarnarson að lokum.
ER^™ HEVRH!
Sigmar B. Hauksson
Utvarp kl. 22.50:
„Alltaf f jör á
kvöldvaktinni’ ’
Á dagskrá útvarpsins í kvöld klukkan 22.50 er þátturinn
.,Kvöldvaktin“ í umsjá Sigmars B. Ilaukssonar.
Þegar viö spjölluðum viö Sigmar um þaÖ hvað yrði í þættinum í
kvöld sagöi hann: „Ja, það er alltaf fjör á Kvöldvaktinni og svo verður
einnig nú. Fastur liður hjá okkur er að ræða við Árna Björnsson
magister og segir hann hlustendum frá því hvaða dagur er.“
„I þættinum í kvöld verður rætt við starfstúlku í turninum í
Austurstræti um „Turninn góða“ eins og hann hefur verið kallaður.
Einnig spjalla ég við Gunnar Reyni Sveinsson tónlistarmann um
þekkta trommuleikara í heimi djassins og hlustum við á nokkur góð
trommusóló. Ennfremur mun „víbrafónisti" taka lagið,“ sagði
Sigmar.
Að sögn Sigmars verður ennfremur rætt við Skúla Johnsen
borgarlækni um kvef, og danskan mann, Jens Venelskaft, sem er
garðyrkjubóndi, um tómata og tómatarækt og merkilegar nýjungar
sem hann hefur gert á því sviði.
„Auk þess gerist álltaf eitthvað óvænt á kvöldvaktinni,“ sagði
Sigmar að lokum.
Það ætti því að vera vel þess virði að gefa sér klukkutíma í kvöld
til þess að hlusta á Kvöldvaktina.
Útvarp kl. 17.20:
Umhverfið
og náttúran
„HVAÐ er að tarna?“ nefnist
þáttur í umsjá Guðrúnar Guð-
laugsdóttur, sem er á dagskrá
útvarpsins í dag klukkan 17.20.
Þátturinn er einkum ætlaður
börnum og er VIII. þátturinn
af þessu tagi en þeir fjalla
aðallega um náttúruna og
umhverfið.
í þættinum í dag verða
steinar teknir fyrir og sagði
Guðrún okkur að í þættinum
yrði rætt við Sigríði Theódórs-
dóttur jarðfræðing um þetta
efni.
„Hljómsveitin „Rolling
Stones" mun einnig syngja
nokkur lög og lesið verður úr
þjóðsögum sagnir um steina, og
þá helst ýmsa náttúrusteina
eins og óskasteina, fésteina og
lífsteina," sagði Guðrún að
lokum.
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Útvarp Reykjavík
Kálfur á
Hvamms-
tangaveltu
ÁRLEG sumarskemmtun Kvenna-
bandsins verður á Hvammstanga,
29. júlí og 30. júní n.k. Laugardag-
inn 29. verður dansleikur, hljóm-
sveit Stefáns P. leikur fyrir dansi.
Á sunnudag verður hlutavelta og
verður þar margt góðra vinninga,
m.a. lömb og mánaðargamall
kálfur. Kl. 16.30 á sunnudag
verður kvikmyndasýning. — Karl.
Löve-sjóð-
ur orðinn á
5. milljón
SJÓÐI þeim, sem stofnaður var
til minningar um Guðmund Löve,
framkvæmdastjóra Öryrkja-
handalags íslands. til þes að
Ijúka byggingum við Hátún 10,
hafa borizt margar og góðar
gjafir.
Sjóðurinn nemur nú 4,2 milljón-
um króna og hafá gefið í hann 306
félög og einstaklingar. Framlögum
verður áfram veitt viðtaka og eru
minningarkort seld á skrifstofu
Öryrkjabandalags Islands, Hátúni
10, skrifstofu S.I.B.S. Suðurgötu 10
og að Reykjalundi í Mosfellssveit.
Stjórn Öryrkjabandalags ís-
lands þakkar innilega öll framlög
í minningarsjóðinn.
(Frétt frá Öryrkjabandalagi)
FOSTUDKGUR
21. iúlí
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabh
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.35 Af ýmsu tagii Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnannai
Gunnvör Braga les söguna
„Lottu skottu“ eftir Karin
Michaelis (10).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Ég man það enni Skeggi
Ásbjarnarson sér um þátt-
inn.
11.00 Morguntónleikan Lily
Laskine og Lamoureux
hljómsveitin í París leika
Hörpukonsert nr. 1 í d-moll
op. 15 eftir Bochsa> Jean-
Baptiste Mari stj./Isaac
Stern. Pinchas Zukerman og
Enska kammersveitin lcika
Konsertsinfóníu í Es-dúr
fyrir fiðlu, lágfiðlu og hljóm-
sveit (K364) eftir Mozarti
Daniel Barenboim stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Vcðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Við vinnunai
Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.45 Lesin dagskrá næstu
viku
15.00 Miðdegissagani „Ofur
vald ástríðunnar“ eftir
Heinz G. Konsalik. Steinunn
Bjarman les (7).
15.30 Miðdegistónleikari
György Sandor leikur Píanó-
sónötu nr. 9 í C-dúr op. 103
eftir Sergej Prokofjeff.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Popp
17.20 Hvað er að tarna? Guð-
rún Guðlaugsdóttir stjórnar
þætti fyrir börn um náttúr-
una og umhverfiðt VIIL
Steinar.
17.40 Barnalög
17.50 Um notkun hjálpartækja
fyrir blinda og sjónskerta.
Endurtckinn þáttur Arn-
þórs og Gísla Helgasona frá
síðasta þriðjudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ____________________
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kóngsbændadagur í
Danmörku. Séra Árelíus
Níelsson flytur erindi.
20.00 Sinfónía nr. 101 í D-dúr
(Klukku-hljómkviðan) eftir
Joseph Ilaydn. Hljómsveitin
Fflharmonia í Lundúnum
leikuri Otto Klemperer stj.
20.30 í læknishúsinu í Keflavik
og Flensborgarskóla. Þor-
grímur St. Eyjólfsson fyrr-
um framkvæmdastjóri í
Keflavík segir frá í viðtali
við Pétur Pétursson (Hljóð-
ritað í okt. í fyrra).
21.00 Píanókonsert nr. 4 í
g-moll op. 40 eftir Sergej
Rakhmaninoff. Arturo Bene-
detti Michelangeli og hljóm-
sveitin Fflhamonia í Lund-
únum leikai Ettore Gracis
stj.
21.25 Myndir og ljóðbrot.
Iljalti Rögnvaldsson og Kol-
brún Halldórsdóttir lesa úr
bók Vilmundar Gylfasonar.
21.35 Ljóðsöngvar eftir Sch-
ubert. Christa Ludwig syng-
un Irwin Gage leikur á
pfanó.
22.05 Kvöldsagani „Dýrmæta
líf“, — úr bréfum Jörgens
Frantz Jakobsens. William
Heinesen tók saman. Hjálm-
ar ólafsson les (6).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Kvöldvaktin. Umsjóni
Sigmar B. Hauksson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
22. júli
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
gr. daghl. (útdr.).
8.35 Af ýmsu tagii Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.20 óskalög sjúklinga.
Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður
fregnir).
11.20 Það er sama hvar frómur
flækist. Kristján Jónsson
stjórnar þætti fyrir börn á
aldrinum 12 til 14 ára.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SIÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Á sveimi. Gunnar
Kristjánsson og Ilelga Jóns-
dóttir sjá um þáttinn.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir
16.20 Vinsælustu popplögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
16.55 íslandsmótið í knatt-
spyrnu. Hermann Gunnars-
son lýsir leikjum í fyrstu
deild.
17.45 Tónhornið. Stjórnandii
Guðrún Birna Hannesdóttir.
18.15 Söngvar í léttum tón.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ______________________
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Frá Thailandi. Anna
Snorradóttir segir frát —
fyrri þátturi Sumarleyfi við
Síamsflóa.
20.05 Á ópcrupallii Atriði úr
óperunni „Rakaranum í Se-
villa“ eftir Rossini. Manuel
Ausensi, Ugo Benelli, Teresa
Berganza og Nicolaj Ghjau-
rov syngja. Rossini-hljóm-
sveitin í Napolí leikur.
stjórnandii Silvio Varviso.
20.30 Þingvelliri - fyrri þátt-
ur. Tómas Einarsson tók
saman. Rætt við Kristján
Sæmundsson jarðfræðing og
Jón Hnefil Aðalsteinsson
fil.lic. Lesarar. óskar Hall-
dórsson og Baldur Sveins-
son.
21.20 „Kvöldljóð“. Tónlistar-
þáttur í umsjá Ásgeirs
Tómassonar og Ilelga
Péturssonar.
22.05 Allt í grænum sjó. Þáttur
Hrafns Pálssonar og Jör-
undar Guðmundssonar.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.